Morgunblaðið - 26.03.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 26.03.2020, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2020 VIÐ TENGJUMÞIG KORTA býður uppá örugga greiðsluþjónustu og hagkvæm uppgjör. Posar, greiðslusíður, áskriftagreiðslur eða boðgreiðslur. Greiðslumiðlun er okkar fag. Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Gjafakort Einstökminning Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Antonio Guterres, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær að kórónuveirufaraldurinn ógn- aði öllu mannkyni og að allir yrðu að taka þátt í baráttunni gegn henni. Guterres kynnti um leið nýtt átak Sameinuðu þjóðanna, þar sem tveimur milljörðum bandaríkjadala verður varið í aðstoð við fátækustu ríki heims. Sagði Guterres að verkefninu væri einkum ætlað að tryggja þarfir þeirra sem væru hvað berskjaldað- astir fyrir efnahagsáföllum, kvenna og barna, eldra fólks og þeirra sem glímdu við fatlanir eða langvinna sjúkdóma. Þá myndi aðstoðin hjálpa til við að varðveita þann árangur sem þegar hefði náðst með þróunar- aðstoð alþjóðasamtakanna og mark- miðum þeirra um sjálfbæra þróun. Verkefni Sameinuðu þjóðanna mun standa yfir frá apríl til desem- ber næstkomandi, en fjármunirnir koma að hluta til úr söfnunum sem undirstofnanir samtakanna eins og alþjóðaheilbrigðisstofnun WHO hafa þegar ýtt úr vör. Ástandið versnar enn í Evrópu Rúmlega 450.000 tilfelli kórón- uveirunnar voru skráð í gær og meira en 20.000 hafa látist af völdum hennar. Faraldurinn er enn í mikl- um uppgangi í ríkjum Evrópu og til- kynntu stjórnvöld á Spáni í gær að 738 hefðu látist þar af völdum veir- unnar síðasta sólarhringinn. Þar með hafa 3.434 látist á Spáni og eru skráð dauðsföll þar nú fleiri en í Kína, þar sem faraldurinn átti upp- haf sitt. Þá er Ítalía eina ríkið þar sem fleiri hafa dáið af völdum kór- ónuveirunnar, en tæplega 7.000 manns hafa látist þar í landi. Ríkisstjórn Spánar kynnti í gær að hún hefði gert samkomulag við kínversk stjórnvöld um kaup á nauð- synlegum gögnum fyrir sjúkrahús til að takast á við veiruna. Mun sam- komulagið kosta Spán um 432 millj- ónir evra, og fá Spánverjar í staðinn 550 milljón andlitsgrímur, 950 öndunarvélar og 11 milljónir hanska, og eru fyrstu sendingarnar væntan- legar til Spánar í lok þessarar viku. Áður höfðu Spánverjar beðið Atl- antshafsbandalagið um formlega að- stoð, en meðal annars var beðið um 450.000 öndunargrímur, 500.000 próf fyrir veirunni og 500 öndunar- vélar. New York í brennidepli Í Bandaríkjunum fjölgaði skráð- um tilfellum ört, og hafa nú meira en 60.000 manns smitast af veirunni þar og 827 látist. Meira en helming allra tilfella í Bandaríkjunum er að finna í New York-borg, og varaði ríkisstjóri New York-ríkis við því í fyrrinótt að fjöldi tilfella í ríkinu tvö- faldaðist nú á hverjum þremur dögum. „Við höfum ekki náð að fletja kúrfuna og hún fer í raun stækk- andi,“ sagði Cuomo á blaðamanna- fundi sínum, þar sem hann líkti veirufaraldrinum við hraðlest. Skor- aði Cuomo á alríkisyfirvöld að koma New York-ríki til aðstoðar áður en það væri um seinan. Margir íbúar New York-borgar hafa flúið hana, og hafa stjórnvöld skorað á þá að einangra sjálfa sig. „Ógn við allt mannkyn“  Sameinuðu þjóðirnar vilja aðstoða fátækustu ríki heims  Dauðsföll á Spáni nú fleiri en skráð dauðsföll í Kína  20.000 dánir  Íbúar New York-borgar uggandi AFP Spánn Spænskur hermaður stendur vörð við sjúkrarúm í rými sem breytt hefur verið í sjúkrahús fyrir kórónu- veirusjúklinga í Barcelona. Faraldurinn er nú í mikilli uppsveiflu á Spáni og hafa rúmlega 3.400 dáið þar í landi. Staðfest var í gær að Karl, prins af Wales og ríkisarfi Bret- lands, hefði smit- ast af kórónu- veirunni. Karl, sem er 71 árs gamall, er að sögn talsmanna bresku krún- unnar með mild einkenni en annars við „góða heilsu“. Camilla, eigin- kona hans, er ekki smituð, en bæði eru í sjálfskipaðri einangrun í Bal- moral-höll í Skotlandi. Sinnir Karl nú verkefnum sínum heiman frá sér. Elísabet drottning sá son sinn síðast 12. mars og er enn við fulla heilsu. Fylgir hún allri ráðgjöf sér- fræðinga um hvernig eigi að verj- ast kórónuveirunni. Karl Bretaprins með kórónuveiruna Karl Bretaprins BRETLAND Utanríkisráðherrar G7-ríkjanna voru sammála á fjarfundi sínum í gær um að Kínverjar væru að reyna að afvegaleiða umræðuna um kórónuveirufaraldurinn að sögn Mike Pompeos, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Sagði Pompeo eftir fundinn að allir ráðherrarnir hefðu verið mjög meðvitaðir um að kín- verski kommúnistaflokkurinn væri að reyna að villa um fyrir fólki. Kínverskir fjölmiðlar og embætt- ismenn hafa nýverið gefið þeirri kenningu undir fótinn að veiran hafi ekki átt upptök sín í Wuhan, heldur á Ítalíu, og jafnframt að veiran sé bandarísk að uppruna. Kínverjar sagðir villa um fyrir fólki G7-RÍKIN FUNDA Hlutabréf héldu áfram að hækka á Wall Street í gær annan daginn í röð eftir að repúblíkanar og demó- kratar í öldungadeild Bandaríkja- þings komust að samkomulagi seint í fyrrinótt um tilhögun neyð- arpakka stjórnvalda gegn áhrifum kórónuveirunnar. Hækkaði Dow Jones-vísitalan um tæp 2,4%, degi eftir að hún hækkaði um 11%. Er það nokkur viðsnúningur frá miklu tapi síðustu vikna. Stærsti neyðarpakkinn Mitch McConnell, leiðtogi repú- blíkana í deildinni, og Chuck Schu- mer, leiðtogi demókrata, lýstu báð- ir yfir ánægju sinni með samkomulagið, en tekist var hart á um helgina um helstu atriði þess. Sagði McConnell að um væri að ræða innspýtingu sem minnti einna helst á þær fjárfestingar sem ríkið réðist í á styrjaldartímum. „Í dag mun öldungadeildin bregðast við til að hjálpa fólki þessa lands í gegn- um storminn,“ sagði McConnell. Samkomulag flokkana felur í sér mestu innspýtingu fjármagns í hagkerfi Bandaríkjanna í sögunni, jafnvel meiri en eftir fjármála- kreppuna 2008. Hyggjast stjórn- völd veita allt að 2.000 milljörðum bandaríkjadala til fólks og fyrir- tækja. Gert er ráð fyrir að um 130 milljörðum bandaríkjadala verði veitt til að tryggja sjúkrahúsum hlífðarföt, rúm fyrir gjörgæslu- deildir og öndunarvélar. Þá geta meðalstór fyrirtæki fengið styrki og stærri fyrirtæki lán frá ríkinu til þess að mæta skakkaföllum vegna veirunnar. Samkomulagið í höfn  Markaðir vestanhafs taka kipp upp á við annan daginn í röð  Um 130 milljörðum varið aukalega í heilbrigðiskerfið AFP Neyðaraðstoð „Stúlkan óttalausa“ horfir á kauphöllina á Wall Street.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.