Morgunblaðið - 01.04.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.04.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 2020 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Stjórnvöld á Spáni, Bretlandi og Frakklandi tilkynntu öll í gær um mestu fjölgun dauðsfalla af völdum kórónuveirunnar á einum sólar- hring. Hafa nú rúmlega 41.000 manns látist í heimsfaraldrinum og er áætlað að nærri helmingur mann- kyns búi nú við útgöngubann eða svipaðar ráðstafanir sem ætlað er að hægja á framgangi veirunnar. Á Spáni létust 849 manns á einum sólarhring, og hafa nú rúmlega 8.200 farist þar í landi. Slógu tíðindin á vonir stjórnvalda um að landið væri komið yfir versta kúfinn, en síðustu daga hafði hægt nokkuð á nýjum staðfestum tilfellum. Á Ítalíu voru fánar dregnir í hálfa stöng og mínútuþögn virt til að minnast fórnarlamba faraldursins og heiðra heilbrigðisstarfsfólk, en rúm- lega 12.500 manns hafa dáið þar í landi frá upphafi faraldurins. Stjórn- völd þar framlengdu í byrjun vik- unnar útgöngubann sitt fram yfir páska, en mjög líklegt þykir að bann- ið verði þá framlengt á ný. Sama gildir um flest önnur ríki heims nema Kína, sem farið er að af- létta þeim ströngu hömlum sem sett voru á í janúarmánuði á Hubei-hérað og Wuhan-borg. Íbúum þar gafst í gær í fyrsta sinn í tvo mánuði kostur á að fara út úr húsi, og þurftu margir að sinna útförum nánustu ættingja sinna. 3.309 staðfest dauðsföll hafa orðið í Kína vegna kórónuveirunnar, þar sem faraldurinn kom fyrst upp, og rúmlega 82.000 tilfelli. Faraldurinn hefur hins vegar verið í rénun sam- kvæmt opinberum tölum síðustu daga. Stjórnvöld í Kína óttast hins vegar að önnur bylgja tilfella gæti riðið yfir landið nú þegar slakað er á klónni, og tilkynntu þau því einnig í gær, að íþróttaviðburðir og deildar- keppni í helstu hópíþróttum færi ekki af stað aftur á næstunni. Sjúkrahús í Central Park Í Bandaríkjunum verður útlitið sí- fellt svartara, og voru rúmlega 177.000 staðfest tilfelli í gær. Þá höfðu rúmlega 3.900 manns týnt lífi í Bandaríkjunum af völdum kórónu- veirunnar, og er fjöldi dauðsfalla þar í landi nú meiri en í Kína. New York-borg er nú miðpunktur faraldursins, og var tímabundið sjúkrahús sett upp í Central Park til þess að mæta álaginu á heilbrigðis- kerfi borgarinnar. Þá hefur ásókn í matargjafir og fjölskylduaðstoð þar stóraukist á síðustu dögum enda hafa margir misst atvinnu sína vegna kórónuveirufaraldursins. Þrír fjórðu Bandaríkjamanna eru nú undir útgöngu- eða samkomu- banni og bættist Washington, höfuð- borg landsins, á þann lista í gær. Donald Trump Bandaríkjaforseti varaði þjóð sína við því að næstu 30 dagar gætu orðið mjög erfiðir, og að líkur væru á að setja þyrfti á út- göngubann um allt land. Líkti hann baráttunni við veiruna við stríð, og hét því að allt yrði gert til þess að tryggja aukna framleiðslu á öndun- argrímum og öðrum búnaði sem sjúkrahús landsins þyrftu til að vinna það stríð. 59.000 manns bjargað? Ný rannsókn á vegum Imperial College í Lundúnum sem birt var í gær gaf til kynna að harðar aðgerðir í 11 Evrópuríkjum hafi nú þegar bjargað allt að 59.000 mannslífum, miðað við það sem hefði orðið ef ekk- ert hefði verið að gert. Sögðu vísindamennirnir sem stóðu að rannsókninni að flest ríkin 11 hefðu náð að hefta útbreiðslu sjúkdómsins þó nokkuð, en að áfram þyrfti að viðhalda þeim ráðstöfunum sem hafa verið gerðar til þess að draga úr framgangi veirunnar. Ályktuðu vísindamennirnir að út- göngubann ítölsku stjórnarinnar hefði bjargað um 38.000 mannslífum, og þannig afstýrt jafnvel enn meiri skaða en þegar hefur orðið þar í landi. Þá hefðu aðgerðir stjórnvalda á Spáni bjargað um 16.000 manns. Í niðurstöðum þeirra sagði hins vegar að enn væri of snemmt að segja til hvort að núverandi aðgerðir hafi náð tökum á faraldrinum. Hins vegar væri ástæða til bjartsýni ef þróunin héldi áfram á sömu braut. AFP Central Park Verið er að reisa tímabundið sjúkrahús í Central Park-lystigarðinum í New York-borg til þess að mæta álaginu á heilbrigðiskerfið þar. Dauðsföllum fjölgar mjög  Rúmlega 41.000 hafa látist af völdum kórónuveirunnar  Flest dauðsföll á ein- um sólarhring á Spáni, Frakklandi og í Bretlandi  Harðar aðgerðir að skila sér? Washington Útgöngubann var sett á höfuðborg Bandaríkjanna í gær. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmda- stjórnar Evrópu- sambandsins, sagði í gær að allar þær neyðar- ráðstafanir sem aðildarríki sam- bandsins gera vegna kórónu- veirufaraldursins yrðu að vera „takmarkaðar“ og með skýran tímaramma. Ummæli hennar féllu degi eftir að ungverska þingið samþykkti neyðarlög sem færa Viktor Orban, forsætisráð- herra Ungverjalands, umtalsverð völd til að stýra landinu án aðkomu þingsins, svo lengi sem ungversk stjórnvöld meta að um neyðar- ástand sé að ræða. Von der Leyen nefndi Ungverja eða Orban ekki berum orðum, en talsmaður Orbans sagði að Ung- verjar væru sammála henni og þær óvenjulegu ráðstafanir sem ráðist hefði verið í væru í fullu samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Ungverjalands og stjórnarskrá þess. Neyðarlög hafi skýran tímaramma  Neyðarlög Ung- verja valda ugg Ursula von der Leyen Ríkissaksókn- arar í Venesúela hafa kallað Juan Guaido, leiðtoga stjórnarandstöð- unnar, til yf- irheyrslu á morg- un, fimmtudag, vegna meintrar tilraunar til að ræna völdum og morðtilræði. Guaido hefur verið viðurkenndur sem sitjandi forseti Venesúela af rúmlega 50 ríkjum, Íslandi með- töldu, sem neita að viðurkenna kjör Nicolas Maduro, forseta landsins. Málið á rætur að rekja til ólög- legrar vopnasendingar sem stöðvuð var í Kólumbíu í síðustu viku, og vilja saksóknarar meina að Guaido hafi ætlað sér að nota vopnin. Guaido kallaði eftir myndun þjóðstjórnar á sunnudaginn, meðal annars vegna þess að Alþjóðagjald- eyrissjóðurinn hefur nú þegar hafnað beiðni Maduros um aðstoð, þar sem sjóðurinn taldi ekki næga alþjóðlega viðurkenningu á stjórn hans til að hægt væri að veita lán. Rannsaka meinta valdaránstilraun Juan Guaido VENESÚELA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.