Morgunblaðið - 18.03.2020, Side 13

Morgunblaðið - 18.03.2020, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020 Norska orrustuflugsveitin, alls um 150 manns ásamt starfsliði, sem verið hefur við loftrýmisgæslu á Ís- landi frá því í byrjun mánaðarins, býst nú til heimferðar. Ráðgert var að loftrýmiseftirlitið stæði yfir í þrjár vikur og er sá tími senn á enda. Sigurd Tonning-Olsen, upplýs- ingafulltrúi norska flughersins, sagði norska staðardagblaðinu Fosna-Folket í gær, að flugsveitin fylgdist grannt með þróun kór- ónuveirumála, enda væri staðan breytileg frá degi til dags. „Íslend- ingar eru um þessar mundir að setja svipaðar reglur og þær sem beitt er í Noregi. Við höfum tekið upp nýjar verklagsreglur sem koma þó ekki í veg fyrir að við framkvæmum okkar starf eins og lagt var upp með,“ sagði Tonning- Olsen. Flogið nánast daglega Hann sagði enn fremur engin kórónusmittilfelli hafa komið upp hjá norsku sveitinni, né nokkurn grun um slíkt. „Herliðið og íbúar í nágrenni herstöðvarinnar eru rækilega aðskilin,“ sagði hann og bætti því við að norska flugsveitin hefði flogið vélum sínum nánast hvern dag nema þegar veður hefðu verið válynd. Orrustuþotur Norðmannanna eru af gerðinni F-35 og nýkomnar frá Lockheed Martin-verksmiðj- unum í Texas, hluti af 52 slíkum vélum sem Norðmenn hafa keypt og fá afhentar í hollum fram til árs- ins 2024. Norska flugsveitin kveður AFP F-35-þota Norðmenn skipta nú tæplega fertugum F-16-flota sínum út.  Loftrýmisgæsla með nýju F-35-þotunum senn á enda Rússneska ríkissjónvarpsstöðin Channel One skellir kór- ónuveiruskuldinni á Breta og hefur þar uppi ýmsar kenningar. Meðal annars heldur fjölmiðillinn því fram að Bretar hafi útbúið veiruna og hleypt henni af stað samhliða Brexit til að auka áhrif útgöngu landsins úr Evrópusambandinu á heimsbyggðina, sem að sumu leyti minnir á þá samsæriskenningu að Robert Mugabe, for- seti Zimbabwe, hafi látið myrða Michael Jackson á sín- um tíma til að beina athygli heimsins frá kosningum þar í landi. Heldur stöðin því einnig fram að Bretar hafi smíðað veiruna í því augnamiði að öðlast aðgang að Kínamarkaði í krafti þeirra orða Winston Churchill að England ætti hvorki vini né óvini, aðeins viðskiptahagsmuni. Dæmi nú hver fyrir sig. SAMSÆRISKENNINGAR ÚR AUSTRI Segja Breta standa á bak við faraldurinn Þungum sökum er Boris borinn. Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Norski heilbrigðisráðherrann Bent Høie hótar því að setja í gildi reglu- gerð sem bannar fólki að ferðast milli sveitarfélaga í Noregi til að dvelja þar í sumarbústöðum. Ástæðan er hugsanlegt aukaálag á heilbrigðisstarfsfólk dvalarsveit- arfélaganna reynist sumarbústaða- fólk smitað af kórónuveirunni. Høie þarf ekki að gera annað en að ákveða gildistöku reglugerð- arinnar sem var samin og samþykkt í ríkisráði á sunnudaginn, samkomu Noregskonungs og ríkisstjórn- arinnar. „Þarna er reglugerð sam- þykkt með stoð í sóttvarnalögum, en ríkisráð hefði eins getað sam- þykkt að víkja öðrum lögum til hlið- ar í neyðartilfelli,“ sagði norski lög- maðurinn John Christian Elden í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöld. Sekt eða fangelsisdómur Gera nýju sumarbústaðalögin ráð fyrir að þeir, sem brotlegir gerist, megi reikna með allt að 15.000 króna sekt, rúmlega 200.000 ís- lenskra króna, eða tíu daga fangels- isdómi fyrir að lauma sér í bústað. Erna Solberg forsætisráðherra lét þau boð út ganga í síðustu viku að Norðmenn skyldu hafa sig hið bráðasta heim úr bústöðum sínum og bauð fram aðstoð heimavarna- liðs landsins við heimförina, tilboð sem túlkað hefur verið sem kurt- eislega orðuð hótun um að fólk yrði flutt heim með vopnavaldi. Fjöldi fólks hefur beðið um und- antekningar. „Það eru engar und- antekningar frá þessum tilmælum,“ sagði Høie við norska ríkisútvarpið NRK í gær, „fari fólk ekki eftir því sem við óskum sjáum við ekki aðra leið færa en að banna sumar- bústaðaferðir.“ Høie vill banna sumarbústaðaferðir  Boðar 200.000 króna sekt eða fangelsi Wikipedia Veiran Bent Høie ráðherra hótar bústaðaförum refsingum. Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, segir japönsk stjórnvöld ætla sér af einurð að halda Ólympíuleikana í sumar, hvað sem kórónuveirunni líði. „Heilir Ólymp- íuleikar eru stefna okkar,“ tók Seiko Hashimoto, ráð- herra íþróttamála, undir með forsætisráðherra í gær og átti við að leikarnir skyldu haldnir óstyttir og með öllum áhorfendum. Alþjóðaólympíunefndin kom saman til fundahalds í gær þar sem leikarnir voru ræddir og ekki síður aðrir íþróttaviðburðir, sem ætlað var að skera úr um keppn- isréttindi íþróttamanna á Ólympíuleikunum, en felldir hafa verið niður eða þeim frestað. Um miðjan dag í gær hafði veiran lagt 28 manns að velli í Japan og voru smittilfelli komin yfir 1.400. Sá hluti hlaupsins með ólympíu- kyndilinn sem liggur um Japan á að hefjast í Fukushima í næstu viku, 26. mars. Móttökuathöfn vegna viðburðarins verður felld niður, en fólki ekki bannað að koma að hlaupaleiðinni og fylgjast með ferð kyndilberans. Mark England, fararstjóri breska ólympíuliðsins, sagði í breska rík- isútvarpinu BBC í gær að allur undirbúningur væntanlegra þátttakenda miðaðist við að leikarnir færu fram. Vilja halda leika hvað sem tautar og raular Shinzo Abe for- sætisráðherra. ÓLYMPÍULEIKARNIR BANNER-UP STANDAR Ódýr og einföld leið til að kynna þína vöru. Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is Bláa stellið er komið Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi Opið virka daga kl. 10-18, lokað laugardaga

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.