Morgunblaðið - 16.03.2020, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. MARS 2020
TAUBLEIUBÚÐIN ÞÍN
Kíktu á netverslun okkar
bambus.is
Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
Mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytið
o.fl. vinna nú að
mótun nýrrar
menntastefnu Ís-
lands til ársins 2030.
Þessi vinna gefur til-
efni til að velta fyrir
sér hvar brýnast sé
að sækja fram og
efla menntun. Tölu-
verðar umræður hafa verið und-
anfarin ár um stöðu og getu ís-
lenskra barna og unglinga í
ákveðnum námsgreinum. Margir
hafa lýst áhyggjum af stöðu mála
í kjölfar Pisa-kannana. Þar telja
menn sig sjá veika stöðu íslenskra
ungmenna i ýmsum greinum í
samanburði við nemendur í ná-
grannalöndum okkar. Má þar
nefna lesskilning og kunnáttu í
stærðfræði og raungreinum. Eng-
in ástæða er til að gera lítið úr
áhyggjum manna né gagnrýni.
Eðlilegustu og bestu viðbrögðin
eru að undirbúa sókn í kennslu
þeirra námsgreina sem ekki koma
nógu vel út að okkar mati. Auðvit-
að má segja að allar námsgreinar
séu mikilvægar en einhvers staðar
verður að byrja sóknina. Eðlileg-
ast er að fela skólastjórum og
starfsmönnum þeirra að ákveða
hvar skuli byrja og einnig með
hvaða hætti. Skólastjórar, kenn-
arar og aðrir fagaðilar í hverjum
skóla eiga og verða að bera
ábyrgð á vinnu nemenda í skólun-
um. Ábyrgðina eiga þeir að bera
gagnvart foreldrum nemenda
sinna, skólanefnd og stjórnendum
hvers sveitarfélags. Foreldrar/
forráðamenn beri ábyrgð á heima-
námi barna sinna.
Tillögur til úrbóta
Greinarhöfundar leggja fram
eftirfarandi tillögur:
a) Unnið verði markvisst og
skipulega að því að sem flestir
nemendur í 1. og 2. bekk grunn-
skólans verði læsir. Forráðamenn
barnanna taki virkan þátt í verk-
efninu. Ágæt regla er að nógu
snemma sé byrjað að lesa fyrir
börn. Hér gegna foreldrar/for-
ráðamenn mikilvægu hlutverki. Þá
skilja börn betur tilgang þess að
læra að lesa. Þegar þau eru orðin
nokkuð læs hefjist lestraræfingar
með góðum bókum með viðráðan-
legu og áhugaverðu lesefni. Lestr-
aræfingum ljúki hvert sinn með
umræðum um lesefnið. Í nánu
samstarfi við foreldra þeirra
barna sem ekki ná fullnægjandi
tökum á lestri og lesskilningi við
11-12 ára aldur verði leitað allra
viðeigandi úrræða. Ekki verði við
það unað að nemendur eftir u.þ.b.
6-8 ára skólagöngu hvað þá 10 ára
geti ekki lesið sér til gagns nema í
afar sérstökum tilvikum.
b) Ríkið geri grunnskólum kleift
að ráða sérmenntaða og sérfróða
kennara til að kenna og skipu-
leggja kennslu í íslensku, stærð-
fræði og raungreinum í öllum
grunnskólum landsins í 7.-10.
bekk. Margir skólar eru litlir og
eiga í miklum erfiðleikum með að
veita góða sértæka þjónustu í efri
bekkjum grunnskólans. Menntun
barna okkar er ekkert dægurmál
og ríkið ber mjög ríkar skyldur
varðandi stuðning við gott og heil-
brigt skólahald í hverju sveitarfé-
lagi um allt land. Gæta verður
fyllsta jafnræðis og jafnréttis í
rekstri hvers skóla óháð búsetu.
Við erum ein þjóð. „Eitt er landið,
ein vor þjóð, auðnan sama
beggja“. M. Joch.
Menntun allra grunnskóla-
nemenda á Íslandi
Menntastefna heillar þjóðar má
aldrei verða innantómt orðagjálfur
eða tilraun einstakra manna til að
skapa sér pólitíska glansmynd.
Raunhæfri menntastefnu heillar
þjóðar þarf að fylgja fram-
kvæmdaáætlun og nægjanlegir
fjármunir. Skortur á vel menntuð-
um og sérhæfðum kennurum á
síðari árum grunnskólans hefur
verið viðvarandi í mörg ár. Án vel
menntaðra og vel launaðra sér-
hæfðra kennara, sem eru tilbúnir
að leggja allan sinn metnað í störf
sín og kennslu, verður þróuninni
síðastliðin ár ekki snúið til betri
vegar. Sérmenntaðir kennarar í
hverri námsgrein eiga að annast
menntun nemenda grunnskólans,
a.m.k. frá og með 7. bekk.
Sóknarfæri í kennslu mikilvægra námsgreina
Eftir Þorstein
Þorsteinsson og
Gunnlaug
Sigurðsson
»Menntastefna heillar
þjóðar má aldrei
verða innantómt orða-
gjálfur. Raunhæfri
menntastefnu þarf að
fylgja framkvæmda-
áætlun og nægjanlegir
fjármunir.
Þorsteinn
Þorsteinsson
Höfundar eru fyrrverandi skóla-
stjórnendur í Garðabæ.
thorsteinn2212@gmail.com
Gunnlaugur
Sigurðsson
Í febrúarmánuði
kom út skýrsla í
Bretlandi um afbrot
barnaníðinga í æðstu
stöðum stjórnkerfis-
ins. Meðal þekktra
nafna voru þar Cyril
Smith sem var á þingi
fyrir Frjálslynda. Í
ljós kom að næg gögn
voru fyrir hendi til að
dæma hann þegar á
áttunda áratugnum fyrir að mis-
nota drengi en ekki gert vegna
þess að málið var „pólitískt við-
kvæmt“.
Önnur skýrsla er einnig tilbúin,
skýrslan sem Sajid Javid bað um
2018 um „grooming“-gengin og
nýráðinn innanríkisráðherra, Priti
Patel, vill fá hana afhenta en
Djúpríkið neitar. Priti virðist
harðákveðin að fá skýrsluna en
menn segja frekar af sér en af-
henda hana. Það mál er einnig
„pólitískt viðkvæmt“ og gæti
þurrkað Verkamannaflokkinn út,
því það var í 9 af hverjum 10 til-
fellum í hans kjördæmum sem
gengin fengu að athafna sig allt
frá 1988, en það ár birti BBC
fréttir af því að síkhar kvörtuðu
undan því að pakistanskir músl-
imar rændu síkhastúlkum, nauðg-
uðu og seldu í vændi. Flest eru þó
fórnarlömbin hvít og úr verka-
mannastétt. Komið
hefur í ljós að opin-
berir starfsmenn
borganna vissu vel
hvað var í gangi en
þögðu sakir ótta um
að vera bolað úr starfi
vegna ásakana um
rasisma eða til að
raska ekki jafnvægi í
samskiptum kynþátta,
eins og segir í skjali
frá Barnavernd Roth-
erham.
Í Rotherham þar
sem starfsemi gengjanna var fyrst
rannsökuð hafa fundist 1.510 fórn-
arlömb og í Telford voru stúlk-
urnar um 1.000, þrátt fyrir að
múslimar væru aðeins 2% íbúa.
Áætla má að fjöldinn á landsvísu
sé ekki undir 100.000. Maajid Na-
was sem er í forsvari fyrir Quilli-
am, umbótasamtök múslima, sagði
árið 2017 að 84% meðlima gengj-
anna væru múslimar og vill fá að
sjá þessa skýrslu því sólarljósið
sótthreinsi best. Fleiri vilja meina
að það sé ekki múslimum í hag að
reynt sé að leyna þessari hegðan
og framleiddi Aljazeera t.d. árið
2012 myndina Lover Boys sem var
tekin upp í Hollandi, en þessi
gengi eru til í ýmsum löndum.
Boðskapur hennar er að gerend-
urnir kalli skömm yfir fjölskyldur
sínar.
Samtök múslima í Bretlandi
neituðu lengi vel að viðurkenna
þessa glæpi og sögðu þá uppspuna
rasista en árið 2013 gáfu samtökin
út staðlaða predikun sem for-
dæmdi þessa hegðun, en hún
fékkst aðeins flutt í fjórðungi
mosknanna. Eins og við vitum af
hegðun ISIS og Boko Haram þá
líta sumir múslimar svo á að þeir
hafi rétt til að taka kynlífsþræla
úr hópi „vantrúaðra“. Í Kóran-
inum (versi 24:33) segir að vísu að
ekki skuli neyða ánauðugar konur
í vændi vilji þær vera hreinlífar,
en slíkt er nú ekki talið einkenna
evrópskar konur.
Allt frá 1885 hefur barnavændi
verið ólöglegt en það ár tók Willi-
am Th. Stead, ritstjóri Pall Mall
Gazette, að sér að virkja almenn-
ing til að mótmæla aðgerðaleysi
stjórnvalda í þeim efnum. Fólk
þyrptist út á göturnar og kynferð-
islegur lögaldur var hækkaður í 16
ár. Yfirvöld kunnu ekki að meta
þetta framtak og var hann dæmd-
ur til 3 mánaða fangelsisvistar af
því hann hafði keypt 13 ára stúlku
til að sanna mál sitt. Síðar varð
þessi stúlka innblástur G.B. Shaw
að Pygmalion.
Flestar eru stúlkurnar á aldr-
inum 13-16 ára en karlarnir 17-40.
Þeir vingast fyrst við fórnarlamb-
ið, bjóða í bíltúr, gefa gjafir og
veita áfengi. Stúlkurnar telja að
þær hafi eignast kærasta en svo
koma sterku eiturlyfin, hópnauðg-
anirnar, vændið og ofbeldið reyni
þær að losna. Vændisútgerð ungra
stúlkna er mjög ábatasöm. Mo-
hammed Shafiq hjá Ramadhan-
samtökunum hefur sagt að sumir
glæpamennirnir geti halað inn 600
til 1.000 pund á kvöldi. Hann og
fleiri hafa sagt rasisma gegn hvít-
um að baki þessari atvinnugrein
og stúlkurnar segja sjálfar að þær
hafi verið kallaðar „hvítar hórur,“
„hvítar druslur“ eða „kafírar“. Í
Ástralíu flokkuðu menn hópnauðg-
anir Skaf-gengisins árið 2000 sem
hatursglæpi gegn hvítum stúlkum.
Vilji menn kynna sér þessi mál
frekar má benda á bók Peter
McLaughlin, Easy Meat.
Áhugaleysi lögreglu er áberandi
í öllum skýrslum. Hún handtók
barnungar stúlkur fyrir vændi og
jafnvel foreldra þeirra ef þeir
reyndu að sækja stúlkurnar, en
mun síður gerendurna. Frá 1988-
2009 féllu færri en 20 dómar en
eftir að EDL-göngurnar sem
Tommy Robinson stóð fyrir hófust
2009 þá fjölgaði dómunum og er
Andrew Norfolk skrifaði tíma-
mótagrein sína í The Times 2011
og fletti ofan af gengjunum þá
voru dómarnir orðnir 56, og 91%
dæmdra voru múslimar.
Enn er gerendum lýst sem „As-
íubúum“ en engir Asíubúar sem
ekki eru múslimar hafa verið
dæmdir og margir segja að þessi
blekkingaleikur dugi ekki lengur
og að vara verði grunnskólastúlk-
ur við aðferðum og starfsemi
gengjanna. Til er ágætis fræðslu-
mynd, My Dangerous Loverboy,
frá 2008 sem yfirvöld létu fram-
leiða, en hún virðist aðeins hafa
verið sýnd í einni borg og svo
stungið undir stól.
Haft er eftir Priti Patel að hún
hafi ekki fyrr tekið við embætti í
stjórn Borisar Johnson en viss öfl
hafi farið að vinna í að koma sér
frá. Hún er m.a. ásökuð um
stjórnsemi og fullyrt að MI5
treysti henni ekki fyrir upplýs-
ingum – sem MI5 bar til baka, en
þar sem hún hefur stuðning Bor-
isar og ráðgjafa hans er ekki
ómögulegt að henni takist að
herja út þessa mikilvægu skýrslu.
Um breska djúpríkið og verndun glæpamanna
Eftir Ingibjörg
Gísladóttir » Skýrsla um vænd-
issölugengi er fang-
að hafa unglingsstúlkur
í vef sinn nær óáreitt í
Bretlandi áratugum
saman fæst ekki afhent
þótt þess sé krafist.
Ingibjörg Gísladóttir
Höfundur starfar við
umönnun aldraðra.
Móttaka
aðsendra
greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfu-
daga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Kerfið er
auðvelt í notkun og tryggir ör-
yggi í samskiptum milli starfs-
fólks Morgunblaðsins og höf-
unda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar á
aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í
hægra horni forsíðu mbl.is.
Þegar smellt er á lógóið birtist
felligluggi þar sem liðurinn
„Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf not-
andinn að nýskrá sig inn í kerf-
ið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja
hverju þrepi í skráningarferlinu.
Eftir að viðkomandi hefur skráð
sig sem notanda í kerfið er nóg
að slá inn kennitölu notanda og
lykilorð til að opna svæðið.
Hægt er að senda greinar allan
sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir
starfsfólk Morgunblaðsins alla
virka daga í síma 569-1100 frá
kl. 8-18.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
Íslensku
þjónustufyrirtækin
eru á finna.is
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?