Morgunblaðið - 26.03.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 26.03.2020, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2020 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is ,,Við erum ánægð með hversu vel fólk hefur tekið okkur, enda vantaði virkilega svona stað á þessu svæði hér í Kópavogi. Við ákváðum bara að slá til, þetta var spurning um að hrökkva eða stökkva,“ segja þau Reynir Hafþór Reynisson og Íris Mjöll Eiríksdóttir, ungt par sem opnaði grænmetis- og veganveit- ingastaðinn Mr. Joy síðastliðið vor við Dalbrekku í Kópavogi. „Þegar við vorum ein heima í fæð- ingarorlofi eftir að drengurinn okk- ar fæddist í nóvember 2018 veltum við fyrir okkur hvað okkur langaði að gera í framtíðinni. Það hafði ver- ið draumur okkar lengi að opna matsölustað og þegar okkur bauðst þetta frábæra tækifæri að fá hús- næði hér var ekki eftir neinu að bíða. Þessi staður er algerlega okk- ar annað barn, við höfum gert þetta allt sjálf með góðri hjálp frá fjöl- skyldum okkar. Auðvitað var mikil vinna að koma þessu á legg og alveg frá sex mánaða aldri til eins árs var sonur okkar hlaupandi hér um allt með okkur öllum stundum,“ segir Íris. „Í þessu húsnæði var áður ísbúð og við reyndum að nýta það sem fyrir var, en um leið reyndum við að setja okkar svip á þetta. Við létum litríku flísarnar halda sér en ég og pabbi tókum allt eldhúsið í gegn, gólf, veggi og loft, og skiptum um alla lýsingu,“ segir Reynir og bætir við að þegar þau Íris voru heima með nýfæddan soninn hefðu þau viljað geta farið á svona stað eins og Mr. Joy til að sækja sér hollan og næringargóðan mat á sanngjörnu verði. „Þetta er því tilvalið fyrir nýbak- aða foreldra og ekki síður fyrir fólk á þeim tímum sem nú eru, þegar veira geisar. Þá er heldur betur gott að huga að heilsunni og því að borða hollan mat. Við hvetjum því fólk til að koma við hjá okkur og prófa.“ Vann ungur í eldhúsi mömmu Íris er mikil kaffikona, hún hefur unnið á kaffihúsi og leggur alúð í að laga kaffi fyrir viðskiptavinina. Þau Íris og Reynir sjá saman um matar- gerðina, en Reynir er ástríðukokk- ur. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga og ánægju af matargerð. Ég var enn í grunnskóla þegar ég byrjaði að vinna hjá mömmu á veitinga- staðnum Energia sem hún átti. Ég byrjaði að fikta í eldhúsinu þar og hef ekki stoppað síðan. Ég er með mjólkuróþol og það spilaði inn í áhuga minn. Við bjóðum einvörð- ungu upp á veganrétti en fólk hefur þann valkost að fá venjulega mjólk út í kaffið ef það vill það frekar,“ segir Reynir og bætir við að í boði sé breytilegur réttur dagsins, tvær tegundir af súpu og fjölbreyttir djúsar og hristingar. Umhverfisvæn er lykilatriði Reynir og Íris leggja mikið upp úr því að vinna sem mest frá grunni og þau gera t.d. sína eigin kókos- mjólk. „Við kaupum kókosmjöl og press- um úr því kókosmjólk. Við kaupum líka þurrkaðar baunir sem við sjóð- um. Við gerum eins mikið frá grunni og við getum til að ná nýtingunni úr öllu hráefni, minnka ruslið, umbúðir og allt slíkt. Við erum með um- hverfisvænar umbúðir og hvetjum fólk til að koma með sínar eigin um- búðir þegar það kemur til að taka mat, drykki eða hristinga með sér, þá fær fólk afslátt hjá okkur. Við er- um því ekki aðeins að hugsa um hollustuna heldur líka umhverfið. Við viljum leggja okkar af mörkum, það er lykilatriði hjá okkur. Við er- um ekki með neinar plastumbúðir og við leggjum líka áherslu á að hafa matinn ódýran, svo allir hafi tök á því að koma og fá sér að borða hjá okkur. Við erum bara tvö að vinna hér svo við getum ekki boðið upp á heimsendingu, en í framtíðinni stefnum við á að skutla mat heim til fólks.“ Herra Glaður og gleðimatur Ekki er úr vegi að spyrja hvaðan nafnið komi, Mr. Joy. „Við sækjum það í barnabæk- urnar um herramennina, sem marg- ir kannast við. Mr. Joy eða Herra Glaður er mjög jákvæð persóna, en þar fyrir utan bjóðum við hér upp á gleðilegan mat sem lætur fólki líða vel,“ segja þau Íris og Reynir, sem horfa björtum augum til framtíðar- innar. „Við erum komin með nokkra fasta viðskiptavini svo við hljótum að vera að gera eitthvað rétt.“ Mr. Joy er í sama húsnæði og heilsubúðin Mamma veit best, sem er verslun með heilsuvörur, svo það tónar vel við Mr. Joy og opið er á milli rýmanna. Á Facebook-síðu Mr. Joy er hægt að sjá matseðilinn hvern dag. Staðurinn er okkar annað barn Morgunblaðið/Árni Sæberg Samhent Íris og Reynir standa vaktina á staðnum sínum, Mr. Joy í Kópavogi, þar sem hollusta er í heiðri höfð. Áður var ísbúð í húsnæðinu og þau leyfðu litríku flísunum að halda sér en settu sinn eigin svip á annað innanstokks. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gómsætt Reynir er ástríðukokkur og töfrar fram girnilega veganrétti.  Áríðandi er að huga að heilsu og hollustu þegar veira er á ferð  Reynir og Íris bjóða upp á veganfæði  Afslátt fá þeir sem koma með eigin umbúðir ODEE Sýning í Gallerí Fold 28. mars - 18. apríl Circulum Landvættir Í ljósi varúðarráðstafanna vegna Covid-19 faraldurins verður engin eiginleg opnun Listamaðurinn mun spjalla um verk sín í beinu streymi á Facebook-síðu Gallerís Foldar laugardaginn 28. mars, kl. 14 Til sölu er orlofshús til brottflutnings Húsið er Í Reykjaskógi í Biskupstungum og er svokallað A-hús með lágum veggjum á langhlið og bröttu þaki. Húsið stendur á steyptum súlum og er byggt árið 1982. Það er er 58 fm að gólffleti, við það á palli stendur skýli sem er 8,5 fm. Húsið skiptist í stofu, borðstofu og eldhús í sama rými. Þá eru tvö svefnherbergi í húsinu ásamt svefnlofti yfir herbergjum. Hluti af húsi er viðbygging en í henni er bað og forstofa. Húsið skal fjarlægt í síðasta lagi 30. apríl næstkomandi og skal kaupandi gera það á sinn kostnað. Tilboðum skal skila til skrifstofu Sameykis stéttarfélags í almanna- þjónustu, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík fyrir kl. 14,00 mánudaginn 3. apríl 2020. Frekari fyrirspurnir skulu sendar á asaclausen@sameyki.is. Áskilin er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS HVAR ER NÆSTA VERKSTÆÐI?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.