Morgunblaðið - 09.03.2020, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MARS 2020
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Kolibri trönur
í miklu úrvali, gæða-
vara á góðu verði
Kolibri penslar
Handgerðir þýskir penslar
í hæsta gæðaflokki
á afar hagstæðu verði
Ennþá meira úrval af
listavörum
WorkPlus
Strigar frá kr. 195
9. mars 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 126.02 126.62 126.32
Sterlingspund 163.76 164.56 164.16
Kanadadalur 93.93 94.49 94.21
Dönsk króna 19.063 19.175 19.119
Norsk króna 13.603 13.683 13.643
Sænsk króna 13.418 13.496 13.457
Svissn. franki 134.32 135.08 134.7
Japanskt jen 1.1971 1.2041 1.2006
SDR 175.23 176.27 175.75
Evra 142.4 143.2 142.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 173.4643
Hrávöruverð
Gull 1647.45 ($/únsa)
Ál 1714.0 ($/tonn) LME
Hráolía 50.25 ($/fatið) Brent
● Bandaríska flugmálastjórnin (FAA)
hyggst sekta flugvélaframleiðandann
Boeing um 19,7 milljónir dala fyrir að
hafa komið fyrir skynjurum í hundr-
uðum 737-þota og tengt við framrúðu-
glæju (e. heads-up display) þotanna án
viðeigandi prófana eða leyfa. Reuters
greinir frá þessu og segir búnaðinn að
finna í samtals 791 þotu af gerðinni 737
NG og 737 MAX sem smíðuð var á tíma-
bilinu júní 2015 til apríl 2019. Búnaður-
inn sem um ræðir kom ekki við sögu í
flugslysunum tveimur sem urðu til þess
að allar 737 MAX þotur voru kyrrsettar
á heimsvísu.
Skynjararnir sem Boeing notaði voru
tengdir við leiðsögukerfi frá Rockwell
Collins og voru prófanir gerðar, reglum
samkvæmt, eftir að handvömm Boeing
kom í ljós. Boeing segir skynjarana sem
um ræðir fullnægja kröfum FAA og gott
betur, og að málið varði ekki öryggi vél-
anna heldur skjölunarskyldu flug-
vélaframleiðandans. ai@mbl.is
Vilja sekta Boeing
vegna skynjara
Raunir Boeing 737 MAX-vélar í biðstöðu.
AFP
STUTT
og persónulega reynslu þeirra, og
bæði læra af þeim sem hafa unnið
stóra sigra sem og hinum sem hafa
þurft að takast á við erfiðar og jafn-
vel óyfirstíganlegar áskoranir,“ út-
skýrir Stefán. „Fundir Startup
Grind eiga að höfða til breiðs hóps og
gagnast allt frá frumkvöðlum sem
standa frammi fyrir því að stofna sitt
fyrsta fyrirtæki; yfir í þroskaðri
sprota sem eru að umbreytast í
vaxtarfyrirtæki; og svo þeirra sem
hafa byggt upp stöndugan rekstur
og stefna á sölu eða skráningu í
kauphöll.“
Um leið er ætlunin að Startup
Grind Reykjavík auðveldi íslenskum
sprotafyrirtækjum að fikra sig út í
heim. Bendir Stefán á að alls staðar
þar sem Startup Grind starfi sé unn-
ið eftir ströngum gæðastöðlum og
þess jafnframt gætt að taka á móti
frumkvöðlum með opnum faðmi.
„Við verðum þess nú þegar vör að er-
lendir aðilar tengdir Startup Grind-
verkefninu hafa áhuga á að heim-
sækja okkur og starfa með Startup
Grind Reykjavík, jafnvel þótt við
séum rétt að stíga fyrstu skrefin,“
segir hann. „Fólkið á bak við útibú
Startup Grind er lykilaðilar í ný-
sköpunarumhverfinu á hverjum stað
og er boðið og búið að greiða leið
frumkvöðla og fyrirtækja sem leita
til þess.“
Viðskiptavinir framtíðarinnar
Áhugavert er að skoða hvernig
KPMG á Íslandi hefur lagt sig fram
við að hlúa að nýsköpun og sprota-
rekstri. Musterið, sem kalla mætti
sprotasetur fyrir lengra komna
sprota, varð til sem samstarfsverk-
efni KPMG og tæknifyrirtækisins
Reon, og felur bæði í sér að sprotar
geta fengið þar aðstöðu á mjög hag-
stæðum kjörum, en einnig leitað til
sérfræðinga KPMG og fengið hjá
þeim ráðgjöf og þjónustu ókeypis
eða með miklum afslætti. Reiknast
Stefáni til að síðan Musterið var sett
á laggirnar árið 2015 hafi endurskoð-
unarfyrirtækið gefið nokkra tugi
mannmánaða til verkefnisins.
Stefán segir KPMG m.a. líta á
þetta framlag sem fjárfestingu í
framtíðarviðskiptum. Eftir því sem
sprotarnir verða stærri og burðugri
er dregið úr þeim afslætti sem þeir
njóta og þegar upp er staðið hefur
KPMG eignast stönduga nýja við-
skiptavini með mikla vaxtarmögu-
leika. „Við viljum líka gæta þess að
vera vel tengd inn í tækni- og ný-
sköpunargeirann enda er umhverfi
endurskoðunar að breytast hratt og
hefðbundin endurskoðun að verða
meira sjálfvirk. Til að takast á við
okkar eigin áskoranir þurfum við að
eiga gott tengslanet á meðal tækni-
fyrirtækja.“
Starfsemin í Musterinu er nú þeg-
ar tekin að bera ávöxt og segir Stef-
án algengt að fyrirtæki hafi þar við-
komu í 1-3 ár, eða þangað til þau
sprengja utan af sér það rými sem
þeim stendur til boða. Stefán segir
það eðli sprotafyrirtækja að rekstur-
inn sé áhættusamur og sum fyrir-
tækin reynist ekki lífvænleg, en
engu að síður hafi orðið til fjöldi
stöndugra fyrirtækja í þessum hópi
sem mörg hver séu í dag með nokkra
tugi starfsmanna og selji vörur sínar
og þjónustu erlendis. „Til viðbótar
við Musterið býður KPMG öðrum
sprotafyrirtækjum sérkjör á þjón-
ustu sinni og á síðastliðnum fimm ár-
um hafa um 120 fyrirtæki nýtt sér
þessa þjónustu. Af þeim sem enn eru
starfandi í dag held ég að aðeins eitt
eða tvö hafi farið með endurskoðun-
ar- og ráðgjafarviðskipti sín annað.“
Reynsluboltar ræða málin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Innsæi Stefán Þór segir fundi Startup Grind Reykjavík eiga að gagnast
jafnt frumkvöðlum að stíga fyrstu skref sín og sprotum í örum vexti.
Hjá Startup Grind Reykjavík verður til vettvangur til að fræðast og tengjast
KPMG lítur á stuðning við sprota sem fjárfestingu í framtíðarviðskiptum
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Nýr vettvangur fyrir frumkvöðla og
sprota hefur skotið rótum á Íslandi.
Startup Grind Reykjavík er hluti af
risavöxnu alþjóðlegu sprotasam-
félagi sem á uppruna sinn hjá Google
í Kaliforníu en breiðir núna úr sér til
um 600 borga og byggir starfið eink-
um á því að halda viðburði þar sem
frumkvöðlar geta eflt tengslanetið
og lært hver af öðrum.
„Fundum Startup Grind er oft lýst
sem „spjalli við arineld“, og er form-
ið yfirleitt þannig að frumkvöðull eða
reynslubolti ræðir um verkefni sín
eða feril í u.þ.b. hálftíma og svarar
spurningum gesta í framhaldinu,“
segir Stefán Þór Helgason, ráðgjafi í
nýsköpun og stefnumótun hjá
KPMG og framkvæmdastjóri Start-
up Grind Reykjavík.
Að verkefninu standa KPMG,
Reon og frumkvöðlasetrið Musterið
og munu fundir Startup Grind
Reykjavík fara fram í húsakynnum
Musterisins í Borgartúni 27. Auk
Stefáns hafa sjálfboðaliðar úr hópi
frumkvöðla í Musterinu staðið að
undirbúningi verkefnisins, en fundir
Startup Grind Reykjavík verða öll-
um opnir og ókeypis. Guðmundur
Hafsteinsson verður fyrsti spjall-
gesturinn, fimmtudaginn 19. mars,
en hann á að baki merkilegan feril í
bandaríska tæknigeiranum og stýrði
m.a. verkefnum hjá bæði Apple og
Google.
Fyrir byrjendur
og lengra komna
„Við hyggjumst halda mánaðar-
lega fundi þar sem reynslumikið fólk
eys úr viskubrunnum sínum. Mark-
miðið er að fara djúpt ofan í málin,
kafa ofan í bakgrunn fyrirlesaranna
Viðræður OPEC-ríkjanna og Rúss-
lands um samstillt aðhald í olíufram-
leiðslu runnu út í sandinn á föstudag
og stefnir í verðstríð á olíumarkaði.
FT greinir frá að viðræðurnar hafi
strandað á því að Rússar telji að til-
raunir til að ýta upp olíuverði með
minni framleiðslu gagnist fyrst og
fremst bandarískum fyrirtækjum
sem vinna olíu úr setlögum.
Sádi-Arabía, sem leitt hefur sam-
dráttarverkefni olíuríkjanna, hleypti
af fyrstu skotunum í verðstríði strax
á laugardag og lækkaði verð til kaup-
enda í Bandaríkjunum, Evrópu og
Asíu um allt að 8 dali á fatið.
Hráolíuverð hefur þegar lækkað
um þriðjung það sem af er þessu ári,
einkum vegna áhrifa kórónuveirunn-
ar, og var heimsmarkaðsverð Brent-
hráolíu u.þ.b. 45 dalir á föstudag.
OPEC-löndin, Rússland og tíu ol-
íuframleiðsluþjóðir til viðbótar
gerðu með sér samkomulag í árslok
2016 um að minnka olíuframleiðslu
um u.þ.b. milljón föt á dag, og sam-
mæltust þjóðirnar um 1,8 milljóna
fata framleiðsluminnkun í lok árs
2017.
Utan OPEC standa m.a. Banda-
ríkin, Kanada, Noregur og Brasilía.
Spá markaðsgreinendur að
hráolíuverð kunni nú að fara undir 30
dali á fatið. Mun það þrengja mjög að
bandarískum framleiðendum enda
þarf olíuverð að vera a.m.k. 40 til 60
dalir á fatið til að olíuvinnsla úr set-
lögum borgi sig. Þá mun hrun olíu-
verðs koma sér illa fyrir fjölda fyrir-
tækja í orku- og olíugeira um allan
heim auk þess að bitna á efnahag
þjóða sem reiða sig á olíuframleiðslu.
Hlutabréfaverð Saudi Aramco
lækkaði á sunnudag niður í 30,85
ríala og er nú í fyrsta skipti lægra en
útboðsverð félagsins. ai@mbl.is
Reuters
Dæla Olíuframleiðendur munu
skrúfa frá krananum á næstunni.
Upplausn innan
Olíubandalagsins
Heimsmarkaðs-
verð olíu gæti farið
undir 30 dali