Morgunblaðið - 01.04.2020, Side 26
HOLLAND
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Keflvíkingurinn Elías Már Óm-
arsson var í miklu stuði með Ex-
celsior í hollensku B-deildinni í
knattspyrnu áður en öllum leikjum
var frestað vegna kórónuveirunnar.
Var hann búinn að skora níu mörk í
síðustu átta leikjum og fjórar tvenn-
ur á skömmum tíma. Alls hefur
hann skorað 12 mörk í 28 leikjum á
tímabilinu, en liðið var í sjöunda
sæti deildarinnar og í baráttu um að
fara upp um deild þegar veiran
skall á. Líkt og á Íslandi er samko-
mubann í Hollandi og æfir liðið
ekki.
„Það er ekkert æft núna og það
eru komnar reglur um að ekki megi
fleiri en þrjár manneskjur koma
saman, nema þær búi saman. Ef
fleiri en þrír koma saman geturðu
fengið sekt. Þetta eru stórfurðu-
legir tímar,“ sagði Elías við
Morgunblaðið. Framherjinn býr
með kærustu og tveimur ungum
sonum og er mikið heima um þessar
mundir þó svo að ekki sé búið að
setja útgöngubann í Hollandi. „Ég
er mikið með strákunum mínum og
reyni að fara út að ganga við og við
en annars reyni ég að vera eins
mikið heima og ég get til öryggis.“
Búið er að fresta öllum fótbolta í
Hollandi til 1. júní og hafa ein-
hverjir hollenskir miðlar greint frá
því að afar ólíklegt sé að yfirstand-
andi tímabil verði klárað. Ekki er
búið að aflýsa tímabilinu en Elíasi
finnst líklegt að sú verði nið-
urstaðan. „Ég er farinn að halda
það. Ég hef verið að spyrjast fyrir
um þetta og mér heyrist á flestum
að þeim finnst líklegast að tímabilið
verði flautað af. Það er ekki komin
endaleg niðurstaða samt sem áður,“
sagði Elías.
Kom á versta tíma
Hann viðurkennir að frestunin
hafi komið á slæmum tíma fyrir
hann persónulega, þar sem hann
var í banastuði og raðaði inn mörk-
um. „Þetta er auðvitað frekar
svekkjandi en það er ekkert sem er
hægt að gera í þessu núna. Þetta
kom eiginlega á versta tíma fyrir
mig persónulega. Ég náði að pota
inn einhverjum mörkum áður en
þetta byrjaði og var í góðu formi og
að spila vel. Það væri leiðinlegt ef
tímabilið væri búið núna. Maður
væri til í að halda áfram og reyna
að fara sjálfur upp í 20 mörk á tíma-
bilinu.“
Elíasi gekk töluvert verr að skora
framan af tímabilinu og gerði hann
aðeins þrjú mörk í fyrstu 20 leikj-
unum. Um leið og Marinus Dijkhui-
zen tók við af Ricardo Moniz sem
knattspyrnustjóri Excelsior, fór
framherjinn að raða inn mörk-
unum.
„Það var skipt um þjálfara og ég
fékk meira frelsi. Fyrri hlutann af
tímabilinu var öðruvísi leikstíll og
ég sem framherji þurfti að hlaupa
ansi mikið. Ég átti að taka allar
skyndisóknir og svo þurfti ég að
taka á sprett til baka alla leið í okk-
ar vítateig í hvert skipti. Ég var
svolítið mikið í því að bara hlaupa
en undanfarið hef ég fengið meira
að vera í sókninni bara. Það er
minn styrkleiki og þá koma mörkin,
þar sem maður hefur meiri orku í
að klára og vera á réttum stað,“
sagði Elías.
Eitt ár eftir af samningi
Keflvíkingurinn er opinn fyrir því
að róa á önnur mið eftir tímabilið
þar sem hann vill spila í sterkari
deild en hollensku B-deildinni.
„Eftir þetta tímabil á ég eitt ár
eftir af samningnum. Ég er hrein-
skilinn með að ég vilji vera í sterk-
ari deild. Ég vil spila í efstu deild,
eða annarri sterkri deild,“ sagði Elí-
as, sem hefur ekki heyrt af áhuga
annarra félaga. „Ég hef ekki heyrt
neitt sjálfur en umboðsmaðurinn er
að sjá um þetta. Ég leyfi honum í að
fá frið og skoða í kringum sig. Við
bíðum og sjáum. Það er erfitt að
spá í þetta þegar ástandið er svona í
heiminum og það væri erfitt að
komast burt. Maður veit eiginlega
ekki neitt,“ sagði Elías Már.
„Reyni að vera
eins mikið heima
og ég get“
Ekki útgöngubann í Hollandi Ekki
mega þó fleiri en þrír koma saman
Ljósmynd/@excelsiorrdam
Mörk Elías Már Ómarsson hefur raðað inn mörkum eftir áramót.
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 2020
1. apríl 1978
Skúli Óskarsson, kraftlyft-
ingamaður frá Fáskrúðsfirði,
hreppir silf-
urverðlaun í sín-
um flokki á
Evrópu-
meistaramótinu
í Birmingham á
Englandi, og er
skammt frá því
að krækja í gullið þegar hann
gerir tilraun við heimsmet í
réttstöðulyftu í lokin. Hann
þríbætir um leið Norð-
urlandametið í hnébeygju.
1. apríl 1986
Morgunblaðið greinir frá því
að landsliðsmarkvörðurinn í
handknattleik, Einar Þorvarð-
arson, hafi fengið allsérstakt
viðurnefni hjá spænskum
blaðamönnum en hann leikur
með Tres de Mayo á Tenerife.
Eftir að hafa fengið hæstu ein-
kunn í öllum fjölmiðlum eftir
sigurleik gegn Michelin er
Einar kallaður „Girðingin“ í
spænskum blöðum.
1. apríl 1986
Ísland sigrar Lúxemborg í
vináttulands-
leik á útivelli,
78:71. Guðni
Guðnason
skorar 15 stig
og Símon
Ólafsson 13
fyrir íslenska
liðið sem spilar
þarna sinn áttunda leik á níu
dögum á ferðalagi um Evr-
ópu.
1. apríl 1993
Daníel Jakobsson sigrar með
fádæma yfirburðum í 30 km
göngu á fyrsta keppnisdegi
Skíðalandsmóts Íslands að
sögn Morgunblaðsins og var
rúmlega átta mínútum á und-
an Hauki Eiríkssyni sem kom
næstur. Daníel er 19 ára gam-
all og þurfti fyrir mótið að
sækja um sérstaka undanþágu
til Skíðasambandsins til að fá
að taka þátt í greininni því
hann er of ungur til að keppa í
þeirri vegalengd samkvæmt
reglum sambandsins.
1. apríl 2001
Ragnar Óskarsson skorar sig-
urmarkið á lokasekúndum
leiksins þegar lið hans Dun-
kerque vinnur óvæntan sigur
24:23 á meisturunum í Mont-
pellier sem eru með sjö heims-
meistara innanborðs. Ragnar
sem er á sínu fyrsta tímabili í
atvinnumennsku skorar fimm
mörk í leiknum.
1. apríl 2006
ÍBV tryggir sér Íslandsmeist-
aratitilinn í handknattleik
kvenna með sigri á HK í
Digranesi 31:27. Varnarjaxl-
inn Ingibjörg Jónsdóttir lýsir
því yfir að leiknum loknum að
hún sé hætt í boltanum. „Ég
byrjaði 15 ára í meistaraflokki
þannig að það eru komin tutt-
ugu og tvö ár síðan,“ sagði
Ingibjörg við Morgunblaðið.
1.apríl 2012
Ragna Ingólfsdóttir slær met
Elsu Nielsen þegar hún verð-
ur Íslands-
meistari í ein-
liðaleik í
badminton í ní-
unda sinn á tíu
árum en Elsa
varð átta sinn-
um meistari.
Er þetta síðasta Íslandsmót
Rögnu því hún leggur spað-
ann á hilluna að Ólympíu-
leikunum loknum um sumarið.
Á ÞESSUM DEGI
Ragnar Sigurðsson, landsliðsmaður
Íslands í knattspyrnu og leikmaður
danska úrvalsdeildarliðsins FCK,
hefur þurft að taka á sig 20% launa-
lækkun vegna kórónuveirufaralds-
ins sem nú geisar en þetta kemur
fram á heimasíðu félagsins. Ragnar
gekk til liðs við FCK í janúar.
Samningurinn gildir út tímabilið
og því gæti vel farið svo að Ragnar
verði samningslaus á miðju tíma-
bili. FIFA vinnur að því að samn-
ingar sem eiga að renna út í sumar
framlengist þangað til tímabilið
klárast. bjarnih@mbl.is
Launalækkun í
Kaupmannahöfn
Morgunblaðið/Eggert
Köben Spurning hvort Ragnar
verði áfram í gamla höfuðstaðnum.
Úrslit Meistaradeildarinnar í
körfuknattleik gætu ráðust í lok
september á þessu ári. Deildin hef-
ur verið í dvala eftir að kór-
ónuveirufaraldurinn blossaði upp í
Evrópu en nú á að stefna að því að
klára keppnina í lok september eða
byrjun október.
Íslenski landsliðsmaðurinn
Tryggvi Snær Hlinason og liðs-
félagar hans í spænska liðinu Zara-
goza eru komnir áfram í átta liða
úrslit keppninnar þar sem liðið
mætir annaðhvort Oostende eða
Tenerife. bjarnih@mbl.is
Stefnt að því að
spila í september
Ljósmynd/KKÍ/Jónas
Miðherjinn Tryggvi Snær Hlinason
leikur í í 8-liða úrslitum.
SÖGUSTUND
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Þegar Vetrarólympíuleikar standa
yfir beinist kastljósið yfirleitt mest að
keppninni í íshokkí eða alpagreinum.
Allir viðburðir á slíkum leikum fá at-
hygli en kastljósið beinist yfirleitt
mest að þessum greinum. Á Vetraról-
ympíuleikunum í Calgary í Kanada
varð raunin þó önnur en samkvæmt
upprifjunum fjölmiðlafólks við ýmis
tækifæri var einna mest athygli á
keppni í kvennaflokki í listdansi á
skautum. Beðið var með mikilli eft-
irvæntingu eftir baráttu þeirra Kat-
arinu Witt og Debi Thomas. Þessir
keppinautar gátu vart komið frá ólík-
ari ríkjum. Witt frá AÞýskalandi og
Thomas frá Bandaríkjunum.
Katarina Witt sló í gegn fyrir al-
vöru þegar hún varð Ólympíu-
meistari í Sarajevo í Bosníu árið 1984
sem þá hét Júgóslavía. Hafði hún þá
betur gegn Rosalyn Sumners frá
Bandaríkjunum sem fyrir fram var
talin sigurstranglegust. Árið 1984 var
Witt handhafi allra stóru titlanna.
Var Ólympíu-, Evrópu- og heims-
meistari í greininni. Í lok árs var hún
kjörin íþróttakona ársins í A-
Þýskalandi sem var talsverður heiður
því A-Þjóðverjar áttu fjölda heimsk-
lassaíþróttakvenna í mörgum grein-
um, til dæmis í frjálsum. Enda var
lagt upp með að ná árangri í íþróttum
á alþjóðvettvangi í A-Þýskalandi.
Ástæða þess að Debi Thomas var
talin eiga möguleika á gullinu í Calg-
ary var sú að sú bandaríska hafði
slegið Witt við á heimsmeist-
aramótinu í Genf í Sviss árið 1986.
Bandaríkin tefla oft fram sterku fólki
í skautadansinum og því var vafalaust
pressa á Thomas þótt meiri kröfur
hafi verið gerðar til Witt eftir mikla
velgengni árin á undan. Fjölmiðlaum-
fjöllunin um þær tók einnig mið af því
að þær notuðust báðar við tónlist í æf-
ingum sínum úr óperunni Carmen
eftir Bizet. Fyrir vikið fjölluðu fjöl-
miðlar í enskumælandi löndum um
samkeppnina á milli þeirra sem
Battle of the Carmens fyrir leikana í
Calgary.
Evrópumeistari sex ár í röð
Katarina Witt fæddist hinn 3. des-
ember 1965 og ólst upp í Karl Marx
Stadt í austurhluta Þýskalands sem í
dag heitir Chemnitz. Hún byrjaði að
skauta 5 ára gömul og gekk í fram-
haldinu í skóla sem ætlaður var börn-
um sem hefðu mikla íþróttahæfileika.
Þar tók við henni reyndur þjálfari,
Jutta Müller, sem sjálf hafði keppt á
skautum. Hún átti eftir að fylgja Witt
Vann 12 af 13 stórmótum
Katarina Witt sló í gegn í Sarajevo en áratug síðar geisaði þar borgarastyrjöld
Sögustundin
Áður hefur verið fjallað um:
John Daly, Wayne Gretzky,
Mike Powell, Mark Spitz, Nadiu
Comaneci, Hermann Maier,
Önu Fideliu Quirot, Ben John-
son, Charles Austin, Alberto
Juantorena, Helmuth Ducka-
dam, Matti Nykänen, Jack
Nicklaus, Heysel-harmleikinn,
Ben Crenshaw, David Beck-
ham, Milfred „Babe“ Didrik-
son, knattspyrnulandslið N-
Kóreu 1966 og Alsírs 1982, Ed-
die Eagan, Roberto Clemente,
Larisu Latininu, Tórínó-
flugslysið, Jarmilu Kratochví-
lóvá , Martinu Navratilovu og
Wilt Chamberlain.