Morgunblaðið - 16.03.2020, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. MARS 2020
Rússland
CSKA Moskva – Ufa ................................ 0:0
Hörður Björgvin Magnússon og Arnór
Sigurðsson léku allan leikinn með CSKA.
Sochi – Krasnodar................................... 2:0
Jón Guðni Fjóluson var varamaður hjá
Krasnodar og kom ekki við sögu.
Úkraína
Oleksandriya – Kolos Kovalivka ........... 4:2
Árni Vilhjálmsson lék allan leikinn með
Kolos Kovalivka.
Kasakstan
Kaspij Aktau – Astana ............................ 2:3
Rúnar Már Sigurjónsson lék fyrstu 77
mínúturnar með Astana og skoraði fyrsta
mark liðsins.
Tyrkland
Kayserispor – Yeni Malatyaspor........... 2:1
Viðar Örn Kjartansson spilaði síðari
hálfleikinn með Yeni Malatyaspor og skor-
aði mark liðsins.
B-deild:
Akhisarspor – Erzurum.......................... 0:0
Theódór Elmar Bjarnason lék allan leik-
inn með Akhisarspor.
Ungverjaland
Újpest – Paks ........................................... 1:1
Aron Bjarnason var ekki í leikmanna-
hópi Újpest.
Hvíta-Rússland
Bikarkeppnin 8-liða úrslit, seinni leikur:
BATE Borisov – Dinamo Minsk............. 3:2
Willum Þór Willumsson lék allan leikinn
með BATE sem er komið í undanúrslit, 5:3
samanlagt.
Handknattleiksdeild Fram hefur
gengið frá ráðningu Sebastians Al-
exanderssonar sem þjálfara meist-
araflokks karla hjá félaginu. Skrif-
ar hann undir þriggja ára samning
við Fram.
Sebastian þekkir vel til hjá Fram
því hann gekk í raðir félagsins sem
leikmaður árið 1998 frá Aftureld-
ingu og lék með því til 2003. Þá
varð hann bikarmeistari með Fram
árið 2000. Sebastian gekk aftur til
liðs við Fram árið 2011 og lék með
liðinu leiktíðina 2011-2012, þá 42
ára að aldri.
Sebastian var lengi þjálfari hjá
Selfossi og þjálfaði m.a. kvennalið
félagsins með góðum árangri og
Míluna í næstefstu deild karla. Und-
anfarin tvö ár hefur hann verið
þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar og
er liðið sem stendur í þriðja sæti í
Olísdeildinni.
Mun markvörðurinn fyrrverandi
taka við af Halldóri Jóhanni Sigfús-
syni sem tekur við Selfossi fyrir
næsta tímabil.
Fram er í níunda sæti Olísdeild-
arinnar, einu stigi frá Stjörnunni,
sem er í síðasta sætinu sem gefur
þátttökurétt í úrslitakeppninni, en
óljóst er um framhald deildarinnar
vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.
Mikil hreyfing hefur verið á
þjálfaramálum deildarinnar að
undanförnu. Gunnar Magnússon
hættir með Hauka eftir tímabilið og
tekur við Aftureldingu og Aron
Kristjánsson tekur við Haukaliðinu.
Þá verður Patrekur Jóhannesson
þjálfari Stjörnunnar frá og með
næsta tímabili.
Sebastian
snýr aftur í
Safamýrina
Fram Sebastian Alexandersson stýr-
ir Fram frá og með næstu leiktíð.
GOLF
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra
Jónsdóttir hafnaði í sjöunda sæti á
South African Women’s Open-
golfmótinu í Höfðaborg í Suður-
Afríku um helgina. Mótið er hluti
af Evrópumótaröðinni. Lék Valdís
þrjá hringi á samanlagt tveimur
höggum undir pari. Valdís lék
fyrsta hringinn á 72 höggum, ann-
an hringinn á 70 höggum og þriðja
hringinn á 72 höggum. Valdís var
á tímabili aðeins einu höggi frá
toppsætinu, en henni fataðist flug-
ið á níu síðustu holum mótsins og
varð því að gera sér sjöunda sætið
að góðu.
Kom mér í mörg færi
„Ég er smá svekkt með seinni
níu,“ sagði Valdís í samtalið við
Morgunblaðið eftir lokahringinn.
„Ég var með tvö þrípútt þar sem
ég fékk skolla. Ég var að koma
mér í helling af færum en ég var
ekki að setja neitt ofan í. Ég er
ánægð en á sama tíma svekkt með
þennan árangur,“ bætti hún við.
Valdís var í heildina nokkuð
ánægð með spilamennskuna á
mótinu sem var stöðugri en oft áð-
ur. Stundum eru miklar sveiflur í
leik Valdísar. Hringirnir þrír um
helgina voru hins vegar jafnir og
góðir.
„Spilamennskan yfir höfuð var
fín og ég kom mér í mörg færi en
auðvitað hefði ég viljað setja fleri
pútt ofan í. Flatirnar hérna eru
svolítið erfiðar en mér fannst ég
oft lesa þær rétt, en stundum er
þetta svona.“
Árangurinn hjá Valdísi er sá
besti á árinu, en mótið var það
þriðja á tímabilinu sem hún tekur
þátt í. Þá hefur hún aðeins þrisvar
náð betri árangri á mótaröðinni,
en hún gerðist atvinnumaður árið
2014. Hefur hún nú fjórum sinnum
verið á meðal tíu efstu kylfinga á
mótum Evrópumótaraðarinnar.
Valdís fékk rúmar 4.500 evrur fyr-
ir árangurinn, eða um 700.000
krónur. Kórónuveiran hefur áhrif
á Valdísi eins og flesta aðra
íþróttamenn í dag og lýsti hún yfir
vonbriðum sínum með að næstu
mótum í mótaröðinni yrði frestað
þar sem hún er í góðu standi.
„Mér finnst ég vera í góðu
formi og því auðvitað svekkjandi
að veiran sé í gangi núna. Mér
finnst ég eiga mikið inni og hlakk-
aði til að spila í næstu viku, en nú
er búið að fresta því móti og ég
verð í fríi í það minnsta næstu sex
vikurnar,“ sagði Valdís við Morg-
unblaðið.
Guðrún nálægt niðurskurði
Íslandsmeistarinn Guðrún Brá
Björgvinsdóttir var einnig á meðal
kylfinga á mótinu en hún var einu
höggi frá því að komast í gegnum
niðurskurðinn eftir tvo hringi. Lék
hún þá á samanlagt sjö höggum
yfir pari og hafnaði í 72. sæti.
Slæmur fyrri hringur skemmdi
fyrir Guðrúnu en hún lék hann á
80 höggum. Lék hún töluvert bet-
ur á seinni hringnum eða á 71
höggi. Besti árangur Guðrúnar á
mótaröðinni í ár á þremur mótum
er 65. sæti.
Næsta mót á mótaröðinni átti
að fara fram í Sádi-Arabíu 19.-22.
mars en Alexandra Armas, fram-
kvæmdastjóri mótaraðarinnar,
staðfesti eftir mótið að ekki yrði
leikið í arabaríkinu. „Þó að þetta
hafi ekki verið sú niðurstaða sem
við vonuðumst eftir vil ég þakka
mótshöldurum í Sádi-Arabíu fyrir
að hafa reynt hvað þeir gátu til að
mótið gæti farið fram. Við munum
vinna náið með þeim til að finna
aðra dagsetningu á þessu sögulega
móti,“ sagði hún í yfirlýsingu.
Næsta mót á að fara fram 7.-9.
mars í Frakklandi og eru Guðrún
Brá og Valdís báðar skráðar á
mótið. Ástandið verður hins vegar
að batna töluvert til að mótið fari
fram.
Ánægð en
á sama
tíma svekkt
Valdís var í harðri toppbaráttu
Spilamennskan fín en púttin að klikka
Ljósmynd/LET
Höfðaborg Valdís Þóra Jónsdóttir náði góðum árangri í Suður-Afríku.
Kvennalið Stjörnunnar í knatt-
spyrnu er komið í sóttkví vegna
kórónuveirunnar en liðið sneri
heim úr æfingaferð frá Spáni um
helgina. Alls hafa um 7.800 manns
greinst með veiruna á Spáni og þar
af eru tæplega 300 látnir vegna
hennar. Spánn er það Evrópuland
sem hefur lent næstverst í veirunni
á eftir Ítalíu.
Stjarnan á að mæta Þór/KA á
útivelli í 1. umferð Íslandsmótsins
1. maí næstkomandi. Hins vegar er
óljóst hvort mótið hefst á réttum
tíma vegna útbreiðslu veirunnar.
Í sóttkví eftir æf-
ingaferð á Spáni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sóttkví Stjörnukonur verða í
sóttkví næstu vikurnar.
Evrópska knattspyrnusambandið
mun funda með aðildarfélögum sín-
um á morgun og verður í kjölfarið
einhverjum af fjölmörgum spurn-
ingum um framtíð knattspyrnunnar í
álfunni svarað. Um helgina bárust
fréttir þess efnis að knattspyrnusam-
bandið væri að íhuga að fresta EM
þangað til í desember til að hægt
væri að klára yfirstandandi tímabil í
stærstu deildum Evrópu. Forseti
ítalska knattspyrnusambandsins vill
hins vegar að EM verði frestað þar til
sumarið 2021 og kemur sú lausn
einnig til greina.
Hvað verður um
Evrópumótið?
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Evrópumót Ísland vonast til að vera
með í lokakeppni Evrópumótsins.
Enska knattspyrnufélagið Manchester City áfrýjaði
tveggja ára banni félagsins frá Meistaradeild Evrópu
sem UEFA úrskurðaði félagið í í febrúar til Alþjóða-
íþróttadómstólsins, CAS. Kórónuveiran gæti hins veg-
ar haft áhrif á áfrýjunina. Forráðamenn City vonuðust
til að áfrýjunin yrði tekin fyrir snemma í sumar en
dómstóllinn hefur þegar frestað þremur málum og eru
í það minnsta sextán mál á dagskrá dómstólsins áður
en áfrýjun enska félagsins verður tekin fyrir.
City var úrskurðað í bannið af UEFA fyrir að gefa
rangar upplýsingar um styrktaraðila. Samkvæmt úr-
skurðinum lugu forráðamenn City til um að 67,5 millj-
ónir punda sem eigandinn Sheikh Mansour bin Zayed Al Nahyan setti í
félagið hefðu verið auglýsingatekjur. Sömu sögu er að segja um aðrar
átta milljónir punda árið 2015. Þá var félagið sektað um 30 milljónir
evra.
Veiran gæti haft áhrif á bannið
Pep
Guardiola
Ekki stendur til að fresta Ólympíuleikunum í Tókýó eins
og staðan er núna, þrátt fyrir útbreiðslu kórónuveir-
unnar. Þetta staðfesti Shinzo Abe forsætisráðherra Jap-
ans á blaðamannafundi. Abe og ríkisstjórn Japans eru
staðráðin í að halda Ólympíuleikana samkvæmt áætlun,
þrátt fyrir frestanir á stórum íþróttaviðburðum víðs-
vegar um heiminn.
Donald Trump Bandaríkjaforseti stakk upp á að
fresta leikunum um eitt ár en það er ekki á stefnu-
skránni hjá Abe. „Við munum komast yfir útbreiðslu
veirunnar og halda Ólympíuleikana án vandræða,“ sagði
Abe. Japan mun vinna náið með Alþjóðaólymp-
íusambandinu, sem mun hafa lokaorðið um hvort leikarnir fara fram á til-
settum tíma.
Um 1.500 manns hafa sýkst af veirunni í Japan og á þriðja tug látist af
völdum hennar.
Ætla að halda Ólmypíuleikana
Shinzo
Abe