Morgunblaðið - 26.03.2020, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 26.03.2020, Blaðsíða 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2020 ✝ Valþór BjarniSigurðsson fæddist í Reykjavík 27. september 1948. Hann lést á Karolinska sjúkra- húsinu í Svíþjóð 5. mars 2020. For- eldrar hans voru hjónin Halldóra Nanna Guðjóns- dóttir frá Flatey á Mýrum, Horna- firði, f. 14. júní 1917, d. 28. des- ember 2000, og Sigurður Bjarnason vörubílstjóri frá Hell- issandi, f. 25. september 1912, d. 25. janúar 2001. Bræður Val- þórs: Hafsteinn, f. 1931, d. 1936, Hörður Rafn, f. 4. september 1933, d. 29. júlí 2017, Guð- mundur Hafsteinn, f. 1935, kona hans er Guðmunda Þorláks- dóttir, f. 1939, albróðir er Gunn- dór Ísdal, f. 22. febrúar 1940, hans kona er Guðrún Skúladótt- ir f. 1943. 26. febrúar 1972 kvæntist og Berglind, f. 17. janúar 2012. Valþór var húsasmíðameist- ari en hann tók sveinsprófið ár- ið 1971 og meistarapróf 1995. Hann lærði trésmíði hjá Gesti Pálssyni eftir að hafa starfað meðal annars á traktorsgröfu og í Blikksmiðjunni Vogi. Val- þór var mjög liðtækur vélamað- ur og vann á gröfu með tré- smíðinni. Hann starfaði hjá Ístaki 1975-1985 sem verkstjóri og stjórnandi véladeildar. Frá 1985-1995 starfaði Valþór hjá Hagvirki m.a. sem verkstjóri við innréttingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Eftir að hafa unnið ýmis störf frá 1995 tók hann við sem byggingastjóri Háskóla Íslands árið 1998 og starfaði þar til starfsloka. Valþór verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju 26. mars 2020. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu þarf að takmarka fjölda kirkjugesta í athöfninni og verður því eingöngu nánasta fjölskylda við útförina. Þeim sem vilja er bent á að hægt verður að fá aðgang að upptöku af athöfnin með því að hafa samband við aðstandendur. Minningarathöfn verður 27. september og verður auglýst síðar. Valþór Guðrúnu Magnúsdóttur, f. 11. janúar 1950, foreldrar hennar voru hjónin Lovísa Júlíusdóttir frá Hítarnesi, f. 12. september 1914, d. 29. desember 2004, og Magnús Þórð- arson sem ólst upp í Hagavík, f. 21. júní 1902, d. 6. des- ember 1984. Börn Valþórs og Guðrúnar eru 1) Magnús, f. 30. júní 1971, og börn hans eru Margrét Rán, f. 7. maí 1992, og Valþór Viggó, f. 15. september 2004. 2) Sigrún, f. 1. ágúst 1972, gift Valdimar Þorsteinssyni, f. 30. júlí 1968, börn þeirra eru Bjarni Valur, f. 3. júlí 2002, Jón Þór, f. 31. maí 2005, og Arnar Ingi, f. 14. júní 2008. 3) Eyrún, f. 3. apríl 1984, gift Gesti Áka- syni, f. 7. mars 1983, börn þeirra eru Guðrún María, f. 1. júní 2008, Hafdís, f. 1. júní 2008, Ósköp er erfitt að þurfa að kveðja þig elsku pabbi minn. Þegar þetta ár hófst var það óhugsandi að þú ættir eftir að hverfa á braut svo fljótt. Þú sem varst alltaf svo hraustur og áttir fullt eftir enn. Nokkrar af mínum bestu minningum með pabba eru úr bílskúrnum á Ölduslóðinni þar sem ég fékk alltaf einhver skemmtileg verkefni. Þar voru smíðaðir ófáir bátar, vindmyllur og fleiri skemmtilegir hlutir sem urðu flóknari með árunum. Það lék allt í höndunum á pabba. Það var alveg sama hvað það var og metnaðurinn var líka alltaf mikill. Snjóhúsin voru ávallt byggð úr snjókubbum, eins og inúítarnir gerðu þau. Kassa- bíllinn leit út eins smækkuð út- gáfa af alvöru bíl og ekki var nú vandamálið að laga beyglur á bílnum þegar dóttirin, nýkomin með bílprófið, náði að klessa bíl- inn sinn. Pabbi var mikill fjölskyldu- maður og alla tíð ákaflega hjálp- samur. Ósjaldan var hann mætt- ur heim til okkar Gests snemma á laugardagsmorgni til að að- stoða okkur við framkvæmdir. Það var alltaf svo gott að vinna með pabba því það voru engin vandamál of stór og allt gert af svo mikilli jákvæðni. Útivera og ferðalög voru frá því ég man eftir mér stór partur af lífi fjölskyldunnar. Jeppaferðir á veturna og útilegur á sumrin, þannig minnist ég æskuáranna. Það voru alltaf ný ævintýri í hverri ferð og pabbi var alltaf til í að bregða á leik og var oft gripið í spil á kvöldin og mikið hlegið. Seinna þegar barnabörnin bætt- ust við þreyttist hann ekki við að virkja þau í fótbolta eða öðrum leikjum í útilegunum. Helstu minningar stelpnanna minna eru að afi gerði oft handa þeim dúkkuhús úr stórum pappa- kössum. Þá var hann búinn að fara milli búða til að redda stórum pappakössum og sníða úr þeim flott dúkkuhús með öllu til- heyrandi. Seinna þegar þau mamma voru komin með sum- arbústaðalóð var svo smíðað al- vöru dúkkuhús þar sem var dúll- að við öll smáatriði og þaðan eiga yngstu barnabörnin mjög góðar minningar. Mikið á ég eftir að sakna þess að geta leitað til pabba og rætt um líðandi stundu yfir rjúkandi kaffibolla. Takk elsku pabbi minn fyrir allt, betri pabba var ekki hægt að hugsa sér. Þín dóttir, Eyrún Valþórsdóttir. Ég trúi því varla að ég sitji hér og skrifi minningargrein um þig pabbi. Þú varst einn af þessum þús- undþjalasmiðum sem allt geta gert, sama hvort það voru smíð- ar, rafmagn, bílaviðgerðir, pípu- lagnir, kleinubakstur eða pönnu- kökugerð; allt var gert upp á millimetra. Ég man þegar ég eignaðist hesta og ég ekki komin með bíl- próf, þá keyrðir þú mig oft á vet- urna upp í hesthús á jeppanum ef það var ófærð. Þér þótti nú ekki leiðinlegt að þruma í gegnum skafla og þurfa að draga og moka. Þú varst þessi jeppadellu- kall enda voru ófáar ferðir farnar með Gúsa og Skapta og fjöl- skyldum í jeppaferðir og margir brandarar sagðir í talstöðina. Þú undir þér best við að dunda eitthvað í bílskúrnum og dytta að húsinu ykkar mömmu. Við systk- inin grínuðumst stundum með það hvað þú værir heppinn að eiga bara okkur þrjú, þar sem það væri fullt starf að hjálpa okk- ur við að byggja og viðhalda hí- býlum okkar. En þú varst ávallt boðinn og búinn að koma og hjálpa okkur og alltaf var það óumbeðið, þú sagðir bara: Ég kem á eftir eða á morgun og við græjum þetta og hitt. Lækjarbakkinn var ykkar mömmu sælureitur og magnað hvernig þú breyttir garðskúr í þennan flotta bústað og alltaf varstu að byggja við húsið eða stækka pallinn. Og í sumar ætl- aðir þú að stækka kotið enn meir. Þú undir þér vel á Spáni og þangað fóruð þið mamma til að hlaða batteríin en tíminn var líka vel nýttur; þið ferðuðust mikið og tókuð á móti vinum og vanda- mönnum þangað. Þið mamma voruð alltaf dug- leg að fara í útilegur og á ég ótal minningar úr þessum ferðum. Þú varst líka mikill afi og í úti- legum og uppi í bústað varst þú fyrstur til að drífa krakkana með þér í fótbolta og alls konar leiki. Þegar Bjarni Valur var að æfa sig að keyra bauðstu honum að koma með þér í æfingaakstur t.d. og þegar krakkarnir gistu hjá ykkur var iðulega eitthvað smíð- að og svo gjarnan brennt í arn- inum. Þú tókst fréttunum um að þú værir með ólæknandi krabba- mein með ótrúlegu æðruleysi og vá hvað það birti yfir þér þegar þú fékkst þær fréttir að þú gætir farið til Svíþjóðar í aðgerð til að fjarlægja meinið. Þú hugsaðir vel um mömmu og baðst okkur krakkana að koma með ykkur út en svo fór sem fór. Ég held því fram að þá þarna uppi hafi bráðvantað svona hand- laginn mann! Takk fyrir allt, elsku pabbi minn. Sigrún Valþórsdóttir. Það er gríðarlega erfitt að kveðja Valþór Sigurðsson tengdaföður minn. Alveg frá því ég hitti hann fyrst fyrir 18 árum hefur hann reynst mér afskap- lega vel og það sem kemur fyrst upp í hugann er hjálpsemi og góðmennska. Það er sárt að hugsa til þess að geta ekki leitað til hans með ráð eða aðstoð en það var fátt sem hann gat ekki hjálpað mér með. Það var því alltaf gaman að geta aðstoðað hann með tölvu- og símamál en það var líklega það eina sem ég gat leiðbeint honum með. Móðir mín sagði einu sinni um hann að það væru ekki margir eins og hann eftir, menn sem gætu allt þegar kom að húsum og bílum. Það var alveg rétt hjá henni því það var sama hvað maður leitaði til hans með þá gat hann gefið manni góð ráð og oftast endaði hann á því að sýna mér hvernig ætti að gera þetta. Ég á góðar minningar með honum þegar hann hjálpaði okkur með fram- kvæmdir í húsinu okkar. En þar var það eins og annars staðar þá þurfti ekki að biðja hann um hjálp heldur var hann mættur. Það var alltaf gaman að vinna með honum og jákvæðnin og út- sjónarsemin var alls ráðandi. Ekkert verk var of stórt eða erf- itt. Hann hafði einstaklega góða nærveru og ég lærði mikið af honum á þessum tíma og met það mikils. Ég er virkilega þakklátur fyrir þann tíma og hef reynt að temja mér vinnusemi og dugn- aðinn sem hann bjó yfir. Hann var líka mikill fjöl- skyldumaður og það sást greini- lega í því hversu annt honum var um barnabörnin og hvernig þeim gengi. Stelpurnar okkar Eyrún- ar eiga endalaust af góðum minn- ingum um afa sinn. Þar stendur húsið sem hann smíðaði fyrir barnabörnin hjá sumarbústaðn- um þeirra upp úr og það fór ekki á milli mála að þarna hafði tengdafaðir minn verið að verki enda hugsað fyrir öllum smáat- riðum og allt upp á tíu. Ég og mágur minn höfum ver- ið með hálfgert orðatiltæki sem er þannig að ef eitthvað er ekki nógu vel gert eða mætti gera bet- ur segjum við „Myndi Valþór gera þetta svona?“ Ég mun ávallt minnast hans með hlýhug og þakklæti. Gestur. Líttu sérhvert sólarlag, sem þitt hinsta væri það. Því morgni eftir orðinn dag enginn gengur vísum að. Svo kvað Bragi Valdimar og oft höfum við heyrt þetta fallega ljóð sungið, einkum á kveðju- stundum, eins og til að minna eft- irlifendur á boðskap þess. Hann Valþór vinur okkar kunni svo sannarlega að njóta lífsins, náttúru, fjölskyldu, vina og verkefna en hann ætlaði bara að gera það svo miklu, miklu lengur og átti svo margt ógert. En við fáum ekki öllu ráðið eins og við höfum verið rækilega minnt á undanfarið. Öll vonuð- umst við til að aðgerðin í Svíþjóð bæri ætlaðan árangur og við tækju jafnvel mánuðir þar sem okkar maður yrði að fara sér hægt, áður en mögulegt yrði að halda áfram þaðan sem frá var horfið. Sú von brást. Valla kynntumst við í gegnum skátastarf Andrómeda, sem lagði grunn að núverandi saumaklúbbi og óslitinni vináttu, okkar stelpn- anna en Guðrún hans er ein af hornsteinum þess hóps. Makarn- ir urðu svo kærkomin viðbót í kvennafansinn og ótalmargar minningar eigum við til að orna okkur við, eftir 55 ára óslitinn vinskap. Fyrir tæpu ári var hist í sum- arbústað þeirra hjóna, dýrindis veitingum gerð góð skil, ekið um sveitir, dáðst að framkvæmdum, hlegið og spjallað um allt sem við eldri borgararnir ætluðum að gera á næstunni. Á sínum tíma gengum við í samtök eldri skáta og í þeim góða hópi varð Skátakórinn í Hafnar- firði til. Fyrsta æfing haldin heima hjá Guðrúnu og Valla og í framhaldinu æfingabúðir, partí og uppákomur. Eins og gengur verða breyt- ingar á högum fólks, fjölskyldur stækka, nýir vinnustaðir, önnur vinatengsl, barnabörnin taka blessunarlega tímann sinn og við eldumst. En þráðurinn helst og fyrir tveimur árum komu Guðrún og Valþór eins og himnasending inn í hóp eldri skátanna í gildinu og verkefni fyrir vinnufúsar hendur voru ærin við Skátalund, skála gildisins við Hvaleyrar- vatn. Það þurfti að endurnýja pall- inn, mála, moka, gróðursetja, viðra hugmyndir yfir góðu kaffi- hlaðborði og ekki síst gera ær- legan skurk í bröttum veginum sem liggur að skálanum. Og ekki var legið á liði sínu. Tengsl Valþórs við alls kyns fyrirtæki, þekking, reynsla og aðgengi að hinum ýmsu vega- vinnutækjum komu sér vel, að ekki sé minnst á prúðmennsku hans. Skálahópurinn þakkar innilega frábæra viðkynningu og störf. Við hjónin getum ekki full- þakkað vikulangt heimboð til Spánar í nóvember, en Guðrún og Valli höfðu nokkrum sinnum haldið til í sólinni yfir kaldasta tímann hérlendis til að hlaða batteríin, ganga, lesa, spjalla, vera saman, vera til. Oft með góða vini eða einhverja fjöl- skyldumeðlimi hjá sér eða í ná- grenninu. Yfir rólegu spjalli, ostum og ólífum flutu ýmsar minningar, skoðanir og lífssýn okkar upp á yfirborðið og þekktumst við bet- ur fyrir vikið. Við söknum góðs vinar, en missir fjölskyldunnar er meiri og sendum við öllum ættingjum og vinum hugheilar samúðarkveðj- ur. Minningin um góðan mann verður þó ekki frá okkur tekin og biðjum við honum blessunar á nýjum slóðum með hjartans þakklæti fyrir allt. Fyrir hönd gildisins og ann- arra skátavina. Fríða og Hreiðar. Vinátta og þakklæti voru fyrstu orðin sem komu upp í hug- ann þegar við fengum þá sorg- arfrétt að Valþór vinur okkar hefði látist eftir aðgerð sem hann fór í á Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi. Við höfðum farið í kaffi til þeirra Valþórs og Guðrúnar hinn 3. janúar og þá barst í tal að hann ætti tíma hjá lækni daginn eftir. Ekki grunaði okkur að sú lækn- isheimsókn yrði eins afdrifarík og kom á daginn, en því miður greindist hann þá með illkynja mein. Stuttu síðan var ákveðið að reyna að fjarlægja meinið í Sví- þjóð og ferðuðust Guðrún kona hans og börnin þeirra þrjú með. Því miður lést hann stuttu eftir aðgerð. Samgangur okkar við þau hjón var alla tíð mikill. Við höf- um, ásamt fleiri vinum, haldið gönguklúbb einu sinni í viku í yf- ir 30 ár og einnig höfum við ferðast mikið saman. Meðan börnin okkar og þeirra voru lítil voru þær margar tjaldútilegurn- ar og jeppaferðirnar út á land og minnast börnin þessara ferða með mikilli ánægju. Eftir að börnin voru flogin úr hreiðrinu héldu ferðalögin áfram með öðru sniði. Bæði með heim- sóknum í sumarbústað þeirra hjóna og svo síðasta sumar með hjólhýsi í eftirdragi. Einnig ferð- uðumst við saman til Króatíu, Kúbu og Flórída og eyddum við dásamlegum dögum með þeim á haustmánuðum á Spáni, þar sem við gátum hist daglega og notið góðra stunda saman. Hjálpsemi Valþórs var ein- stök. Alltaf var hann tilbúinn að rétta hjálparhönd og var hann einstaklega verklaginn og iðinn og gott að geta leitað ráða hjá honum. Við finnum fyrir miklu þakk- læti að hafa verið svo lánsöm að njóta vináttu þeirra hjóna í nær 50 ár án þess að skugga bæri á. Að lokum viljum við votta Guðrúnu og börnum þeirra Val- þórs, Magnúsi, Sigrúnu og Ey- rúnu, ásamt mökum þeirra og börnum, okkar dýpstu samúð. Ágúst og Hanna. Það er erfitt að setjast niður og skrifa minningarorð um fé- laga sem maður hefur þekkt og umgengist í yfir 30 ár og líka þar sem hann kvaddi svo snöggt. Við félagar hans heyrðum fyrst í ársbyrjun af því meini sem hann var kominn með og var það alvarlegt að eftir rannsóknir hér heima og aðra úti í Stokkhólmi fer hann síðan aftur til Stokk- hólms og gengst undir aðgerð á Karolinska sjúkrahúsinu þar sem batahorfur voru alls ekki góðar. Hann átti ekki afturkvæmt frá þessari síðari för til Stokkhólms. Við félagarnir erum gamlir vinnufélagar úr Hagvirki sem höfum hist og borðað saman einu sinni í mánuði frá 1992. Einnig höfum við nú síðari árin farið í ýmist styttri dagsferðir eða lengri þriggja til fjögurra daga ferðir þar sem framkvæmdir vítt um land hafa verið skoðaðar. Hópinn köllum við Akademíuna. Allir erum við félagarnir í Akademíunni slegnir yfir fráfalli Valþórs, ekki síst vegna þess hversu heilbrigðu lífi hann lifði, útivist, daglegt sund og göngur. Þetta gat engan grunað. Við kynntumst margir fyrst suður í flugstöð á Keflavíkurflug- velli þegar Hagvirki sá um að innrétta og koma upp tæknikerf- um í stöðinni fyrir opnun hennar. Nokkrir okkar höfðu þó þekkst áður. Valþór kom til Hagvirkis til vinnu við innréttingarnar í flug- stöðinni en hafði áður unnið hjá Ístaki. Í flugstöðvarverkinu var það augljóst að Valþór hafði kynnt sér og spáð í þær framkvæmdir og þau verk sem næst voru áður en þau hófust og gat því miðlað af þeirri þekkingu til annarra sem með honum unnu. Hinn full- komni verkstjóri og vinnufélagi. Það er hægt að lýsa Valþóri í fáum orðum. Hann var traustur, yfirvegaður og ákveðinn og það sem hann sagði, það stóð. Um það þurfti ekki að efast. Aldrei heyrðist Valþór segja styggðaryrði um nokkurn mann. Það segir svolítið um mann- kosti Valþórs að nú síðastliðið haust endurnýjaði hann vinnu- vélaréttindi sín hjá Vinnueftirlit- inu og frammistaðan var slík og ekki síður öll hans framkoma og mannkostir að honum var boðið að koma og kenna við námskeið- ið. Valþór var fagmaður í smíði, menntaður húsasmíðameistari og vann sem slíkur hjá Hagvirki. Öllu sem hann tók að sér skilaði hann eins og best og fullkomnast mátti vera. Eftir að störfum hjá Hagvirki lauk og við félagarnir fórum hver í sína áttina í vinnu fór Valþór að vinna hjá Háskóla Íslands sem byggingarstjóri. Þar sá hann um og hélt utan um framkvæmdir, bæði nýjar og einnig breytingar og lagfæringar á húsnæði Há- skólans. Má þar nefna t.df. end- urnýjun á háskólasalnum og fleiri slíkar framkvæmdir. Síðustu árin vann hann hjá syni sínum, sem er verktaki, við lagningu rafstrengja. Víð félagarnir vottum ekkju Valþórs, Guðrúnu Magnúsdótt- ur, og börnum þeirra, þeim Magnúsi, Sigrúnu og Eyrúnu, okkar innilegustu samúð. F.h. Akademíufélaganna, Jónas Brjánsson. Valþór Bjarni Sigurðsson Harpa Heimisdóttir s. 842 0204 Brynja Gunnarsdóttir s. 821 2045 Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær s. 842 0204 | www.harpautfor.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.