Morgunblaðið - 26.03.2020, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 26.03.2020, Blaðsíða 64
Hljómahöll og Rokksafn Ís- lands bjóða landsmönnum upp á tónlistartengda við- burði í gegnum streymi á netinu næstu vikur undir yfirskriftinni Látum okkur streyma á Facebook-síðu Hljómahallar. Verður m.a. boðið upp á útsendingar frá tónleikum í Hljómahöll og Rokksafn Íslands fær í heim- sókn þá Pál Óskar og Björg- vin Halldórsson. Einnig verð- ur boðið upp á að taka þátt í Popppunkti um popp- og rokksögu Íslands með Dr. Gunna í gegnum Kahoot í beinni á netinu. Í kvöld verða tónleikar í beinni með Ásgeiri, 2. apríl með Moses Hightower, 7. apríl með GDRN og 16. apríl með Hjálmum en allir hefjast þeir kl. 20. Popppunktur með Dr. Gunna verður á morgun og 3. apríl kl. 14. Látum okkur streyma í Hljómahöll FIMMTUDAGUR 26. MARS 86. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. „Að æfa í óvissu hefur bæði mikil áhrif á mann sjálfan og hvatningin fyrir því að æfa er allt önnur en undir eðlilegum kringumstæðum. Verður eitthvað af mótinu eða ekki og það er fljótt að koma upp í hugann þegar á móti blæs,“ segir spjótkastarinn Helgi Sveinsson, sem var með Paralympics í Japan í sigtinu en leikunum hef- ur nú verið frestað um eitt ár. Rætt er við Helga á íþróttasíðum blaðsins í dag. Hann horfir til þess að reyna við Paralympics á næsta ári, en Helgi keppti í London 2012 og í Ríó 2016. »54 Óvissan er versti óvinur íþrótta- mannsins að sögn Helga Sveins ÍÞRÓTTIR MENNING ingum sem leiða til streituástands og draga úr ónæmisviðbrögðum. Já- kvæðar hugsanir losa hins vegar taugaboðefni sem stuðla að streituminnkun og vörnum gegn ýmsum sjúkdómum“.“ Hann leggur áherslu á að ekki sé hægt að ætlast til þess að allir brosi eða hlæi sig í gegnum farsóttina, vegna þess að við áhyggjur af farsóttinni bætist við áhyggjur af afkomunni, en það sé til bóta að losna við neikvæðar hugs- anir. „Þeir sem er tamt að líta á já- kvæðu hliðarnar geta talið kjark í hin, í fjölskyldu, vinahópi eða á vinnustað.“ Í fyrra kom út sögulega skáldsag- an Urðarmáni eftir Ara. Þar fjallar hann um spánsku veikina 1918 og lýsir farsótt í nútímanum. „Kannski var það einhver framtíðarsýn,“ segir hann, en bendir á að ljóðið Smit- berar, sem er í ljóðabók hans, Ösku- dagar, og kom út 2007 passi vel við atburði líðandi stundar. Ari vekur athygli á að það sé skylda heilbrigðisyfirvalda og við- bragðsaðila að gera ráð fyrir því í viðbúnaði sínum að hlutirnir geti farið á verri veg, en ekki sé þar með sagt að þeir geri það. Það sé undir okkur sjálfum komið að brynja okk- ur gegn neikvæðum hugsunum. Oft hefur verið haft á orði að hláturinn lengi lífið. „Hlátur er smitandi og öf- ugt við COVID-19 er best að kúrfan sé sem bröttust!“ segir Ari. „Aðal- atriðið er að fyllast ekki örvæntingu heldur reyna að hugsa jákvætt og einblína á það sem við getum haft áhrif á. Þar skiptir öllu að hlíta fyr- irmælum sóttvarnalæknis og ann- arra yfirvalda.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Kórónuveiran er mál málanna um allan heim. Ari Jóhannesson, lyf- læknir og rithöfundur, leggur sitt af mörkum á Facebook og segir miklu skipta að hugsa jákvætt. Og helst að hlæja svolítið vegna þess að margt bendi til þess að slíkt styrki varnir líkamans. „Margir hafa tilhneigingu til þess að fyllast kvíða og bölsýni gagnvart óvissu,“ segir Ari við Morgunblaðið og bætir við að skiljanlegt sé að kvíða setji að fólki við þær aðstæður sem nú eru uppi. „Óvissa um eðli far- sóttarinnar, að hluta vegna misvís- andi upplýsinga frá útlöndum um dánartíðni, veldur kvíða. Og gagn- vart óvissu hafa margir tilhneigingu til að búast við því versta. Það er bara í mannlegu eðli. Og kvíðinn er smitandi, það er staðreynd. Lang- varandi neikvæðar hugsanir orsaka og fóðra síðan streituástand þar sem kortisól og fleiri hormón geta með tímanum veiklað ónæmiskerfið og minnkað mótstöðu gegn sýklum.“ Hlátur mikilvægur Fólki hefur verið bent á að liggja ekki yfir fréttum af kórónuveirunni og Ari tekur undir að það beri að varast vegna þess að það hafi sýnt sig að slík yfirlega auki oft á áhyggjur fólks og dragi úr því kjark. „Við ætt- um til dæmis ekki að einblína á ástandið á Ítalíu. Ekkert bendir til þess að staðan hér verði neitt í líkingu við það.“ Ari vekur athygli á mikilvægi hláturs og vísar á heimasíðu Mayo-klíníkur í Bandaríkjunum. „Þar er þessi máls- grein, í lauslegri þýðingu: „Hlátur bætir súrefnisupptöku, örvar hjarta, lungu og vöðva og eyk- ur losun á vellíðunarhormóninu en- dorfíni í líkamanum. Neikvæðar hugsanir koma af stað efnabreyt- Mikilvægt að hugsa jákvætt og hlæja  „Best að kúrfan sé sem bröttust,“ segir Ari Jóhannesson læknir Morgunblaðið/RAX Jákvæðni Ari Jóhannesson leggur áherslu á björtu hliðarnar. ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 Frí heimsending Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU FYRIR ÞÁ SEM VERSLA FYRIR 5.000 EÐA MEIRA WWW.ILVA.IS GILDIR Í VEFVERSLUN ILVA TIL OG MEÐ 31. MARS 25-40% Sparadu- af öllum ljósum og 20% af allri smávöru* 26. mars - 13. apríl UMAGE EOS fjaðurskermur. Ýmsir litir. Ø45 cm. Áður 18.995 kr. NÚ 14.245 kr. SPARAÐU 4.750 kr. Perustæði selt sér. *Gildir ekki um vörur á áður niðursettu verði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.