Morgunblaðið - 24.03.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.03.2020, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2020 Amstur Þótt kórónuveiran hafi umturnað flestu snúast hjólin enn við Reykjavíkurhöfn, þar sem menn voru í gær að vinna og dytta að ýmsu við Hornafjarðarskipið Ásgrím Halldórsson SF 250. Eggert Fyrst leiðrétting: Í síðustu grein minni (Mbl. 7/3 2020) var ranglega skrifað að ál- verð þyrfti að lækka um 30% til að Ísal hefði sömu samkeppnisstöðu og samið var um 2011. Hér átti auðvitað að standa að orkuverð þyrfti að lækka um 30% til að álverið héldi sam- keppnisstöðunni. En hvar stöndum við ef álverinu verður lokað? Þó móðurfyrirtæki álversins ábyrgist að greiða stóran hluta ork- unnar þrátt fyrir rof á starfsemi, þá er ekki gefinn hlutur að lögfræðingar þess finni ekki leið út úr þeim vanda. Alla vega er varla eðlilegt að þessi orka verði látin óseld og ónotuð fram til 2036 og Landsvirkjun haldi áfram að reisa nýjar virkjanir þegar eft- irspurn vex en Rio Tinto haldi áfram að borga allan þann tíma. Það verða málaferli og óvissuástand þar til sú deila leysist og Lands- virkjun verður að leita nýrra viðskiptavina á meðan, ella veikist staða hennar í málinu. Með öðrum orðum, orkan fer á markað, hugsanlega brunaútsölu. Markaðshorfur með raforku eru allt aðrar nú en þegar samningar við Ísal voru undirrit- aðir 2011. Af er sú kenn- ing að orkuverð muni ekki breytast nema til hækkunar, meira að segja gefa spár nú til kynna að orkuverð kunni að lækka ef tækniþróun verður ör. Ljóst er orðið að spár á fyrri hluta þessa áratugar um síhækkandi orkuverð byggðust á óskhyggju og oftrú á stefnuna í loftslagsmálum, en vaxandi vantrúar gætir nú á því, að þær bar- áttuaðferðir gegn hlýnun jarðar sem þá var lagt upp með skili árangri. Áhættumatið bak við orkuviðskiptin er gjörbreytt. Undanfarið hefur mikið verið talað um gagnaver sem vænlegan markað. Bitcoin-vinnsla mun hér á landi nota um 100 MW, en samkeppni á því sviði hefur vaxið hratt og útheimtir nú mun hraðvirkari tölvur en áður og komið að endurnýjun hjá gagnaverum hér. Næsti þröskuldur á því sviði verður hið hægvirka gagnasamband okkar við útlönd. Það gengur milli manna að við núverandi orkuverð muni tölv- urnar ekki verða endurnýjaðar, þann- ig að þar er markaður á við hálft Ísal sem gæti líka lagst af fáist orkuverð ekki lækkað. Sú orka sem losnar verður varla endurseld á sama verði. Tekin hefur verið stefna á orku- skipti þar sem hugsunin er að raf- magn verði í vaxandi mæli notað til flutninga og sjósóknar hérlendis. Hér er um að ræða magn sen nemur svona hálfu álveri, en það mun taka áratugi að koma þessum markaði upp, þannig að hann kemur ekki í stað þess sem getur tapast á næstunni. Þegar endursamið var við Ísal snemma á áratugnum spáðu sérfræð- ingar hækkandi orkuverði í Evrópu sem þó var hátt. Á þessum tíma fór Landsvirkjun að mæla fyrir sæstreng og komst þar með í aðstöðu til að setja viðsemjendum úrslitakosti með hótunum. Nú hefur dæmið snúist við. Orkuverð í Evrópu hefur lækkað svo sæstrengur er fjarlægur möguleiki, WOW lagði upp laupana, ferðaiðn- aðurinn er í bakslagi og loðnan að bregðast í annað sinn. Eftir samn- ingshörku sína á liðnum áratug getur Landsvirkjun ekki búist við öðru en hörku á móti nú þegar dæmið er ann- að. Ekki er að efast um að Rio Tinto leitar allra leiða til að losna undan verulegum hluta greiðsluskyldunnar með öllum ráðum. Málaferli skapa óvissu sem kann að hafa áhrif á láns- hæfismat Landsvirkjunar og jafnvel orðspor Íslands þegar þau komast í fréttir. Þetta bætist ofan á vinnutap slíks fjölda manna að um munar í hag- kerfinu. Sú staða sem nú er uppi hef- ur greinilega ekki verið ein sviðs- myndin í áhættumati Landvirkjunar eða stefnumörkun. Sú stefna sem er ráðandi í orku- pökkum ESB, að allar ákvarðanir fyr- irtækja í raforkugeiranum skuli byggjast á markaðsverðum er óheppileg fyrir Ísland. Markaðsverð raforku fyrir stóriðju ræðst á al- þjóðamörkuðum og annar markaður hér er lítill og myndar varla orkuverð sem mark er á takandi. Stefnumótun fyrirtækja tekur mið af reglum orku- pakka ESB en ekki þörfum þjóð- félagsins. Fyrirtæki orkugeirans leit- ast helst við að styrkja stöðu sína hvort gagnvart öðru og gagnvart stjórnvöldum, fulltrúum eigenda sinna. Þetta er ekki farsælt til lengd- ar og stjórnvöld þurfa að vinna orku- geirann út úr þessari stöðu. Eftir Elías Elíasson » Sú stefna sem er ráð- andi í orkupökkum ESB, að allar ákvarð- anir fyrirtækja í raf- orkugeiranum skuli byggjast á markaðs- verðum er óheppileg fyrir Ísland. Elías Elíasson Höfundur er sérfræðingur í orkumálum. Ef ÍSAL verður lokað, hvað þá? Nýkórónuveiran, sem átti upptök sín í kín- versku borginni Wuhan, er alvarleg vá en fyrstu viðbrögð ráðamanna um heim allan voru að full- vissa almenning um að ferðahömlur væru óþarfar og að landa- mæri ættu að haldast opin. Þegar þetta er skrifað hafa flest Evrópuríki lokað landamærum sínum með ein- hverjum hætti, m.a. Þjóðverjar og það aðeins nokkrum dögum eftir að frú Merkel lýsti efasemdum um að lokun landamæra myndi hafa nokkur áhrif. Svo snögg voru umskiptin að enn mátti heyra bergmál hins pólitíska ekkasogs vegna ákvörðunar Banda- ríkjaforseta um að grípa til ferðatak- markana frá Evrópu. Nú eru flestir komnir á þá skoðun að þetta hafi verið rétt ákvörðun og þótt fyrr hefði verið. Ítalía reyndist sýnidæmi um hvað ger- ist ef ekkert er gert og það endaði með ósköpum. Það væri hægt að ímynda sér ástandið í Kína, með mannfjölda upp á hálfan annan milljarð, hefðu kín- versk stjórnvöld brugðist við með slík- um hætti. Sú sviðsmynd hefði haft þær afleiðingar að allur heimurinn hefði líklega lamast enda er stór hluti framleiðslu, sér í lagi á grunnefnum lyfja, kominn til Kína. Með framangreint í huga má spyrja sig hvort sé verra; óttinn við veiruna eða ótti stjórnmálamanna við að taka ákvarðanir í tengslum við landamæri. Austurríki hefur sett á allsherjarútivistarbann og háar stjórnvaldssektir sé fólk gripið á ferli að óþörfu. Sama gildir um fleiri Evrópuríki en þar sem allar líkur eru á því að margt muni breytast frá því þessi grein er innsend og hvað þá birt skal hér staðar numið. Tvennt er þó nokkuð víst að breytist líklega ekki og það er að ítalska til- raunin gekk ekki upp, hvorki m.t.t. vís- inda né hagkerfisins, og að mikill fram- leiðslusamdráttur, sérstaklega í þjónustuiðnaði, er í uppsiglingu. Eng- inn getur sagt fyrir um lengd þess ástands og síst af öllum stjórn- málamenn. Það er nefnilega þannig að fátt varir eins lengi og túlkun stjórnmálamanna á tímabundnu ástandi. Það er líklega það ógnvæn- lega við þetta allt saman. Hvað sem öllu líður er mikilvægt að koma í veg fyrir að fyrirsjáanlegur samdráttur leiði af sér fram- leiðslukreppu á nauðsynjum eða keðjuverkandi langtímaáhrif á at- vinnuleysi. Innlend matvælafram- leiðsla er hluti af þjóðaröryggi og nú þegar heimurinn er að lokast hlýtur öllum að vera það ljóst. Árásir umróts- manna á landbúnað og sjávarútveg þarf því að brjóta á bak aftur. Áform um að heimila innflutning á hráu kjöti, eggjum og mjólkurafurðum þarf að leggja til hliðar og þar sem sóttvarnir eru til umræðu má skjóta því inn að sýklalyfjaónæmar bakteríur drápu um 33 þúsund manns innan Evrópska efnahagssvæðisins á árinu 2015. Ísland verður í öllu falli ekki undan- skilið yfirvofandi efnahagsáhrifum en staða íslenskra fyrirtækja er erfið og var erfið áður en faraldurinn lét á sér kræla. Verkalýðsforystan virðist geng- in af göflunum og þeirra skollaleikur ásamt ofurgjöldum hins opinbera hef- ur þrýst fyrirtækjum í að keyra áfram á undirmönnun og lítið má út af bregða. Líklega munu mörg fyrirtæki ekki lifa af næstu misseri. Stjórn- málamenn þurfa að axla ábyrgð því ekki verður hægt að huga að neinum innviðum án verðmætaframleiðslu hjá fyrirtækjum og mannauði þeirra. Tryggingagjaldið er þung byrði og skammarlegt að menn hafi ekki lækkað það þegar atvinnuleysi var varla mælanlegt og allt í uppgangi. Ef það reynist rétt að stjórnmálamenn hafi ákveðið að lengja fæðingarorlof og hækka fæðingarorlofsstyrki í stað þess að lækka tryggingagjaldið þegar ráðrúm gafst þá er það mjög alvar- legt lýðskrum. Miðað við stöðuna sem við blasir þyrfti helst að afnema gjaldið á meðan þessir erfiðleikar ganga yfir, jafnvel þótt það kosti blóð, svita og tár. Annar möguleiki er að gjaldinu verði umbreytt með þeim hætti að launamenn greiði helming á móti launagreiðanda. Slíkt skapar einnig pólitískan þrýsting á að gjaldið verði ekki of hátt. Önnur og ekki síð- ur hættuleg ógn eru fasteignagjöldin. Fasteignagjöldin eru eignaskattur í núverandi mynd og þarf taka til skoð- unar sem fyrst. Fasteignagjöld í Reykjavík á atvinnuhúsnæði eru 1,65% af fasteignamati í árferði þar sem matið er í miklum og óeðlilegum hæðum. Augljóst er að á næstu miss- erum mun eiga sér stað þjóðnýting á atvinnuhúsnæði ef rekstur dregst saman og gjöldin haldast óbreytt. Slíkt er óviðunandi í ríki sem virðir eignarrétt manna. Það er auðvitað erfitt og óábyrgt að svara ekki spurningunni um hvernig hægt væri að fjármagna slíkar aðgerðir. Byrja mætti á því að fækka bröggum og dýrum „kemst- vallagötum“. Með öðrum orðum minnka óþarfa sem allir eru í raun sammála um að sé óþarfi. Vandamál hins opinbera er nefnilega ekki inn- flæðisvandi fjármagns heldur frekar að illa er farið með það fé sem hið opinbera fær frá þeim sem hefur skapað það fé. Að lokum er vert að minna á að þegar helmingur fólks fær það á tilfinninguna að það þurfi ekki að vinna því hinn helmingurinn muni sjá fyrir þeim og þegar vinn- andi helmingurinn fær það á tilfinn- inguna að hann græði ekkert á því að sá fræjunum því einhver annar fær uppskeruna er stutt í mann- gerðan uppskerubrest. Eftir Viðar Guðjohnsen »Mikilvægt að koma í veg fyrir að fyrir- sjáanlegur samdráttur leiði af sér framleiðslu- kreppu á nauðsynjum eða keðjuverkandi lang- tímaáhrif á atvinnuleysi. Viðar Guðjohnsen Höfundur er lyfjafræðingur og sjálfstæðismaður. Frá sjónarhóli lyfjafræðings

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.