Morgunblaðið - 16.03.2020, Blaðsíða 9
Sprenging varð í sumarbústað í
Langadal um klukkan ellefu á laug-
ardagsmorgun. Sex voru í bústaðn-
um þegar sprengingin varð, allt
ungt fólk, en samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni á Norður-
landi vestra voru þrír fluttir á
slysadeild á Akureyri.
Hinir slösuðu voru allir með með-
vitund og voru ekki alvarlega slas-
aðir. Tveir voru þó með sýnilega
áverka.
Talsvert tjón varð á sumar-
bústaðnum og þurfti að losa fólkið
úr braki bústaðarins þegar björg-
unaraðilar komu á vettvang, en
fjölmennt lið lögreglu, slökkviliðs
og björgunarsveita brugðust við til-
kynningu um sprenginguna.
Tæknideild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu fór norður til
að rannsaka slysstaðinn, en talið er
að gas frá grilli hafi valdið spreng-
ingunni. Lögreglan hafði ekki upp-
lýsingar um líðan fólksins þegar
eftir því var leitast í gærkvöldi.
Sumarbústaðurinn er mikið
skemmdur eftir sprenginguna.
Sprengingin líklega
vegna gasgrills
Morgunblaðið/Pétur Davíðsson
Bústaður Sprengingin varð á laugardag.
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. MARS 2020
Fuglaathugunarstöð Suðaustur-
lands greindi frá því í gær að sést
hefði til vorboðans ljúfa, lóunnar, á
Flóanum við Höfn í Hornafirði. Er
hún heldur fyrr á ferðinni en í
fyrra, þegar fyrsta lóan sást í lok
mars.
Fyrir helgi voru dæmi þess að
fólk á hressingargöngu á höfuð-
borgarsvæðinu taldi sig hafa heyrt
í heiðlóu. Þegar þetta var borið
undir Jóhann Óla Hilmarsson, for-
mann Fuglaverndar, taldi hann af-
ar ólíklegt að svo hefði verið. Taldi
hann líklegra að fólk hefði heyrt í
stara herma eftir lóu. Það sé þekkt
fyrirbæri, og lóan þurfi ekki að
vera komin til þess að stari gerist
eftirherma. „Það hefur heyrst lóuk-
vak frá stara nokkrum vikum áður
en þær fyrstu sýna sig,“ bætti Jó-
hann Óli við.
Ekkert hefur sést til vetrarlóu
líkt og undanfarna vetur í fjörum á
Suðurnesjum og innnesjum. „Enda
er þetta búinn að vera leiðinda-
vetur og síðustu lóurnar komu sér í
burtu í nóvember.“ bjb@mbl.is
Lóan sást á Flóanum
við Höfn um helgina
Morgunblaðið/Ómar
Lóur Vorboðinn ljúfi lét sjá sig í Hornafirði í gær, heldur fyrr en vanalega. Meðalkomutími hefur verið 23. mars.
Bubbi Morthens mun halda tón-
leika á fjölum Borgarleikhússins
alla föstudaga á meðan á
samkomubanni stendur. Þetta
staðfesti Brynhildur Guðjónsdóttir
Borgarleikhússtjóri í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
„Kórónutónleikar með Bubba
Morthens verða í beinu streymi úr
Borgarleikhúsinu á föstudögum
klukkan tólf,“ sagði hún, hæst-
ánægð með uppátækið.
Aukinheldur sagði Brynhildur
að unnið væri að því að útfæra
starfsemi leikhússins og reyna að
leita leiða til að halda listinni á
lofti meðan á samkomubanni stæði.
Þar væri m.a. verið að skoða
streymi á leiksýningum. „Við þurf-
um að sjá hvað tveggja metra rým-
ið leyfir okkur, hvers konar starf-
semi við getum haldið úti. Við
eigum fullt af uppteknu efni og
getum verið með leiklestra og ann-
að sniðugt.“
Bubbi með
„kórónutónleika“
alla föstudaga
Kóngurinn Bubbi ætlar að halda tónleika
alla föstudaga samkomubannsins.