Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.03.2020, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 29. MARS 2020
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
DANSKIR DAGAR | HÚSGAGNAHÖLLIN | 1
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
Ísafirði
Skeiði 1
www.husgagnahollin.is
DANSKIR DAGAR
Í HÖLLINNI
Við fögnum 55 ára sameiginlegri sögu
Húsgagnahallarinnar og danskrar hönnunar.
Við bjóðum upp á spennandi tilboð fyrir lifandi heimi
li.
Vertu eins og heima hjá þér – komdu við og fáðu þér
sæti.
AFSLÁTTUR
20%ALLARDANSKAR
VÖRUR*
* Gildir ekki af sérpöntunum og einungis af völ
dum vörum frá Skovby.
www.husgagnahollin.is
V
E F
V E R S L U N
A
LLTAF OP
IN
FRÍ HEIM
SENDING
NÝTT
VIRKAR
ÞANNIG
Þú finnur bæklinginn
fyrir Danska daga á
husgagnahollin.is
Þar finnur þú líka
upplýsingar um
fría sendingu.
LOKAHELGI
DANSKRA DAGA
SENDUM HEIM
SAMDÆGURS Á
HÖFUÐBORGAR-
SVÆÐINU – FRÍTT –
EF PANTAÐ ER FYRIR KL. 16.
Bogi Bjarnason, blaðamaður og frisbígolf-
ari, var stöðvaður og settur tímabundið á
svartan lista í Bandaríkjunum eftir að
hann reyndi að fljúga þangað frá Ník-
aragva síðasta mánudag. Þetta gerðist
þrátt fyrir að útreikningar utanríkisráðu-
neytisins sýndu að Bogi væri kominn fram
yfir fjórtán dagana sem fólk þarf að hafa
verið utan Schengensvæðisins áður en það
kemur til Bandaríkjanna. Bogi ætlaði að
fljúga heim til Íslands gegnum Miami og
Lundúnir.
Þegar sunnudagsblaðið náði tali af Boga
fyrir helgina var hann enn í Níkaragva.
„Það eru tvær mögulegar leiðir út, báðar á
laugardaginn; annars vegar með Aeroméx-
ico til Mexíkóborgar og þaðan til Amster-
dam og hins vegar með þýsku borgaraflugi
til Frankfurt. Á þessari stundu veit ég ekki
hvort af þessum ferðum verður. Sendiráðið
tjáir mér síðan að einu flugin sem eru enn í
boði til Íslands séu frá Lundúnum, þannig
að þangað þarf ég að koma mér hvort sem
er frá Amsterdam eða Frankfurt. Í Hol-
landi á ég alla vega systur sem ég get gist
hjá en í Frankfurt ekki neitt. “
Þrátt fyrir þessar hremmingar var
nokkuð létt yfir Boga þegar blaðamaður
hafði samband til að fylgja viðtali, í Sunnu-
dagsblaðinu um síðustu helgi, eftir. „Það
verður að fá botn í þennan „cliffhanger“,“
svaraði hann sposkur.
Bogi Bjarnason fór
til Níkaragva til að
keppa í frisbígolfi.
Ljósmynd/Morgan Studio Nicaragua
Strandaglópur í Níkaragva
Bogi Bjarnason fékk ekki að koma til Bandaríkjanna í vikunni og er fyrir
vikið fastur í Níkaragva. Hann vonast til að komast til Evrópu um helgina.
„Ég trúi því ekki að leikhús eigi
eða geti lamið skoðanir sínar inn
í fólk. Miklu fremur eigi það að
vekja fólk til umhugsunar um
þann þjóðfélagslega veruleika
sem það býr við,“ sagði leik-
skáldið Vésteinn Lúðvíksson í
samtali við Morgunblaðið undir
lok mars 1980 en tilefni samtals-
ins var frumsýning á glænýju
verki hans, Hemma, í Iðnó.
Vésteinn bætti við að ef til vill
mætti líkja þessu við fiðlu: „Fiðl-
an er frábært hljóðfæri til að ná
fram fallegri tónlist, ein hins veg-
ar afleitt verkfæri til að reka
nagla í vegg.“
Vésteinn sagði í samtalinu, að
leikritið gerðist í einhverjum
óákveðnum nútíma, eins og
hann orðaði það. Ungur maður,
Hermann Sverrisson, eða
Hemmi, er við nám erlendis og
kemur heim í plássið sitt, Skipa-
vík sem er rétt hjá Fiskifirði, í
sumarleyfi. Fljótlega eftir að
hann er kominn heim, uppgötv-
ar hann að á bak við fágað yf-
irborð fjölskyldu hans eru fólgnir
heldur hrikalegir atburðir. Svo
hrikalegir að Hemmi verður
aldrei samur maður aftur.
GAMLA FRÉTTIN
Neglir ekki
nagla með
fiðlu
Höfundur ásamt leikstjóra, leikmyndahöfundi og leikhljóða við Iðnó, María
Kristjánsdóttir, Vésteinn, Sigurður Rúnar Jónsson og Magnús Pálsson.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Pawel Bartoszek
borgarfulltrúi
Einar Andri Einarsson
handboltaþjálfari
Stefán Már Magnússon
gítarleikari