Morgunblaðið - 09.03.2020, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MARS 2020
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
DVERGARNIR PLÚS+
Öflugri undirstöður
DVERGARNIR R
Dvergarnir plús+ henta vel undir merkingar
og skilti. Ofan á þá er hægt að festa úrval
af tengistykkjum, t.d. fyrir skiltarör eða
kaðalgrip til afmörkunar.
NAGGUR PLÚS+ PURKUR PLÚS+ TEITUR PLÚS+
ÁLFUR
PLÚS+
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Staðfest smit vegna kórónuveirufar-
aldursins voru í gær tæplega 108 þús-
und talsins og höfðu þá um 3.700 ein-
staklingar látist, eða 3,4% þeirra sem
greinst höfðu. Samkvæmt upplýsing-
um frá bandaríska háskólanum Johns
Hopkins hafa um 60.700 einstaklingar
náð sér eftir veikindin.
Víða um heim berast daglega til-
kynningar um ný smit vegna kórónu-
veiru. Þannig greinir meðal annars
Sky frá því að staðfest tilfelli séu nú yf-
ir 270 í Bretlandi og hafi fjölgað um 67
smit á einum sólarhring. Í Bretlandi er
nú búið að taka sýni úr rúmlega 23.500
einstaklingum frá upphafi.
„Öryggi almennings er fyrsta for-
gangsmál mitt. Að bregðast við
kórónuveirunni krefst mikils þjóðar-
átaks,“ er haft eftir heilbrigðis-
ráðherra Bretlands.
Sýni aðgætni á ferðalögum
Aðvörunarstig vegna ferða til
Frakklands, Þýskalands, Spánar og
Austurríkis hefur verið hækkað úr
grænu í gult í Danmörku. Með því er
fólki bent á að sýna aðgætni á ferða-
lögum sínum. Þá hafa Danir einnig
hvatt til þess að samkomum með fleiri
en 1.000 þátttakendum verði slegið á
frest út mars.
Ríkisstjórn Ítalíu hefur tilkynnt um
afar róttæka aðgerð, að um 16 millj-
ónir manna, eða um fjórðungur allra
íbúa landsins, skuli sæta sóttkví til að
reyna að hefta útbreiðslu kórónuveir-
unnar. Er um að ræða héraðið Lang-
barðaland, þar sem flest smit hafa orð-
ið þar í landi, og 14 önnur svæði. Gildir
þessi tilskipun til 3. apríl, en á þessum
svæðum eru meðal annars borgirnar
Mílanó, Feneyjar, Rimini og Parma.
Þá hefur jafnframt öllum líkams-
ræktarstöðvum, sundlaugum, söfnum
og skíðasvæðum verið lokað auk þess
sem fresta þarf brúðkaupum, útförum
og öðrum fjölmennum viðburðum og
veislum.
„Við stöndum nú frammi fyrir
þjóðarvá,“ hefur breska ríkisútvarpið
(BBC) eftir Giuseppe Conte, forsætis-
ráðherra Ítalíu. „Við förum út í þessa
aðgerð af miklu hugrekki, festu og
ákveðni. Við verðum að hefta út-
breiðslu þessarar veiru og koma í veg
fyrir að sjúkrahús okkar gefi undan
vegna mikils álags.“
Í gær höfðu minnst 366 manns látist
af völdum veirunnar í Ítalíu og staðfest
tilfelli eru um 7.400.
Veiran setur svip á ríki heims
Ítalir bregðast við af mikilli hörku Staðfestum smitum á Bretlandi fjölgaði um 67 á sólarhring
AFP
Bretland Ung kona sést með grímu
fyrir andliti í lest í Lundúnum.
Aðgerðir stjórnvalda á Ítalíu vegna kórónu-
veirufaraldurs þar í landi settu í gær svip sinn á
sunnudagsmessu Frans páfa. Þannig þurftu þeir
sem safnast höfðu saman á Péturstorgi í
Vatíkaninu að fylgjast með páfa á stórum skjá
því ekki var talið öruggt að halda messu þar með
hefðbundnum hætti. Greint hefur verið frá smiti
í Páfagarði en páfinn er þó sagður hafa sloppið
við kórónuveiruna til þessa.
AFP
Kórónuveira hélt Frans páfa frá Péturstorgi
Recep Tayyip
Erdogan Tyrk-
landsforseti
mun í dag ræða
við fulltrúa
Evrópusam-
bandsins um
málefni flótta-
manna, en
milljónir reyna
nú að flýja yfir
til Evrópu,
einkum frá átakasvæðum Sýr-
lands. Tyrkir, sem til þessa hafa
tekið á móti straumnum, hafa
margsinnis óskað eftir því við
ESB að sambandið taki þátt í
verkefninu með auknum fjár-
framlögum.
„Við vonuðumst eftir mun meiri
aðstoð frá alþjóðasamfélaginu
þegar kemur að flóttafólki. Ég á
fund með fulltrúum Evrópusam-
bandsins í Belgíu, þá förum við
yfir þessi mál,“ sagði Erdogan í
ávarpi sem hann flutti í Istanbúl í
gær.
Alls eru um 3,6 milljónir flótta-
manna í Tyrklandi núna, flestir
þeirra frá suðurhluta Sýrlands.
„Við höfum staðið við okkar þátt
samningsins en ESB aðeins að
hluta við sinn,“ sagði Erdogan.
TYRKLAND
Erdogan fundar með
ESB um flóttafólk
Recep Tayyip
Erdogan
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Orrustuþotur Konunglega breska
flughersins (RAF) voru um helgina
sendar til móts við langdrægar rúss-
neskar sprengjuflugvélar sem tekið
höfðu stefnuna á Bretlandseyjar.
Samkvæmt upplýsingum frá varnar-
málaráðuneyti Bretlands voru sex
orrustuþotur frá tveimur herflug-
völlum sendar af stað. Greint er frá
þessu á breska fréttavefnum Sky.
Alls voru fjórar orrustuþotur
sendar frá Lossiemouth í Norð-
austur-Skotlandi, en vélar á þessari
herstöð gæta vanalega norðursvæðis
Bretlandseyja að ströndum Noregs.
Þá voru tvær þotur sendar frá her-
flugvellinum Coningsby á austur-
strönd Bretlands. Eru vélarnar allar
af gerðinni Eurofighter Typhoon,
sem telst til fjórðu kynslóðar
orrustuþotna, en um er að ræða einn
af vinnuhestum breska flughersins.
Ekki hefur verið greint frá fjölda
rússnesku vélanna. Þær eru þó sagð-
ar vera langdrægar sprengjuvélar af
gerðinni Tupolev TU-95, betur
þekktar sem Björninn.
Komu að þeim í fylkingu
Varnarmálaráðuneyti Bretlands
segir fjórar orrustuþotur hafa flogið
í fylkingu upp að Björnunum. Fljót-
lega hafi svo tvær þotur til viðbótar
komið á vettvang og neytt Birnina til
að breyta um stefnu. Eru þeir þá
sagðir hafa verið að nálgast norð-
vesturströnd Skotlands. Þá var einn-
ig tankvél af gerðinni Airbus A330
MRTT send á loft, en hlutverk henn-
ar var að veita þotunum eldsneyti.
Aðgerð sem þessi er ekki óalgeng
við Bretlandseyjar. Þannig voru orr-
ustuþotur í tvígang sendar til móts
við rússneskar sprengjuvélar í apríl
á síðasta ári.
Sex þotur sendar
gegn Björnum Rússa
Vinnuhestur Eitt helsta tákn kalda stríðsins; Tupolev TU-95 á flugi.