Morgunblaðið - 24.03.2020, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 24.03.2020, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2020 24. mars 1964 Þorsteinn Hallgrímsson er út- nefndur besti leikmaður Norðurlanda- móts karla í körfubolta sem haldið er í Hels- inki í Finnlandi. Hann er lang- stigahæsti leik- maður mótsins með 77 stig og skorar sigur- körfuna gegn Dönum, 56:55, sem tryggir Íslandi um leið bronsverðlaunin á mótinu. Finnar vinna mótið og Svíar hafna í öðru sæti eftir nauman sigur gegn Íslandi. 24. mars 1972 Íslenska karlalandsliðið í handknattleik sigrar Pólland, 21:19, í Madríd í leik um þriðja sætið í undankeppni Ólympíu- leikanna í München en bæði lið höfðu þegar tryggt sér keppnisrétt þar. Íslenska liðið fer taplaust heim eftir fjóra sigra og tvö jafntefli á Spáni. Viðar Símonarson og Geir Hallsteinsson skora 6 mörk hvor fyrir Ísland og eru markahæstir. 24. mars 1985 Víkingar vinna magnaðan sig- ur á stórliði Barcelona, 20:13, í Laugardalshöll í fyrri undan- úrslitaleik liðanna í Evrópu- keppni bikarhafa en staðan í hálfleik er 11:4. Kristján Sig- mundsson á stórleik í marki Víkinga og Viggó Sigurðsson er markahæstur þeirra með 6 mörk. 24. mars 1995 Morgunblaðið greinir frá því að samkvæmt fréttum enskra dagblaða hafi Bolton greitt Tottenham 65 þúsund pund, rúmar 6,6 milljónir króna, fyr- ir landsliðsfyrirliðann Guðna Bergsson. Sagt er að áður hafi vangaveltur enskra blaða ver- ið á þá leið að kaupverðið væri á bilinu 100 til 200 þúsundir punda. 24. mars 2003 „Þetta er búið að takast alveg afbragðsvel eins og alltaf þeg- ar mótið er í Eyjum. Það hefur rignt inn metum og það er alveg frá- bært segir sundkappinn Örn Arnarson við Morgunblaðið eftir að hafa unnið átta gullverðlaun og sett tvö Íslandsmet á innan- hússmeistaramótinu í sundi í Vestmannaeyjum. 24. mars 2010 Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu, nær eingöngu með leikmenn íslenskra liða, nær óvæntu 0:0 jafntefli gegn Mexíkó í vináttulandsleik í Charlotte í Bandaríkjunum. Um 63 þúsund áhorfendur mæta á leikinn en Mexíkóar tefla fram mörgum leik- mönnum sem síðan leika á HM í Suður-Afríku um sumarið. 24. mars 2013 Ísland sigrar Svíþjóð, 30:27, í vináttulandsleik kvenna í handknattleik í Austurbergi og hefur þar með lagt Svía tvisvar að velli á tveimur dög- um eftir að hafa síðast sigrað þá árið 1964. Rut Jóns- dóttir er markahæst í íslenska liðinu með 7 mörk. Á ÞESSUM DEGI SUND Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Eins og Morgunblaðið fjallaði um í gær er sundmaðurinn Anton Sveinn McKee orðinn atvinnumað- ur hjá kanadíska félaginu Toronto Titans, sem keppir í stórri alþjóð- legri deild, International Swimming League, ISL. Morgunblaðið sló á þráðinn til Antons sem býr í Boston í Bandaríkjunum. „Til þessa hefur í rauninni ekki verið atvinnudeild í sundi í boði. Þú hefur þurft að vera einn af þeim bestu í heiminum til að komast í áttina að atvinnumennsku. Þessi deild byrjaði í fyrra og tímabil númer tvö byrjar í september. Þetta eru 10 lið og í kringum 30 eða 40 sundmenn í hverju liði,“ útskýrði Anton. Margt af fremsta sundfólki heims er í liðunum tíu sem hefja keppni í deildinni í haust en keppnis- tímabilið stendur frá september og fram í apríl 2021. Um leið og Anton var kynntur til leiks staðfesti Tit- ans að búið væri að semja við Bandaríkjamanninn Blake Pieroni sem varð ólympíumeistari í 4x400 m boðsundi í Ríó 2016 og heims- meistari í 200 metra skriðsundi í 25 metra laug árið 2018. Breytir landslaginu í sundi Anton segir keppnina breyta landslaginu fyrir sundmenn, enda til þessa verið afar erfitt að gerast atvinnumaður í greininni. Þá er þessi deild einnig góð fyrir áhuga- menn um sund. „Það er komin meiri breidd í at- vinnumennskuna núna og fleiri fá tækifæri til að komast inn í þetta og hafa í sig og á. Þetta er skref í rétta átt fyrir sundið. Það er komin meiri alvara í þetta og þetta er gott fyrir aðdáendur líka að hafa meiri aðgang að sundfólki. Það er komin ný vara fyrir þau til að fylgjast með. Svo er þetta frábært fyrir sundmenn eins og mig,“ sagði Anton, sem er eini íslenski íþrótta- maðurinn sem hefur tryggt sér sæti á Ólympíuleikunum sem eiga að fara fram í Tókýó í sumar. Áður en hann skrifaði undir hjá Toronto var hann ekki með neinar áætlanir um keppni eftir Ólympíuleikana. Eitt ár í frábæru umhverfi „Ég vissi ekki t.d ekki hvað myndi taka við hjá mér eftir Ól- ympíuleikana. Núna er miklu meira öryggi fyrir mig. Nú veit ég að ég get synt í allavega eitt ár til við- bótar í frábæru umhverfi. Þetta eru tíu mót og svo undanúrslit og koma úrslitin í tólfta mótinu. Þetta er sex mánaða tímabil,“ sagði Anton, sem er spenntur að synda fyrir kanad- íska félagið. Verður hann fyrsti ís- lenski atvinnumaðurinn í greininni. „Félagið sem ég er að skrifa und- ir hjá er nýtt. Það voru átta lið sem tóku þátt á fyrsta tímabilinu og nú eru þau orðin tíu. Það bættist við okkar félag og svo eitt frá Japan. Deildin er enn þá að taka á sig mynd, enda byrjaði hún bara í fyrra. Hún mun eflaust stækka meira á næstu árum. Það er mikill heiður að fá að taka þátt í þessu og verða í rauninni fyrsti atvinnumað- ur Íslands í sundi þótt ég sé ekki besti sundmaður sem Ísland hefur átt. Það er glæsilegt að geta sýnt að það sé hægt að komast svona langt í sundinu ef maður er að æfa heima,“ sagði Anton. Auk Titans frá Kanada eru liðin í deildinni frá Bandaríkjunum, Frakklandi, Ung- verjalandi, Ítalíu og Japan. Þetta verður flökkulíf Hann mun ekki flytja til Toronto, en ferðalögin verða löng og ströng. „Ég mun ekki flytja til Kanada til að æfa með þessu liði. Ég mun þannig séð geta æft hvar sem er. Þessi tíu mót sem ég tek þátt í verða úti um allan heim. Þau verða mest í Evrópu og Bandaríkjunum. Þetta verður flökkulíf. Það eru mót um helgar og svo er flogið á næsta stað og því er haldið áfram í 4-5 vikur. Þetta er nýr vinkill inn í sundið. Venjulega hefur það verið þannig að þú setur tímabilið þannig upp að þú toppar einu sinni á ári fyrir heimsmeistara- eða Evrópu- mót og svo Ólympíuleika. Núna þarftu að vera eins nálægt þínum besta tíma og hægt er minnst tíu sinnum á ári. Þá þarftu að finna nýjar æfingaaðferðir svo það sé hægt. Þetta er skemmtilegt og ég er mjög spenntur.“ Veit að ég á helling inni Anton var ekki lengi að ákveða sig þegar tilboðið kom. „Eftir að ég fékk leyfi frá vinnunni til að ein- beita mér að Ólympíuleikunum þá var ég staðráðinn í að taka sundið eins langt og ég mögulega gæti. Það kom lítið annað til greina en að samþykkja þetta, enda kominn í stöðu sem er langt frá því að vera sjálfsögð. Ég er spenntur fyrir þessu og ég veit ég á helling inni sem ég get boðið.“ Eins og áður hefur komið fram er Anton eini íslenski íþrótta- maðurinn sem hefur tryggt sér sæti á Ólympíuleikunum í Tókýó. Hingað til hafa forráðamenn leik- anna verið staðráðnir í að halda þá samkvæmt áætlun, en sú staða gæti breyst. Vont að ná ekki góðum undir- búningi fyrir leikana „Það er komin umræða um að seinka þeim en með því að halda þá á tilsettum tíma þá er spurning hvernig það verður fyrir íþrótta- mennina. Sumir þeirra verða að halda sig heima og missa þannig úr æfingum og undirbúningurinn verður ekki eins góður og hann hefði getað orðið. Auðvitað eru stærri hlutir í gangi í samfélaginu núna, en það væri vont fyrir íþróttamenn sem hafa lagt mikið á sig í mörg ár að missa af stærsta tækifærinu á Ólympíu- leikunum eða ná ekki góðum undir- búningi. Mér finnst líklegt að þeir verði á tilsettum tíma en það verð- ur að koma í ljós,“ sagði Anton. Nú þarf ég að finna upp nýjar æfingaaðferðir  Anton Sveinn spenntur fyrir næsta vetri með Toronto Titans  Þarf að vera í sínu besta formi á tíu mótum  Í fyrsta sinn sem atvinnudeild í sundi er í boði Morgunblaðið/Eggert Toronto Titans Anton Sveinn McKee keppir fyrir kanadíska liðið í tíu liða heimsdeild keppnistímabilið 2020-’21 en keppnin á að hefjast í september og ljúka í apríl vorið 2021. Hann er þar með fyrsti atvinnumaður Íslands í sundi. UEFA tilkynnti í gær að öllum úr- slitaleikjum Evrópumóta félagsliða sem fram áttu að fara í maímánuði hefði verið frestað. Úrslitaleikur Meistaradeildar kvenna átti að fara fram 24. maí í Vín í Austurríki, úr- slitaleikur Evrópudeildarinnar átti að fara fram 27. maí í Gdansk í Pól- landi og úrslitaleikur Meistara- deildar karla átti að fara fram 30. maí í Istanbúl í Tyrklandi. Í tilkynn- ingu UEFA segir að engin ákvörð- un hafi verið tekin um nýja leik- daga en vinnuhópur hafi verið settur á stofn í síðustu viku. Úrslitaleikjunum þremur frestað AFP Forsetinn Slóveninn Aleksander Ceferin er forseti UEFA. Spænska knattspyrnusambandið tilkynnti á vef sínum í gær að allri keppni í knattspyrnu í landinu væri frestað um ótiltekinn tíma. Áður hafði frestunin verið til 19. apríl. Svipaða sögu er að segja í Hollandi. Fyrst var frestað til 6. apríl en vegna framlengingar á samkomu- banni í landinu er búið að fresta til 1. júní. Ólíklegt þykir að hollenska deildin verði spiluð til loka. Verði tímabilið flautað af fjölgar liðum í efstu deild úr 18 í 20. Tvö efstu lið B-deildarinnar fara upp og ekkert lið fellur. Tímabilið vænt- anlega búið Ljósmynd/www.az.nl Holland Albert Guðmundsson leik- ur með AZ Alkmaar í Hollandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.