Morgunblaðið - 24.03.2020, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2020
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Þjónusta
Málningarþjónusta
Upplýsingar í síma 782 6034.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Bílar
TILBOÐ
1.090 þús. staðgreitt
FORD Galaxy
7 manna - Diesel
2.0 Diesel árg 2011
• Sjálfskiptur
• Ekinn 172 þús.
• Skoðaður 2021
• Nýsmurður
• Nýlega skipt um olíu á
skiptingu
• Glæný Vredestein nagladekk
Verð 1.790 þús.
Uppl. í síma 615 8080
BMW 318 e46 2004. TILBOÐ
VEGNA FLUTNINGA
BMW i318 e46 2004 158.xxx.
Þarf að losna við hann sem fyrst, fer
á 230.000 eða tilboð. Búið að taka
vélina í gegn. Nýsmurður.
Upplýsingar í síma 8629726 - Ómar
Fundir/Mannfagnaðir
Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf.
hefur ákveðið að fresta
aðalfundi félagsins sem halda
átti þann 26. mars nk. vegna
útbreiðslu COVID-19 veirunnar.
Tilkynnt verður um nýja
dagsetningu síðar.
Frekari upplýsingar eru veittar á
skrifstofu félagsins í síma 488 8000.
STJÓRN VINNSLUSTÖÐVARINNAR HF.
Tilkynningar
Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með
auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulags-
tillögu.
ÁS OG HÓTEL DYRHÓLAEY - Deiliskipulags-
tillaga
Deiliskipulagið nær yfir 11 ha. svæði úr landi jarðarinnar
Ás í Mýrdalshreppi og yfir nokkrar lóðir sem tilheyra Hótel
Dyrhólaey og eigendum þess. Gert er ráð fyrir byggingu
útihúss/skemmu, starfsmannahúsum og íbúðarhúsi.
Tillagan þessar liggur frammi hjá fulltrúa skipulags- og
byggingarmála í Mýrdalshreppi Austurvegi 17, 870 Vík og á
heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 28. mars 2020 til og
með 8. maí 2020.
Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifs-
tofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á
bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út
mánudaginn 8. maí 2020.
George Frumuselu
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Mýrdalshreppur
Auglýsing um skipulagsmál
í Mýrdalshreppi
Skipulags og byggingarfulltrúi
Garðabær Skipulagt tómstunda- og íþróttastarf fyrir eldri borgara á
vegum Garðabæjar, s.s. í Jónshúsi, Smiðjunni, Litlakoti, íþróttahús-
inu í Sjálandsskóla og Ásgarði, fellur niður tímabundið. Starfsemi hjá
FEBG og FEBÁ fellur einnig niður tímabundið.
Korpúlfar Allt félagsstarf Korpúlfa fellur niður þess vikuna vegna
kórónaveirufaraldurs, nema gönguhópur Korpúlfa sem er kl. 10
mánudaga, gengið frá Grafarvogskirkju og Borgum, einnig kl. 10
miðvikudaga og föstudaga, gengið frá Borgum, en virða þarf fjarlægð
milli göngumanna. Egilshöll hefur verið lokað. Höldum áfram að
passa vel upp á hvert annað og takk fyrir kærleikann. Sími í Borgum
er 517-7056/ 517055.
Norðurbrún 1 Félagsstarfið liggur niðri vegna COVID-19 smits.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er lokað um óákveðinn tíma
vegna Covid-19 smits innanlands.
Félagsstarf eldri borgara
Færir þér
fréttirnar
mbl.is
Smá- og raðauglýsingar
✝ Ívar ÖrnHlynsson fædd-
ist 2. október 1990.
Hann lést í Reykja-
vík 11. mars 2020.
Foreldrar hans
eru Sólveig Dögg
Guðmundsdóttir, f.
6. maí 1965, bifreið-
arstjóri hjá Hópbíl-
um, og Hlynur
Bragason, f. 22. júlí
1966, forstjóri Sæt-
is hópferða ehf. Þau slitu sam-
vistum. Hlynur er giftur Hrafn-
hildi Lindu Ólafsdóttur, f. 1. júní
1963.
Ívar eignaðist soninn Theo-
Fransiska Guðrún Hoffmann, f.
27. október 1994, hennar maki
er Sólon Helgi Jóhannsson, f.
25.1. 1994. Þeirra dóttir er Alex-
andra Björk Hoffmann, f. 2017.
Ívar Örn ólst upp í Fellabæ
Egilsstöðum og kláraði sína
skólagöngu í Fellaskóla þar í
bæ.
Hann hélt ungur út á vinnu-
markaðinn, vann hjá jarðvinnu-
verktökum við akstur og ým-
islegt annað. Akstur
hópferðabíla og annað er snýr
að þeim varð síðan hans ævi-
starf. Lengst var hann hjá Snæ-
land Grímsson og síðast sem
akstursstjóri.
Útför Ívars Arnar fer fram
frá Egilsstaðakirkju í dag, 24.
mars 2020, og hefst athöfnin
klukkan 13.
dór með Helgu Rut
Jóhannesdóttur, f.
23. mars 1993, og
bjuggu þau saman í
nokkur ár en slitu
svo samvistum.
Ívar Örn var
elstur þriggja
systkina, systir
hans er Gróa Rún
Hlynsdóttir, f. 13.
nóvember 1992, og
yngstur er Krist-
ófer Vikar Hlynsson, f. 18 júlí
1995. Kristófer Vikar er í sam-
búð með Karen Ýri Eysteins-
dóttur, f. 8 desember 1997.
Stjúpsystir Ívars Arnar er
Elsku drengurinn minn, ég sit
hér með tárin í augunum og
hvorki skil né veit hvað ég á að
gera.
Þú áttir framtíðina fyrir þér
Ívar minn, heimurinn lá að fótum
þér með öllu því útsýni sem til er
en stundum var svo lítið skyggni
hjá þér að þú sást ekki á milli
stika, alveg sama þó að þú þurrk-
aðir af framrúðunni með hamri
og meitli.
Þú komst í heiminn með átök-
um, varst sólarhring á leiðinni.
Þú varst strax uppivöðslusamur
og þegar þú varst rúmlega eins
árs var allt postulín og jólatréð
með pökkum, merkimiðum og
öllu saman í eins metra hæð!
Þú svafst aldrei betur en í
burðarrúminu á vélarhlífinni í
fyrstu rútu föður þíns og þar var
sennilega þinni stuttu framtíð
varpað.
Þú kunnir allt sem ég hélt að
ég kynni; keyrðir rútu eins og
ekkert væri án þess að rispa
þær, mótorhjól, vörubíl, trailer,
hvað sem var, þú kunnir þetta
með mjólkinni.
Þú varst réttsýnn, hélst hlífi-
skildi yfir minnimáttar og pass-
aðir upp á systkini þín eins og þú
ættir þau.
Það var gaman þegar þú fórst
í fússi út fimm ára gamall með
bakpoka, fokreiður við foreldra
þína, við fylgdumst með úr
fjarska. Svo komstu eftir drjúg-
an tíma og baðst um landakort
svo þú gætir glöggvað þig á leið-
inni eða landslaginu, við sett-
umst niður með þér og spáðum í
kortið og þegar það var búið var
þér runnin reiðin og enginn man
í dag hvað var ágreiningsefnið.
Það var ekki gaman þegar þú
mölvaðir framljósin í vörubílnum
hjá Ingólfi frænda þínum með
litlum hamri og alveg hissa þeg-
ar allir urðu reiðir.
Þú varst duglegur, Ívar, og
helst vildirðu vera í sveitinni hjá
afa þínum og svo seinna Helga
frænda þínum á kafi í skít og
drullu eða heyskap, smala-
mennsku og öllu sem laut að
sveitastörfum. Þú varst ekki
gamall þegar þú varst farinn að
keyra afa þinn milli kartöflu-
garða á L-300-bílnum og fóruð
þið þá gjarnan fjöruna. Einu
sinni þurfti að ná í ykkur upp á
Skrukkuás, þá búnir að sökkva
bílnum á kaf í drullu og heldur
skömmustulegir báðir. Ég
reikna fastlega með því að afi
þinn hafi tekið á móti þér uppi og
amma þín sé búin að gefa þér
rúgbrauð með mysingi og jóla-
kökusneið ofan á.
Hér sitja allir háskælandi og í
algjöru tómarúmi yfir ótíma-
bæru brotthvarfi þínu, þú hafðir
ekki skilað hálfu verki drengur
minn og þú veist það.
Þú hjálpar vænti ég til ofan
frá ef smyrja þarf í koppa á jarð-
tætaranum á Setbergi eða ef
skipta þarf um bremsuklossa í
einhverri rútunni, hvort sem er
hjá Snæland eða Sæti.
Farðu sæll, sonur minn, og
guð geymi þig, við Linda lítum
eftir Tedda fyrir þig.
Þetta kenndi afi þinn mér og
örugglega þér á garðabandi í
fjárhúsunum á Setbergi, skilaðu
kveðju upp.
Ó, blessuð vertu, sumarsól,
er sveipar gulli dal og hól
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðarvötnin blá.
Nú fossar, lækir, unnir, ár
sér una við þitt gyllta hár,
nú fellur heitur haddur þinn
á hvíta jökulkinn.
(Páll Ólafsson)
Hlynur Bragason.
Öll fjölskyldan er í áfalli. Í dag
kveðjum við góðan vin og frænda
allt of snemma. Ívar var dásam-
leg blanda af umhyggjusömum
stríðnispúka; sem passaði sig á
því að halda okkur uppteknum
með hrekkjum á Setbergi þegar
við vorum lítil. Hann var líka
fyrstur til að athuga hvernig
frænka sín hefði það þegar hann
sá bílinn hennar úti í skurði.
Ívar var duglegur og áræðinn
og kom það snemma í ljós. Eins
og hálfs árs var hann í nætur-
pössun á Flúðum. Hann striplað-
ist bleyjulaus um húsið eins og
mörgum börnum á þessum aldri
finnst gott að gera og var um leið
að drekka vatn úr brúnu glerglasi
sem endaði síðan á gólfinu hálf-
tómt. Það var svo mikið um að
vera hjá okkar manni að hann
mátti ekkert vera að því að
stoppa. Hann þurfti síðan skyndi-
lega að kúka og vill svo heppilega
til að kúkurinn fer beint ofan í
glasið sem stóð þarna á gólfinu –
allt mjög snyrtilegt og fínt. Það
voru til tvö svona glös á Flúðum í
fjölda ára eftir þetta atvik og lík-
lega eru þau enn til einhvers stað-
ar en Tómas Bragi segist aldrei
hafa getað hugsað sér að drekka
úr þessum glösum eftir þetta.
Minningarnar tekur enginn
frá okkur og megi þær veita
huggun og styrk á þessum erfiðu
tímum. Við samhryggjumst
Tedda, foreldrum, systkinum,
öðrum ættingjum og vinum af
öllu hjarta. Vonandi hefur Ívar
nú fundið frið og ró.
Stundin líður, tíminn tekur,
toll af öllu hér,
sviplegt brotthvarf söknuð vekur
sorg í hjarta mér.
Þó veitir yl í veröld kaldri
vermir ætíð mig,
að hafa þó á unga aldri
eignast vin sem þig.
(Hákon Aðalsteinsson)
Tómas Bragi,
Þórarna Gró og
Hólmfríður Dagný.
Ívar Örn kom inn í líf mitt og
dóttur minnar Fransisku árið
2011 þegar við Hlynur faðir hans
kynntumst og ákváðum að rugla
saman reytum okkar. Við urðum
ríkari en áður þar sem börn
Hlyns og barnabarn, sonur Ívars
Arnar, hann Theodór okkar sem
hann á með Helgu Rut, stóru ást-
inni í lífi Ívars, bættist við líf okk-
ar mæðgna.
Ívar Örn var ungur maður bú-
inn miklum kostum, allt sem við-
kom vélum og tækjum lék í hönd-
um hans og ef hann yfirhöfuð
hafði áhuga á verkinu sem var
fram undan stóð ekkert í vegi
hans. Hann var vinnusamur með
eindæmum og vann oft og mikið á
þeim tímum sem að aðrir vildu
hafa frí.
Alveg frá fyrstu stundu áttum
við góð samskipti, hlýja faðmlagið
hans sem ég fékk ætíð mun aldrei
gleymast mér. Margar góðar
stundir rifjast upp. Það er
ógleymanlegt þegar við stóra
samsetta fjölskyldan okkar og vin-
ir vorum saman um jól og við
kveiktum á kertum, slökktum öll
rafljós nema á jólatrénu, röðuðum
sófum og stólum í hring og lásum
upphátt hvert fyrir annað í rökkr-
inu. Það er dásamleg minning
samstöðu og væntumþykju, minn-
ing sem gefur jólahátíðinni ætíð
síðan annað gildi í huga okkar
Hlyns. Þau jólin var bjart yfir Ív-
ari okkar. Einnig kemur upp
minning um hjálpsaman og góðan
dreng þegar ég var stödd í
Reykjavík eitt sinn, á lánsbíl frá
góðum vini okkar hjóna, í þvílíkri
rigningu að maður man vart ann-
að eins og viftureimin fór. Þá var
Ívar Örn í stuttu stoppi í vinnu
sinni sem ökumaður hópferðabíla
fyrir Snæland-Grímsson og tók
sinn frítíma í að útvega viftureim,
koma á staðinn og skipta um hana
á örskotsstund í myrkri og aus-
andi regni. Það að lítið sem ekkert
var af verkfærum stoppaði hann
ekki og það var þakklát stjúpmóð-
ir sem knúsaði drenginn sinn. En
ég hef líka tekið í eyrað á honum
þegar hann var kannski ekki alltaf
stilltur. En þegar litið er til baka
þá eru það aðrar og alls ekki leið-
inlegar minningar.
En það var ekki alltaf bjart yfir
þessum góða, fallega, hæfileika-
ríka og vinmarga dreng. Hann bar
á öxlum sínum þann mikla og
þunga skugga sem oft á tíðum féll
yfir líf hans og ekkert verður ráðið
við. Hann barðist eins lengi og
hann gat en varð að lokum að lúta í
lægra haldi. Við getum ekki álasað
honum, hann gerði allt sem hann
gat, það veit enginn nema reynt
hafi hvað það er að berjast við
slíkt ofurefli. Ég er viss um að það
eru margir gengnir sem hafa tekið
á móti honum og eru að faðma
hann að sér á nýja heimilinu. Við
sem eftir erum fáum að hitta hann
síðar, þá tekur hann á móti okkur
með kankvísa brosið sitt, tann-
stöngulinn í munnvikinu og sól-
gleraugun á hvirflinum. Farðu í
friði vinur, bestu kveðjur elskan
mín, við lítum eftir Tedda.
Hugur einn það veit,
er býr hjarta nær,
einn er hann sér of sefa.
(Úr Hávamálum)
Hrafnhildur L.
Ólafsdóttir (Linda).
Ívar var kletturinn minn, hann
var öxl til að gráta á. Ef mér leið
illa þurfti bara eitt SMS og hann
var kominn. Hann var alltaf að
reyna að bjarga mér en leyfði eng-
um að bjarga sér.
Hann var svo stór, sterkur og
virkaði svo óbrjótanlegur. Ég er
þakklát fyrir allt sem hann kenndi
mér, rúntana þegar við blöstuðum
Prelude með AFI niður Lauga-
veginn og alla bílasölurúntana. Ég
er þakklát fyrir að hafa fengið
þessi 27 ár með honum, þó vildi ég
að þau væru fleiri.
Gróa Rún Hlynsdóttir.
Ívar Örn Hlynsson