Morgunblaðið - 18.03.2020, Blaðsíða 22
Samþykkt deiliskipulags Smiðjuvalla
Smiðjuvellir 12-14-16-18-20-22
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti 10. mars 2020,
deiliskipulag Smiðjuvalla vegna lóða við Smiðjuvelli 12, 14, 16,
18, 20 og 22. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 41. gr.
skipulagssaga nr. 123/2010.
Uppdráttur og greinargerð deiliskipulagsins hafa verið samþykkt
í samræmi við ábendingar Skipulagsstofnunar.
Lóðamörkum á horni Smiðjuvalla og Þjóðbrautar var breytt og
stærð lóðar leiðrétt, vegna möguleika á að gerð hringtorgs.
Lagfæringar eiga ekki við efnisatriði deiliskipulagsins eða
hagsmuni annarra en Akraneskaupstaðar.
Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar
umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá
birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipulagins í
B-deild Stjórnartíðinda.
Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Auglýsing
um breytingu
á aðalskipulagi
Þingeyjarsveitar
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkti þann
30. janúar 2020 að auglýsa tillögu að breytingu
á Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2010-2022
vegna Hólasandslínu 3 eins og 1. mgr. 31. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010 mælir fyrir um.
Tilefni breytingarinnar eru áform Landsnets að
byggja 220 kV raflínu, Hólasandslínu 3, milli
Akureyrar og Hólasands.
Ráðgert er að Hólasandslína 3 verði lögð innan
sveitar innar sem loftlína, að mestu samhliða
núverandi Kröflulínu 1, sem er í megindráttum í
samræmi við gildandi aðalskipulag Þingeyjarsveitar.
Lega línunnar víkur hins vegar frá gildandi
aðalskipulagi á þremur stöðum, í Bíldsárskarði,
Fnjóskadal og Laxárdal. Í tengslum við fyrirhugaða
framkvæmd eru jafnframt tilgreind átján ný
efnistökusvæði.
Tillagan að breytingu mun liggja frammi á skrif-
stofu Þingeyjarsveitar, Kjarna, 650 Laugar, frá og
með fimmtu deginum 19. mars 2020 með athuga-
semdarfresti til og með föstudeginum 1. maí 2020.
Þá eru upp lýsingar einnig aðgengilegar á heimasíðu
Þingeyjarsveitar:
http://www.thingeyjarsveit.is, stjórnsýsla/
skipulagsmál.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er
gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar.
Frestur til að skila inn athuga semdum rennur út
föstudaginn 1. maí 2020.
Skila skal athugasemdum skriflega til skrifstofu
Þingeyjarsveitar, Kjarna, 650 Laugar og/eða í tölvu-
pósti á netfangið: gudjon@skutustadahreppur.is.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar
innan tilskilins frests teljast þeim samþykkir.
Guðjón Vésteinsson,
skipulagsfulltrúi.
Auglýsing um skipulagsmál í
Rangárþingi ytra
Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst niðurstaða sveitarstjórnar
Rangárþings ytra á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028.
Jarlsstaðir, Rangárþingi ytra, breyting á afmörkun frístundasvæðis
Á fundi sveitarstjórnar Rangárþings ytra þann 13. febrúar sl. var landeiganda veitt heimild til að leggja
fram deiliskipulag af spildu sinni. Afmarkaðir verða byggingareitir/lóðir fyrir íbúðarhús, sumarhús og
skemmu með aðkomu frá Hagabraut (nr. 286). Íbúðarhús og skemma munu verða staðsett á flöt samsíða
Hagabraut. Einnig verða afmarkaðir tveir byggingareitir/lóðir fyrir sumarhús efst í halla sem liggur að
Högnalæk Hagaleiru.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur samþykkt að gera breytingar á afmörkun frístundasvæðis í aðalskipu-
lagi í landi Jarlsstaða úr landi Stóru-Valla. Jafnframt verður lóðum fækkað úr 50 í 35. Sveitarstjórn telur
að umrædd breyting falli undir skilgreiningu óverulegrar breytingar þar sem einungis er um breytingu á
afmörkun núverandi frístundasvæðis að ræða. Breytingin felur ekki í sér meira rask á hraunsvæði en áður
var gert ráð fyrir. Frístundasvæðinu hefur verið fundinn betri staðsetning að teknu tilliti til nálægðar við
Rangá og umrædd breyting hefur engin áhrif á aðra en jarðareiganda.
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488 7000 eða
með tölvupósti á netfangið birgir@ry.is
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing
að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028
Minna-Hof, Rangárþingi ytra, breyting á landnotkun
Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur samþykkt að gera breytingar á skilgreiningu landnotkunar í aðal-
skipulagi á spildu úr landi Minna-Hofs þar sem núverandi landbúnaðarsvæði sem er u.þ.b. 110 hektarar
að stærð verði gert að íbúðasvæði.
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. og 3. mgr. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar sameiginlegar
lýsingar að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028 samhliða lýsingum deiliskipulags.
Hella, iðnaðarlóðir við Dynskála, breyting á landnotkun ásamt breytingu
í deiliskipulagi
Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur samþykkt að gera breytingar á skilgreiningu landnotkunar í aðal-
skipulagi ásamt breytingu í deiliskipulagi fyrir svæði austan við núverandi athafnasvæði við Dynskála á
Hellu, þar sem núverandi óbyggt svæði verði skilgreint sem athafnasvæði í beinu framhaldi af núverandi
athafnasvæði AT3. Stækkun nemur um einum hektara og verður svæðið því um 3,5 hektarar að stærð. Í
deiliskipulagi verður gerð grein fyrir lóðum, byggingarskilmálum, veitukerfum, gangstéttum, bílastæðum
og götum. Byggingar geta verið á 1-2 hæðum. Gerð verði breyting á uppdrætti og í greinargerð deili-
skipulags.
Hella, Miðbæjarsvæði, breyting á gatnakerfi ásamt breytingu í deiliskipulagi
Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur samþykkt að gera breytingar á innra gatnakerfi Hellu á miðbæjar-
svæði til að bæta umferðaröryggi svæðisins. Svæði undir bílastæði verði stækkað og lóðum fjölgað. Að-
komu að miðbæjarsvæðinu verði breytt. Gerð verði breyting á uppdrætti og í greinargerð deiliskipulags.
Samkvæmt 3. mgr. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing að deiliskipulagi
Hella, atvinnusvæði sunnan Suðurlandsvegar, Deiliskipulag
Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur samþykkt að hefja vinnu við gerð deiliskipulags fyrir svæði sunnan
Suðurlandsvegar. Um er að ræða svæði austast í þéttbýlinu, verslunar- og þjónustusvæðið VÞ20, athafna-
svæðið AT4 og iðnaðarsvæðið I26. Í deiliskipulaginu verða afmarkaðar lóðir, settir byggingarskilmálar og
gerð grein fyrir götum, bílastæðum o.fl.
Lýsingarnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 1-3, Hellu
og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is
Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn ábendingar
eða gera athugasemdir við lýsingu og er frestur gefinn til og með 2. apríl nk.
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra
í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is
------------------------------
Haraldur Birgir Haraldsson
skipulagsfulltrúi.
RANGÁRÞING YTRA
Raðauglýsingar 569 1100
Tilkynningar
Atvinnublað Morgunblaðsins
fimmtudaga og laugardaga
Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað?
Sendu pöntun á atvinna@mbl.is eða hafðu samband í síma 569 1100
Allar auglýsingar birtast í Mogganum, á mbl.is og finna.is
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020