Morgunblaðið - 24.03.2020, Side 24

Morgunblaðið - 24.03.2020, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2020 70 ára Gylfi ólst upp í Reykjavík en býr á Sel- tjarnarnesi. Hann er jarðfræðingur að mennt frá Háskóla Ís- lands. Hann starfaði hjá Iðntæknistofnun Ís- lands, Fræðslumiðstöð málmiðnaðarins og síðustu árin vann hann fyrir Samband stjórnendafélaga. Maki: Svava Waag Árnadóttir, f. 1949, kennari. Börn: Einar, f. 1974, d. 2018, Erna Krist- ín, f. 1976, og Ragnheiður Þórdís, f. 1982. Barnabörn eru orðin 6. Foreldrar: Einar Elíasson, f. 1921, d. 2006, kaupmaður og stofnaði Glit, og Hulda Gígja Geirsdóttir, f. 1925, d. 2001, húsmóðir. Þau voru búsett í Reykjavík. Gylfi Þór Einarsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Vertu á verði gagnvart viðsjálu fólki og taktu ekki þátt í neinum skrípa- leikjum aðeins til að þóknast því. Þér verð- ur boðin óvænt aðstoð í vinnunni. 20. apríl - 20. maí  Naut Harðar deilur verða til þess að fyrir- hyggja þín og góðar meiningar eru mis- skilin. Lestu í tilfinningalega þýðingu sam- skipta í stað þess að rýna í orðin. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Verkið sem bíður þín er auðveld- ara en það virðist vera. Hafðu engar áhyggjur, þetta er tímabundið ástand sem varir aðeins í sólarhring. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú munt koma öðrum á óvart í dag og sýna ákveðni og festu eins og þér er einum lagið. Einvera er stundum upp- spretta nýrra uppgötvana. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er allt í lagi að taka smááhættu, þegar aðstæður eru hagstæðar. Stórhuga ráðagerðir krefjast allra heilafruma sem þú hefur yfir að ráða. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það þarf ekki að vera neikvætt að þarfnast einhvers og gæti hugsanlega ver- ið styrkur þinn í dag. Enginn krefst þess að þú sért sérfræðingur þegar í stað. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ef þú þarft að einbeita þér að einu takmarki skaltu gera það að þínu. Vertu sjálfum þér samkvæmur og þá muntu uppskera laun erfiðis þíns. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þér hættir til að vera eitthvað annars hugar þessa dagana en verður að taka þér tak og einbeita þér að því sem fyrir liggur. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert vinsæll meðal vina þinna og þeir leita skjóls hjá þér þegar þeir þurfa á að halda. Einbeittu þér að heimili og fjölskyldu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þið hafið verið mjög upptekin og skipulögð en nú þurfið þið á hvíld að halda. Reynið að forðast mikið álag. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Ekki er allt gull sem glóir og mörg þau tilboð í gangi sem betra er að láta fram hjá sér fara. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hefur lagt óhemjuhart að þér að undanförnu og hlýtur nú umbun erfiðis þíns. Haltu ótrauður þínu striki en láttu ekki velgengnina stíga þér til höfuðs. formaður starfsháttanefndar Austurbrúar ses og formaður skólanefndar Menntaskólans á Egilsstöðum. Skriftir hafa tengst störfum Skúla Björns um langa hríð og hann er félagi í Rithöfunda- sambandi Íslands. Árið 1994 bar hann sigur úr býtum í smásagna- keppni Dags og Menor og hann varð síðan fyrstur til að hljóta Bókmenntaverðlaun Halldórs Lax- ness árið 1996 fyrir smásagna- einnig formaður nemendafélagsins einn vetur. Á Sauðárkróki bland- aðist leiklistarbakterían við þetta og ég var í stjórn Leikfélags Sauð- árkróks og gegndi þar formennsku um tíma og á háskólaárunum sat ég m.a. í ritstjórn Mímis og tók þátt í að stofna nemendafyrirtækið Hástoð. Eftir að við fluttum aust- ur aftur tók ekki betra við og er of langt mál að telja það allt upp.“ Þó má nefna að af núverandi félagsstörfum er Skúli Björn S kúli Björn Gunnarsson er fæddur 24. mars 1970 á heilsugæslunni á Egilsstöðum og var ekið í snjóbíl heim í Litla- Bakka í Hróarstungu þar sem hann ólst upp. Hann gekk í skóla á Hallfreðarstöðum, Brúarásskóla, Alþýðuskólann á Eiðum og varð stúdent frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra þaðan sem hann útskrifaðist sem stúdent af tæknibraut með málmiðn sem sér- grein vorið 1991. „Fram undir tvítugt vann ég flest sumur við sveitastörf en einn- ig hjá Skógræktinni á Hallorms- stað þar sem ég kynntist konu minni. Árin 1989-1992 vann ég sem blaðamaður Dags með skrifstofu á Sauðárkróki og einnig sem stunda- kennari við FNV einn vetur. Vorið 1992 hélt ég aftur austur á æsku- slóðirnar og vann næstu sumur sem verkstjóri og kynningar- fulltrúi hjá Héraðsskógum. En veturinn 1992-1993 hófst búskapur okkar Elísabetar með dvöl í borg- inni Pau í Frakklandi þar sem við stunduðum nám í frönsku. Eftir að hafa ekki náð inntökuprófi í ljós- myndaskóla í Arles varð úr að skella sér í íslenskunám við Há- skóla Íslands. BA-prófi í íslensku var lokið vorið 1996 og MA-nám í íslenskum bókmenntum stundað í kjölfarið en lokaritgerðin er enn óskrifuð. Til að bæta fyrir það er ég nú í meistaranámi í hagnýtri menningarmiðlun við HÍ.“ Skúli Björn starfaði á Lands- bókasafni árin 1995-1997, en vann svo í tvö ár hjá Boðbera-almanna- tengslum. Vorið 1999 fluttu þau hjónin aftur austur á Fljótsdals- hérað hvar hann hélt áfram í kynningar- og útgáfumálum þar til hann tók við starfi forstöðumanns Gunnarsstofnunar 1.10. 1999. Þau hjónin hafa síðustu 20 árin starfað bæði á Skriðuklaustri en Elísabet rekur Klausturkaffi. Frá 2006 hafa þau búið í bjálkahúsi á Hallorms- stað. „Félagsstörf hafa löngum tekið mikinn hluta af mínum tíma og vaknaði sú ástríða á Eiðum þar sem ég sat í nefndum og var safnið Lífsklukkan tifar. Árið 1997 hafði hann umsjón með útgáfu Bræðralags gegn Bakkusi – sögu SÁÁ sem Sæmundur Guðvinsson skráði. Árið 1999 kom út fræðibók- in Íslandsskógar – 100 ára saga skógræktar sem þeir Sigurður Blöndal unnu saman. Þá sat hann í nokkur ár í stjórn Útgáfufélags Glettings og annaðist þá m.a. umbrot blaðsins. „Umsjón og umbrot Austfirskra safnrita sem Gunnarsstofnun gefur út hefur verið á mínum herðum og ég var formaður ritnefndar 100 ára sögu Kaupfélags Héraðsbúa sem Jón Kristjánsson ritaði og kom út 2013. Þá hafa birst grein- ar, viðtöl, sögur og ljóð eftir mig í blöðum, tímaritum og bókum auk þess sem ég hef unnið ófáar sýn- ingar sem settar hafa verið upp á Skriðuklaustri og víðar. Árið 2018 kom svo út fyrsta þýðingin, nóvella eftir Norman Maclean sem fékk íslenska titilinn Þar sem áin streymir. Svo er stefnan að gefa út eitthvað frumsamið á þessu ári í tilefni afmælisins. Tími fyrir áhugamál hefur oft verið af skornum skammti síðustu 20 árin en ég hef löngum haft gaman af að renna fyrir fiski, bæði laxi og silungi. Ljósmyndun er annað áhugamál sem hefur fylgt mér lengi eins og bókmenntirnar. Þá eru ferðalög til útlanda til að skoða fornar menningarslóðir and- leg upplyfting í skammdeginu þeg- ar við hjónin getum brugðið okkur af bæ. Síðan er ákveðin afslöppun fólgin í því að bregða sér á ættar- óðalið í Tungunni, dytta að húsum og gera við vélar og tæki sem brúka þarf við bústörfin.“ Fjölskylda Eiginkona Skúla Björns er Elísabet Þorsteinsdóttir, f. 1.11. 1969, veitingakona og framreiðslu- meistari hjá Klausturkaffi. For- eldrar hennar eru hjónin Þor- steinn I. Þórarinsson, f. 29.1. 1941, skógarhöggsmaður, og Elín Kröyer, f. 23.3. 1948, verslunar- og garðyrkjukona. Þau búa á Hall- ormsstað og héldu í fyrra upp á 50 ára brúðkaupsafmæli sitt. Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri – 50 ára Fjölskyldan Skúli Björn, Elísabet og dæturnar stödd í Madríd í fyrra. Í mörgu að snúast á fræðasetrinu Með systkinum og foreldrum Haldið upp á 90 ára afmæli Gunnars og 80 ára afmæli Svandísar í fyrra í félagsheimilinu Tungubúð í Hróarstungu. 30 ára Helga ólst upp á Skagaströnd og Hæli á Ásum í Austur- Húnavatnssýslu en býr á Akureyri. Hún er hjúkrunarfræðingur að mennt og vinnur á gjörgæslunni á Sjúkra- húsinu á Akureyri en er í fæðingarorlofi. Maki: Ragnar Logi Búason, f. 1990, um- sjónarkennari í 10. bekk í Glerárskóla. Dóttir: Þórdís Laufey, f. 2019. Foreldrar: Jón Kristófer Sigmarsson, f. 1972, sauðfjárbóndi á Hæli, og Herdís Þórunn Jakobsdóttir, f. 1971, starfs- maður Vinnumálastofnunar á Skaga- strönd. Stjúpfaðir er Árni Geir Ingvars- son, f. 1963, verkstjóri hjá Sveitarfélaginu Skagaströnd. Helga Dögg Jónsdóttir Til hamingju með daginn Akureyri Þórdís Laufey Ragnars- dóttir fæddist 16. nóvember 2019 kl. 18.23 á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Hún vó 3.020 g og var 50 cm löng. For- eldrar hennar eru Helga Dögg Jóns- dóttir og Ragnar Logi Búason. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.