Morgunblaðið - 18.03.2020, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 18.03.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020 Litina hennar Sæju færð þú í Slippfélaginu GÆÐIN Ein af ástæðum þess að íslenskir hönnuðir velja Slippfélagið. Votur Volgur Ber Borgartúni 22 og Skútuvogi 2, Reykjavík, Dalshrauni 11, Hafnarfirði Hafnargötu 54, Reykjanesbæ Gleráreyrum 2, Akureyri Opið: 8-18 virka daga og 10-14 laugardaga • Sími 588 8000 • slippfelagid.is Samtal utanríkisráðherra Íslandsog Bandaríkjanna í síma hefur nú átt sér stað en þeir þar höfnuðu beiðni um fund.    Samkvæmt frá-sögn héðan af samtalinu verður þó ekki séð að það hafi farið fram. Guð- laugur nefnir aðeins að honum hafi verið klappað á kollinn vegna viðbragða sóttvarnalæknis. Var það eina erind- ið?    Æfingar á vörn-um Íslands voru blásnar af þegar Trump lokaði á Evrópu án þess að bera það undir Guðlaug. Látum vera ef Guðlaugur hefði hætt í reiðikasti við að æfa varnir sínar gegn árásum á Banda- ríkin. Enda mikið verkefni.    Þegar ráðherrann sá undrunar-svip landa sinna breytti hann fréttinni af sjálfum sér. Þessar æf- ingar, sem hann hafði bannað, höfðu eiginlega hætt sér sjálfar því að varnarmenn hefðu ekki komist heim aftur vegna lokunar á Evrópu!    Þegar varaforseti Bandaríkjannakom hingað hékk í því að það næðist í tíma að rétta forsætisráð- herra af sem sagðist ekki geta hitt varaforsetann því hún þyrfti að lesa upp ávarp yfir skandinavískum verkalýðsforingjum á árlegum fundi sem aldrei reynist frétt- næmur.    Aðrir eðalfulltrúar Íslands mættusvo með lituð bönd um úlnliði til að senda varaforsetanum skila- boð!    Og allt er þetta afsakað meðreynsluleysi og barnaskap. Guðlaugur Þór Þórðarson Ekkisamtal STAKSTEINAR Mike Pompeo Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Þrjár ferðaskrifstofur hafa í sam- ráði við Icelandair skipulagt loftbrú frá Kanaríeyjum til Íslands í gegnum Las Palmas og Tenerife í dag og næstu þrjá daga. Er farið í þessar aðgerðir til að flýta för þeirra fjölmörgu Íslendinga sem eru staddir á eyjunum og áttu bókað flug heim fyrir páska. Ferðaskrifstofurnar eru VITA, Ferðaskrifstofa Íslands og Heims- ferðir. Í tilkynningu kemur fram að um sé að ræða 15 ferðir á næstu fjórum dögum, en aðgerðin er einnig unnin í samstarfi við Ferðamálastofu. Á vegum þessara ferðaskrifstofa eru á milli tvö og þrjú þúsund manns á eyjunum. Reiknað er með að allir farþegar ferðaskrifstofanna verði komnir heim á föstudag. Auk þess mun ferðaskrifstofan VITA hefja sölu á almennum flug- ferðum sem áætlaðar eru seinni- partinn á föstudag frá bæði Te- nerife og Kanarí. Flugi verður bætt við ef mikil eftirspurn verð- ur. Tekið er fram í tilkynningunni að markmiðið sé að gefa öllum þeim sem ekki hafa gert ráðstaf- anir til að komast aftur heim til Ís- lands tækifæri til þess á næstu dögum. Loftbrú frá Kanaríeyjum til Íslands  Íslendingar koma heim eftir að öllu var lokað í sólinni Ljósmynd/Aðsend Tenerife Tómlegt er nú um að litast á sólbaðseyjunum og allt lokað þar. Guðjón Ármann Eyj- ólfsson, fv. skólameist- ari Stýrimannaskólans í Reykjavík, andaðist á Landspítalanum, Foss- vogi, 16. mars sl., 85 ára að aldri. Guðjón Ár- mann fæddist í Vest- mannaeyjum 10. janúar 1935. Hann ólst upp í Eyjum og bjó þar síðar ásamt eiginkonu og börnum þar til í eldgos- inu 1973. Guðjón Ármann lauk stúdentsprófi í MR frá máladeild 1955 og stærðfræðideild 1956. Eftir stúd- entspróf stundaði hann nám við Sjó- liðsforingjaskóla danska sjóhersins í Kaupmannahöfn og lauk þaðan prófi árið 1960, annar Íslendinga. Hann var sjóliðsforingi í danska flotanum og nam við Sjómælingastofnun danska sjóhersins og starfaði þar við sjómælingar. Hann starfaði hjá Landhelgisgæslunni 1960-61, stund- aði rekstrarnám og var aðstoð- arframkvæmdastjóri frystihúsa í Vestmannaeyjum 1962-63. Lauk kennsluréttindaprófi frá KHÍ 1976. Guðjón Ármann helgaði starfsævi sína menntun íslenskra sjómanna. Árið 1993 var hann sæmdur ridd- arakrossi hinnar ís- lensku fálkaorðu fyrir störf sín að fræðslu- málum sjómanna. Hann var einn af stofn- endum Stýrimanna- skólans í Vest- mannaeyjum og var skólastjóri frá stofnun árið 1964. Hann var kennari við Stýri- mannaskólann í Reykjavík 1975-81 og skólameistari skólans frá 1981-2003. Örygg- is- og björgunarmál sjómanna voru honum ávallt hugleikin og var hann um ára- bil gjaldkeri Björgunarsjóðs Stýri- mannaskólans í Reykjavík – Þyrlu- sjóðs. Eftir hann liggur jafnframt yfirgripsmikið ritstarf á sviði sjó- mennsku, siglingasögu, sigl- ingafræði og kennslu skipstjórn- armanna. Eftirlifandi eiginkona Guðjóns Ármanns er Anika Jóna Ragn- arsdóttir frá Lokinhamradal í Arn- arfirði. Þau eignuðust fjögur börn og níu barnabörn. Börn þeirra eru Ragnheiður, Ragnar, Eyjólfur og Kristín Rósa. Nánari andlátsfrétt um Guðjón Ármann er birt á mbl.is í dag. Andlát Guðjón Ármann Eyjólfsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.