Morgunblaðið - 26.03.2020, Page 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2020
Ítengslum við árlega tann-verndarviku sem bar upp á4.-8. febrúar í ár voru lands-menn hvattir til að huga vel
að tannheilsunni. Sérstök áhersla
var lögð á skaðleg áhrif sykur-
lausra orkudrykkja á tennur en
unglingar virðast í auknu mæli
velja þessa drykki í þeirri trú að
þeir séu „hollara“ val þar sem þeir
innihalda ekki sykur. Þróunar-
iðstöð íslenskrar heilsugæslu tók
þátt í þessari vinnu m.a. með því
að senda fræðsluefni og veggspjöld
til allra skólahjúkrunarfræðinga á
landinu með hvatningu um að
vekja athygli skólabarna og for-
eldra þeirra á skaðsemi orku-
drykkja á tennur.
Innihalda örvandi efni
Lítið er um samræmdar reglur í
Evrópu um innihaldsefni og magn
þeirra í orkudrykkjum. Allir orku-
drykkir innihalda koffín auk ann-
arra örvandi efna og allir eru þeir
„súrir“ sem þýðir lágt sýrustig
(pH< 5,5) og hafa því glerungs-
eyðandi áhrif á tennur. Orku-
drykkir flokkast sem almenn mat-
væli hérlendis og engar sérstakar
reglur eru í matvælalögum sem
takmarka auglýsingar eða sölu á
drykkjavörum sem innihalda
minna en 320 mg/l af koffíni.
Framleiðendum ber þó skylda til
að merkja umbúðir og vara börn,
barnshafandi konur og konur með
börn á brjósti við neyslu orku-
drykkja ef koffínmagnið í drykkn-
um er 150 mg/l eða meira.
Markaðssetning orkudrykkja í
verslunum er mismunandi en víða
eru þeir á áberandi stöðum auk
þess sem hvatt er til neyslu þeirra
með afsláttarkjörum sem auðveld-
ar aðgengi barna og unglinga að
þeim og hvetur til kaupa á orku-
drykkjum. Auglýsingar, aðgengi
og sala orkudrykkja virðist óhindr-
uð og án eftirlits.
Neyslan eykst með hærri
aldri
Dagleg neysla ungmenna á
orkudrykkjum eykst með hækk-
andi aldri hjá bæði stelpum og
strákum. Árið 2018 sögðust einn af
hverjum fimm í 8. bekk, einn af
hverjum þremur í 9. og 10. bekk
og rúmlegahelmingur framhalds-
skólanema drekkur orkudrykki
daglega eða oftar.
Orkudrykkir eru oft markaðs-
settir sem hollir drykkir sem stuðli
að hreysti. Staðreyndin er hins
vegar sú að neysla á orkudrykkj-
um samhliða hreyfingu getur vald-
ið hjartsláttartruflunum og aukið
vökvatap líkamans þegar þeirra er
neytt í kjölfar íþróttaæfinga eða
meðan á þeim stendur. Fæstir sem
drekka orkudrykki hugleiða skað-
leg áhrif þeirra á tannheilsu en
mikil og tíð neysla sykurlausra
orkudrykkja leysir upp ysta lag
glerungsins sem þynnist og eyðist
og myndast ekki aftur. Tennurnar
verða viðkvæmar fyrir kulda og
meiri hætta er á tannskemmdum.
Herða viðmið og auka erftirlit
Hér á landi stendur ekki til að
takmarka sölu á orkudrykkjum að
öðru leyti en því að óheimilt er að
selja orkudrykki með miklu magni
af koffíni eða koffíninnihaldi meira
en 320 mg/l börnum yngri en 18
ára. Að mati landlæknis er full
þörf á að endurskoða umrætt við-
mið.
Með það að markmiði að vernda
heilsu og tannheilsu íslenskra
barna og ungmenna er skorað á
stjórnvöld að herða viðmið og auka
eftirlit með auglýsingum, aðgengi
og sölu orkudrykkja með meira en
150mg/l af koffíni. Jafnframt eru
foreldrar og forráðamenn barna
hvattir til að fylgjast með því að
þau séu ekki að drekka orku-
drykki, þar sem slíkir drykkir geta
bæði verið skaðlegir vegna koffín-
magns auk þess sem þeir skaða
tennur.
Súrir orkudrykkir varasamir
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Orkudrykkir Vörurnar eru í framlínu verslana og eftirsóttar til dæmis af
ungu fólki, sem gætir ef til vill ekki að óæskilegum áhrifum af neyslu.
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Heilsuráð
Ása Sjöfn Lórensdóttir
fagstjóri heilsuverndar
skólabarna.
Hólmfríður Guðmundsdóttir
tannlæknir, Þróunarmiðstöð
íslenskrar heilsugæslu.
Nú þegar líkamsræktarstöðvar og
sundlaugar eru lokaðar fara margir í
gönguferðir, enda er útivist holl og
góð í aðstæðum eins og nú ríkja. Í til-
kynningu er vakin athygli á vefsíð-
unni ferlir.is, þar sem segir frá
gönguleiðum og áhugaverðum stöð-
um á Reykjanesskaganum. Ferlir er
upphaflega gönguklúbbur rann-
sóknarlögreglumanna í Reykjavík
sem stunduðu útivist og fóru um
Reykjanesið. Í þeim ferðum safnaðist
saman fróðleikur um þjóðsagna-
kennda staði, fornar þjóðleiðir, stór-
kostlega og síbreytilega náttúrufeg-
urð og fjölbreytta flóru og fánu eins
og lesa má um á ferlir.is
Ferlir á ferðinni
Reykjanessögur
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Reykjanes Kappar við Kleifarvatn.
Sjávarklasinn hef-
ur nú útbúið
kennsluefni um
nýsköpun og
rekstur sem ætl-
að er nemendum
í framhalds-
skólum. Heim-
sóknir ungs fólks
í Sjávarklasann
liggja nú niðri og
því er farin ný
leið við að miðla þekkingu. Á You-
tube-rás Sjávarklasans eru viðtöl við
stofnendur nýsköpunarfyrirtækja
sem segja frá því hvernig þeir hafa
raungert hugmyndir sínar. Þá er
stefnt að því að kynningarnar verði
á menntavef RÚV innan skamms.
Von er á fleiri kynningum fljótlega ef
aðstæður leyfa. Ísfélag Vestmanna-
eyja og Marel eru bakhjarlar þessa
verkefnis.
Sjávarklasinn fræðir
Rekstur og ný-
sköpun kynnt
Fiskur Allt á
fullu í vinnslunni
Öflug dagskrá hefur verið sett upp
til að sinna félagsmönnum Hugar-
afls í samkomubanninu. Lögð er
áhersla á að bataferlið og endurhæf-
ing haldi áfram. Á þriðja hundrað
félagsmanna, fólk sem þarf aðstoð
vegna geðheilsu sinnar, getur nýtt
sér þennan stuðning óháð staðsetn-
ingu. Daglegar vinnusmiðjur eru
haldnar í gegnum forritið Zoom og
sett hefur verið upp dagskrá sem
byggir á sjálfsvinnu og bjargráðum
og er hvatning í bataferlinu. Félags-
menn og aðstandendur sækja einnig
viðtöl á staðnum eða í gegnum fjar-
fundarbúnað. Tenglakerfi Hugar-
afls hefur einnig verið virkjað og
geta félagsmenn fengið stuðning
með símtölum, spjalli og sam-
skiptum yfir netið.
„Þessi mikilvæga reynsla hefur
sýnt fram á auðvelda leið sem Hug-
arafl hyggst nota í framtíðinni,“ seg-
ir í tilkynningu þar sem minnt er á
viðburðinn Hugarró sem verður á
Facebook-síðunni Hugarafl Lág-
múla á morgun kl. 11.
Morgunblaðið/Eggert
Hugarafl öflugt
Ferðafélag Íslands hvetur alla, nú í
óvissuástandi, til að fara í göngu-
ferðir í nærumhverfi sínu undir
yfirskriftinni Almannavarna-
göngur Ferðafélags Íslands. Ferðir
undir þeim formerkjum eiga að
vera frá heimili hvers þátttakanda
og um nærumhverfi hans. Teknar
eru myndir og svo er fólk á göng-
unni hvatt til að hringja í vin, segja
frá ferðinni og hvetja viðkomandi
til að fara út að ganga.
Taka skal mynd í gönguferðinni
og birta í Facebook-hópi verkefn-
isins FÍ Almannavarnagöngur og
merkja þær #ferdafelagislands.
Eftir fjórar vikur verður dregið úr
hópi þátttakenda sem hljóta fimm
ferðavinninga með FÍ í sumar.
Almannavarnagöngur
Hjá Fjölskylduþjónustu kirkjunnar
hefur vinnubrögðum verið breytt
vegna aðstæðna. Starfsfólkið er
alla jafna í mikilli nánd við skjól-
stæðinga sína eins og gefur að
skilja svo nú er aðeins sinnt síma-
þjónustu. Félagsráðgjafarnir Andr-
ea Baldursdóttir, Elísabet Berta
Bjarnadóttir, Guðrún Kolbrún
Otterstedt og Rannveig Guðmunds-
dóttir eru til taks og eru síma-
númer þetta birt á vef kirkjan.is.
Félagsráðgjafarnir
eru nú við símann