Morgunblaðið - 16.03.2020, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. MARS 2020
Guðlaug Edda Hannesdóttir tók
þátt í heimsbikarsmótinu í þríþraut í
Mooloolaba í Ástralíu um helgina og
endaði í 24. sæti. Guðbjörg var rúmum
30 sekúndum á eftir fremstu konu eft-
ir sundið og í stórum hópi sem kláraði
hjólreiðarnar saman. Guðlaug hélt svo
sínu striki í hlaupinu, þrátt fyrir að
hafa glímt við meiðsli. Fyrir keppnina
var Guðlaug í 35. sæti af 56 kepp-
endum og nældi hún því í mikilvæg
heimslista- og ólympíustig með ár-
angrinum.
Ezequiel Garay, knattspyrnumaður
hjá Valencia á Spáni, er einn þeirra
fimm hjá félaginu sem hafa greinst
með kórónuveiruna. Fjórir aðrir
ónefndir meðlimir úr leikmanna- og
þjálfarateymi félagsins hafa greinst
með smit.
Ítalska knattspyrnufélagið Fiorent-
ina frá Flórens tilkynnti á laugardags-
morgun að tveir leikmenn liðsins og
einn sjúkraþjálfari væru smitaðir af
kórónuveirunni. Áður hafði einn leik-
maður liðsins, Dusan Vlahovic frá
Serbíu, greinst smitaður og nú hafa
þeir Patrick Cutrone og argentínski
fyrirliðinn Germán Pezzella bæst í
hópinn, ásamt sjúkraþjálfaranum
Stefano Dainelli. Cutrone er í láni hjá
félaginu frá Wolves á Englandi. Í til-
kynningu frá Fiorentina segir að þeir
séu allir í góðu ástandi á heimilum sín-
um í Flórens. Þar með hafa níu leik-
menn í ítölsku A-deildinni verið greind-
ir með veiruna en áður voru það þeir
Manolo Gabbiadini, Omar Colley,
Morten Thorsby, Albin Ekdal og Ant-
onio La Gumina hjá Sampdoria í Ge-
noa og Daniele Rugani hjá Juventus.
David Moyes, knattspyrnustjóri
West Ham, er kominn úr sóttkví. Mo-
yes tók sjálfur ákvörðun um að fara í
sóttkví eftir að Mikel Arteta, knatt-
spyrnustjóri Arsenal, greindist með
kórónuveiruna. Moyes stýrði West
Ham gegn Arsenal og tók í höndina á
og ræddi við Arteta meðan á leiknum
stóð. Skotinn slapp hins vegar með
skrekkinn því hann smitaðist ekki. Í
kjölfar þess að Arteta smitaðist voru
allir leikmenn Arsenal og West Ham
sendir í sóttkví, en ekki hafa fleiri smit
verið staðfest úr herbúðum félaganna.
Körfuknattleiksmaðurinn Christian
Wood hjá Detroit Pistons er þriðji leik-
maðurinn í NBA-deildinni sem greinist
með kórónuveiruna. Áður höfðu Rudy
Gobert og Donovan Mitchell hjá Utah
Jazz greinst með veiruna.
Willum Þór Willumsson og sam-
herjar hans í BATE Borisov eru komnir
í undanúrslit hvítrússneska bikarsins í
fótbolta eftir 3:2-heimasigur á Dinamo
Minsk í seinni leik liðanna í átta liða
úrslitunum á laugardag. BATE hafði
einnig betur í fyrri leiknum, 2:1, og
vann því einvígið samanlagt 5:3. Will-
um lék allan leikinn með BATE, sem
varð síðast bikarmeist-
ari árið 2015 og hefur í
þrígang hampað bik-
armeistaratitlinum.
Deildarkeppnin í
Hvíta-Rússlandi
hefst 19. mars
næstkomandi
en BATE hafnaði
í öðru sæti á síðustu
leiktíð.
Eitt
ogannað
KÓRÓNUVEIRAN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
HSÍ og KKÍ frestuðu fyrir helgi
öllum leikjum vegna útbreiðslu
kórónuveirunnar og samkomub-
annsins sem hófst á miðnætti. KKÍ
frestaði leikjum í fjórar vikur og
HSÍ ótímabundið. Enn er óljóst
hvort hægt verði að klára Íslands-
mótin, hvort meistarar verði
krýndir eða hvort lið falli eða fari
upp um deildir. Morgunblaðið
heyrði í lykilleikmönnum þeirra
liða sem eru efst í Olísdeildum
karla og kvenna í handbolta og
Dominos-deildunum í körfubolta.
Landsliðskonan Þórey Rósa
Stefánsdóttir leikur með Fram,
sem er með fimm stiga forskot á
Val á toppi Olísdeildarinnar.
Framliðið hefði getað tryggt sér
deildarmeistaratitilinn síðasta
föstudag. „Við áttum að spila á
föstudaginn og við ætluðum að
tryggja okkur deildarmeistaratitil.
Við fengum svo fréttir um það
klukkan 16:45 að öllu yrði aflýst.
HSÍ ætlaði að koma með bikarinn í
leikinn og svo var U liðið okkar að
vinna Grillið (næstefstu deild) og
þær ætluðu að taka á móti bik-
arnum á sama tíma. Það hefði ver-
ið gaman að klára það fyrir þetta
hlé sem enginn veit hversu lengi
verður,“ sagði Þórey við Morgun-
blaðið.
„Við skiljum ákvörðun HSÍ og
sérstaklega ef það eru komin smit
í liðin, en að sama skapi var súrt
að fylgjast með körfuboltaleikjum
sem fóru fram um kvöldið,“ bætti
hún við. Þórey er óviss við hverju
á að búast varðandi það sem eftir
lifir tímabilsins. „Ég flakka á milli
en ég vona innilega að við getum
spilað úrslitakeppni. Það yrði súr-
sætt ef þetta væri búið og við
krýndir meistarar,“ sagði Þórey.
Skrítið að fá medalíu í pósti
Valur er með tveggja stiga for-
skot á FH á toppi Olísdeildar
karla og Magnús Óli Magnússon,
næstmarkahæsti leikmaður liðsins
á leiktíðinni, heldur í vonina um að
úrslitakeppnin fari fram. „Deild-
inni verður örugglega hætt en von-
andi getum við spilað í úr-
slitakeppni eftir mánuð eða svo.
Það yrði töluvert skemmtilegra,“
sagði Magnús og tók í sama streng
og Þórey með að það yrði furðu-
legt að vera krýndur meistari án
þess að spila. „Ég veit ekki alveg
hvernig mér myndi líða ef þessu
yrði hætt og við krýndir meist-
arar. Það yrði skrítið símtal ef
mér yrði óskað til hamingju og
medalían kæmi í pósti,“ sagði
Magnús við Morgunblaðið.
Það yrði engin gleði
Hlynur Bæringsson, fyrrverandi
landsliðsfyrirliði og liðsmaður
toppliðs Stjörnunnar í körfubolt-
anum, er hræddur um að tímabilið
sé búið, en vonar á sama tíma að
svo sé ekki. „Mín tilfinning er sú
að þetta sé búið. Hvað ef einhver
smitast eftir viku? Hvað ætlum við
þá að gera? Þetta er erfið ákvörð-
un en mín tilfinning er sú að þetta
sé búið,“ sagði Hlynur sem vill alls
ekki spila fyrir luktum dyrum.
„Vonandi veður samt hægt að spila
þetta í einhverju formi og þá með
áhorfendum, annað væri glatað.
Ég væri frekar til í að spila
seinna en í tómum húsum. Það
væri hálfvonlaust að vera í fimmta
leik í úrslitum og Svali Björgvins
og Hannes (Jónsson formaður
KKÍ) væru þeir einu sem væru að
horfa,“ sagði Hlynur, sem er lítið
spenntur fyrir því að verða meist-
ari án þess að spila. „Það væri
engin gleði á bak við það, ég við-
urkenni það. Það væri mjög skrít-
ið,“ sagði Hlynur.
Karfan lítil í
stóra samhenginu
Þá sló Morgunblaðið einnig á
þráðinn til Helenu Sverrisdóttur,
bestu körfuknattleikskonu landsins
og leikmanns deildarmeistara Vals.
Hún er sammála Hlyni og grunar
að ekki verði leikið meira. „Ég
held þetta sé búið og það sé verið
að kaupa þennan frest til að
ákveða hverjir munu falla og
hverjir munu koma upp. Þetta er
staða sem hefur aldrei komið upp
áður og ég held þetta snúist um
það hvort það verði einhverjir
meistarar eða hvort þessu verði
slaufað og enginn verður meist-
ari,“ sagði Helena.
Hún segir að það yrði skrítið að
vera meistari án þess að spila og
mjög svekkjandi ef enginn verður
krýndur meistari. „Það yrði auð-
vitað rosalega skrítið. Þótt við
séum deildarmeistarar þá eigum
við eftir að vinna okkur það inn að
verða Íslandsmeistarar og fara í
gegnum úrslitakeppnina. Það yrði
svo rosalega fúlt ef öll þessi vinna
síðan í ágúst væri farin út um
gluggann ef það verður enginn
meistari. Maður er svo fúll yfir að
karfan sé mögulega búin, en að
sama tíma, þá er karfan svo lítil í
þessu stóra samhengi,“ sagði Hel-
ena.
Hún er ekki hrifin af þeirri hug-
mynd að spila fyrir luktum dyrum.
„Ég held að það sé ekki hægt
heldur. Það er tímaspursmál hve-
nær einhver úr liðunum þurfa að
fara í sóttkví. Það er ekki langt
síðan Skallagrímur fékk að fresta
leik vegna veikinda leikmanna, þá
þurfa lið væntanlega að fresta
leikjum þegar það eru 3-4 í
sóttkví,“ sagði Helena.
Óttast að tímabilið sé búið
Lykilmenn toppliðanna óttast að ekki verði leikið meira Vilja úrslitakeppni
en framhaldið óljóst Lítil gleði að verða meistari án þess að spila
Helena
Sverrisdóttir
Þórey Rósa
Stefánsdóttir
Magnús Óli
Magnússon
Hlynur Elías
Bæringsson
Rúnar Már Sigurjónsson fer vel af
stað á leiktíðinni í fótboltanum í
Kasakstan því hann skoraði fyrsta
mark Astana í 3:2-útisigri á Kaspiy
í efstu deild þar í landi í gær. Rúnar
skoraði einnig í fyrstu umferðinni
gegn Kyzyl-Zhar og er því kominn
með tvö mörk í fyrstu þremur um-
ferðunum.
Astana, sem er ríkjandi meistari,
er í toppsætinu með sjö stig eftir
þrjár umferðir. Rúnar skoraði sjö
mörk í 23 leikjum á síðustu leiktíð
og komu fimm markanna í Evr-
ópudeildinni.
Rúnar Már aftur
á skotskónum
Morgunblaðið/Eggert
Mörk Rúnar Már Sigurjónsson
byrjar leiktíðina í Kasakstan vel.
Landsliðskonan Sara Rún Hinriks-
dóttir var valin besti leikmaður bik-
arúrslitanna í breska körfuboltanum
er hún og liðsfélagar hennar í Leic-
ester Riders urðu bikarmeistarar
með 70:66-sigri á Durham í Glasgow
í gær. Sara skoraði 23 stig, tók 7 frá-
köst og gaf eina stoðsendingu. Var
hún valin maður leiksins af móts-
höldurum í leikslok. Sara hefur leik-
ið vel með Leicester í vetur og var
hún valin besti leikmaður síðustu
umferðar í deildarkeppninni er hún
skoraði 22 stig, tók 11 fráköst og gaf
4 stoðsendingar.
Sara maður leiks-
ins í bikarúrslitum
Ljósmynd/Leicester Riders
Meistari Sara Rún var maður leiks-
ins í bikarúrslitum í Glasgow.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Viðar Örn Kjartansson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, skoraði sitt
fyrsta mark í tyrknesku úrvals-
deildinni í gær. Hann gerði þá
mark Yeni Malatyaspor sem tapaði
2:1 á útivelli fyrir Kayserispor í
mikilvægum fallbaráttuslag.
Þetta var sjöundi leikur Viðars
sem kom til félagsins í láni frá Ro-
stov í Rússlandi í janúar en lið hans
er nú aðeins fyrir ofan fallsæti
deildarinnar á hagstæðri marka-
tölu. Liðinu hefur ekkert gengið
löndum af þeim níu þar sem hann
spilaði á ferlinum.
Viðar er búinn að ná þeim Hann-
esi Þ. Sigurðssyni og Alfreð Finn-
bogasyni. Hannes skoraði í deilda-
keppni í sjö af þeim níu löndum þar
sem hann lék á sínum ferli og Al-
freð hefur skorað í öllum sjö lönd-
unum þar sem hann hefur spilað.
Þá er Viðar sjötti Íslendingurinn
sem skorar í tyrknesku úrvalsdeild-
inni. Á undan honum voru Eyjólfur
Sverrisson (9), Atli Eðvaldsson (4),
Ólafur Ingi Skúlason (3), Grétar
Rafn Steinsson (1) og Gunnar Heið-
ar Þorvaldsson (1).
undanfarna mánuði og vann síðast
leik 15. desember.
Með þessu marki hefur Viðar náð
þeim áfanga að skora í deilda-
keppnum allra sjö landanna þar
sem hann hefur leikið á ferlinum.
Íslandi, Noregi, Kína, Svíþjóð, Ísr-
ael, Rússlandi og nú síðast Tyrk-
landi, samtals 142 mörk, þar af 89 í
efstu deildum erlendis.
Aðeins Eiður í fleiri löndum
Hann er fjórði Íslendingurinn
sem nær að skora í deildakeppnum
sjö landa. Eiður Smári Guðjohnsen
á metið en hann skoraði mörk í átta
Viðar Örn með mark í sjöunda landinu
Morgunblaðið/Egger Jóhannesson
Sjö Viðar Örn Kjartansson hefur
skorað í sjö mismunandi löndum.