Morgunblaðið - 09.03.2020, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MARS 2020
England
Chelsea – Everton.................................... 4:0
Burnley – Tottenham............................... 1:1
Liverpool – Bournemouth ....................... 2:1
Arsenal – West Ham................................ 1:0
Crystal Palace – Watford ........................ 1:0
Sheffield United – Norwich..................... 1:0
Southampton – Newcastle....................... 0:1
Wolves – Brighton.................................... 0:0
Manch. Utd – Manch. City ...................... 2:0
Staðan:
Liverpool 29 27 1 1 66:21 82
Manch.City 28 18 3 7 68:31 57
Leicester 28 15 5 8 54:28 50
Chelsea 29 14 6 9 51:39 48
Manch.Utd 29 12 9 8 44:30 45
Wolves 29 10 13 6 41:34 43
Sheffield Utd 28 11 10 7 30:25 43
Tottenham 29 11 8 10 47:40 41
Arsenal 28 9 13 6 40:36 40
Burnley 29 11 6 12 34:40 39
Crystal Palace 29 10 9 10 26:32 39
Everton 29 10 7 12 37:46 37
Newcastle 29 9 8 12 25:41 35
Southampton 29 10 4 15 35:52 34
Brighton 29 6 11 12 32:40 29
West Ham 29 7 6 16 35:50 27
Watford 29 6 9 14 27:44 27
Bournemouth 29 7 6 16 29:47 27
Aston Villa 27 7 4 16 34:52 25
Norwich 29 5 6 18 25:52 21
Þýskaland
Bayern München – Augsburg................ 2:0
Alfreð Finnbogason kom inn á hjá Augs-
burg á 76. mínútu.
Frakkland
Dijon – Toulouse...................................... 2:1
Rúnar Alex Rúnarsson varði mark Di-
jon, sem komst 7 stigum frá fallsæti.
Belgía
Oostende – Genk...................................... 2:4
Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með
Oostende.
Búlgaría
Botev Vratsa – Levski Sofia................... 0:0
Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn
með Levski, sem er í þriðja sæti.
Danmörk
Randers – Midtjylland............................. 0:2
Mikael Anderson kom inn á sem vara-
maður á 66. mínútu hjá Midtjylland.
Nordsjælland – Bröndby ........................ 2:2
Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
með Bröndby.
SönderjyskE – OB ................................... 1:1
Eggert Gunnþór Jónsson fór af velli hjá
SönderjyskE á 68. mínútu. Aron Elís
Þrándarson lék allan leikinn með OB.
Þýskaland
Melsungen – Wetzlar .......................... 28:26
Guðmundur Þ. Guðmundsson er þjálfari
Melsungen. Viggó Kristjánsson skoraði 2
mörk fyrir Wetzlar.
Balingen – Minden .............................. 26:25
Oddur Gretarsson skoraði 4 mörk fyrir
Balingen.
Dortmund – Neckarsulmer................ 35:25
Birna Berg Haraldsdóttir skoraði 5
mörk fyrir Neckarsulmer.
Danmörk
Aalborg – Skjern ................................. 28:28
Ómar Ingi Magnússon skoraði 2 mörk
fyrir Aalborg. Björgvin Páll Gústavsson
varði 7 skot í marki Skjern.
GOG – Kolding..................................... 36:33
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 6 mörk
fyrir GOG og Arnar Freyr Arnarsson 2.
Viktor Gísli Hallgrímsson varði 5 skot.
SönderjyskE – Fredericia .................. 30:22
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 2
mörk fyrir SönderjyskE.
Svíþjóð
Västerås – Skuru................................. 22:29
Eva Björk Davíðsdóttir skoraði 2 mörk
fyrir Skuru.
Frakkland
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
París SG – Dunkerque ........................ 32:21
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 3 mörk
fyrir PSG.
Þýskaland
Crailsheim – Alba Berlín.................... 91:82
Martin Hermannsson skoraði 22 stig og
átti 9 stoðsendingar fyrir Alba en hann lék í
29 mínútur. Lið hans er í fjórða sæti.
Spánn
Real Madrid – Zaragoza..................... 92:70
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 6 stig
fyrir Zaragoza og tók 4 fráköst á 17 mín-
útum. Lið hans er í þriðja sæti.
Bretland
Cardiff Met – Leicester Riders.......... 61:84
Sara Hinriksdóttir skoraði 22 stig fyrir
Leicester, tók 11 fráköst og átti 4 stoðsend-
ingar á 27 mínútum. Liðið er í 2. sæti.
staða í „baráttunni“ um enska
meistaratitilinn. City er nú 25 stig-
um á eftir Liverpool, sem gæti orð-
ið meistari án þess að spila áður en
kemur að næsta leik, gegn Everton
16. mars. Í millitíðinni leikur City
við bæði Arsenal og Burnley, og ef
Pep Guardiola og hans menn tapa
báðum leikjum verður Liverpool
meistari 14. mars.
Liverpool náði að rétta sig af á
ný með því að sigra Bournemouth
2:1 í hádegisleiknum á laugardag en
lenti þó snemma undir. Mohamed
Salah og Sadio Mané skoruðu fyrir
hlé og sáu til þess að liðið ynni 22.
heimaleik sinn í röð og bætti gamla
metið í deildinni, sem félagið átti
sjálft, frá árinu 1972.
Skellur á Stamford Bridge
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í
Everton geta nánast gleymt því að
ná Evrópusæti eftir skell á Stam-
ford Bridge, 4:0, í gær. Þeir eru
reyndar aðeins sex stigum á eftir
Wolves og Sheffield United sem eru
í fimmta og sjötta sætinu en leik-
urinn í London var tækifæri sem
Carlo Ancelotti og hans menn höfðu
til að draga verulega á liðin í Evr-
ópubaráttunni. Nú situr Everton
hins vegar eftir í tólfta sæti, með
níu mörk í mínus, og þarf magn-
aðan endasprett á mótinu til að
blanda sér í einhverja baráttu úr
þessu. Gylfi var fyrirliði Everton og
spilaði allan leikinn, á vinstri kant-
inum lengi vel en síðan inni á miðj-
unni, en náði sér ekki á strik frekar
en samherjar hans. Mason Mount
og Pedro skoruðu á fyrstu 20 mín-
útunum og eftir að Willian og Oli-
vier Giroud bættu við mörkum á
fyrstu níu mínútum síðari hálfleiks
voru síðustu 35 mínútur leiksins
hreint formsatriði.
Jóhann Berg Guðmundsson er
ekki enn farinn að spila með Burn-
ley eftir meiðslin í ársbyrjun. Hann
var ekki í hópnum þegar liðið gerði
jafntefli, 1:1, við Tottenham á
laugardaginn.
Fyrsta tvenna
United frá 2010
Liverpool meistari án þess að spila?
AFP
Sigur Scott McTominay fagnað eftir seinna mark Manchester United í gær.
ENGLAND
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Manchester United fagnaði fyrstu
tvennunni gegn grönnum sínum í
City í ensku úrvalsdeildinni í heilan
áratug á Old Trafford í gær. Sigur
United, 2:0, þýðir að í fyrsta skipti
frá 2010 vann liðið báða granna-
slagina í deildinni, og um leið
styrktu strákarnir hans Ole Gunn-
ars Solskjær stöðu sína í slagnum
um sæti í Meistaradeild Evrópu.
Anthony Martial skoraði eftir
skemmtilega útfærða aukaspyrnu á
30. mínútu og á sjöttu mínútu í upp-
bótartíma sendi Scott McTominay
boltann í tómt mark City af 30
metra færi eftir slæm mistök Eder-
sons í marki þeirra ljósbláu.
United komst með sigrinum í
fimmta sætið, þremur stigum á eftir
Chelsea. Þá varð með þessu til ný
FH varð á laugardaginn bikarmeistari í frjáls-
íþróttum innanhúss, en Hafnfirðingarnir fengu flest
stig í heildarstigakeppninni í Laugardalshöllinni.
FH fékk samtals 107 stig, ÍR varð í öðru sæti með
102 stig, Breiðablik fékk 79 stig, Fjölnir/Aftureld-
ing 57 stig, HSK 48 stig, B-lið ÍR 46 stig, B-lið FH
fékk 45 stig og KFA frá Akureyri fékk 12 stig.
Hafnfirðingar sigruðu líka í bæði karla- og
kvennakeppninni og mjótt var á munum hjá hvorum
tveggja. Í kvennakeppninni fékk FH 58 stig gegn 56
hjá ÍR og 45 hjá Breiðabliki en í karlakeppninni
fékk FH 49 stig, ÍR 46 og Breiðablik 34 stig í þrem-
ur efstu sætunum.
FH bikarmeistari
í frjálsíþróttum
Ljósmynd/FRÍ
Sigurliðið FH-ingar eru bikarmeistarar í frjálsíþróttum innanhúss 2020.
Íþróttamálaráðherra Ítalíu, Vin-
cenzo Spadafora, mæltist til þess í
gær að leikjum í ítalska fótbolt-
anum yrði alfarið frestað næstu
vikurnar vegna kórónuveirunnar.
Hann fylgdi þar í fótspor forseta
ítölsku leikmannasamtakanna,
Damiano Tommasi, sem sagði á
laugardag að fresta ætti öllum
leikjum því leikmennirnir væru
sjálfir í hættu með því að spila.
Þessa dagana fara allir leikir
fram án áhorfenda en litlu munaði
að hætt væri við leik Parma og
SPAL í A-deildinni í gær, vegna
deilna um hvort hann skyldi fara
fram eða ekki. Hann hófst að lokum
eftir 75 mínútna töf. Allir fimm
leikirnir sem á dagskrá voru í A-
deildinni fóru fram í gær.
Birkir Bjarnason, landsliðsmaður
Íslands, leikur með Brescia í Lomb-
ardia-héraði, þar sem útbreiðsla
veirunnar hefur verið mest frá
byrjun. Brescia á að leika á útivelli
gegn Sassuolo, öðru liði frá norður-
hluta Ítalíu, í dag. Brescia hefur
ekki spilað leik síðustu sautján
daga.
Padova, lið Emils Hallfreðssonar
í C-deildinni, hefur ekki spilað í
þrjár vikur en á næsta leik á mið-
vikudag.
Spezia, lið Sveins Arons Guðjohn-
sens í B-deildinni, lék hins vegar við
Juve Stabia í suðurhluta Ítalíu í
gær. Leikir Spezia hafa ekki rask-
ast vegna veirunnar en þetta var
fjórði deildarleikur liðsins á fimm-
tán dögum. vs@mbl.is
AFP
Tómt Engir áhorfendur voru á toppslag Juventus og Inter í gærkvöldi.
Vilja að öllum leikjum
á Ítalíu sé frestað
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þótt Skotar séu fjórum sætum á
eftir Íslendingum á heimslista
FIFA í kvennafótbolta er ekki ann-
að að sjá en að skoskar knatt-
spyrnukonur séu komnar nokkrum
skrefum fram úr þeim íslensku ef
marka má tvær síðustu viðureignir
þjóðanna.
Í annað sinn á tólf mánuðum
vann Skotland tiltölulega léttan
sigur á Íslandi þegar liðin mættust
í Pinatar-mótinu á Spáni á laugar-
daginn. Reyndar urðu lokatölur að-
eins 1:0, sem var vel sloppið hjá ís-
lenska liðinu, en á sama tíma í
fyrra vann Skotland mjög sannfær-
andi sigur, 4:1, þegar liðin mættust
í Algarve-bikarnum í Portúgal.
Rétt eins og í leiknum fyrir ári
réð skoska liðið algjörlega ferðinni
í San Pedro del Pinatar á laugar-
daginn. Íslenska liðið átti lengst af
í vandræðum með að komast af
eigin vallarhelmingi og gerði sig
sárasjaldan líklegt í námunda við
skoska markið. Aukaspyrna Gunn-
hildar Yrsu Jónsdóttur í vítabog-
anum var fyrsta og besta færi ís-
lenska liðsins, á 58. mínútu, en hún
skaut yfir mark Skota. Þremur
mínútum áður hafði Abbi Grant
skoraði markið sem skildi liðin að
með laglegu skoti hægra megin úr
vítateignum.
Fanndís Friðriksdóttir kom inn á
seint í leiknum og komst í færi í
uppbótartímanum en skaut
framhjá marki Skota. Þar með eru
upptalin þau skipti sem marki
Skota var ógnað. Annars stóð
Sandra Sigurðardóttir vaktina í
marki Íslands með mikilli prýði,
varði nokkrum sinnum vel frá
Skotunum, og segja má að frammi-
staða hennar og hinnar 16 ára
gömlu Cecilíu Ránar Rúnarsdóttur
í fyrsta leiknum gegn Norður-Írum
sé það eina jákvæða sem stendur
upp úr eftir leikina tvo á Pinatar-
mótinu.
Ísland mætir Úkraínu í loka-
leiknum á morgun. Úkraína tapaði
3:0 fyrir Skotlandi en burstaði síð-
an Norður-Írland 4:0 á laugardag-
inn. Ljóst er að þar þarf íslenska
liðið að sýna aðrar og betri hliðar á
sér en til þessa á mótinu, ætli það
að ná sigri og öðru sæti mótsins.
Búnar að missa Skota
langt fram úr sér?
Morgunblaðið/Eggert
Örugg Sandra Sigurðardóttir stóð
fyrir sínu í íslenska markinu.