Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.03.2020, Side 19
Lovísa saumaði jogginggallann sjálf. Hún vekur alltaf at-
hygli í gallanum og segir að bótin framan á gallanum sé sú
þriðja sem hún prófar sig áfram með.
Lovísa Tómasdóttir er klæðskerameistari og förðunarfræðingur.
Ég byrjaði mjög ung að sauma og hafðimikinn áhuga á fötum en tískuvitið varekkert. Ég bjó úti í sveit og eina
tenging mín við tísku voru tónlistar-
myndbönd sem voru sýnd á Skjá einum.
Ástandið var því ekki gott,“ segir Lovísa
um hvernig áhuginn á tísku og hönnun
kviknaði.
Hvernig er þinn fatastíll?
„Ég er ekki föst í neinum fata-
stíl. Ég elska að hoppa á milli
stíla. Ég heyri samt fólk kalla
flíkur „lollulegar“ og eru þær
þá yfirleitt skrýtnar, með
mikið af pallíettum eða
fjöðrum. Eða bleikar, ég
elska bleikan. Ást mín á
bleika litnum byrjaði þegar
ég var tveggja ára og var
Barbapabbi á öskudaginn
#barbapabbi4life.“
Lovísa segist sækja innblástur frá
fólkinu í kringum sig, listafólki, götu-
tísku og gömlum tískubókum. Tíska
frá áttunda og níunda áratug síð-
ustu aldar eru meðal annars í uppá-
haldi hjá henni.
„Ég elska 80’s tískuna. Hún er
svo dásamlega, fallega ljót. Allir
litir settir saman og engar reglur!
70’s tískan er líka unaður. Blásið
hár, diskóbuxur og glamúrinn í
hámarki.“
Er einhver flík sem er í uppá-
haldi hjá þér?
„Ég og samstarfskona mín Íris Sif
fórum til Grikklands á síðasta ári og keypt-
um gamla felda og leðurjakka sem hún selur
uppi í stúdíói. Þar keypti ég myntugrænan leð-
urjakka með hvítum loðkraga. Hann er ótrú-
lega hallærislegur og ég elska hann.“
Bestu kaup sem þú hefur gert?
„Ég keypti pung í Rokk og rómantík
fyrir tveimur árum sem ég nota á
hverjum degi. Hann er úr glansandi
pleðri og mér finnst hann passa við öll
„outfitin“ mín. Það kemst svo mikið í hann, veskið
mitt, varalitur, kaffimál, spáspilin frá Siggu Kling
sem ég að sjálfsögðu tek með mér út um allt og nóg
af annarri vitleysu.“
Lovísa á gott safn af aukahlutum, skarti og sól-
gleraugum.
„Ég er mikið fyrir skartgripi. Þeir verða helst að
vera stórir og áberandi. Það sem mig skortir í per-
sónuleika bæti ég upp með stóru skarti.“
Af hverju öll þessi sólgleraugu?
„Sólgleraugu gleðja mig. Ég geng með sólgler-
augu um miðja nótt, niðri í bæ í nóvember og þykist
vera aðalskvísan. Þau poppa upp öll „outfit“ og eru
„photoshoot friendly“. Þau eru líka afar hentug dag-
inn eftir djamm þegar maður er með bauga niður á
nafla.“
Er mikill munur á því hvernig þú klæðir þig dags-
daglega og þegar þú ferð eitthvað fínna?
„Já. Ég elska að klæða mig upp svo ég nýti þau
tækifæri þegar ég er að fara eitthvað fínt. Svo aðra
daga er ég kannski ekki búin að fara í sturtu né greiða
á mér hárið í þrjá daga og fólk forðar börnunum sín-
um frá mér þegar á geng niður Laugaveginn.“
Lovísa klæðist ekki bara bleiku, hún á sér líka
dekkri hlið og segist elska BDSM-tískuna sem Hatari
kom af stað í fyrra.
„Vinkona mín og fyrrverandi yfirmaður Anna Kristín
Magnúsdóttir opnaði Rokk og rómantík árið 2017 og ég
var með henni í því ferli. Búðin er mjög gotharaleg, sexí
og dökk svo ég fór að klæðast meira í þeim stíl. Hatari
kom svo auðvitað mikilli BDSM-tísku af stað hér á landi
og ég dýrka það. Allir orðnir voða glansandi og sexí.
Fleiri ólar, korselett og svipur takk!“
Þú raðar saman fötum á frumlegan hátt. Hugsar þú
stundum nei þetta passar ekki saman eða það er skrít-
ið að fara í nærfatnað yfir rúllukragabol. Ertu með
einhvern stoppara?
„Er ég með stoppara? Já, ég er með stoppara
þegar kemur að fatnaði en ég vildi nú samt helst
að hann væri ekki til staðar. Ég dáist að fólki
sem lætur sig ekkert varða hvað öðru fólki finnst
um sig. Það er mitt markmið að öðlast þetta ör-
yggi.“
Spurð hvort íslenskar konur mættu vera dug-
legri að taka áhættu í fatavali segir Lovísa að
konur megi klæða sig eins og þær vilja. Að því
sögðu bendir hún á að það fylgi því mikið vald að
þora að klæða sig öðruvísi. „Það eru þau sem
þora sem gefa mér innblástur og vekja forvitni
mína.“
Hvað er á óskalistanum?
„Mig langar í rauðan loðfeld. Stóran og síðan
loðfeld. Ef ég finn hann ekki mun ég mögulega
sauma hann sjálf. Getur einhver bent mér á
hvar ég get fengið einn slíkan?“
Hægt að er fylgjast með Lovísu á In-
stagram-síðu hennar (lovisatomasdottir)
en þar birtir hún myndir af því sem hún
er að gera.
Kemst upp með allt
með sólgleraugu
Lovísa Tómasdóttir klæðskerameistari og förðunarfræðingur er með skemmti-
legan og öðruvísi fatastíl. Hún hannar og saumar mikið af fötum sínum sjálf og
segist elska að hoppa á milli fatastíla. Íslendingar kannast margir við föt úr
smiðju Lovísu þar sem hún hannaði og saumaði búninga Daða og Gagna-
magnsins í Söngvakeppninni auk þess sem hún sér um fataskáp Siggu Kling.
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is
Lovísa er ánægð
með tískuna sem
fylgdi Hatara í fyrra.
Lovísa hannar og
saumar föt á spá-
konuna Siggu Kling
Daði og Gagnamagnið
í fötum frá Lovísu.
Lovísa notar sólgleraugu
allan ársins hring.
Lovísa fer stundum
í fallega brjósta-
haldara yfir boli.
29.3. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19