Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.03.2020, Qupperneq 29
og úr því við erum byrjuð að baða
okkur hvers vegna ekki að fara þá
bara beint í sápu allra sápa, Löður?
Fyrir liggur að spé stenst misjafn-
lega vel tímans tönn en trú mín er
eigi að síður sú að Campbell og
Tate-fjölskyldurnar hafi alla burði
til að kæta okkur á ný enda þótt
meira en fjörutíu ár séu síðan Löður
hóf göngu sína. Var í loftinu frá 1977
til 1981 í Bandaríkjunum en eitt-
hvað seinna hér í fásinninu.
Það var allt í málinu, eins og
ágætur kollegi minn myndi orða
það. Systraþel, launráð, leyndarmál,
glæpir, fyrsti opinberlega samkyn-
hneigði maðurinn í sjónvarpi, búk-
talari og brúða hans, elliær majór,
maður sem trúði því að hann væri
geimvera og virðulegur bryti sem
vissi hvað hann söng. Þið munið eft-
ir þessu gengi.
Harðsnúinn dúett
Fátt er betur til þess fallið að forða
manni frá líðandi stund en æsileg
spenna. Góðir glæpaþættir eru þess
vegna ómissandi í þessu árferði. Og,
jú, jú, ég er strax búinn að taka
saman atkvæði ykkar; þetta var eins
rússnesk kosning og orðið getur.
Við erum auðvitað að tala um hinn
eina sanna Derrick. Hverjum gæti
þessi þjóð mögulega treyst betur til
að ráða fyrir sig gáturnar en þeim
mikla meistara og hjartaknús-
aranum Harry litla Klein. Hug-
myndaríkari og harðsnúnari dúett
er vandfundinn á byggðu bóli.
„Harry, hol schon mal den Wagen!“
Réttið upp hönd ef þið eruð ekki
komin með gæsahúð?
Allir gengu þessir þættir árum
saman á áttunda og níunda áratugn-
um og fram á þann tíunda. Derrick
var framleiddur í 24 ár. Vissuð þið
það? Áttundi áratugurinn var líka
gullöld vanmetins og vannýtts forms
í sjónvarpsþáttagerð, smáseríunnar.
Við erum að tala um kannski tíu til
tólf þætti sem oftar en ekki röktu
sögu ákveðinnar fjölskyldu, eins og
Rætur og Gæfa eða gjörvileiki.
Frjáls þrátt fyrir hlekki
Þegar maður hugsar út í það þá er
enginn betur til þess fallinn að
þjappa heimsbyggðinni saman á
þessum síðustu og verstu tímum en
aðalsöguhetjan í Rótum og ein
merkasta persóna sjónvarpssög-
unnar, Kunta Kinte. Alla tíð stóð
hann keikur andspænis ótrúlegu
mótlæti og var uns yfir lauk frjáls í
sinni enda þótt hann yrði að laga sig
að hlekkjunum. Höfum við í annan
tíma haft meiri þörf fyrir leiðsögn í
slíkri þrautseigju? Kunta Kinte er
persóna sem mótaði afstöðu heillar
kynslóðar til hugtaka á borð við
kynþáttafordóma, æðruleysi og
frelsi.
Rætur er mikil örlagasaga en af-
komendur Kunta Kinte áttu heldur
ekki sjö dagana sæla, alltént ekki
framan af. Þannig þurfti dóttir
hans, Kizzy, að leggjast með „eig-
anda“ sínum og ól honum son, öð-
linginn Kjúklinga-George sem fékk
létta lund í vöggugjöf og var hvers
manns hugljúfi. Um síðir sá fjöl-
skyldan þó til sólar og endurheimti
frelsið sem níðingar höfðu hrifsað
með valdi af ættföðurnum.
Gæfa eða gjörvileiki (Rich Man,
Poor Man) voru þættir af allt öðru
tagi en einnig eftirminnilega við
skap íslensku þjóðarinnar. Var þar
hermt af Jordache-bræðrunum
Rudy og Tom. (Það er að verða rán-
dýrt „name-droppið“ hérna á opn-
unni.) Fylgst var með bræðrunum,
sem voru eins og dagur og nótt,
þroskast frá því í stríðslok og fram á
sjöunda áratuginn í Bandaríkjunum.
Sá ríki, Rudy, var vel menntaður og
naut velgengni í ástum og starfi
meðan sá fátæki, Tom, var ut-
angarðsmaður sem átti undir högg
að sækja í lífinu. Til uppgjörs hlaut
að koma.
Gæfa eða gjörvileiki bjó einnig að
einu mesta illmenni sjónvarpssög-
unnar, óberminu Anthony Falco-
netti, sem leit á það sem sitt hlut-
skipti í lífinu að koma þeim
Jordache-bræðrum á kné. Klækjatól
sem lét Joð Err Ewing líta út eins
og kórdreng. Verst að Derrick var
bundinn í öðrum verkefnum; ella
hefði hann ugglaust getað handtekið
ófreskjuna. Nú eða Burt Campbell
látið geimverur eyða henni.
Lendi sjónvarpsstöðvarnar í
vandræðum með að finna smáserí-
urnar sem hér um ræðir þá á ég
þær á DVD-formi og er fús að lána
þær án endurgjalds. Ég er í
skránni.
Ewing-fjölskyldan í
sínu fínasta pússi á
Southfork-búgarðinum.
CBS
29.3. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
ÚTHALD Gömlu rokkhundarnir í
Deep Purple eru ekki af baki dottn-
ir, en þeir gera ráð fyrir að senda
frá sér sína 21. hljóðversskífu í júní,
Whoosh! Sveitin var stofnuð 1968
og lykilmenn nú á áttræðisaldri.
Þrír úr gullaldarliði Purple eru enn
um borð, söngvarinn Ian Gillan,
bassaleikarinn Roger Glover og
trymbillinn Ian Paice en auk þeirra
eiga gítarleikarinn Steve Morse og
hljómborðsleikarinn Don Airey að-
ild að bandinu. Jon Lord lést 2012
og Ritchie Blackmore hætti 1993.
Ný plata frá Deep Purple
Ian Gillan í Laugardalshöllinni 2004.
Morgunblaðið/Sverrir
BÓKSALA 18.-24. MARS
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Glæpur við fæðingu Trevor Noah
2 Bláleiftur Ann Cleeves
3 Brúin yfir Tangagötuna Eiríkur Örn Norðdahl
4 Hvítt haf Roy Jacobsen
5 Andlitslausa konan Jónína Leósdóttir
6 Ennþá ég Jojo Moyes
7 Íslenska litabókin Gunnarsbörn
8 Blekkingaleikur Kristina Ohlsson
9
Geitungurinn 1
Árni Árnason / Halldór
Baldursson
10 Kötturinn sem átti milljón líf Yoko Sano
1 Ljóð 2007-2018 Valdimar Tómasson
2 Faðmlög Sigurbjörn Þorkelsson
3 Steinn Steinarr Ljóðasafn Steinn Steinarr
4 Edda ljóðabók Harpa Rún Kristjánsdóttir
5 Leðurjakkaveður Fríða Ísberg
6 Hafið starfar í þögn minni Pablo Neruda
7 Passíusálmar Hallgrímur Pétursson
8 Til þeirra sem málið varðar Einar Már Guðmundsson
9 Bestu limrurnar Ragnar Ingi Aðalsteinsson
10 Innræti Arndís Þórarinsdóttir
Allar bækur
Ljóðabækur
George R.R. Martin skrifaði: „Sá
sem les hefur lifað þúsund ævi-
skeið áður en hann deyr. Sá sem
aldrei les lifir aðeins eitt.“
Þessi tilvitnun birtist mér fyrir
nokkrum árum í smáforritinu
Goodreads og hefur setið í mér
síðan.
Goodreads reynist mér gott
verkfæri til að
halda utan um lest-
ur bóka og finna
innblástur að bók-
um til að lesa. Í
smáforritinu getur
maður sett sér
lestrarmarkmið
fyrir árið sem hef-
ur haft mjög hvetj-
andi áhrif á mig. Einnig fór ég að
taka þátt í #26bækur bóka-
áskorun sem lét mig fara út fyrir
þægindarammann í vali á bókum
til að lesa. Sem dæmi þurfti ég að
finna bók um vísindi og datt inn á
stórkostlega bók sem heitir The
Immortal Life of Henrietta Lacks
eftir Rebecca Skloot. Í bókinni
eru gerð skil á lífi eiganda fræg-
ustu frumna í heimi, HeLa-
frumna. Bókin fjallar í raun um
mannlega þáttinn að baki vís-
indum.
Ég les að mestu
leyti allar bækur á
ensku en vissulega
læðist inn ein og
ein íslensk bók. Í
fyrra fór ég ásamt
fjölskyldu minni að
heimsækja systur
mína sem býr í
Berlín. Við fórum á slóðir útrým-
ingarbúða nasista í Sachsenhau-
sen og í kjölfarið las ég hinar
átakanlegu Minningar Leifs Müll-
er, Býr Íslendingur hér?, sem ég
tel vera algjöra
skyldulesningu.
Í bókahillunni
minni eru um tíu
bækur eftir einn af
mínum uppáhalds-
höfundum, Haruki
Murakami. Þessar bækur geymi
ég eins og ormur á gulli. Það sem
heillar mig við Murakami er að
maður fer inn í ákveðna stemn-
ingu þar sem svipuð þemu (horfn-
ar konur, kettir, jazz og brunnar
o.fl.) eru í flestum hans skáldsög-
um. Heimur Murakami er oft
óraunverulegur þar sem ekkert
er sem sýnist og lesandinn verður
að taka þátt í leiknum. Sagan
endar í óvissu, snýr upp á sig og
endurnýjast við hvern lestur.
Ein af mínum
uppáhaldsbókum
er Call Me By Your
Name eftir André
Aciman sem er
gullfallega skrifuð
ástarsaga sem ger-
ist að sumri til á
Ítalíu. Það fær mann til að rifja
upp hvernig það er að vera ungur
og ástfanginn í fyrsta sinn.
DRÍFA ÍSLEIFSDÓTTIR ER AÐ LESA
Drífa Ísleifs-
dóttir starfar á
viðskiptasviði
IKEA.
Hef alla tíð haft
áhuga á sögum
ICQC 2020-2022
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
SKÚTAN
Veitingar af öllum stærðum,
hvort sem er í sal eða
heimahúsi
Nánar á veislulist.is
Erfidrykkja