Morgunblaðið - 26.03.2020, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2020
LC02 hægindastóll
Leður
Verð 285.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Skipulagsstofnun hefur tekið
ákvörðun um að framkvæmdir við
hótel og tvö baðlón á Efri-
Reykjum í Bláskógabyggð skuli
ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Gert er ráð fyrir að meðalfjöldi
gesta í þjónustumiðstöð á svæðinu
verði allt að 1.200 manns á dag
þegar starfsemin verður komin í
fullan rekstur. Gert er ráð fyrir
200 herberjum á hótelinu og um
320 hótelgestum eftir að fram-
kvæmdum við seinna áfanga lýkur.
„Um er að ræða umfangsmikla
uppbyggingu fyrir ferðamenn og
verður fyrirhugað hótel með
stærri hótelum utan þéttbýlis á
landinu ef ekki það stærsta,“ segir
í greinargerð Skipulagsstofnunar.
Halldór Þ. Birgisson, hrl. og
stjórnarmaður í Þróunarfélaginu
Reykjum, segir að upphaflega hafi
verið byrjað að undirbúa Reykja-
verkefnið árið 2015 og hafi verið
unnið náið með landeigendum.
Ferli við þróun hugmynda, und-
irbúning og umsóknir um leyfi hafi
tekið talsverðan tíma. Nú sé stað-
an hins vegar sú að undirbúningur
sé langt kominn, deiliskipulagi hafi
verið breytt og flest leyfi séu í
höfn. Miðað hafi verið við að aðrir
tækju við keflinu þegar þessum
áföngum væri náð.
Líklegt að menn bíði átekta
„Vissulega eru tímarnir erfiðir
um þessar mundir, en bygging
mannvirkja eins og á Efri-
Reykjum eru framkvæmdir til
framtíðar,“ segir Halldór. „Fjár-
mögnun verkefnisins liggur ekki
fyrir og þar af leiðir er fram-
gangur verkefnisins óviss. Í fyrra
var samdráttur vegna falls WOW
og nú er mikil óvissa vegna kór-
ónuveirunnar og líklegt að menn
bíði átekta í einhverja mánuði.“
Halldór segir að óneitanlega séu
miklir möguleikar á uppbyggingu
ferðaþjónustu í landi Efri-Reykja.
Hann nefnir legu landsins á
Gullna hringnum, skammt frá
Gullfossi og Geysi, og þarna séu
miklar sumarhúsabyggðir í ná-
grenninu. Heitt vatn sé á staðnum,
áhersla lögð á grænar lausnir og
möguleiki sé á að framleiða þarna
rafmagn.
Hann segir að upphaflega hafi
verið miðað við að fullbyggð
myndi aðstaðan kosta 5-6 milljarða
króna og var þá miðað við mjög
stóra framkvæmd. Hins vegar sé
auðveldlega hægt að byggja upp á
staðnum í minni einingum. Það sé
á valdi fjárfesta að taka afstöðu til
þess. „Ég held að þetta verkefni
eigi góða möguleika,“ segir Hall-
dór.
Á 30 hektara svæði
Hótelið og baðlónin verða á 30
hektara svæði í landi Efri-Reykja
rétt við Brúará, miðja vegu milli
Laugarvatns og Úthlíðar. Fram-
kvæmdin verður áfangaskipt en
áætlað er að baðlónin tvö verði
samtals um sex þúsund fermetrar
og útbúnar verða um fimm þúsund
fermetra hreinsitjarnir.
Hótelið verður fullbyggt um tíu
þúsund fermetrar á þremur hæð-
um. Einnig er gert ráð fyrir um
sex þúsund fermetra þjónustu-
miðstöð fyrir baðstaðinn sem teng-
ist hótelbyggingunni. Þá er gert
ráð fyrir fimm starfsmannahúsum,
alls um 750 fermetrum, nýjum
malbikuðum vegi að hótelinu frá
þjóðvegi og um 200 malbikuðum
bílastæðum auk sjö stæða fyrir
rútur.
Fyrri áfangi kemur til með að
fela í sér byggingu þjónustuhúss
og hótels með 100 herbergjum auk
þúsund fermetra náttúrulaugar. Í
seinni áfanga verður hótelið
stækkað um 100 herbergi og
byggð fimm þúsund fermetra nátt-
úrulaug. Talið er að hámarksburð-
argeta baðlónanna geti verið um
2.400 gestir á dag eftir seinni
áfanga.
100 metra frá Brúará
Öflug heitavatnshola er á Efri-
Reykjum, en fyrir seinni áfanga
þarf að bora nýja heitavatnsholu
fyrir stærra lónið og sem neyslu-
og hitavatn fyrir stækkun hótels-
ins. Gert er ráð fyrir að bora eftir
köldu vatni í nokkurra kílómetra
fjarlægð frá framkvæmdasvæðinu.
Göngustígar innan skipulags-
svæðisins verða lagðir til að stýra
umferð um svæðið og sérstaklega
til að vernda bakka Brúarár.
Umferðarréttur almennings með-
fram Brúará verður tryggður.
Stígarnir verða malarstígar, 1,5 -
2,5 metra breiðir. Önnur mann-
virki en göngustígar verða í meira
en 100 metra fjarlægð frá bökkum
Brúarár, sem er næststærsta lindá
landsins.
Með stærri hótelum utan þéttbýlis
Flest leyfi í höfn vegna áforma um byggingu 200 herbergja hótels og baðlóna í landi Efri-Reykja
Fjármögnun liggur ekki fyrir og framgangur verkefnisins er óviss Framkvæmdir til framtíðar
Tölvumyndir/Zeppelin arkitektar
Efri-Reykir Lögð er áhersla á að hótelbyggingin falli vel að landinu, gróðurþekja er á þaki og verandir á efri hæðum. Fyrir miðju er veitingahús sem stingst
út í tjarnir og skiptir baðlóni upp í tvö aðskilin lón, annað fyrir almenning og hitt fyrir hótelgesti. Fjærst er þjónustubygging fyrir almenningslón.
Mikið verkefni Veitingahús hótelsins, sem fullbyggt verður með 200 herbergjum. Áhersla er á grænar lausnir.
Í greinargerð Skipulagsstofn-
unar segir meðal annars: „Sem
fyrr segir er það mat Skipulags-
stofnunar að um er að ræða
umfangsmikla framkvæmd sem
jafnframt er staðsett innan
verndarsvæðis.
Þrátt fyrir verndarstöðu
Brúarár og bakka hennar telur
Skipulagsstofnun fyrirhugað
framkvæmdasvæði ekki við-
kvæmt enda er það töluvert
raskað og stendur við fjölfarinn
veg ásamt því að umhverfið ein-
kennist nokkuð af fyrri fram-
kvæmdum.“
Svæðið ekki
viðkvæmt
SKIPULAGSSTOFNUN
Efri-Reykir í
Bláskógabyggð
Kortagrunnur:
OpenStreetMap
■ Efri-
Reykir
Laugarvatn
Apavatn
Geysir
Se
lfo
ss