Morgunblaðið - 16.03.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.03.2020, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 1 6. M A R S 2 0 2 0 Stofnað 1913  64. tölublað  108. árgangur  STÖÐUGT AÐ LEITA AÐ SANN- LEIKA OG ORKU FÁSÉÐAR TEIKNINGAR OG MÁLVERK FJÓRUM SINNUM Á MEÐAL TÍU EFSTU RAFAEL 28 VALDÍS ÞÓRA 26PÁLL ÓSKAR 24 A ct av is 91 10 13 Omeprazol Actavis 20mg, 14 og 28 stk. Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka- verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is Landinn hefur gjarnan nýtt sér helgarnar til þess að líta í verslanir og sinna ýmsum erindum en í gær var öðruvísi um að litast. Sáralítið var um fólk á ferli í Smáralindinni á há- annatíma í gær, um klukkan fjögur á sunnudegi, og má líklega rekja fámennið til þeirra fordæmalausu aðstæðna sem skapast hafa vegna útbreiðslu kór- ónuveirunnar. Samkvæmt upplýsingum frá Al- mannavörnum er litið á sameignir Smáralindar og Kringlunnar með sama hætti og göngugötu Lauga- vegarins. Hins vegar gilda fjöldatakmarkanir í öllum verslunum og þjónusturýmum þar sem ekki fleiri en hundrað manns mega koma saman. Fáir á ferðinni degi fyrir samkomubann Morgunblaðið/Sigurður Unnar Ragnarsson Í Smáralindinni klukkan fjögur í gær MKórónuveira » 2, 4, 6, 8, 9, 13, 14, 26 og 27 Stefán Einar Stefánsson ses@mbl.is Forsvarsmenn Icelandair Group hafa unnið að því sleitulaust síðustu sólarhringa að átta sig á hvaða áhrif ferðabönn Bandaríkjastjórnar, Dan- merkur og Noregs hafa á flugáætlun félagsins á komandi vikum. Ljóst er að til skamms tíma mun draga veru- lega úr starfsemi félagsins vegna áhrifa af útbreiðslu kórónuveirunnar og þeirra aðgerða sem ríkisstjórnir í Evrópu og Bandaríkjunum eru að grípa til vegna ástandsins. Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice- landair Group, fundaði með ráðherr- um úr ríkisstjórn Íslands og ráðu- neytisstjórum síðdegis í gær og fór þá yfir stöðu mála. Ljóst er að sú ákvörðun stjórnvalda á laugardag að hvetja Íslendinga til þess að lág- marka ferðalög út fyrir landsteinana og að skora á Íslendinga erlendis að flýta heimför hefur mikil áhrif á veigamikinn heimamarkað félags- ins. Heimildir Morgunblaðsins herma að nú sé gert ráð fyrir því að flug- áætlun Icelandair fyrir komandi sumar muni dragast saman um 25- 35% miðað þá áætlun sem nú er í gildi. Samkvæmt áætlun félagsins hugðist það flytja 4,2 milljónir far- þega á þessu ári. Nú er gengið út frá því að farþegafjöldinn verði langt undir fjórum milljónum. Í gærkvöldi fundaði stjórn Ice- landair Group og fór yfir stöðu mála. Um helgina hafa forsvarsmenn fé- lagsins einnig fundað með forystu- fólki Félags íslenskra atvinnuflug- manna og Flugfreyjufélags Íslands. Heimildir Morgunblaðsins herma að á þeim fundum hafi fulltrúum félag- anna verið gerð grein fyrir því að staða Icelandair, eins og annarra flugfélaga sem sinna áætlunarflugi yfir Atlantshafið, sé grafalvarleg. Samkvæmt tilkynningu sem barst frá félaginu seint í gærkvöld er unnið að því að lágmarka áhrif kórónuveir- unnar á sjóðstreymi félagsins og m.a. unnið með stéttarfélögum til að lækka launakostnað verulega. Hefur áhrif um allan heim Ljóst er að kórónuveirufaraldur- inn hefur haft áhrif víða og greip bandaríski seðlabankinn til þess ráðs í gær að lækka stýrivexti niður í nán- ast 0% til að berjast gegn neikvæð- um efnahagsáhrifum veirunnar. Fyrstu viðbrögð við opnun mark- aða í Asíu, í gærkvöldi á okkar tíma, benda til að þessar aðgerðir dugi ekki til að róa fjárfesta en sam- kvæmt þeim er gert ráð fyrir 4% lækkun á bandaríska markaðnum í dag. Icelandair fundar með ráðherrum  Ráðgert að flugáætlun dragist saman um 25-35% miðað við þá áætlun sem er í gildi  Stjórn Ice- landair Group fundaði í gærkvöld  Seðlabanki Bandaríkjanna lækkaði stýrivexti sína niður í nær 0% M Fjöldi flugfélaga í vanda »12 Morgunblaðið/Sigurður Unnar Ragnarsson Fundahöld Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra og Guðmundur Árna- son, Ragnhildur Hjaltadóttir og Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjórar.  Báðir stofnar kórónuveiru hafa greinst hérlendis, S-stofn og L- stofn, en sá síðari virðist valda meiri veikindum. Íslensk erfðagreining hóf skim- anir fyrir veirunni síðastliðinn föstudag og hafa nú rúmlega 2.500 einstaklingar mætt í skimun. Níu sýni af þeim 1.222 sem höfðu verið greind þegar Morgunblaðið fór í prentun í gær voru jákvæð. Kári Stefánsson, forstjóri Ís- lenskrar erfðagreiningar, segir að markmið skimunarinnar sé að fækka þeim sem smitast. Samkomubann tók gildi á mið- nætti og segir sóttvarnalæknir að slíkt bann hafi reynst vel í barátt- unni við aðra faraldra. »2 Báðar tegundir kór- ónuveirunnar hafa greinst á Íslandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.