Morgunblaðið - 18.03.2020, Síða 21
Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020
✝ Gunnar ÞórKristjánsson
fæddist í Reykjavík
26. ágúst 1942.
Hann lést á gjör-
gæsludeild Land-
spítalans 9. mars
2020. Foreldrar
hans voru Anna
Kristjana
Vilhjálmsdóttir, f.
10. september 1918
í Reykjavík, d. 11.
október 1990, og Kristján Magn-
ússon, f. 9. janúar 1911 í Hvítu-
hlíð í Strandasýslu, d. 27. des-
ember 1959. Þau bjuggu í
Reykjavík. Gunnar var elstur
fjögurra systkina. Þau eru: 1)
Þórður, f. 6. nóv. 1944. 2) Mar-
grét, f. 15. september 1949. 3)
Vilhjálmur, f. 19. mars 1956, d.
27. júní 2001. Samfeðra hálf-
systkini: 1) Benedikt Bjarni, f.
26. september 1935, d. 7. maí
2009. 2) Gunnlaugur, f. 8. júní
1937. 3) Sigrún Stella, f. 7. apríl
1940. Gunnar kynntist Ingunni
Jónsdóttur, f. 19. apríl 1943, ár-
ið 1969. Þau giftust 3. júlí 1971.
Foreldrar hennar voru Svan-
laug Böðvarsdóttir, f. 24. des-
ember 1918, d. 29. janúar 2012,
og Jón Leós, f. 9. desember
1901, d. 16. febrúar 1978, þau
bjuggu í Reykjavík. Þegar
Gunnar og Ingunn tóku saman
átti Gunnar fyrir tvo syni. 1)
desember 1990, faðir hans er
Bergur Björnsson, f. 13. nóv-
ember 1941. 2) Andri Jóhann-
esson, f. 1. júlí 1969, faðir hans
er Jóhannes Sandhólm Atlason,
f. 7. september 1944. Andri er
kvæntur Ragnheiði Birg-
isdóttur, f. 4. október 1975, þau
eiga saman þrjá syni a) Þor-
björn, f. 16. ágúst 2001 b) Stein-
ar, f. 20. maí 2004, c) Bergþór, f.
27. júní 2009. Ingunn og Gunnar
eignuðust saman dóttur sem er
Anna Fanney Gunnarsdóttir, f.
29. mars 1974, gift Haraldi
Helga Óskarssyni, f. 8. júní
1974, þau eiga tvö börn a) Odd-
ur Jarl, f. 16. september 1996,
og b) Andrea Ýr, f. 21. desember
2008.
Gunnar ólst upp í Reykjavík.
Hann útskrifaðist sem vélfræð-
ingur árið 1969. Ingunn og
Gunnar stofnuðu sitt fyrsta
heimili í Reykjavík, þau byggðu
svo hús í Mosfellsbæ og bjó fjöl-
skyldan þar frá 1977 til 1985 en
þá fluttu þau í Breiðholtið og
Ingunn og Gunnar hafa búið þar
síðan. Gunnar vann lengst af
sem vélfræðingur og vaktstjóri í
Áburðarverksmiðjunni eða frá
1969 til 2001 eða þar til
verksmiðjunni var lokað og
vann eftir það hjá Actavis til
starfsloka.
Útförin fór fram 17. mars
2020.
Anton Pétur, f. 5.
maí 1965, móðir
hans er Karen
Ólafsdóttir, f. 1.
febrúar 1944, d. 17.
október 2018. Ant-
on er kvæntur Elsu
Ingu Konráðs-
dóttur, f. 1. apríl
1967. Fyrir þeirra
sambúð átti Anton
dóttur með Char-
lottu Maríu Guð-
mundsdóttur, f. 11. ágúst 1967,
Ingibjörgu, f. 10. mars 1989, í
sambúð með Þórarni Reyni Val-
geirssyni, þau eiga saman Júlíu
Þöll, f. 13. júlí 2017. Elsa og Ant-
on eiga þrjú börn. Þau eru: a)
Konráð Karl, f. 6. janúar 1993,
b) Marteinn Már, f. 24. febrúar
1996, c) Erika Eik, f. 13. mars
2003 2) Davíð Þór, f. 5. desem-
ber 1967, d. 15. september 2018,
móðir hans er Hrafnhildur Hall-
dórsdóttir, f. 10. apríl 1944.
Hann var kvæntur Önnu Cat-
arinu Tågmark, hún átti fyrir
dótturina Olivia Olaisson og
áttu þau Davíð saman Griffin
Thor, f. 25. september 2006. Frá
fyrri sambúð með Tinu Sjöberg
átti Davíð tvær dætur. Þær eru:
a) Annalinnea, f. 24. janúar
1996, b) Ellendfrida, f. 6. júlí
2000. Ingunn átti tvo syni fyrir
og þeir eru: 1) Jón Steinar
Bergsson, f. 21. júní 1965, d. 1.
Nú kveð ég elsku pabba minn
eftir stutta baráttu við krabba-
mein, það mun taka tíma að átta
sig á að pabbi sé ekki lengur til
staðar en við vorum alltaf svo
góðir vinir.
Það rifjast upp margar minn-
ingar þegar ég hugsa til baka.
Ég átti yndislega æsku í Mos-
fellsbænum þar sem foreldrar
mínir byggðu hús. Þegar ég var
lítil gaf pabbi sér alltaf tíma til
að gera eitthvað skemmtilegt
með mér, fara með mér út að
ganga, í sund, spila og lesa fyrir
mig. Hann var þolinmóður og
með mikið jafnaðargeð og átti
auðvelt með að leysa hlutina á
jákvæðan hátt. Við fórum oft í
bústað sem amma og afi áttu á
Laugarvatni og foreldrar mínir
voru dugleg við að aðstoða við
að hugsa um hann og áttum við
fjölskyldan yndislegar stundir
þar. Við fórum einnig oft í bú-
stað við Þingvallavatn, pabbi fór
þar með okkur að veiða og við
fórum í bíltúra og göngutúra,
þetta eru dýrmætar stundir sem
gott er að geta yljað sér við.
Hann hafði gaman af matar-
gerð og lengi vel fórum við alltaf í
mat á sunnudögum og hann sá
jafn mikið um matseld og mamma
og áttum við yndisleg sunnudags-
kvöld saman. Pabbi var mjög um-
hyggjusamur og mikill fjölskyldu-
maður. Þegar ég kynnist
manninum mínum, honum Har-
aldi Helga, urðu þeir fljótt góðir
vinir og náðu vel saman. Halli er
flugstjóri og pabbi kunni svo vel
að meta allar heimsóknir Halla til
hans en hann kíkti oft á hann þeg-
ar hann var heima í fríi og gátu
þeir spjallað mikið saman. Þegar
við eignuðumst frumburð okkar,
hann Odd Jarl, aðeins 22 ára að
aldri, fengum við að búa hjá for-
eldrum mínum í eitt ár, og tóku
þau því fagnandi og hjálpuðu okk-
ur mikið. Það mynduðust sterk
tengsl milli Odds og foreldra
minna og var pabbi mikill afi. Þau
pössuðu oft þegar ég stundaði
nám við Háskóla Íslands því Halli
vann stóran hluta ársins erlendis,
og hjálpuðu þau okkur mikið.
Pabbi hafði svo gaman af afahlut-
verkinu og fór mikið með Odd í
hjólaferðir í Elliðaárdalnum og í
sund og mynduðust sterk tengsl
þeirra á milli. Við eignuðumst
Andreu fyrir 12 árum og ekki stóð
á foreldrum mínum að vera til
staðar og aðstoða okkur við að
passa og alltaf tilbúin að koma
þegar á þurfti að halda. Andrea
varð fljótt mikil afastelpa enda
pabbi alltaf svo hlýr og góður við
hana. Það sem einkenndi pabba
var hversu traustur hann var og
alltaf til staðar fyrir mann, bón-
góður, vinur vina sinna, einstak-
lega hlýr og góður maður.
Pabbi var alla tíð duglegur að
hugsa um heilsuna, fór mikið í
sund og hjólaði og var því alla tíð
vel á sig kominn. Þau mamma
voru falleg hjón að innan sem utan
og síðustu árin þegar mamma
greindist með alzheimer var unun
að sjá hversu vel pabbi hugsaði
um hana. Pabbi kenndi mér svo
ótrúlega margt og fyrir það er ég
þakklát. Eitt af því er að sjá það
fallega í litlu hlutunum, hann var
gjarn á að staldra við og benda
mér á það sjálfsagða í umhverfi
okkar og segja mér hversu fallegt
eða merkilegt það væri.
Elsku pabbi minn, takk fyrir
allt saman, betri pabba er ekki
hægt að hugsa sér. Megi Guð vera
með þér.
Þín dóttir,
Anna Fanney Gunnarsdóttir.
Í dag kveð ég kæran tengda-
föður minn, Gunnar Þór, eftir
stutt en erfið veikindi.
Gunnari kynntist ég fyrir
tuttugu árum og var mér strax
vel tekið í Torfufellinu. Þangað
var gott að koma og tóku hann
og Ingunn vel á móti okkur fjöl-
skyldunni þegar við komum í
heimsókn. Þétt handtak og
faðmlag í hvert skipti sem við
hittumst. Hann var stoltur af
fjölskyldunni sinni og bar hags-
muni hennar ávallt fyrir brjósti.
Það er skrítið að hugsa til
þess að fá ykkur Ingu ekki oftar
í miðvikudagsmat í Vesturbæ-
inn. Það var fastur punktur hjá
okkur fjölskyldunni seinustu ár
og alltaf gott að fá ykkur í mat
og spjall, ræða menn og málefni
líðandi stundar eða rifja upp lið-
inn tíma.
Gunnar var maður nákvæmni
og snyrtimennsku. Hann vildi
hafa fínt í kringum sig og gott
skipulag á hlutunum og vildi
vera vel tilhafður. Gunnar var
vel lesinn og áttum við oft gott
spjall um bækur og bókmenntir.
Stundum vorum við sammála en
ekki alltaf. Gunnar hafði gaman
af alls kyns íþróttum og stytti
hann sér stundir seinustu ár við
að horfa á margs konar íþróttir
þótt fótboltinn væri í mestu
uppáhaldi. Manchester United
var liðið og hélt hann með sínum
mönnum í gegnum súrt og sætt.
Hann og strákarnir mínir eyddu
oft löngum tíma í að ræða gengi
sinna manna.
Seinustu ár hefur Gunnar
staðið þétt við bakið á Ingunni
eiginkonu sinni í hennar veik-
indum. Hann sá vel um sína
konu, hvort sem var að kaupa á
hana föt, lakka neglur eða sjá
um allt sem viðkom heimilinu.
Aldrei kvartaði hann og taldi
það skyldu sína að sjá vel um
konu sína til rúmlega 50 ára.
Gunnar greindist með
krabbamein í haust og fór í að-
gerð í janúar til að fjarlægja
meinið. Ekki áttum við von á því
að hann ætti ekki afturkvæmt
heim úr þeirri aðgerð. Missir
Ingu og fjölskyldunnar er mik-
ill.
Ragnheiður Birgisdóttir.
Gunnar frændi er fallinn frá
eftir stutta en erfiða sjúkdóms-
legu en skyldleiki okkar er í
gegnum systkinin í Skáholti v.
Drafnarstíg. Mamma Gunnars,
Anna, missti móður sína aðeins
fimm ára og ólst eftir það upp í
Skáholti með móðursystkinum
sínum. Eitt þeirra var faðir
minn en samband þeirra var alla
tíð mjög náið. Mæður okkar
Gunnars tengdust líka sterkum
fjölskyldu- og vináttuböndum.
Það voru sannarlega hugljúf ár
þegar þær komu saman ásamt
okkur börnum sínum og tengda-
börnum og fögnuðu þorra með
þorrablóti.
Fyrir nokkrum árum varð ég
þeirrar ánægju aðnjótandi að
fara ásamt Möggu systur Gunn-
ars og mökum þeirra í leiðangur
um æskustöðvarnar í vesturbæ
Reykjavíkur. Fyrsti viðkomu-
staðurinn var Víðimelur 59, en
þar bjuggu margir ættingjar
okkar í lengri og skemmri tíma
og þar sleit Gunnar barnsskón-
um hjá foreldrum sínum og
systkinum. Síðan var haldið um
nærliggjandi svæði og endað við
Skáholt. Þetta var einstök upp-
lifun því Gunnar var gæddur
góðum frásagnarhæfileikum og
hreif okkur hin með sér inn í
land æskuminninganna.
Árið 1955 flutti hann með fjöl-
skyldu sinni í Skipasund og fjór-
um árum síðar lést fjölskyldu-
faðirinn. Þá stóð móðir Gunnars
ein uppi með fjögur börn. Gunn-
ar sem var elstur var mikill
stuðningur fyrir móður sína og
yngri systkinin sem alltaf áttu
skjól hjá honum, ekki síst
yngsta barnið sem var aðeins
þriggja ára við föðurmissinn.
Gunnar kvæntist yndislegri
konu, henni Ingu. Þau eignuðust
fimm börn sem öll bera foreldr-
um sínum gott vitni.
Hann frændi minn bjó yfir
góðvild, umhyggjusemi og hlýju
viðmóti. Hann var næmur á það
kómíska í lífinu og því var oft
létt og kátt andrúmsloft í kring-
um hann.
Ég vil að lokum votta Ingu,
börnum og fjölskyldum þeirra
og öðrum aðstandendum mína
innilegustu samúð.
Minningin um góðan mann
lifir.
Auður.
Gunnar Þór Kristjánsson
Smáauglýsingar
Húsnæði óskast
2-3ja herbergja íbúð óskast
Ungt og reglusamt reyklaust par
óskar eftir 2ja-3ja herbergja íbúð
á höfuðborgarsvæðinu.
Skilvísum greiðslum heitið.
Meðmæli, trygging og allt að 3ja
mánaða fyrirframgreiðsla.
Sími 845 5926
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Þjónusta
Málningarþjónusta
Upplýsingar í síma 782 6034.
Húsviðhald
Tek að mér
ýmiskonar
húsaviðhald og fl.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Ásabraut 3, Sandgerði, fnr. 209-4608 , þingl. eig. Karolina Aneta Los,
gerðarbeiðandi ÍL-sjóður, þriðjudaginn 24. mars nk. kl. 09:00.
Austurbraut 6, Keflavík, fnr. 208-6910 , þingl. eig. Ísak Þór Ragnars-
son, gerðarbeiðandi ÍL-sjóður, þriðjudaginn 24. mars nk. kl. 10:00.
Grænásbraut 604A, Keflavíkurflugvelli, fnr. 230-8873 , þingl. eig.
Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og
Vátryggingafélag Íslands hf. og Reykjanesbær, þriðjudaginn 24. mars
nk. kl. 10:20.
Grænásbraut 604A, Keflavíkurflugvelli, fnr. 230-8874 , þingl. eig.
Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og
Reykjanesbær og Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 24. mars
nk. kl. 10:25.
Grænásbraut 604A, Keflavíkurflugvelli, fnr. 230-8877 , þingl. eig.
Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og
Vátryggingafélag Íslands hf. og Reykjanesbær, þriðjudaginn 24. mars
nk. kl. 10:30.
Grænásbraut 604A, Keflavíkurflugvelli, fnr. 236-9588 , þingl. eig.
Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og
Vátryggingafélag Íslands hf. og Reykjanesbær, þriðjudaginn 24. mars
nk. kl. 10:35.
Grænásbraut 604A, Keflavíkurflugvelli, fnr. 236-9589 , þingl. eig.
Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og
Vátryggingafélag Íslands hf. og Reykjanesbær, þriðjudaginn 24. mars
nk. kl. 10:40.
Grænásbraut 604A, Keflavíkurflugvelli, fnr. 236-9585 , þingl. eig.
Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og
Vátryggingafélag Íslands hf. og Reykjanesbær, þriðjudaginn 24. mars
nk. kl. 10:45.
Grænásbraut 604A, Keflavíkurflugvelli, fnr. 236-9584 , þingl. eig.
Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og
Reykjanesbær og Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 24. mars
nk. kl. 10:50.
Grænásbraut 604A, Keflavíkurflugvelli, fnr. 230-8878 , þingl. eig.
Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og
Vátryggingafélag Íslands hf. og Reykjanesbær, þriðjudaginn 24. mars
nk. kl. 10:55.
Hafnargata 6, Grindavík, fnr. 209-1723 , þingl. eig. Bergbúar ehf,
gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Suðurnesjum og Landsbankinn
hf., þriðjudaginn 24. mars nk. kl. 11:45.
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
16. mars 2020
Félagsstarf eldri borgara
Garðabæ Skipulagt tómstunda- og íþróttastarf fyrir eldri borgara á
vegum Garðabæjar, s.s. í Jónshúsi, Smiðjunni, Litlakoti,
íþróttahúsinu í Sjálandsskóla og Ásgarði, fellur niður tímabundið.
Starfsemi hjá FEBG og FEBÁ fellur einnig niður tímabundið.
Korpúlfar Allt félagssstarf á vegum Korpúlfa fellur niður vegna
Kórónaveirufaraldurs nema gönguhópar Korpúlfa, gengið er frá kl.
10. mánudaga, frá Borgum, Grafarvogskirkju og í Egilshöll. Á
miðvikudögum og föstudögum kl. 10. frá Borgum og inni í Egilshöll.
Hvetjum alla til að halda áfram heilsueflingu og passa upp á hvert
annað með því að hringja hvert í annað og fylgjast vel með á
samfélagsmiðlum takk
Norðurbrún 1 Félagsstarfið liggur niðri vegna COVID-19 smits.
Seltjarnarnes Allt félags og tómstundastarf hjá eldri borgurum á
Seltjarnarnesi liggur niðri vegna COID19. Við hjá félagsstarfinu gerum
allt sem í okkar valdi stendur til að upplýsa og vera til staðar. Hægt er
að vera í sambandi á fb síðunni eldri borgarar á Seltjarnarnesi með
ábendingar eða leyta upplýsinga. Einnig má hringja í Kristínu í síma
8939800 eða senda póst á kristin.hannesdottir@seltjarnarnes.is
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er lokað um óákveðin tíma
vegna Covid-19 smits innanlands
Raðauglýsingar
mbl.is
alltaf - allstaðar
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
GUÐMUNDUR INGIMUNDARSON
Þorsteinsgötu 17
Borgarnesi
andaðist á hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð í
Borgarnesi 6. mars.
Í ljósi aðstæðna í samfélaginu mun útförin fara fram í kyrrþey.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Brákarhlíð.
Margrét Guðmundsdóttir Jóhannes Ellertsson
Pálmi Guðmundsson Elín Magnúsdóttir
afa- og langafabörn
Fleiri minningargreinar
um Gunnar Þór Kristjáns-
son bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.