Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.03.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.03.2020, Blaðsíða 4
HEIMURINN 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.3. 2020 Þar kom að því, við erum öll Siggi Hefurðu heyrt um hannSigga? Hann sest bara uppí rúminu og þá er hann kominn í vinnuna.“ Þessi merku tíðindi færði vinur minn mér fyrir meira en tuttugu ár- um. Ég vissi auðvitað að Siggi bindur ekki bagga sína sömu hnútum og samferðarmennirnir en á þessum tíma var þetta eigi að síður með nokkrum ólíkindum, meira að segja á hans mælikvarða. Og við hvað skyldi Siggi hafa starfað? Jú, hann var grafískur hönnuður og þurfti fyrir vikið ekkert nema frambærilega fartölvu til að geta leyst sín verkefni í vinnunni. Ekki fylgdi sögunni hvort Siggi klæddi sig og færi á ról eða hvort hann legðist bara aftur til hvílu að vinnudegi loknum. Þín ágiskun er eins góð og mín, kæri lesandi. Á þessum undarlegu tímum sem við nú lifum erum við meira og minna öll orðin Siggi. Flest okkar, sem á annað borð geta það, eru farin að vinna heima. Veit að vísu ekki með bifvélavirkja og vörubílstjóra en all- tént mjög margir sem eiga tölvu að sínu helsta vinnutæki. Auðvitað eru það engin viðbrigði fyrir suma, rithöf- undar koma til dæmis strax upp í hugann. Okkur blaðamönnum er einnig lítið að vanbúnaði að vinna heima. Þannig lagað. Þeir sem standa fréttavaktina þurfa að vísu að vera í góðu sambandi við sína yfirmenn yfir daginn en nú gera þeir það bara fyrir atbeina tölvupósts eða samfélags- miðla. Sumum gæti meira að segja flogið í hug að taka upp tólið. Þótt það sé auðvitað óttalega 2019. Við Íslendingar erum vitaskuld ekki einir á þessum báti; þetta á meira og minna við um alla vinnandi menn á byggðu bóli um þessar mundir. Ekki vantar því umfjöll- unina og hollræðin þegar maður fer að fletta fjölmiðlum og ráðgefandi síðum á netinu. Flestum ber saman um grunn- atriðin. Þau þurfa að vera í lagi. Að sofa vel, borða vel og hreyfa sig. Þetta þekkjum við svo sem öll. Svefn, næring, hreyfing Ástandið í heiminum er streituvald- andi, fólk hefur áhyggjur af eigin heilsu og sinna nánustu og fylgist af vanmætti með faraldrinum fara eins og eldur í sinu um samfélög, ekki síst hér í Evrópu. Á hollræðasíðunni The Leapers Little Guide to ... sem finna má á netinu er lögð áhersla á, að þetta þrennt, svefn, næring og hreyfing, hafi aldrei verið eins mikilvægt. Bæði fyrir andlega og líkamlega heilsu fólks. Leapers nefnir hreyfinguna sérstaklega enda fylgi heimavinnu alla jafna meiri kyrrseta. Fólk þurfi ekki lengur að koma sér í vinnuna, hvort sem það gerir það fótgangandi, hjólandi, með strætó eða á bíl. Hvetur síðan fólk til að kynna sér einfaldar æf- ingar sem gera megi heima í stofu en mikið framboð mun vera af þeim í netheimum. Þegar fólk yfirgefur ekki lengur heimili sín til að fara í vinnuna geta skilin milli vinnu og heimilis orðið þokukennd, sér- staklega ef fólk vinnur mikið í sama rýminu og það ver sínum frítíma og nýtur samveru með fjölskyldu. Leapers hvetur fólk til að halda sig við sömu rútínuna og áður; vakna á sama tíma, klæða sig, snæða morg- unverð, lesa blöðin, hlusta á útvarp eða hlaðvarp og hreyfa sig, eigi menn því að venjast, áður en þeir „fara“ í vinnuna. Að sama skapi sé mikilvægt í lok vinnudags að hætta alveg að vinna á tilsettum tíma, slökkva á tölvunni og lesa ekki vinnutengda tölvupósta. Teygja reglulega úr sér Að dómi ráðgjafa Leapers er brýnt að halda sig við hádegiverðarhlé, hversu langt sem það vanalega er, fá sér kaffi- eða tesopa og teygja reglu- lega úr sér og taka sér eðlilegar pás- ur. „Sumum finnst þeir örugglega þurfa að sýna að þeir séu stöðugt að þegar menn vinna að heiman en hafið í huga að vinna snýst um að koma hlutum í verk en ekki að vera bara til staðar. Þess vegna er mikilvægt að slaka á inn á milli, tékka á Facebook, skipuleggja sumarfríið eða spjalla við Hjördísi í bókhaldinu. Gerðu allt sem þú ert vön/vanur að gera í vinnunni.“ Varðandi samskipti við aðra er fólk varað við að halda sig alfarið við textaskilaboð í tölvupósti eða á sam- félagsmiðlum. Þar vanti upp á blæ- brigði samtals sem fer fram augliti til auglitis – og sumt kann þess utan að misskiljast. Þess vegna ætti fólk að taka upp símann reglu- lega til tilbreytingar og nýta sér netspjalls- leiðir, jafnvel hópspjall. Ekkert jafnast á við að horfa framan í við- mælandann. Síðast en ekki síst leggja ráðgjafarnir áherslu á að fólk haldi áfram að tilheyra hópn- um, hlusta á aðra og deila hugsunum sínum. „Gefðu þér tíma til að spyrja hvernig kollegarnir hafi það – og hlustaðu eftir svarinu. Gefðu fólki tækifæri til að deila eigi það erfitt uppdráttar. Og talið út um málið. Deildu líka hvernig þú hefur það og vertu einlæg/ur spyrji einhver um það. Sértu með böggum hildar, við- urkenndu það þá. Það eitt og sér að segja slíkt upphátt getur oftar en ekki skipt sköpum, auk þess sem það hjálpar öðrum að vera opnir og ær- legir, eigi þeir líka á brattann að sækja. Sé einangrunin að bera þig of- urliði er mikilvægt að láta aðra vita, svo þeir geti rétt fram hjálparhönd.“ Engin algild handbók Það er auðvitað of snemmt að segja til um hvaða einstaklingsbundin og samfélagsleg áhrif sóttkví, ein- angrun, útgöngubönn og sam- komubönn koma til með hafa, sér- staklega til lengri tíma. Fáir ef nokkur sem nú er á lífi hefur upplifað aðstæður sem þessar, allra síst á friðartímum, og því miður er engin algild handbók til um viðbrögð og al- menna hegðun. Þess heldur er full ástæða til að taka undir með Leapers og öðrum sem eru reyna að létta fólki lífið þessa dagana þegar þeir minna á að kórónuveiran mun á endanum víkja og lífið færast í eðlilegt horf. Það kemur aftur sumar. Það koma aftur jól. Í öllum bænum hættið ekki að taka til á heimilinu þótt þið séu að vinna heima. Margir eru að upplifa það í fyrsta sinn á þess- um afbrigðilegu tímum að vinna sína launuðu vinnu heima. Við- brigðin eru væntanlega mikil og rútínan getur raskast. Að hverju er einna helst að hyggja við þær aðstæður? Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.