Morgunblaðið - 09.03.2020, Page 24

Morgunblaðið - 09.03.2020, Page 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MARS 2020 40 ára Jakob er Reyk- víkingur, ólst upp í Seljahverfinu en býr í Kópavogi. Hann er við- skiptafræðingur að mennt og er með MSc.-gráðu í fjár- málum frá Háskóla Ís- lands. Jakob er sérfræðingur í Seðla- bankanum. Maki: Þorgerður Ólafsdóttir, f. 1985, myndlistarmaður. Börn: Valgerður, f. 2010, og Jörundur, f. 2013. Foreldrar: Anders Hansen, f. 1952, og Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir, f. 1956, ferðaþjónustubændur á Leirubakka í Landsveit. Jakob Hansen Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú þarft á allri þinni þolinmæði að halda í samskiptum þínum við fjölskylduna í dag. Núna er ekki góður tími til að taka ákvarðanir sem krefjast skýrrar hugsunar. 20. apríl - 20. maí  Naut Að halda ró sinni í hamagangi lífsins er frábær leið til að útrýma stressi. Taktu svör sem þú hefur beðið eftir góð og gild. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Eitthvað heldur aftur af þér þessa dagana en þú átt ekki auðvelt með að segja nákvæmlega til um hvað það er. Ekki berjast á móti breytingum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Samtakamáttur fólks, ekki síst þeirra sem eru eldri og reyndari, kemur til góða í dag. Reyndu að forðast rifrildi við fjölskylduna. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ættir að ganga úr skugga um heil- indi fólks áður en þú trúir því fyrir hlutum, sem þú vilt ekki að fari lengra. Þú ferð á fræbæra tónleika í kvöld. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þetta er góður dagur fyrir viðskipti og fjárfestingar af ýmsu tagi. Hafðu heiðarleikann að leiðarstjörnu. Þú launar einhverjum greiða. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú er aldeilis upplagt að endurskoða lífsstílinn. Það eru ekki öll kurl komin til grafar í máli sem kom upp í vinnunni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er alltaf gaman að geta komið öðrum á óvart, láttu það eftir þér. Njóttu þess að geta slakað á í kvöld. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert dularfull/ur og spenn- andi í augum viss aðila. Þú átt eftir að ákveða hvert framhaldið verður. Ekki kaupa köttinn í sekknum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Láttu hrokann ekki ná yfirhönd- inni í samskiptum þínum við aðra. Þú ferð fram á að fá hreinskilið svar við fyrir- spurnum þínum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú getur komið ýmsu í verk ef þú bara hefur áhuga á því. Spáðu í það hvort þú getir fundið leið til þess að vera í samvistum við nöldurseggi. Ef ekki skaltu forðast það. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þótt þú hafir í mörg horn að líta máttu aldrei gleyma því að gera eitthvað þér til góða. Nýr kærasta/kærasti kemur til sögunnar. starfi mannauðsstjóra hjá hátækni- fyrirtækinu Völku. Valka framleiðir hátæknivinnslulínur fyrir fisk- vinnslur, er með rúmlega 100 starfs- menn og hefur fengið margar við- urkenningar fyrir nýsköpun og frumkvöðlastarf. „Ég vinn á ótrúlega skemmtilegum vinnustað og er sannarlega lánsamur að fá að taka þátt í uppbyggingarævintýri Völku. Fyrirtækið er að springa út á al- sælli íþrótt hér á landi og hefur búið til her sterkra og dýrmætra íslenskra fyrirmynda.“ CrossFit Sporthúsinu óx hratt ár frá ári og eftir fimm ára samfelldan vöxt ákváðu Leifur Geir og Jónína kona hans að selja stöðina 2013. Næst tók við starf aðstoðarframkvæmda- stjóra og stjórnendaráðgjafa hjá Hagvangi frá 2014-2018, en í byrjun árs 2019 bauðst Leifi Geir að taka við L eifur Geir Hafsteinsson er fæddur 9. mars 1970 í Vestmannaeyjum og ólst hann upp í Eyjum, Reykjavík og Osló 1976- 78. „Ég er mikið Þjóðhátíðarbarn, enda barnabarn Oddgeirs Kristjáns- sonar, og er eiginlega alinn upp í gítarpartíum í hvítu tjöldunum.“ Leifur Geir spilar á ýmis hljóðfæri, mest þó á gítar. „Bítlarnir kenndu mér mest á gítarinn, þá hef ég haldið upp á frá 9 ára aldri og við hjónin heiðrum minningu þeirra með árlegu Bítlapartíi þar sem milli 40 og 50 söngelskir aðdáendur koma saman og syngja saman 50-60 Bítlalög af 100% innlifun við undirleik Leifs Geirs og félaga.“ Leifur Geir gekk í Grunnskóla Vestmannaeyja, varð stúdent af eðlis- fræðibraut Menntaskólans við Hamrahlíð 1989, lauk BS-gráðu í eðlisfræði frá HÍ 1994, kennslurétt- indanámi frá HÍ 1995, söðlaði þá um yfir í vinnusálfræði og lauk MS-gráðu árið 2002 og doktorsgráðu 2004 frá Virginia Tech-háskóla í Bandaríkj- unum. „Ég hef aðeins flakkað um á ferl- inum, samanber BS í eðlisfræði og doktor í vinnusálfræði. Er líklega of mjúkur fyrir eðlisfræðina en kannski í harðara lagi fyrir sálfræðina! Þessi blanda hefur þó reynst mér vel og í starfsferlinum hefur miðlun af ein- hverju tagi verið rauður þráður, hvort sem er með kennslu, ráðgjöf, þjálfun, stjórnendafræðslu, markþjálfun eða öðru.“ Leifur Geir var stærðfræði- og eðlisfræðikennari við Kvennaskólann í Reykjavík 1995-97, starfs- mannastjóri Álits ehf. 1998-2000, dós- ent við viðskiptadeild HR 2004-2010 og framkvæmdastjóri CrossFit Sporthúsinu 2008-2013, en hann var frumkvöðull í þeim bransa. „CrossFit-kaflinn í lífinu var al- gjört ævintýri. Árið 2008 var engin CrossFit stöð á Íslandi og örlögin höguðu því þannig að við hjónin stofn- uðum þá fyrstu. Aðrar komu til sög- unnar stuttu síðar. Við Evert Víg- lundsson byggðum upp CrossFit samfélagið fyrstu árin með mótahaldi og ýmsum viðburðum. Þetta kom af stað hreyfingu sem er orðin að vin- þjóðavettvangi og mjög spennandi tímar framundan.“ Leifur Geir viðurkennir að vera dá- lítill dellukarl, sérstaklega þegar kem- ur að íþróttum. Hann lék 101 leik í efstu deild í knattspyrnu með ÍBV og Stjörnunni og skoraði í þeim 34 mörk. Hann fékk bronsskóinn sem þriðji markahæsti maður efstu deildar 1991 og varð Íslandsmeistari með ÍBV 1997. „Ég er þó líklega stoltastur af því að hafa verið einn þriggja aðalleik- stjóra ÍBV „fagnasumarið mikla 1995“ og að hafa samið lag og texta stuðningsmannalags ÍBV „Komum fagnandi“, sem spilað er á hverri Þjóðhátíð enn þann dag í dag. Eftir að fótboltaferlinum lauk hef ég prófað ýmislegt og tek yfirleitt 3-4 einbeitt ár í hverju sporti. Eftir CrossFit ævintýrið stundaði ég götu- hjólreiðar, fékk m.a. að vera liðsstjóri í hjólaliðinu Team Topcon sumarið 2017 og hjólaði ári síðar frá Kolding í Danmörku til Parísar með góðgerðar- verkefninu Team Rynkeby. Upp úr aldamótum tók ég fjögur ár í golfi þar sem ég náði forgjöfinni úr 36 í 7,9 og ég tefldi mikið sem unglingur. Nýj- asta áhugamálið er gönguskíðin, sem ég fann aftur 40 árum eftir að hafa flutt heim frá Noregi 1978. Nú er ég skráður í 50 km Fossavatnsgöngu 18. apríl og er á fullu að æfa fyrir hana um þessar mundir – þetta gengur sig víst ekki sjálft! Fjölskylda Eiginkona Leifs Geirs frá 8.7. 2006 er Jónína Björg Bjarnadóttir, f. 7.4. 1970, framkvæmdastjóri. Þau eru bú- sett í Hafnarfirði. Foreldrar Jónínu eru hjónin Bjarni Þ. Guðmundsson, f. 12.8. 1941, bifreiðasmiður og Guðrún C. Whitehead, f. 25.11. 1941, bókari, búsett í Reykjavík. Börn Leifs Geirs og Jónínu eru 1) Guðrún Linda Pétursdóttir White- head, stjúpdóttir Leifs, CrossFit þjálfari, bús. í Hafnarfirði. Í sambúð með Árna Frey Bjarnasyni, yfirþjálf- ara CrossFit Sporthúsinu. Sonur þeirra er Atlas Bjarni Árnason, f. 2019, og stjúpdóttir Guðrúnar Lindu er Natalía Líf Árnadóttir, f. 2006; 2) Kristín Inga Pétursdóttir Whitehead, stjúpdóttir Leifs, nemi í sjávarútvegs- Leifur Geir Hafsteinsson, mannauðsstjóri Völku ehf. – 50 ára Þjóðhátíð Leifur Geir á brennunni ásamt börnum og barnabörnum 2019. Fjölbreytt líf og bjart framundan Hjónin Jónína og Leifur Geir í Flatey á leið í Svefneyjar. 30 ára Auður er Hafn- firðingur en býr í Garðabæ. Hún er förðunarfræðingur að mennt og hefur nýlok- ið námi til löggildingar fasteignasala. Auður er flugfreyja hjá Ice- landair. Maki: Jón Þór Eggertsson, f. 1985, raf- virki og vinnur hjá bílaumboðinu Öskju. Synir: Baltasar Breki, f. 2012, og Rúrik Leó, f. 2015. Foreldrar: Magnús Sverrisson, f. 1961, sjálfstætt starfandi, búsettur í Kópavogi, og Sigríður Esther Hallbjörnsdóttir, f. 1962, vinnur í prjónagalleríi í Danmörku, búsett í Holbæk. Auður Magnúsdóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.