Morgunblaðið - 16.03.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. MARS 2020
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
● Fimmtudaginn 19.
mars heldur VÍS aðalfund
og var á laugardag til-
kynnt um framboð til
stjórnar. Eftirfarandi gefa kost á sér til
setu í stjórn: Guðný Hansdóttir, Ína Björk
Hannesdóttir, Jón Gunnar Borgþórsson,
Marta Guðrún Blöndal, Már Wolfgang
Mixa, Stefán Stefánsson, Valdimar Svav-
arsson og Vilhjálmur Egilsson. Marta,
Valdimar og Vilhjálmur sitja nú þegar í
fimm manna stjórn félagsins. Jón Gunnar
og Már gefa einnig kost á sér sem vara-
menn, auk Ragnheiðar H. Magnúsdóttur
og Sveins Friðriks Sveinssonar. ai@mbl.is
Átta vilja í stjórn VÍS
16. mars 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 134.19 134.83 134.51
Sterlingspund 169.09 169.91 169.5
Kanadadalur 97.15 97.71 97.43
Dönsk króna 20.029 20.147 20.088
Norsk króna 13.358 13.436 13.397
Sænsk króna 13.76 13.84 13.8
Svissn. franki 141.84 142.64 142.24
Japanskt jen 1.2617 1.2691 1.2654
SDR 185.08 186.18 185.63
Evra 149.71 150.55 150.13
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 175.6309
Hrávöruverð
Gull 1588.15 ($/únsa)
Ál 1642.0 ($/tonn) LME
Hráolía 32.85 ($/fatið) Brent
BAKSVIÐ
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Víða um heim bera forstjórar flug-
félaga sig illa og biðla til stjórn-
valda að hlaupa undir bagga með
einhverjum hætti. Sum stærstu
flugfélög heims hafa fellt niður
fjölda ferða og sagt starfsfólki upp
störfum tímabundið.
Að því er Sky News greinir frá
munu bresk flugfélög biðja ríkis-
stjórn Borisar Johnsons um allt að
7,5 milljarða punda stuðning.
Regnhlífarsamtökin Airlines UK,
sem gæta hagsmuna flugfélaga á
borð við British Airways, Virgin
Atlantic og Ryanair, segja brýnt að
stjórnvöld bregðist við án tafar ella
kunni framtíð breska fluggeirans
að vera í hættu.
Norwegian Air er í hópi þeirra
flugfélaga sem hafa fengið hvað
harðastan skell vegna kórónuveir-
unnar. Á fundi með blaðamönnum í
Osló á föstudag sagði Jackob
Schram, forstjóri flugfélagsins, að
reksturinn þarfnaðist aukins fjár-
magns með hraði. „Áríðandi er að
það takist að styrkja lausafjárstöðu
félagsins strax á næstu vikum, ekki
á næstu mánuðum,“ sagði hann en
hlutabréfaverð félagsins hefur
lækkað um u.þ.b. 80% frá því um
miðjan febrúar. Óvissa hefur verið
um reksturinn frá ársbyrjun 2019
en þá lækkaði hlutabréfaverðið á
skömmum tíma úr 20 dölum niður í
u.þ.b. 5 dali á hlut.
Líkt og Morgunblaðið greindi frá
greip Norwegian til þess ráðs á
fimmtudag að segja helmingi
starfsmanna flugfélagsins tíma-
bundið upp störfum og fella niður
um 4.000 flugferðir vegna þess
ástands sem kórónuveiran hefur
skapað á mörkuðum. Schram segist
vongóður um að norsk stjórnvöld
liðsinni flugfélaginu og brást ríkis-
stjórn Noregs við strax á föstudag
með því að fella niður ákveðna
skatta og gjöld á flugfélög til að
létta þeim róðurinn.
SAS skellir í lás
Stjórnvöld í Frakklandi og Hol-
landi hafa þegar gefið til kynna að
þau muni leggja sig fram við að
hjálpa Air France-KLM. Þá mun
ríkisstjórn Þýskalands í dag funda
með fulltrúum þýskra flugfélaga
um hvort ríkisaðstoðar sé þörf. FT
segir líklegt að ítölsk stjórnvöld
muni þurfa að hjálpa Alitalia, en fé-
lagið hefur þegar fengið 900 millj-
ónir evra að láni frá hinu opinbera
frá árinu 2017 og er rekið með
miklu tapi.
Sænsk-danska flugfélagið SAS
tilkynnti á sunnudag að félagið
hygðist aflýsa nær öllu flugi þar til
aðstæður hafa skánað. Taka að-
gerðir SAS gildi í dag, mánudag.
Mun SAS segja u.þ.b. 10.000 manns
upp störfum tímabundið eða um
90% allra starfsmanna flugfélags-
ins, að því er Reuters greinir frá.
„Eftirspurn eftir flugi til, frá og
innan Skandinavíu hefur sama sem
gufað upp,“ sagði Rickard Gust-
afson, forstjóri flugfélagsins, á
blaðamannafundi á sunnudag. „Við
þurfum að aðlagast breyttum að-
stæðum strax, og stöðvum stóran
hluta starfseminnar.“
Hljóðið var öllu betra í stjórn-
anda ungverska lággjaldaflug-
félagsins Wizz Air, sem m.a. flýgur
frá Keflavík til Búdapest, London,
Vínar, Ríga, Litháen og fimm
áfangastaða í Póllandi. Wizz Air til-
kynnti á laugardag að allt flug til
og frá Póllandi yrði stöðvað á
sunnudag en áður hafði flugfélagið
tímabundið lagt niður flug til Ítalíu.
Þeir sem áttu bókað sæti hjá félag-
inu munu eiga þess kost að fá end-
urgreiðslu strax í formi inneignar
sem nemur 120% af fargjaldinu og
gildir í 24 mánuði, ellegar fá miða-
verðið endurgreitt að fullu í gegn-
um tímafrekt endurgreiðsluferli.
Viðskiptaritið Budapest Business
Journal greinir frá að Wizz Air hafi
minnkað flugframboð sitt um 20%
miðað við sama tíma í fyrra. Eng-
um starfsmönnum hefur verið sagt
upp en sumir þeirra verið skikkaðir
til að taka sér frí. Í viðtali við ung-
versku fréttastofuna MTI sagði
József Váradi, forstjóri Wizz Air, að
fjárhagsstaða flugfélagsins væri
stöðug og sjóðstreymi gott. Sagði
hann jafnframt að núverandi að-
stæður á flugmarkaði fælu í sér
tækifæri fyrir flugfélög með góða
lausafjárstöðu.
Draga saman seglin í BNA
Stór hluti flota bandarísku flug-
félaganna mun standa óhreyfður
næstu vikurnar vegna ferðatak-
markana ríkisstjórnar Donalds
Trumps. Á laugardag tilkynnti Am-
erican Airlines að flugfélagið myndi
fella niður 75% af millilandaflugi
sínu fram til 6. maí, og verða nær
allrar breiðþotur félagsins teknar
úr notkun á meðan. American mun
fljúga tvisvar á dag til London og
þrisvar á viku til Tókýó auk þess að
halda styttri alþjóðlegum flugleið-
um opnum. Innanlands mun flug-
sætaframboð American minnka um
20 til 30% í apríl og maí m.v. sama
tímabil í fyrra.
Delta upplýsti á föstudag að flug-
félagið myndi minnka sætaframboð
sitt um 40% á næstu mánuðum.
Verða 300 flugvélar teknar úr notk-
un og nærri öllu flugi til Evrópu
hætt. United hyggst einnig draga
úr flugi til Evrópu og er Southwest
þá eina stóra bandaríska flugfélagið
sem ekki hefur enn breytt flug-
framboði sínu.
Að sögn Reuters hyggst ríkis-
stjórn Bandaríkjanna fara þess á
leit við þingið að veita bandarísku
flugfélögunum fjárhagslegan stuðn-
ing vegna þess tjóns sem aðgerðir
vegna kórónuveirunnar munu valda
þeim.
Fjöldi flugfélaga í vanda
Lítil eftirspurn og sóttvarnaaðgerðir hafa bitnað harkalega á fluggeiranum
SAS aflýsir nær öllu flugi og bandarísk félög fella niður millilandaflug
AFP
Tap Sýnt þykir að án stuðnings stjórnvalda muni flugfélög um allan heim eiga erfitt með að lifa af niðursveiflu
komandi vikna og mánaða. Starfsmaður í hlífðarfatnaði sótthreinsar farþegarými vélar Vietnam Airlines.
● Aðalfundur Arion banka
fer fram 17. mars og hafa
allir núverandi stjórnar-
menn og varamenn boðið
sig fram til áframhaldandi
setu. Frambjóðendur til stjórnar eru:
Brynjólfur Bjarnason, Herdís Dröfn Fjeld-
sted, Gunnar Sturluson, Liv Fiksdahl, Paul
Richard Horner, Renier Lemmens og
Steinunn Kristín Þórðardóttir. Eftirfarandi
bjóða sig fram sem varamenn: Ólafur Örn
Svansson, Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir og
Þröstur Ríkharðsson. ai@mbl.is
Óbreytt stjórn hjá Arion
STUTT
● Aðalfundur
Marels verður
haldinn miðviku-
daginn 18. mars og kjósa hluthafar 5-7
fulltrúa í stjórn. Sjö manns gefa kost á sér
til stjórnarsetu. Leggur núverandi stjórn til
að kosnir verði sjö stjórnarmenn fyrir
komandi starfsár. Þeir sem bjóða sig fram
eru: Ann Elizabeth Savage, Arnar Þór
Másson, Ásthildur Margrét Otharsdóttir,
Ástvaldur Jóhannsson, Lillie Li Valeur, dr.
Ólafur Guðmundsson og Ton van der
Laan. Öll sitja þau nú þegar í stjórn félags-
ins að Lillie undanskilinni og kæmi hún í
stað Margrétar Jónsdóttur. ai@mbl.is
Sjö frambjóðendur
í stjórn Marels
Hagnaður stærsta olíufyrirtækis í
heimi, Saudi Aramco, dróst saman
um 20 prósent í fyrra. Greindi fyrir-
tækið frá þessu í gær og sagði að
ástæðan væri fyrst og fremst lægra
olíuverð, að því er fram kemur í vef-
riti New York Times.
Þrátt fyrir þennan samdrátt held-
ur Aramco velli sem eitt þeirra fyr-
irtækja sem skila mestum hagnaði í
heiminum. Voru heildartekjur fyrir-
tækisins 88,2 milljarðar bandaríkja-
dala árið 2019, en 111,1 milljarður
dala árið áður.
Útlit er fyrir að árið í ár verði þó
ekki betra fyrir olíufyrirtæki en verð
á hráolíu hefur nærri helmingast í
kjölfar minnkandi eftirspurnar vegna
kórónuveirunnar. Sem dæmi er verð-
ið á tunnu af Brent-hráolíu nú 33,25
dollarar, og telja sumir sérfræðingar
að verðið muni lækka frekar þegar
Rússar og lönd í Samtökum olíu-
framleiðsluríkja (OPEC) auka fram-
leiðslu meðan eftirspurn minnkar.
Sem fyrr segir má samdrátt
Aramco að miklu leyti rekja til lægra
olíuverðs en einnig framleiddi fyrir-
tækið minni olíu vegna hamla á
OPEC og Rússlandi.
Þá er framtíð Aramco talin ráðast
að miklu leyti af ráðandi öflum í Sádi-
Arabíu sem er stærsti eigandinn í
Aramco.
Hagnaður Aramco dróst
saman um tuttugu prósent
Er enn eitt þeirra fyrirtækja sem skila mestum hagnaði
AFP
Stórfyrirtæki Olíuvinnslusvæði
Saudi Aramco í Abqaiq.