Morgunblaðið - 01.04.2020, Page 11
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 2020
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
„Það þýðir ekkert að leggja árar í
bát heldur hugsa í lausnum og halda
sínu striki,“ sögðu hjónin Kristín
Heimisdóttir og Kristján Úlfarsson
sem útbjuggu sína eigin æfingaað-
stöðu heima í
stofunni. Á
Þórshöfn, líkt
og annars stað-
ar, er íþrótta-
húsið nú lokað
og því ekki
hægt að halda
þar áfram æf-
ingum.
Kristín var
komin í ágæta þjálfun við lyftingar
og sagðist því ekki hafa getað hugsað
sér að hætta að lyfta og vildi gera
eitthvað í málinu.
„Ég finn hvað þessar æfingar og
stífar lyftingar gera mikið fyrir bak-
ið á mér svo það var slæmt að þurfa
að hætta og ekki endilega ósk-
astaðan að kaupa sér dýr lyfting-
artæki þar sem frábær aðstaða er til
staðar í íþróttahúsinu. Maðurinn
minn er jú húsasmíðameistari og
þegar ég nefndi við hann að búa
hreinlega til lyftingagræjur og riss-
aði upp mynd þá keypti hann auðvit-
að hugmyndina!“ segir Kristín og
hlær.
Gamalt vatnsrör úr járni og reka-
viðardrumbur var efniviðurinn en
góður lerkidrumbur fannst á
Brekknasandi, sem tilheyrir jörð
fjölskyldunnar. Harður og þéttur
viður er bestur í lóðin svo þessi
drumbur hentaði vel. Kristján fékk í
lið með sér góðan vin sinn, þúsund-
þjalasmiðinn Guðjón í næsta húsi, og
þarna úti á sandinum söguðu þeir
drumbinn með keðjusög í hæfilegar
stærðir á stöngina. Þeir félagar hafa
margt brallað saman og þykir engin
hugmynd of vitlaus til að fram-
kvæma hana, enda er Kristín hæst-
ánægð með smíðina.
„Núna eru 80 kg á stönginni en ég
hef farið yfir 100 kg og mun halda
áfram að styrkja mig,“ sagði krafta-
konan Kristín. Hún byrjaði að lyfta
fyrir tæpum tveimur árum og segir
það form líkamsræktar henta sér
vel. Hjónin eru samtaka í þeirri
þjálfun en taka einnig langar göngu-
ferðir úti í náttúrunni þegar til þess
viðrar. „Gönguferðir og útivera gera
sálinni gott svo við blöndum þessu
saman,“ sagði Kristín sem horfir á
björtu hliðarnar í lífinu og er tamt að
leita lausna, rétt eins og hún gerir í
vinnu sinni í daglegu lífi sem sál-
fræðingur.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn Lóðunum má lyfta á ýmsa vegu og hér styrkir Kristján Úlfarsson bakvöðvana heima í stofu.
Lyftir lerkilóðum heima
Bjuggu til eigin æfingaaðstöðu heima í stofu Lerki-
drumbur af Brekknasandi sagaður niður með keðjusög
Kraftar Kristín hefur krafta í
kögglum og leikur sér að 80 kg.
Álag er á velferðarþjónustu Reykja-
víkurborgar vegna kórónuveiru-
faraldursins og þá mest í íbúða-
kjörnum og sambýlum fyrir fatlað
fólk, að sögn Regínu Ásvaldsdóttur,
sviðsstjóra velferðarsviðs. Veita þarf
meiri þjónustu en venjulega þar eð
skert þjónusta er hjá starfsstöðum
fatlaðra og tómstundatilboð af
skornum skammti í samkomu-
banninu.
„Velferðarsvið Reykjavíkur rekur
samþætta félagslega heimaþjónustu
og heimahjúkrun
samkvæmt samn-
ingi við Sjúkra-
tryggingar Ís-
lands. Við erum
með starfs-
stöðvar á þremur
stöðum í borg-
inni, í Árbænum,
í Efstaleiti og á
Vitatorgi. Við
þjónustum 3.700
einstaklinga eða heimili með heima-
þjónustu eða heimahjúkrun,“ sagði
Regína.
Flestir notendur eru með und-
irliggjandi sjúkdóma eða aldraðir.
Öll vinna inni á heimilum miðar að
því að lágmarka möguleika á út-
breiðslu Covid-19. Fylgt er aðferð-
um sem embætti landlæknis hefur
ráðlagt. Stjórnendur og starfsfólk
velferðarsviðs hafa lagt allt kapp á
að finna lausnir og leiðir til að
tryggja öryggi og heilbrigði þeirra
íbúa sem þurfa á þjónustu velferð-
arsviðs að halda.
Regína sagði að viðbragðsáætlun
sviðsins hafi verið virkjuð í byrjun
febrúar. Öll heimaþjónustan starfar
nú á neyðarstigi. Neyðarstjórn vel-
ferðarsviðs heldur daglega fundi og
fer eftir öllum tilmælum almanna-
varna og landlæknis. Sérstakt Co-
vid-19-teymi heimahjúkrunar og fé-
lagslegrar heimaþjónustu var
myndað til að uppfæra allar áætlanir
á neyðarstig. Innan þess er tengilið-
ur í neyðarstjórn og allar meiri hátt-
ar ákvarðanir varðandi Covid-19
teknar þar.
Heimaþjónustan skipti starfsfólki
í hópa sem koma og fara á mismun-
andi tímum svo þeir hittist ekki.
Teymisstjórar fengu búnað til að
geta unnið að heiman. Engin röskun
hefur orðið á þjónustu heimahjúkr-
unar. Einhverjir notendur félags-
legu heimaþjónustunnar hafa af-
þakkað þrif tímabundið.
Allir sem nota þjónustuna fengu
bréf frá velferðarsviði með leiðbein-
ingum og upplýsingum um helstu
tengiliði þegar neyðarstigi var lýst
yfir. Heimaþjónustan hefur útbúið
skýrt verklag varðandi umönnun
skjólstæðinga í sóttkví og einangrun
og notkun hlífðarbúnaðar. Þá hefur
starfsfólk verið upplýst um smitleið-
ir og sérstök áhersla lögð á mik-
ilvægi aukins hreinlætis.
Daglega er fylgst með því hvað
margir starfsmenn eru í sóttkví eða
einangrun. Í gær voru 95 í sóttkví og
í fyrradag höfðu 85 lokið sóttkví. Níu
voru í einangrun í gær. Þá var 61
notandi í sóttkví og tveir í ein-
angrun. gudni@mbl.is
Álag hjá velferð-
arþjónustu
Reykjavíkur
Meiri þjónusta vegna faraldursins
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Efstaleiti Starfsfólk heimahjúkr-
unar fer víða á bláu bílunum.
Regína
Ásvaldsdóttir
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við höfum víðast hvar fengið góð
viðbrögð frá neytendum þar sem
Ísey skyr hefur verið sett í sölu. Það
hefur fallið neytendum vel í geð. Það
er sérstakt í Japan hvað dreifingin er
gríðarlega umfangsmikil strax í upp-
hafi,“ segir Ari Edwald, forstjóri
Mjólkursamsölunnar, um upphaf
markaðssetningar á Ísey skyri í Jap-
an. Það var boðið til sölu í um 50 þús-
und verslunum á fyrsta degi og seld-
ist upp í mörgum þeirra.
Skyrið var boðið fram í öllum
helstu matvöruverslunum Japans,
meðal annars í verslunum 7-11, Fa-
mily Mart, Lawson, Aeon, Itokyo-
kado og Seijo-Ishi. Telur Ari að þetta
sé líklega ein víðtækasta dreifing
sem um getur á íslenskri smásölu.
Þrátt fyrir að vera ein dýrasta
mjólkurvaran í Japan hefur Ísey
skyr fengið góða uppstillingu og
staðsetningu í mörgum þessara
verslana, við hlið mest seldu mjólk-
urafurða Japans og það telur MS að
sýni trú verslananna á Ísey skyri.
Varan hefur einnig fengið góðar
viðtökum hjá blaðamönnum og skrif-
að hefur verið um íslenska skyrið í
stærsta viðskiptablaði heims og einu
útbreiddasta dagblaði Japans.
Skyrið er framleitt í mjólkursam-
lagi japönsku samstarfsaðilanna,
Nikkel Luna, í Kyoto eftir uppskrift
og framleiðsluaðferð MS.
Kynning blásin af
Til stóð að vera með blaðamann-
fund og kynningu í íslenska sendi-
ráðinu í Tókýó af þessu tilefni. Sú
samkoma var blásin af vegna
kórónuveirunnar. Ari vonast til að
faraldurinn hafi ekki áhrif á söluna í
framhaldinu. Dregið hafi úr sölu á
skyri á sumum mörkuðum en ekki
hér á landi.
Skyrið seldist upp
í mörgum búðum
Ísey skyr í 50 þús. verslunum í Japan
Ljósmynd/Aðsend
Japan Ísey skyr er stillt upp á
góðum stöðum í hillum verslana.