Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.03.2020, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.03.2020, Blaðsíða 19
Lovísa saumaði jogginggallann sjálf. Hún vekur alltaf at- hygli í gallanum og segir að bótin framan á gallanum sé sú þriðja sem hún prófar sig áfram með. Lovísa Tómasdóttir er klæðskerameistari og förðunarfræðingur. Ég byrjaði mjög ung að sauma og hafðimikinn áhuga á fötum en tískuvitið varekkert. Ég bjó úti í sveit og eina tenging mín við tísku voru tónlistar- myndbönd sem voru sýnd á Skjá einum. Ástandið var því ekki gott,“ segir Lovísa um hvernig áhuginn á tísku og hönnun kviknaði. Hvernig er þinn fatastíll? „Ég er ekki föst í neinum fata- stíl. Ég elska að hoppa á milli stíla. Ég heyri samt fólk kalla flíkur „lollulegar“ og eru þær þá yfirleitt skrýtnar, með mikið af pallíettum eða fjöðrum. Eða bleikar, ég elska bleikan. Ást mín á bleika litnum byrjaði þegar ég var tveggja ára og var Barbapabbi á öskudaginn #barbapabbi4life.“ Lovísa segist sækja innblástur frá fólkinu í kringum sig, listafólki, götu- tísku og gömlum tískubókum. Tíska frá áttunda og níunda áratug síð- ustu aldar eru meðal annars í uppá- haldi hjá henni. „Ég elska 80’s tískuna. Hún er svo dásamlega, fallega ljót. Allir litir settir saman og engar reglur! 70’s tískan er líka unaður. Blásið hár, diskóbuxur og glamúrinn í hámarki.“ Er einhver flík sem er í uppá- haldi hjá þér? „Ég og samstarfskona mín Íris Sif fórum til Grikklands á síðasta ári og keypt- um gamla felda og leðurjakka sem hún selur uppi í stúdíói. Þar keypti ég myntugrænan leð- urjakka með hvítum loðkraga. Hann er ótrú- lega hallærislegur og ég elska hann.“ Bestu kaup sem þú hefur gert? „Ég keypti pung í Rokk og rómantík fyrir tveimur árum sem ég nota á hverjum degi. Hann er úr glansandi pleðri og mér finnst hann passa við öll „outfitin“ mín. Það kemst svo mikið í hann, veskið mitt, varalitur, kaffimál, spáspilin frá Siggu Kling sem ég að sjálfsögðu tek með mér út um allt og nóg af annarri vitleysu.“ Lovísa á gott safn af aukahlutum, skarti og sól- gleraugum. „Ég er mikið fyrir skartgripi. Þeir verða helst að vera stórir og áberandi. Það sem mig skortir í per- sónuleika bæti ég upp með stóru skarti.“ Af hverju öll þessi sólgleraugu? „Sólgleraugu gleðja mig. Ég geng með sólgler- augu um miðja nótt, niðri í bæ í nóvember og þykist vera aðalskvísan. Þau poppa upp öll „outfit“ og eru „photoshoot friendly“. Þau eru líka afar hentug dag- inn eftir djamm þegar maður er með bauga niður á nafla.“ Er mikill munur á því hvernig þú klæðir þig dags- daglega og þegar þú ferð eitthvað fínna? „Já. Ég elska að klæða mig upp svo ég nýti þau tækifæri þegar ég er að fara eitthvað fínt. Svo aðra daga er ég kannski ekki búin að fara í sturtu né greiða á mér hárið í þrjá daga og fólk forðar börnunum sín- um frá mér þegar á geng niður Laugaveginn.“ Lovísa klæðist ekki bara bleiku, hún á sér líka dekkri hlið og segist elska BDSM-tískuna sem Hatari kom af stað í fyrra. „Vinkona mín og fyrrverandi yfirmaður Anna Kristín Magnúsdóttir opnaði Rokk og rómantík árið 2017 og ég var með henni í því ferli. Búðin er mjög gotharaleg, sexí og dökk svo ég fór að klæðast meira í þeim stíl. Hatari kom svo auðvitað mikilli BDSM-tísku af stað hér á landi og ég dýrka það. Allir orðnir voða glansandi og sexí. Fleiri ólar, korselett og svipur takk!“ Þú raðar saman fötum á frumlegan hátt. Hugsar þú stundum nei þetta passar ekki saman eða það er skrít- ið að fara í nærfatnað yfir rúllukragabol. Ertu með einhvern stoppara? „Er ég með stoppara? Já, ég er með stoppara þegar kemur að fatnaði en ég vildi nú samt helst að hann væri ekki til staðar. Ég dáist að fólki sem lætur sig ekkert varða hvað öðru fólki finnst um sig. Það er mitt markmið að öðlast þetta ör- yggi.“ Spurð hvort íslenskar konur mættu vera dug- legri að taka áhættu í fatavali segir Lovísa að konur megi klæða sig eins og þær vilja. Að því sögðu bendir hún á að það fylgi því mikið vald að þora að klæða sig öðruvísi. „Það eru þau sem þora sem gefa mér innblástur og vekja forvitni mína.“ Hvað er á óskalistanum? „Mig langar í rauðan loðfeld. Stóran og síðan loðfeld. Ef ég finn hann ekki mun ég mögulega sauma hann sjálf. Getur einhver bent mér á hvar ég get fengið einn slíkan?“ Hægt að er fylgjast með Lovísu á In- stagram-síðu hennar (lovisatomasdottir) en þar birtir hún myndir af því sem hún er að gera. Kemst upp með allt með sólgleraugu Lovísa Tómasdóttir klæðskerameistari og förðunarfræðingur er með skemmti- legan og öðruvísi fatastíl. Hún hannar og saumar mikið af fötum sínum sjálf og segist elska að hoppa á milli fatastíla. Íslendingar kannast margir við föt úr smiðju Lovísu þar sem hún hannaði og saumaði búninga Daða og Gagna- magnsins í Söngvakeppninni auk þess sem hún sér um fataskáp Siggu Kling. Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is Lovísa er ánægð með tískuna sem fylgdi Hatara í fyrra. Lovísa hannar og saumar föt á spá- konuna Siggu Kling Daði og Gagnamagnið í fötum frá Lovísu. Lovísa notar sólgleraugu allan ársins hring. Lovísa fer stundum í fallega brjósta- haldara yfir boli. 29.3. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.