Morgunblaðið - 01.04.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 2020
Sveinn Björnsson, sendiherra og fyrrver-
andi forsetaritari, lést hinn 23. mars síð-
astliðinn á Sóltúni í Reykjavík, 77 ára að
aldri. Sveinn fæddist í Washington 12. des-
ember 1942. Foreldrar hans voru Henrik
Sv. Björnsson sendiherra og Gróa Torf-
hildur (Gígja) Björnsson fiðluleikari. Syst-
ur hans hans eru Helga Björnsson fata-
hönnuður og Guðný Hrafnhildur (Níní)
Björnsson.
Sveinn ólst upp í Reykjavík og lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík. Hann var með cand. phil-gráðu
í heimspeki úr Háskóla Íslands og lærði
stjórnmálafræði í Manchester og við Sor-
bonne-háskólann í París. Árið 1968 varð hann sendiráðs-
fulltrúi við sendiráð Íslands í París, ár síðar fulltrúi í ut-
anríkisráðuneytinu og síðan sendiráðsfulltrúi við
sendiráð Íslands í Stokkhólmi 1970, þar sem hann varð
sendiráðsritari 1971. Árið 1974 varð Sveinn sendiráðsrit-
ari við sendiráð Íslands í Bonn í Þýskalandi og jafnframt
varafastafulltrúi hjá Evrópuráðinu. Árið 1978 varð hann
sendiráðunautur í utanríkisráðuneytinu á
Íslandi en árið 1983 varð hann sendifulltrúi
við sendiráð Íslands í London. Árið 1987
varð Sveinn sendiherra og prótókollstjóri
hjá utanríkisráðuneytinu og árið 1990 varð
hann skrifstofustjóri og alþjóðaskrif-
stofustjóri í ráðuneytinu. Sveinn varð for-
setaritari árið 1991 og var síðan sendiherra
Íslands hjá Evrópuráðinu í Strassborg árið
1997. Árið 2001 varð Sveinn prótókollstjóri
í utanríkisráðuneytinu. Árið 2004 varð
hann sendiherra Íslands í Vínarborg.
Sveinn flutti til Íslands í lok árs 2009, en
fékk heilablóðfall árið 2010 og bjó á hjúkr-
unarheimilinu Sóltúni í Reykjavík eftir það.
Útför Sveins fór fram í kyrrþey í ljósi sérstakra að-
stæðna í samfélaginu en minningarstund verður til-
kynnt síðar. Börn Sveins með fyrri eiginkonu hans, Sig-
rúnu Dungal, eru Anna Margrét Björnsson blaðamaður
og Henrik Baldvin Björnsson tónlistarmaður. Sveinn
kvæntist 1997 Sigríði Hrafnhildi Jónsdóttur sem lést
2014. Börn hennar eru Signý Vala og Unnur Edda.
Andlát
Sveinn Björnsson
Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður
Við erum hér til að aðstoða þig! --
• Sérsmíðaðir skór
• Skóbreytingar
• Göngugreiningar
• Innleggjasmíði
• Skóviðgerðir
Erum með samning við
sjúkratryggingar Íslands
Tímapantanir í síma 533 1314
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Aðgerðir sem Alþingi samþykkti í
fyrrakvöld til að vinna gegn sam-
drætti vegna heimsfaraldurs kórón-
uveirunnar eru víðfeðmar og hlaupa
á tugum milljarða. Með samþykkt
fjáraukalaga eru útgjöld, tilfærslur
og framlög til fjárfestinga á fjárlög-
um hækkuð um tæplega 25,6 millj-
arða kr. og hækkuðu þau um hálfan
fjórða milljarð við meðferð þingsins.
Að stærstum hluta er þar um að
ræða tímabundið fjárfestingarátak
sem verður tæpir 18 milljarðar en
meirihluti fjárlaganefndar lagði til
tæplega þriggja milljarða hækkun
þess og munar þar mest um 1.250
milljóna kr. framlag sem ætlað er að
styrkja rannsóknir, nýsköpun og
skapandi greinar með því að auka
úthlutunarfé nokkurra sjóða, á borð
við Rannsóknasjóð, Tækniþróunar-
sjóð og Innviðasjóð, og hækka fram-
lög til menningar, lista og íþrótta.
Fjárfrekustu verkefnin sem ráðist
verður í eru í samgöngumálum alls
fyrir um 6,5 milljarða kr. Ráðast á í
tímabundnu fjárfestingarverkefnin í
síðasta lagi 1. september næstkom-
andi og þeim á að vera að fullu lokið
1. apríl 2021.
Alþingi samþykkti fimm laga-
frumvörp auk þingsályktunar um
fjárfestingarátakið til að mæta þeim
áföllum sem heimsfaraldurinn hefur
í för með sér. Meðal fjölda aðgerða
sem samþykktar voru er heimild til
að auka hlutafé ríkisfyrirtækja um
allt að átta milljarða til að styrkja
fjárfestingargetu þeirra og er tekið
fram að þar sé sérstaklega horft til
Isavia ohf. og Farice ehf.
Líkt og ríkisstjórnin hafði kynnt
verður fyrirtækjum í rekstrarvanda
sem hafa orðið fyrir verulegu tekju-
tapi vegna faraldursins auðveldað að
fá viðbótarlán eða brúarlán og varð
niðurstaðan á Alþingi sú að ábyrgð
ríkissjóðs gæti verið á bilinu 50-70%
af höfuðstól slíkra lána. Einnig var
samþykkt heimild til að flýta lækk-
un bankaskattsins. Þá samþykkti
þingið að hækka lánsfjárheimild rík-
issjóðs úr 45 milljörðum í 140 millj-
arða.
Örorku- og endurhæfingarlíf-
eyrisþegar fái 20 þúsund
Tillaga um greiðslu sérstaks
barnabótaauka 1. júní breyttist í
meðförum þingsins og varð niður-
staðan sú að foreldrar sem fá nú
þegar barnabætur skuli til viðbótar
fá sérstakan 42 þús. kr. barnabóta-
auka með hverju barni og auk þess
var samþykkt að þeir sem ekki hafa
fengið barnabætur vegna tekju-
skerðingar fái 30 þúsund kr. sér-
stakan barnabótaauka með hverju
barni.
Einnig var samþykkt að örorku-
og endurhæfingarlífeyrisþegar fái
20 þúsund kr. greiðslu sem verði
skatta- og skerðingarlaus. 100 millj-
ónum verður varið til að styrkja úr-
ræði vegna heimilislausra og sam-
þykkt var 40 milljóna króna framlag
til að vinna gegn kvíða og einmana-
leika. Er félagsmálaráðuneytinu fal-
ið að nýta þá til að styrkja frjáls fé-
lagasamtök sem sinna þjónustu og
ráðgjöf vegna faraldursins.
Samþykkt var 350 milljóna kr.
framlag til að koma til móts við við-
bótarkostnað í heilbrigðiskerfinu
vegna veirufaraldursins sem skiptist
þannig að 250 millj. kr. renna til
Landspítalans og 100 millj. kr. til
Sjúkrahússins á Akureyri. Jafn-
framt renna 200 milljónir til heilsu-
gæslunnar á höfuðborgarsvæðinu og
50 milljónir til Læknavaktarinnar.
Með samþykkt laga um aðgerðir
til að mæta efnahagslegum áhrifum
faraldursins hefur m.a. verið lögfest
heimild launagreiðenda til að fresta
allt að þremur gjalddögum stað-
greiðsluskila og frestun gjalddaga
tryggingagjalds og fasteignaskatts.
Heimilað verður að fá endur-
greiddan virðisaukaskatt vegna
vinnu við húsnæði og bílaviðgerðir.
Hækkun launa þingmanna, ráðherra
og æðstu embættismanna sem átti
að óbreyttu að koma til 1. júlí hefur
verið frestað til 1. janúar svo dæmi
séu nefnd úr aðgerðapakkanum.
Mæta áfallinu með aðgerðum
Aðgerðir ríkisstjórnar á tímum kórónuveirunnar
Framlög úr ríkissjóði eftir málefnasviðum
Fjölskyldumál m.kr. 3.240
Ferðaþjónusta 3.000
Örorka og málefni fatlaðs fólks 400
Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála 400
Sjúkrahúsþjónusta 350
Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa 250
Tímabundið fjárfestingarátak 17.936
Samtals m.kr. 25.576
Brúarlán til
atvinnulífsins
■ Stuðningur til að veita
fyrirtækjum í rekstrarvanda
viðbótarlán
■ Lánastofnunum veitt
ábyrgð ríkissjóðs á 50-70%
höfuðstóls viðbótarlána fyr-
irtækja sem orðið hafa fyrir
verulegu tekjutapi vegna
kórónuveiru, heildarábyrgð
ríkis 35-50 ma.kr.
■ Hraðari lækkun
bankaskatts
Tímabundið
fjárfestingarátak
17.936 m.kr. í fram-kvæmdir og
endurbætur innviða, samgöngu-
mannvirki, viðhald fasteigna,
rannsóknir, nýsköpun, skapandi
greinar, stafrænt Ísland og
upplýsingatækni
Frestun skattgreiðslna
■ Frestanir þriggja
gjalddaga staðgreiðslu og
tryggingagjalds til 2021
■ Frestun fyrirframgreidds
tekjuskatts fyrirtækja til
október 2020
Styrkir til heimila
■ Barnabótaauki
1. júní, 42.000 kr.
með hverju barni
ef greiddar eru
tekjutengdar bætur
og 30.000 kr. með
hverju barni fram-
færenda sem ekki
fá barnabætur
vegna tekju-
skerðingar:
3.100 m.kr.
■ 20 þúsund kr.
greiðsla til örorku- og
endurhæfi ngarlífeyr-
isþega: 400 m.kr.
■ 100 m.kr. til
að styrkja úrræði
heimilislausra
■ 40 m.kr. framlag
til að vinna gegn
kvíða og ein-
manaleika
Styrking ferðaþjónustu
■ Gistináttagjald afnumið
til 31. desember 2021
■ Alþjóðlegt markaðsátak
í ferðaþjónustu: 1,5 ma.kr.
Útvíkun á ,,Allir vinna“
■ VSK endurgreiddur
vegna vinnu við íbúðar-
hús og sumarhús til
31. desember 2020
■ Félagasamtök s.s.
líknarfélög, íþróttafélög
og björgunarsveitir geta
fengið endurgreiddan
VSK vegna vinnu við
byggingar og endurbætur
■ VSK endurgreiddur
vegna bílaviðgerða sem
kosta að lágmarki
25 þús. kr.
Greiðari
vörufl utningar
■ Niðurfelling toll-
afgreiðslugjalda til 31.
des. 2021 og frestun
aðfl utningsgjalda
Aukið hlutafé
ríkisfyrirtækja
M.a. Isavia, Farice o.fl ., 8 ma.kr.
Heilbrigðiskerfi ð vegna kórónuveiru
400 m.kr. framlag til að fjármagna
veiruskimunarpróf (100 m.kr.)
og hlífðarbúnað (300 m.kr.)
250 m.kr. til Landspítala og 100 m.kr.
til Sjúkra-
hússins á
Akureyri
250 m.kr. vegna viðbótarkostnaðar
á heilsugæslustöðvum
390 m.kr. til endur-byggingar
bráðavaktar í Fossvogi og
120 m.kr. til breytinga á
húsnæði hjá sjúkrahúsinu
á Akureyri
Stafrænt gjafabréf
■ Allir 18 ára og eldri fá gjafabréf til
ferðalaga innanlands:
1,5 ma.kr.
Úttekt séreignarsparnaðar
■ Heimilt að taka úr
séreignarsparnað á
15 mánaða tímabili
að hámarki 12 m.kr.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjárfestingarátak Verja á tæplega 1,2 milljörðum í nýbyggingar og meiri háttar endurbætur.
Framlög hækka um 25, 6 milljarða Barnabótaauki til fleiri foreldra 6,5 milljarðar í samgöngur
Auka hlutafé ríkisfyrirtækja um allt að 8 milljarða 100 milljónir í úrræði fyrir heimilislausa
Ýmis framlög
» 390 milljónir í breytingar á
húsnæði Landspítala
» 3 milljarðar í markaðsátak
ferðaþjónustu, þar af 1,5 millj-
arðar sem hvetji til ferðalaga
innanlands.
» Heimilt að taka út séreign-
arsparnað á 15 mánaða tíma-
bili.
» 350 millj. kr í flughlað á Ak-
ureyri og akbraut á Egilsstaða-
flugvelli
» 700 millj. kr. í breikkun brúa.