Morgunblaðið - 09.03.2020, Side 19

Morgunblaðið - 09.03.2020, Side 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MARS 2020 ✝ Guðrún Möllerfæddist í Sól- heimakoti í Mýrdal 20. september 1924. Hún lést í Reykjavík 27. febrúar 2020. Foreldrar henn- ar voru hjónin Sig- urður E. Högnason, f. 1888, d. 1960, og Þorgerður Erlings- dóttir, f 1889, d 1974. Systkini hennar voru, Högni, f 1915, d. 2005. Erlingur, f. 1916, d 2000, og Ragnhildur, f. 1918, d. 2011. Eiginmaður Guðrúnar var William Thomas Möller, kennari við héraðsskólann á Skógum, f. á Akureyri 12. mars 1914, d. á Skógum undir Eyjafjöllum 19. júlí 1965. Guðrún og William bjuggu á Skógum þar til William féll frá, og bjó Guðrún síðan þar ásamt börnum sínum þar til þau fluttu öll til Reykjavíkur 1976. Börn þeirra 1) Jóna Sigur- björg, f. 16.11. 1957, hennar börn Guðrún, Thelma Kristín, Þórey Dagmar og William Thomas, Jóna á 4 barnabörn. 2) Kristján Lúðvík, f. 8.7. 1959, maki Ólöf Helga- dóttir, börn þeirra Helga Björk, Willi- am Thomas og Magnús Örn. 3) Sig- ríður Erla, f. 27.7. 1960, maki Jóhann Þór Þórmundsson, synir þeirra Arnar Þór og Einar Þór. 4) Willa Guðrún, f 11.6. 1965, maki Halldór Sigurðsson. Fyrir átti Guðrún dóttur- ina Þorgerði, f. 13.11. 1948, maki Vilhjálmur Guðbjörnsson, d. 2018. William gekk Þorgerði í föðurstað. Guðrún ólst upp í Sólheimakoti til 14 ára aldurs er hún fór sem ráðskona hjá vegavinnuflokki og má segja að matreiðsla og störf tengd matreiðslu hafi síðan verið hennar ævistarf. Vann hún meðal annars sem ráðskona við Skóga- skóla, á Eddu hótelunum og hjá Sjómannaskólanum í Reykjavík. Árið 1979 hóf hún störf hjá Osta- og smjörsölunni þar sem hún starfaði til ársins 1994 er hún lét af störfum fyrr aldurs sakir. Útförin fer fram frá Fossvogs- kirkju í dag, 9. mars 2020, og hefst athöfnin klukkan 13. Hvernig kveður maður þann sem hefur verið manni allt? Móðir, faðir, fræðari, huggari, græðari. Duglegri, sanngjarnari, sterkari, heiðarlegri, réttlátari, heilsteyptari og fallegri mann- eskju þekkjum við ekki og kom- um aldrei til með að þekkja. Eftir að pabbi dó ákvaðstu að byggja hús yfir barnahópinn þinn, en Þorgerður var 17 ára, Jóna var bara tæplega 8 ára, Brói 6 ára, Sigga 5 ára og Willa 5 vikna þegar hann dó. Þú tal- aðir um að á þessum árum hefð- ir þú ekki einu sinni keypt þér sokkapar, við systkinin komum fyrst, svo nýja húsið. Þú fórst til frænda þíns og spurðir hann hvort hann héldi að þú gætir þetta, hann svaraði: Gunna mín, maður getur allt það sem mað- ur vill og þessi orð hafðir þú ávallt að leiðarljósi, þér var ekkert ómögulegt. Svo þegar leið að því að eldri börnin færu í framhaldsskóla þá seldirðu hús- ið og fluttir með okkur til Reykjavíkur, fyrstu árin vannstu á nokkrum stöðum því þú vildir engum skulda. Það sem þú afrekaðir á þessum ár- um er ótrúlegt en ef einhver gat gert þetta, þá varst það þú. Á meðan við bjuggum á Skógum þá varstu í kirkjukór Eyvindarhólakirkju, söngst fal- lega millirödd og minnumst við þess að hafa sofnað út frá orgel- spili þar sem þú varst að æfa þig. Söngur hefur alltaf skipað stóran sess hjá okkur og þau eru mörg skiptin þar sem upp- vaskið var látið bíða aðeins og þess í stað sungið í lok máltíðar og enn í dag er það svo að ef við skreppum systkinin saman í bíl- túr þá er sungið. Þú varst líka í Leikfélagi A-Eyfellinga og þar varst þú í essinu þínu. Það lék allt í höndunum þín- um, hvort sem það var mat- argerð eða handavinna. Þú sást um veislur fyrir hina og þessa, stjórnaðir stóru mötuneyti á Skógum ásamt svo mörgu öðru. Þegar við vorum lítil þá saum- aðir þú á okkur jólafötin, saum- aðir klaustur og harðangur í rúmföt handa okkur, prjónaðir dúka, stóra og litla, vettlinga og sokka, þú sast aldrei auðum höndum. Þú hefðir viljað mennta þig meira, læra hjúkrun, en því miður gafst þér ekki kostur á því, en kossarnir þínir og mjúku lófarnir læknuðu allt. Þér þótti undurmikið vænt um barnabörnin þín og barna- barnabörnin og vissu þau ekk- ert betra en stórt og mikið ömmuknús, þú hlustaðir á þau, kenndir þeim, skildir þau og umvafðir þau ást og hlýju. Árið 2011 kom svo lítill svartur fer- fættur hnoðri inn á heimilið, strákurinn þinn, hann Kolur, þið urðuð strax miklir vinir og máttuð helst ekki hvort af öðru sjá. Þið áttuð fallegt samband, það þurfti engin orð. Er syrtir af nótt, til sængur er mál að ganga, sæt mun hvíldin eftir vegferð stranga, þá vildi ég, móðir mín, að mildin þín svæfði mig svefninum langa. (Örn Arnarson) Elsku mamma, góða nótt, guð geymi þig og takk fyrir allt og allt. Þorgerður, Jóna, Kristján, Sigríður og Willa. Elsku blíða amma mín. Ég er engan veginn tilbúin að kveðja þig. Hvernig kveður maður líka sólina? Hvar finnur maður hug- rekkið og þolið að standa upp- rétt þegar það eina sem maður vill er að skríða í mjúkan öm- mufaðminn og gráta soldið? Með því að kveðja þig finnst mér eins og ég sé að kveðja barnæskuna mína, eins og ég sé endanlega að kveðja Leiru- bakka, Sólheimakot, Bláa Da- hatsúninn, laufabrauðin, tarta- letturnar, ljóðin, kvæðin, skammelið, Skógafoss og rús- ínukökurnar. Ég er engan veg- inn tilbúin að kveðja þig, elsku móðir okkar allra. Þú náðir háum aldri og aldrei breyttist þú. Húðin svo mjúk og brosin og kossarnir svo blíðir. Ég er heppin að hafa átt þig svona lengi og fengið að ganga með þér veginn í yfir fjörutíu ár og allan tímann geta hitt þig og spjallað og sagt þér frá ævin- týrum mínum og skakkaföllum. Ég er ofboðslega tengd þér og eiginlega allt mitt líf hefur þú verið eins konar innri rödd í mér, ég hef vitað á stundinni þegar ég hef gert eitthvað eða sagt eitthvað sem þér myndi ekki líka og reynt þá að breyta eða bæta. Ég hef komið til þín stolt og uppveðruð yfir sigrum mínum og gæfu og einnig oft legið í sófa við hliðina á stólnum þínum og syrgt töpuð tækifæri. Að eiga þig, amma mín, voru svo mikil forréttindi. Þú hefur alltaf verið í hjarta mínu og þar muntu alltaf vera. Ég er ákaf- lega stolt og ánægð með það að þú sért amma mín. Takk fyrir, elsku amma, að hugsa svona vel um okkur öll. Ég mun sakna þín á hverjum degi. Þín Guðrún. Þegar lagt er upp í ferðalag þá er nánast öruggt að eitthvað óvænt muni gerast. Þetta átti við í mínu tilfelli árið 1991 er ég kynntist Siggu. Það er óhætt að segja að sú ferð hafi verið eitt mitt mesta happ í lífinu, því ekki fékk ég bara Siggu heldur fékk ég líka hlutdeild í nýrri fjölskyldu. En það vita allir sem til þekkja að ein manneskja sá um að halda hlutunum þar á réttum kili. Ég hitti Guðrúnu fyrst um haustið þegar mér var boðið í Leirubakkann, og eru mér enn minnisstæð, núna þremur áratugum seinna, erfiðu sporin inn götuna. En strax frá fyrstu stundu kom í ljós að það óöryggi sem leyndist í hug- skotinu var meira en ástæðu- laust. Guðrún tók mér strax eins og væri ég einn úr fjöl- skyldunni, og sýndi mér strax vinarhug og mannkærleika. Guðrún var uppalin í Sólheima- koti í Vestur-Skaftafellssýslu, flyst þaðan að Skógum og hóf búskap með William Thomas Möller um 1956. Eftir tæpan áratug í sambúð grípa örlögin í taumana þegar William fellur frá, og er ekki hægt að ímynda sér hvernig það er að missa maka sinn frá fimm börnum. Þetta áfall mótaði allt hennar líf og fjölskyldunnar, og að öllum líkindum æðruleysið og einbeit- inguna sem hún bar með sér alla tíð. Við Guðrún ræddum ekki mikið um tímann á Skóg- um, þó svo að alltaf bæri eitt- hvað á góma, oftar rætt um uppvaxtarárin í Sólheimakoti og árin fyrir sunnan. Frá Skógum fluttist Guðrún 1975, fyrst til Grindavíkur, þaðan í Leiru- bakkann svo niður í Skeiðarvog 1991 og að lokum í Gautavíkina. Börn Guðrúnar voru öll full- orðið fólk þegar ég kem til sög- unnar og ömmubörnin orðin sjö, og síðan níu með okkar Siggu. Og eins og allir vita þá gilda aðrar reglur hjá ömmum, og því alltaf mikil ásókn í Skeiðarvog- inn. Oftar en ekki kom lítill stubbur heim með nýja húfu eða bara köku í poka. Og þótti það meira en nóg, því þó gjöfin væri ekki stór þá fylgdi henni alltaf einhver hlýja og hluti af henni ömmu. Þannig að nóg var um að vera á þessum árum og að ýmsu að hyggja, afmælis- veislur, jólaboð, fermingar og annað sem þurfti að sinna, og þar var Guðrún á heimavelli. Hún hafði á fyrstu árunum fyrir sunnan starfað í Hótel- og veit- ingaskólanum og drukkið í sig visku meistaranna sem þar störfuðu. Mér eru einnig sér- staklega minnisstæð árin sem við dútluðum við kartöflurækt- ina, þó svo að árangurinn hafi ekki verið alltaf í samræmi við tilefnið. Ekki er hægt að skauta framhjá einu helsta áhugamáli Guðrúnar, bóka- og ljóðalestri. En ég man ekki eftir að nátt- borðið væri bókarlaust og ljóðin kunni hún ófá. Það eru ótal minningar sem koma upp í hug- ann þegar horft er til baka og ógerningur að minnast þeirra allra. En einu mun ég þó aldrei gleyma og það er að Guðrún var einhver sú vænsta og skiln- ingsríkasta manneskja sem ég hef kynnst um ævina, fordóma- laus og hjálpsöm. Það verður erfitt að fylla tómarúmið sem nú myndast, en ef við tendrum sama leiðarljósið og Guðrún lýsti upp sitt líf með, þá mun okkur farnast vel. Guð blessi þig, þín verður sárt saknað af öllum sem urðu svo heppnir að eiga með þér samleið. Jóhann Þórmundsson. Guðrún móðursystir mín hef- ur verið í mínu lífi frá því ég dró fyrst andann. Einstök frænka; raungóð, umhyggjusöm og hvetjandi og þó aldrei væmin á neinn hátt. Blátt áfram, hrein- skilin og skemmtileg. Hún fylgdist með mér og okkur systrum í uppvexti og kom oft á æskuheimili okkar að Hlíðarbóli í Fljótshlíð. Í þrjá vetur var ég svo heimagangur hjá Gunnu meðan ég var í Skógaskóla, þar sem þau William Thomas Möll- er eiginmaður hennar bjuggu. Þar mætti ég ávallt hlýju og vináttu og átti skemmtilegar stundir með góðu fólki. Minn- ingar frá þessum tíma koma oft upp í hugann. Uppgjöf var Gunnu frænku jafnan fjarri. William Thomas lést sumarið 1965, liðlega fimm- tugur að aldri frá fimm ungum börnum. Öllum var brugðið og einhver hefði lagt árar í bát. Við þessar aðstæður var hins vegar eins og Gunnu væri gefinn óvæntur styrkur. Hún tókst á við lífið af dugnaði og æðru- leysi. Reisti sér og börnunum sínum íbúðarhúsið Vinjar í Skógum. Þar bjó fjölskyldan í nokkur ár, en flutti svo til Reykjavíkur. Gunna frænka var jafnan au- fúsugestur þegar stórfjölskyld- an hittist og átti svo til að birt- ast óvænt og fyrirvaralaust á vinafundum. Kát, glaðvær og hafði alltaf eitthvað gott til mála að leggja. Spurði frétta af ættmennum, sagði frá sínu fólki og skemmtileg atvik frá liðinni tíð voru rifuð upp. Í þeim sam- tölum fór aldrei á milli mála hve sterk bönd voru milli Gunnu og móður minnar, Ragnhildar, sem var sjö árum eldri. Þær systur voru einnig um margt líkar; duglegar, fylgnar sér og létu ranglæti ekki ósvarað. Öllu er afmörkuð stund og Gunna frænka er dáin. Eftir lifa minningar um ærlega og góða konu; þær eru mér dýrmæt minning en þó allra helst börn- um hennar og öðrum afkom- endum sem ég votta samúð. Sigrún Gerður Bogadóttir. Guðrún S. Möller Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, REINHOLD GREVE rennismiður, Hraunbæ 103, Reykjavík, lést þriðjudaginn 3. mars. Útför fer fram frá Árbæjarkirkju fimmtudaginn 12. mars klukkan 13. Örn Jóhannesson Dagbjört Ólafsdóttir Jóhannes Jóhannesson Gitte Jepsen Reynir Jóhannesson Patricia Johannesson Róbert Jóhannesson Malene Wichnmann Larsen Viðar Jóhannesson Anna K. Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KNÚTS BJARNASONAR, Kirkjuvöllum 5, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar fyrir góða umönnun. Bryndís Stefánsdóttir Stefanía Knútsdóttir Ólafur Helgi Árnason Knútur Knútsson Elena Orlova Bjarni Knútsson Pálmey Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, mamma, tengdamamma og amma, JÚLÍA LAUFEY GUÐLAUGSDÓTTIR, lést laugardaginn 29. febrúar. Hún verður jarðsungin frá Háteigskirkju fimmtudaginn 12. mars klukkan 13. Hjörtur Hoffmann Guðlaugur Heiðar Hoffmann Maríanna Skúladóttir Ísold Aðalheiður Hoffmann Kristinn Lýður Vigfússon Sunneva Ísis Hoffmann og barnabörn Ein síðasta myndin sem ég tók af pabba er af hon- um og Fylki, stóra bróður hans, þar sem þeir voru að baksa við parketlögn í fyrstu íbúðinni minni. Sjónarhornið er ofan frá á tvo dulítið þunnhærða kolla og ég heyri þá í anda fussa og sveia yfir því hvað eitthvert hornið er skakkt. Þeir voru nefnilega ekki ólíkir, bræðurnir. Þetta voru menn sem vildu að hlutirnir væru gerðir almenni- lega og voru þess vegna alltaf tilbúnir að aðstoða, redda, græja Fylkir Þórisson ✝ Fylkir Þórisson fæddist 8. október 1941. Hann lést 23. febrúar 2020. Útför Fylkis fór fram 6. mars 2020. og gera. Þegar pabbi dó var ómetanlegur stuðningur af Fylki og Bärbel, guðfor- eldrum mínum. Þau hjónin hafa alltaf verið fólk sem hægt er að treysta á, hvort sem maður þurfti tæknilega að- stoð, skynsamlegt álit eða bara skemmtilegt spjall yfir pönnukökustafla. Nú þegar Fylkir er farinn er erfitt að segja hvern maður á að spyrja ráða. Kannski er best að treysta því að allar ráðleggingarnar gegnum árin hafi síast inn og gert okkur sem treystu á þær að sterkari og klárari einstakling- um. Takk fyrir allt, elsku Fylkir. Hvíldu í friði. Margrét Dórothea Jónsdóttir. Mig langar að minnast ömmu minnar með nokkr- um orðum því und- anfarna daga hafa margar góðar minningar rifjast upp. Það var mikill lúxus að hafa ömmu sína í næstu götu sem barn því þá var alltaf lítið mál að rölta yfir í heimsókn. Það var mikið ævintýri að vera á heimili ömmu enda átti hún endalaust af gersemum sem maður mátti leika sér með. Skemmtilegast var að klæða sig upp í hælaskó og fín föt og halda tískusýningu. Og best af öllu var að skoða ofan í skart- gripaskúffur og –skrín og leika sér með skartgripina hennar ömmu. Það voru engin takmörk fyrir því hvað maður mátti róta Anna Guðrún Árnadóttir ✝ Anna Guðrúnfæddist 25. júlí 1924. Hún lést 18. febrúar 2020. Útför hennar fór fram 2. mars 2020. ofan í skúffum og skápum í leit að rétta skóparinu, flíkinni eða skraut- inu. Amma var mikil handavinnukona og kenndi mér meðal annars að sauma, hekla og prjóna. Ég minnist þess að þolinmæði hennar var mikil og ég er mjög þakklát í dag fyrir að hafa lært eitthvað í handavinnu af henni. Það var alltaf notalegt að koma í rólegheitin til ömmu til að teikna, sauma eða skapa eitt- hvað og gæða sér á pönnu- kökum. Svo þegar það var kominn tími til að rölta heim á leið gat maður alltaf verið viss um að amma stóð í glugganum, innan um allar pottaplönturnar og blómin sín, og veifaði bless. Þetta eru dýrmætar minn- ingar. Takk fyrir allar góðu stundirnar, elsku amma. Guðný Hrönn. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.