Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.03.2020, Page 17
Um heimsfaraldurinn sagði Biden: „We have to take
care of the cure that will make the problem worse no
matter what.“ (Ekki skal reynt að þýða þetta).
Ekki heil brú, varla hálf heldur
Segja má þó að ofangreind setning hljómi fyrst í stað
eins og vit sé í henni. En í framhaldinu komu fleiri al-
gjörlega meiningarlausar setningar. Biden var spurð-
ur hvernig hann mundi hafa brugðist við kórónuveir-
unni, væri hann forseti. Hann byrjaði á að segja „að
væri hann núna orðinn forseti í nóvember næst kom-
andi...“ þá myndi hann fylgja áætlun sem hann hefði
birt 17. janúar sl. (Virðist þá vera að vísa í plagg sem
birt var í hans nafni 27. janúar sl.)
Í öðru samhengi var Biden spurður um málefni há-
skólastúdenta. Hann sagði þá að strax eftir að hann lét
af starfi sem öldungadeildarþingmaður hefði hann haf-
ið kennslustörf við háskóla í Pennsylvaníu og því átt
ríkuleg samskipti við háskólastúdenta.
Vandinn við þetta svar var fleiri en einn. Biden hætti
sem öldungadeildarþingmaður þegar hann var kosinn
varaforseti Obama, og vakti það óneitanlega undrun
að hann skyldi hafa gleymt því! En hin mikla kennsla
hans virðist hafa orðið til í kolli hans vegna heiðurstit-
ils af einhverju tagi sem honum hafði verið veitt við há-
skóla í Pennsylvaníu, sem engin starfsskylda fylgdi.
Er verið að brýna busana Bidens?
Í viðtali við sjónvarpsstöð í vikunni var háttsettur ráð-
gjafi í flokki demókrata spurður um þessar neyðarlegu
uppákomur. Hann viðurkenndi að þetta væri allt frem-
ur óheppilegt, en flokkurinn hefði treyst á að Biden
myndi geta komist í gegnum þennan tíma fram í
nóvember!
Í rauninni hefði Joe Biden ekki getað svarað þessu
betur þar sem verið er að biðja kjósendur um að kjósa
manninn til að gegna starfi forseta Bandaríkjanna frá
20. janúar 2021 til 20. janúar 2025!
Það eru fræg dæmi til af margvíslegum slysum
Bidens á varaforsetaferlinum. En þau eru annars eðlis
og geta og hafa hent fjölmarga forseta og varaforseta.
Álagið á þessa menn er mikið og þeir reyna stundum
að bjarga sér með því að látast vera með á nótunum.
Óvenjumargar slíkar sögur eru til um Biden.
Biden var á mjög fjölmennri samkomu þegar honum
var færður miði í ræðustólinn um að Chuck Graham
öldungadeildarmaður væri á samkomunni. Biden brást
strax við: „Mér er sagt að Chuck Graham öldunga-
deildarmaður sé hér á meðal okkar. Stattu upp Chuck,
svo að við getum öll hyllt þig að verðleikum.“ Allir
stóðu upp nema Chuck Graham sem var bundinn í
hjólastól.
Nú er mjög rætt um hvernig demókratar geti komið
sér út úr þeirri klemmu sem þeir festust í þegar þeir
gerðu Biden að „comeback kid“. Hér á Íslandi vitum
við hvert og eitt hvað Trump er voðalegur, hættulegur
og heimskur. Svo er „RÚV“ fyrir að þakka og óbilandi
ásetningi þar á bæ. En fæstir vita um vandræðagang-
inn vestra út af Joe Biden. Ekki þeir sem fylgjast ein-
göngu með „RÚV“.
Einum ekki alls varnað
En jafnvel þeir sem fylgja sömu línu og lagsbræður á
launaskránni geta sýnt að þeim sé brugðið. Egill
Helgason fetar varlega slóð sem sýnir að hann hefur
fengið eitthvert veður af vandanum vestra, en sveipar
það í þokuslæðu sem fer ekki vel þeim mönnum sem
vilja láta taka sig alvarlega.
Egill segir í sínum pistli: „Forsetakosningarnar í
Bandaríkjunum eru að þróast í mjög sérkennilega átt.“
Næst kemur setning sem passar illa við þessa merki-
legu yfirlýsingu. „Það er varla hægt að segja annað en
að Donald Trump sé að höndla kórónuveirufaraldurinn
skelfilega illa. Bandaríkin eru vanbúin til að takast á
við veikina, Trump kennir öllum um nema sjálfum sér,
skilaboðin frá honum eru misvísandi dag frá degi – á að
opna eða loka? – hann var lengi að tala niður alvöru
málsins en þessa dagana er hann gjarn á að fimbul-
famba um lækningar sem hafa lítt verið kannaðar.“ En
svo kemur:
„Samt er traust á Trump að aukast í skoðanakönn-
unum.“ Egill segir reyndar að sér sé þetta ráðgáta.
Svo segir hann: „Andstæðingur hans í kosningunum
virðist ætla að verða Joe Biden, fyrrverandi varafor-
seti. Hann er nokkurn veginn búinn að sigra í hinu
langa og stranga útnefningarferli hjá Demókrötum.
En nú ber svo við að Biden hefur ekki mikla vigt á
svona alvörutímum. Fjölmiðlar töluðu um að hann
hefði horfið, þegar hann birtist svo aftur í viðtölum
mismælti hann sig og hóstaði. Hann var einfaldlega
ekki sérlega leiðtogalegur. Biden er orðinn gamall
maður – og það er að verða æ ljósara hversu hæpið er
að hann sé í standi til að sigra í kosningunum eða
gegna embætti forseta í fjögur ár.“
Vantar heilindi
Joe Biden hefur ekki gert neitt sem veikir hann nema
að mismæla sig og hósta í einu viðtali! Samt á að skipta
honum út, þótt hann sé í raun búinn að vinna slag um
að verða forsetaframbjóðandi. Af hverju getur Egill
ekki rætt vandann af einurð? Maður sem hóstar og
mismælir sig er búinn að vera. Hver skilur það?
Sérstaklega þegar þetta hér kemur í kjölfarið:
„Þetta eru óvenjulegir tímar – jú, ég ætla að leyfa mér
að segja fordæmalausir – maður veltir fyrir sér hvort
það muni renna upp fyrir Demókrötum að þeir hafi
gert stór mistök með því að velja Biden? Og þá, að
hugsanlega verði gripið til þess ráðs að velja annan
frambjóðanda. Svona tímar þurfa alvöru leiðtoga,
menn með bein í nefinu, ekki stjórnmálamenn sem ná
kjöri í góðæri og hvers helsti kostur er að þeir geti
ekki valdið svo miklum skaða.“
Egill hefur að mestu hitt naglann á höfuðið.
En þeir sem bara lesa hans texta og fylgjast ekki
með öðrum erlendum fréttum en þeim sem berast frá
furðufréttastofunni sem hann deilir launaskrá með
geta ekki skilið hvernig í ósköpunum hann gat komist
að þessari niðurstöðu.
Kannski dreymt hana?
Kannski.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
’Það eru fræg dæmi til af margvíslegumslysum Bidens á varaforsetaferlinum. Enþau eru annars eðlis og geta og hafa hent fjöl-marga forseta og varaforseta. Álagið á þessa
menn er mikið og þeir reyna stundum að
bjarga sér með því að látast vera með á nót-
unum. Óvenjumargar slíkar sögur eru til um
Biden.
29.3. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17