Morgunblaðið - 26.03.2020, Síða 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2020
og fékk til verksins styrk úr Tón-
skáldasjóði RÚV.
Teygir og togar þekkt stef
Þegar Leifur er spurður að því
hvaða tónverk hafi orðið fyrir valinu
sem kveikjur að lögunum, svarar
hann að það hafi til að mynda verið
uphafsstef 5. sinfóníu Shostakovitsj.
„Það þurfti í raun oft mjög lítið til að
kveikja á sköpunarferlinu. Oft varð
nánast abstrakt úrvinnsla á stuttu
stefi að lagi,“ segir hann. „Ég viður-
kenni að ég er engin sérfræðinguir í
klassík, þótt ég þekki auðvitað tón-
verk eins og þau sem ég lék í á bass-
ann með Ungfóníunni í gamla daga.
Ég þjóskaðist lengi við það að fara að
nota streymisveitur eins og Spotify
en fékk mér áskrift þegar ég byrjaði
á þessu verkefni og fór að hlusta á
valin klassísk verk. Fljótlega greip
algrímið inní, þegar það sá hvað ég
var að hlusta á, og fór að velja önnur
til viðbótar fyrir mig og þau færðu
mér enn fleiri hugmyndir.“
Og Leifur segir eitt lag sprottið af
tilfinningunni í upphafsstefi Salut
d́amour eftir Elgar; þá hafi hann
hljómgreint kafla úr Tunglskinssón-
ötu Beethovens og túlki hann frjáls-
lega í sinni útgáfu; eitt lagið sæki í
Svanavatn Tsjajkovskíjs og enn eitt í
Intermezzo no. 3 eftir Brahms „en úr
því teygi ég og toga til stef,“ segir
hann.
Mikilvægi grunntónsins
Þegar Leifur er spurður að því
hvernig hann semji þá segir hann það
gerast oftast við píanóið eða beint á
tölvu. Þó stundum líka á kontrabass-
ann, sem er hans hljóðfæri og segir
Leifur samband þeirra styrkjast sí-
fellt – hann taki til að mynda raf-
magnsbassann sífellt minna fram,
þótt það komi fyrir sé hann beðinn
um það.
„Það er eitthvað við bassatóninn
sem er svo heillandi, hann er pínu
óræður og þýður í senn,“ segir Leif-
ur. „Svo er þetta stórgert tréverk og
ég er mikill viðarunnandi! Hef alltaf
haft gaman af trésmíði og þegar ég
bjó enn í foreldrahúsum þá var ég
með trésmíðaverkstæði í bílskúrnum.
Var með rennibekk og ýmis verk-
færi, og smíðaði hljóðfæri og sitthvað
annað. Ég hugsa að væri ég ekki í
tónlist þá væri ég smiður, húsgagna-
eða hreinlega hljóðfærasmiður.“
Í samspili er bassinn sökkullinn,
bassaleikarinn gefur vanalega dýpt-
ina og mótar grunninn. „Bassatónn-
inn er já rótin í hljómnum. Allt sem
kemur þar ofan á byggir á þeim
grunni. Ef hús er byggt á slæmar
undirstöður þá er voðinn vís! Ef
grunntónninn er ekki réttur þá
skekkir það alla hljómmyndina.
Mikilvægi grunntónsins er gríðar-
legt,“ segir Leifur.
Allt í einu ekkert að gera
Þegar hann er spurður út í upp-
tökuferlið við diskinn sinn nýja segist
Leifur ekki mæta í upptökur með fé-
lögunum sem hann kallar til liðs við
sig með útskrifaðan part fyrir öll
hljóðfærin.
„Ég mæti frekar með hljómsetta
melódíu og einhverjar hugmyndir
fyrir undirleik en það er mikið rými
fyrir persónulega túlkun og hug-
myndir frá meðspilurum. Ég hugsa
að flestir sem búa til svona tónlist
með plássi fyrir spuna, djassmúsík,
treysti alltaf mikið á einleik meðspil-
aranna. Það er það sem gerir listina í
núinu,“ útskýrir hann.
Leifur hugsar sig síðan um og bæt-
ir við að hann hafi fyrir fram, þegar
hann var búinn að setja lögin á blað,
gert sér í hugarlund hvernig tónlistin
gæti hljómað. „En hins vegar er aldr-
ei hægt að stóla á það hvernig hver
og einn hljóðfæraleikari er stemmd-
ur eða innstilltur þegar kemur að
samspilinu. Þetta er stund sannleik-
ans. Og er alltaf spurning um dags-
formið. Maður hefur því fyrir fram
hugmyndir um hvernig þetta hljómi
og samt ekki! En ég leyfi mér núna
að segja að mér finnst útkoman
miklu betri en ég þorði að vona,“
segir hann og brosir. Bætir reyndar
við að fyrst eftir upptökurnar hafi
hann alls ekki getað hlustað á
afraksturinn, þurfti fyrst að láta svo-
lítinn tíma líða. „En þegar ég fór að
rifja þetta upp aftur varð tilfinningin
nokkuð góð, og sérstaklega þegar
Kjartan Kjartansson, hljóðmeist-
arinn slyngi, var búinn að fara ljúfum
höndum um hnappana.“
Þegar Leifur er spurður að því
hvort hann hyggist halda áfram að
semja lög út frá stefjum og stemn-
ingu í verkum klassískra tónskálda,
þá liggur hann ekki á svarinu: „Já, al-
gjörlega! Ég er þegar kominn með
langan lista af verkum sem eru orðin
ný uppáhaldsverk.“ Tónverk sem
Spotify hefur meðal annars bent hon-
um á.
„Það getur allt eins verið að ég
finni núna á næstu vikum góðan tíma
til að semja. Það er allt í einu svo
rúmur tími, ekkert að gera.“
Eins og margir tónlistarmenn er
Leifur lausráðinn listamaður og
samkomubannið bitnar á innkom-
unni. „Ég hafði aldrei verið bókaður í
jafn mörg verkefni í apríl og inn í maí
og núna. Og sit síðan skyndilega uppi
með ekkert en verkefnunum hefur
verið frestað og verða vonandi síðar.
Ég vinn líka í hlutastarfi við kennslu
og get þannig látið lífið ganga upp.“
Leifur kennir á þremur stöðum,
samspil eldri nemenda í MÍT og FÍH
en grunnskólanemendum í Tónskóla
Hörpunnar. Kennslan er líka í upp-
lausn, ekki er ljóst hvað er hægt að
kenna í fjarkennslu. „Já, þetta eru
merkilegir tímar,“ segir Leifur.
Gestgjafi á hádegistónleikum
Síðustu fimm ár hefur Leifur hald-
ið úti í samstarfi við Borgarbóka-
safnið tónleikaröðinni Jazz í hádeg-
inu og er þar listrænn stjórnandi.
Fyrstu árin var um að ræða mán-
aðarlega hádegistónleika í Gerðu-
bergi en síðustu ár einnig í bókasöfn-
unum í Grófinni og Spönginni. Leifur
segir tónleikaröðina hafa gengið von-
um framar. „Og við eigum mjög
dyggan hóp gesta sem koma á tón-
leika aftur og aftur. Þetta hefur verið
afskaplega gaman.“
Leifur segir ganga mjög vel að fá
djassmenn með sér að spila á þessum
hádegistónleikum. „Ég er alltaf gest-
gjafinn og býð fólki að koma fram
með mér. Mikill fjöldi af góðum ólík-
um tónlistarmönum hefur spilað með
mér á þessum árum og verið góður
félagsskapur.“
Þegar spurt er hvernig sé með slík
tónlistarleg stefnumót þar sem Leif-
ur mætir gestum með bassann í fang-
inu, þá segir hann báða þurfa að laga
sig að hugmyndum hins. „Maður er
alltaf leitandi í músíkinni og það er
óhjákvæmilegt við slíkar aðstæður.
Alltaf að hlusta og bregðast við, sem
er gaman.“
Í kjölfar útgáfu disksins nýja gefur
Leifur nóturnar að tónlistinni á
disknum út í einföldu nótnahefti.
STEF styður við útgáfuna og fagnar
Leifur því, við það verði verkin að-
gengileg öðrum.
Stefnir á auka-útgáfutónleika
Á dögunum hélt Leifur útgáfu-
tónleika í Jazzklúbbnum Múlanum í
Hörpu með þeim Snorra, Sunnu og
Scott sem leika með honum á disk-
inum. Eru fleiri tónleikar með þeim á
döfinni?
„Já, ég ætla að reyna að halda
auka-útgáfutónleika í tengslum við
nótnaheftið. Margir í kringum mig
treystu sér ekki á útgáfutónleikana,
því veiran var þá að nálgast, og ætli
við spilum ekki aftur í lok maí von-
andi. Það er ekki búið að finna því
stund eða stað. En þangað til dunda
ég mér við að koma diskinum í þær
fáu plötubúðir sem eru eftir,“ segir
bassaleikarinn og getur þess að þeg-
ar fáist hann í verslun 12 tóna auk
þess sem hægt er að hlýða á lögin á
Spotifystreymisveitunni.
„Þetta er stund sannleikans“
Bassaleikarinn og tónskáldið Leifur Gunnarsson hefur sent frá sér geisladisk með nýjum lögum
Samdi út frá stefjum í klassískum tónverkum „Maður er alltaf leitandi í músíkinni,“ segir hann
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bassaleikarinn Leifur segir bassatóninn vera heillandi, „hann er pínu óræður og þýður í senn,“ segir hann.
VIÐTAL
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Það var kominn tími til að taka upp
disk með instrúmental efni,“ segir
djassbassaleikarinn og tónskáldið
Leifur Gunnarsson um nýjan geisla-
disk sinn, Tónn úr tómi. Á diskinum
eru níu tónsmíðar Leifs sem hann
flytur sjálfur ásamt Snorra Sigurðs-
syni, sem leikur á trompet og flugel-
horn, Sunnu Gunnlaugsdóttur á pí-
anó og trommuleikaranum Scott
McLemore. Þetta er annar hljóð-
versdiskur Leifs á en á hinum fyrri,
Húsið sefur sem kom út fyrir fimm
árum eru lög sem hann samdi við ís-
lensk ljóð meðan hann var í námi í
Kaupmannahöfn. Leifur segist hafa
samið fleiri sönglög síðan, þau hafi
leitað á sig og meðal annars hefur
hann samið við ljóð eftir Snorra
Hjartarson, en útgáfa þessara instrú-
mental laga var meira aðkallandi
núna.
Stef og hugmyndir að meirihluta
laganna á Tóni úr tómi sækir Leifur
til nokkurra klassískra tónverka.
Hann segist lengi hafa gengið með þá
hugmynd í kollinum að smíða tónlist
fyrir hrynsveit og sólista byggða á
efniviði úr sígildri tónlist. Fyrir
nokkrum árum gerði hann fyrstu til-
raunina með það og skrifaði verk sem
byggir á mótívum úr og sækir inn-
blástur í form og uppbyggingu tón-
verksins „Myndir á sýningu“ eftir
Mussorgsky.
Leifur segir að þrátt fyrir áhrifin
og stefjanotkun sé um „algjörlega
nýja tónsmíð að ræða“. Það lag er á
diskinum og jafnframt fjögur önnur
lög sem hann samdi með sama hætti
Nú kr. 9.990.-
Kr. 18.990.-
MS FIRETAIL 3 GTX
Nú kr. 9.990.-
Kr. 17.990.-
WS LITE TRAIN K
Dömu
Herra
MS ULTRA FLEX MID GTX
Herra
Nú kr. 17.493.-
Kr. 24.990.-
SKÓDAGAR
20-50% afsláttur af öl
lum skóm
Herra: Grafite/Nero
Drifter GV EVO
Nú kr. 19.995.-
Kr. 29.990.-
Herra: Donkey/Grafite
Falcon GV
Nú kr. 19.243.-
Kr. 27.490.-
Dömu: Grafite/Eng
Falcon GV
Nú kr. 19.243.-
Kr. 27.490.-
SMÁRALIND OG LAUGAVEGUR 91 icewear.isfrí heimsending
Herra: Caffe/Argento
Shiver GV
Nú kr. 9.995.-
Kr. 19.990.-
Dömu: Argento/Grigio
Runout GV
Nú kr. 16.793.-
Kr. 23.990.-
Herra/Dömu:
Grigio/Lime/Stone
Asolo Grid GV
Nú kr. 9.995.-
Kr. 19.990.-
Herra: Cendre/Marrone
Drifter GV
Nú kr. 14.995.-
Kr. 29.990.-
50%50%
50%50%
50%
ICQC 2020-2022