Morgunblaðið - 18.03.2020, Síða 26

Morgunblaðið - 18.03.2020, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020 DÓMGÆSLA Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Rögnvaldur Hreiðarsson varð síð- asta föstudagskvöld fyrsti Íslend- ingurinn til að dæma tvö þúsund körfuboltaleiki í mótum á vegum Körfuknattleikssambands Íslands þegar hann dæmdi leik Keflavíkur og Þórs frá Þorlákshöfn í úrvalsdeild karla. Hann hefur dæmt samfleytt frá því í janúar árið 1995, eða í rúmlega 25 ár, og því dæmt að jafnaði 80 leiki á ári frá þeim tíma, eða tæplega sjö leiki í hverjum einasta mánuði. Rögnvaldur sagði við Morgun- blaðið að hann væri stoltur af þess- um leikjafjölda og hefði gert sér grein fyrir því fyrir nokkru að það væri ekki langt í þennan stóra áfanga. „Vissulega er ég dálítið stoltur af þessu og finnst skemmtilegt að hafa náð þessum tímamótum, það get ég viðurkennt. Ég vissi alveg hvað ég þyrfti marga leiki þegar þetta tíma- bil byrjaði og þetta tvö þúsund leikja takmark er eitt af því sem hefur haldið mér gangandi. En einhver áfangi í leikjafjölda dugar ekki einn og sér til að maður haldi áfram að dæma, það þarf annað og meira til.“ Hann kveðst ekki vera ákveðinn í því hvort hann haldi áfram að dæma næsta vetur eða hvort kominn sé tími til að láta gott heita. „Útgangspunkturinn hjá mér fyr- ir þetta tímabil var að það gæti orðið mitt síðasta. En ég tel að það sé aldrei skynsamlegt að hætta keppni í íþróttum í lok tímabils. Margir sem hætta þannig eru byrjaðir aftur þeg- ar næsta tímabil hefst. Ég ætla að ákveða í sumar hvort ég held áfram í haust og tel að það sé skynsamleg- ast. Nú veit ég ekki hvort þessu tímabili er lokið en það væri dálítið sérstakt ef það kæmi á daginn að síðasti leikurinn hefði verið síðasta föstudag, sá tvö þúsundasti. Ég veit ekki hvort ég myndi vilja hætta við þær aðstæður þótt það sé vissulega ákveðin rómantík að hætta þegar tvö þúsundasta leiknum sé náð.“ Aldurinn nær öllum Í körfuboltanum þarf ekki að hætta að dæma við ákveðinn aldur en kröfurnar eru miklar. „Ég verð 56 ára í sumar og það styttist í að maður hætti. Ég er á leiðinni niður brekkuna og vil ekki að manni verði hrint niður. Ég er ekki lengur ungur dómari á uppleið og það er betra að hætta á meðan maður er enn sómasamlegur í þessu. Ég vil hætta á eigin forsendum en ég er búinn að dæma mun minna í vetur en áður og hef meðvitað verið að trappa mig niður. Ég tek eitt ár í einu, KKÍ er ekki með aldurs- takmark þannig að þú getur haldið áfram á meðan þú ræður við þetta og nærð prófunum. En aldurinn nær öllum og það er gott að ákveða sinn næturstað sjálfur.“ Eldur sem brennur enn Rögnvaldur kveðst hafa byrjað að dæma af svipuðum ástæðum og flestir aðrir. „Ég fór að dæma fyrir mitt félag, Val, í mótum yngri flokka. Ég gat ekkert í körfubolta sjálfur, byrjaði seint að æfa hjá Val og hætti snemma, en fann strax að það var gaman að dæma. Fyrsta leikinn á vegum KKÍ dæmdi ég í janúar 1995, milli KR og Grindavíkur í stúlkna- flokki í Hagaskóla, og árið eftir dæmdi ég í fyrsta sinn í úrvalsdeild karla, með Kristni Óskarssyni sem var einmitt kennari minn á fyrsta dómaranámskeiðinu. Við erum ansi stór hópur sem byrjaði að dæma um svipað leyti og höfum flestir haldið þetta út ansi lengi. Sigmundur Már Herbertsson tók prófið til dæmis um leið og ég og það verður ekki langt í að hann fari fram úr mér í leikjafjölda. Það er gríðarlegur metnaður í þessum hópi, eldur sem brennur enn og menn eru hreinlega óðir í að dæma.“ Lífsstíll að vera dómari En hvað gerir dómarastarfið svona heillandi? Rögnvaldur segir að það sé lífsstíll að vera dómari, en hann hefur annars lengst af starfað sem hárskeri og er með stofu á Hót- el Sögu. „Já, svo sannarlega og þetta starf hefur verið stór hluti af lífi mínu. Ég vinn sjálfstætt, fer fyrir vikið stund- um úr vinnunni án þess að fá laun til að sinna dómgæslunni. Ég hef stýrt því sjálfur, get farið þegar ég vil. Það er enginn í dómgæslu í íþróttum fyrir peninga en það gerir þetta heldur enginn frítt. Þetta er heil- mikil vinna og ég held að hinn al- menni áhugamaður viti ekki alveg hve mikil vinna það er að vera dóm- ari. Við þurfum sem dæmi að taka próf á netinu á tíu daga fresti og för- um í þrekpróf tvisvar á ári. Það er engin miskunn sýnd en þetta heldur manni við efnið.“ Auknar kröfur stuðlað að fjölgun dómara Rögnvaldur, sem sjálfur hefur setið í þrettán ár í dómaranefnd KKÍ, segir að á seinni árum hafi orð- ið gríðarleg bylting í körfubolta- dómgæslu á Íslandi. „Það er óhætt að segja það. Kröf- urnar hafa aukist mikið en um leið hefur dómurum fjölgað og við höfum fengið inn yngri og metnaðarfyllri dómara. Sú ákvörðun að fjölga dóm- urum á leik úr tveimur í þrjá hjálp- aði mikið til. Yngri dómarar fá tæki- færi fyrr en áður og eru fljótari að komast inn í efstu deildirnar. Þetta hefur heldur betur virkað og við höf- um gengið í gegnum áhugaverða tíma. Það eru að verða kynslóða- skipti í dómgæslunni. Þessar auknu kröfur hafa laðað að fleiri dómara og við höfum náð að búa til enn metn- aðarfyllra umhverfi en áður. Við höf- um fengið inn stráka sem eru miklu betri dómarar en við þessir eldri höf- um nokkurn tíma verið.“ Góð tækifæri fyrir konur Í körfuboltanum er glímt við sama vandamál og í fleiri íþróttagreinum. Fáar konur leggja fyrir sig dóm- gæslu. „Já, því miður. Við höfum reynt margt í þeim efnum en það er bara ein kona sem er virk í dag, hún Georgía Olga Kristiansen. Það er mikill áhugi fyrir því að breyta þessu, fyrir stuttu fengum við til landsins tvær konur sem dæma hjá FIBA til að koma og vera með kynn- ingu á konum í dómgæslu. Þetta tek- ur tíma en við gerum það sem við getum. Það eru svo sannarlega tæki- færi fyrir konur í körfuboltadóm- gæslu, og fyrir þær er leiðin miklu styttri en fyrir strákana ef þær vilja ná langt. Nokkrar hafa komið í þetta en enst ofboðslega stutt en við tök- um öllum mjög vel. Það er metnaður fyrir því að konur komist áfram hjá okkur.“ Algengasti dómurinn er að dæma ekki Rögnvaldur segir að körfuboltinn á Íslandi hafi breyst mikið á þessum 25 árum frá því hann byrjaði að dæma. „Það hefur hreinlega orðið stökk- breyting á íþróttinni frá því ég byrj- aði hvað varðar stjórnun og umgjörð og svo er leikurinn sjálfur allt öðru- vísi. Þetta er nánast allt önnur íþrótt. Það hafa orðið rosalegar breytingar, miklu meiri snertingar en áður, og það að fjölga dómurum úr tveimur í þrjá gjörbreytti starf- inu. Áður þurftu menn alltaf að giska dálítið á dóma. Inni á vellinum eru tíu leikmenn og snerta allir hver annan. Þetta er löngu hætt að vera leikur án snertinga og harkan er heilmikil, sérstaklega undir körf- unni. Algengasti dómurinn í körfubolta er í raun að dæma ekki (no call). Hagnaðarreglan í íþróttinni er kom- in mun lengra en marga grunar. Galdurinn er að láta leikinn fljóta. Þegar leikurinn er greindur sést að það er allt fullt af villum en munur- inn á góðum dómara og frábærum dómara er sá að frábær dómari kemst upp með að dæma minna. Hann nær að halda utan um leikinn en þarf ekki að flauta mikið. Stund- um er það reyndar ekki hægt, leik- menn ráða ferðinni að vissu leyti en það er algengast að dæma ekki neitt. Ég tel að fagmennskan í kringum dómgæsluna á Íslandi sé á háu stigi. Kristinn Óskarsson hefur rekið þetta og stýrt með stórbrotnum hætti og verður þáttur hans í því hvernig dómgæsla á Íslandi er í dag aldrei fullþakkaður.“ Útlendingarnir eru fagmenn Erlendum leikmönnum í íslenska körfuboltanum hefur fjölgað mikið, sérstaklega fyrir yfirstandandi tíma- bil þegar reglum var breytt. Rögn- valdur segir að það hafi ekki breytt miklu fyrir dómarana. „Gæðin eru klárlega meiri og íþróttin er öðruvísi með þessum fjölda útlendinga. En, nei, það er alls ekki erfiðara að dæma. Erlendu leikmennirnir eru atvinnumenn og eftir því sem gæðin aukast er auð- veldara að dæma. Það sést best með því að horfa á stærstu mót heims, þar eru vandræði dómara með leik- menn hverfandi. Þessir erlendu leik- menn sem koma hingað eru fag- menn sem skilja línuna vel og það er auðvelt að eiga við þá. Ég vil alls ekki tala íslenska leikmenn niður en þetta er öðruvísi. Þetta eru stærri menn sem keyra meira á körfuna. Deildin er allt öðruvísi þegar í henni eru nánast bara Íslendingar, þá er þetta nokkurs konar bakvarða- deild.“ Rögnvaldur kveðst ekki hafa opin- bera skoðun á því hvernig eigi að ljúka yfirstandandi tímabili sem er í uppnámi vegna kórónuveirunnar. „Nei, það er best að treysta þeim sem eiga að taka ákvörðun um það,“ segir Rögnvaldur Hreiðarsson. Allt önnur íþrótt í dag  Rögnvaldur Hreiðarsson dæmdi 2.000. leik sinn á föstudagskvöldið, fyrstur íslenskra körfuboltadómara  Mögulegt að það hafi verið kveðjuleikurinn Ljósmynd/aðsend Dómaratríó Davíð Tómas Tómasson, Rögnvaldur Hreiðarsson og Sigmund- ur Már Herbertsson dæmdu leik Keflavíkur og Þórs frá Þorlákshöfn. Rögnvaldur Hreiðarsson..... 2.000 Sigmundur M. Herbertsson . 1.952 Kristinn Óskarsson .............. 1.815 Jón Otti Ólafsson................. 1.673 Eggert Aðalsteinsson .......... 1.599 Björgvin Rúnarsson ............. 1.545 Einar Skarphéðinsson ......... 1.445 Davíð Hreiðarsson............... 1.362 Leifur S. Garðarsson ........... 1.240 Halldór Geir Jensson............ 1.107 Jón Bender........................... 1.101 Aðalsteinn Hrafnkelsson...... 1.017  Jón Otti Ólafsson varð fyrstur til að ná 1.000 leikjum árið 1992.  Rögnvaldur dæmdi 1.000. leik sinn árið 2006. Leikjahæstu dómararnir Morgunblaðið/Víðir Sigurðsson Hárskeri Rögnvaldur Hreiðarsson á stofunni sinni á Hótel Sögu en hann hefur starfað sem hárskeri frá því hann var rúmlega tvítugur. 18. mars 1965 Frétt úr Morgunblaðinu: Landshappdrætti það sem ÍSÍ gekkst fyrir í nóv. og des. s.l. gekk mjög vel og varð yfir hálfrar milljón kr. hagnaður – og rann hann allur til þeirra félaga er staðið höfðu að sölu miðanna. Höfðu því þeir aðilar, sem duglegir voru við sölu miðanna, veru- legar tekjur í félagssjóði sína. 18. mars 1972 Viðburður á þessum degi: Ís- lenska karlalandsliðið í hand- knattleik nær jafntefli gegn Noregi, 14:14, í undankeppni Ól- ympíuleikanna í Bilbao á Spáni á ævintýralegan hátt. Ólafur H. Jónsson og Gunnsteinn Skúlason skora tvö mörk í lokin og Ísland nær í dýr- mætt stig sem tryggir liðinu sæti í milliriðli. Gunnsteinn er markahæstur með 4 mörk. 18. mars 1980 Frétt úr Morgunblaðinu: „Loksins, loksins Íslands- meistari eftir 19 ár í körf- unni,“ segir körfuboltamaður- inn Þórir Magnússon úr Val sem átti stórleik, skoraði 32 stig og tryggði Hlíðarendalið- inu sinn fyrsta Íslandsmeist- aratitil karla með sigri á KR, 100:93. 18. mars 1993 Viðburður á þessum degi: Ís- land sigrar Danmörku, 27:22, í síðasta leik í milliriðli heimsmeistaramóts karla í handknattleik í Svíþjóð og tryggir sér leik um 7. sætið á mótinu en Danir þurfa að spila um 9. sætið. Geir Sveinsson skorar 7 mörk og Héðinn Gilsson 6. 18. mars 1997 „Ég ætla að klára tíunda bekkinn fyrst, fyrr verður ekkert ákveðið,“ segir 14 ára gamall Guð- mundur Steph- ensen sem er nýkrýndur Ís- landsmeistari karla í borð- tennis fjórða árið í röð, við Morgunblaðið. Eva Jósteins- dóttir er Íslandsmeistari kvenna en þau eru bæði úr Víkingi. 18. mars 2009 Viðburður á þessum degi: Ís- lenska karlalandsliðið í hand- knattleik vinnur dýrmætan útisigur á Makedóníu, 29:26, í Skopje í undankeppni Evr- ópumótsins. Guðjón Valur Sigurðsson skorar 9 mörk og Aron Pálmarsson 6 og Ísland er með fimm stig eftir fyrstu þrjá leiki sína. 18. mars 2010 Frétt í Morgunblaðinu: Ólafur Björn Loftsson, Íslandsmeist- ari úr Nes- klúbbnum, sýndi allar sínar bestu hliðar og sigraði á Rio Pinar In- vitational- háskólamótinu í golfi á Flórída á þriðjudagskvöldið. Ólafur steig varla feilspor í mótinu og lék hringina þrjá á sam- tals sjö höggum undir pari. Aðeins þrír Íslendingar hafa sigrað á háskólamóti í golfi. Á ÞESSUM DEGI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.