Morgunblaðið - 11.04.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2020
Þeir sem fara á Laugaveginnþessa dagana sjá mikla breyt-
ingu frá því sem var fyrir fáein-
um mánuðum, jafnvel vikum. Er-
lendu ferðamennirnir sem áður
settu mikinn svip á
götuna eru svo að
segja horfnir og Ís-
lendingar eru lítið
á ferðinni. Það
kemur þess vegna
ekki á óvart að
kaupmenn við
Laugaveg beri sig enn verr en áð-
ur og kalli eftir því að borgin
bregðist við.
Nú dettur vitaskuld engum íhug að borgin beri ábyrgð á
því að ferðamenn hafa horfið, en
borgin gæti engu að síður gert
sitt til að minnka höggið sem
Laugavegurinn hefur orðið fyrir.
Ein augljós leið er að snúa viðþeim kafla götunnar þar sem
nú er ekið á móti umferðarstefn-
unni og fjarlægja þær lokanir sem
eru neðar á Laugaveginum.
Rökstuðningurinn fyrir lok-ununum hefur verið að gefa
gangandi fólki aukið rými, en í
fámenninu er engin ástæða til
þess. Um það hljóta allir að geta
verið sammála, líka þeir sem við
venjulegar aðstæður styðja lok-
anir.
Borgin hefur, líkt og ríkið ogönnur sveitarfélög, kynnt að-
gerðir til að létta fólki og fyrir-
tækjum róðurinn á þessum erfiðu
tímum. Það að opna Laugaveginn
og aðrar götur miðbæjarins, þó
ekki væri nema tímabundið, kost-
ar ekkert en mundi styðja kaup-
menn í miðbænum.
Er nokkuð sem mælir á mótiþví að stíga slíkt skref nú?
Er hægt að hafna
ókeypis aðgerð?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Tryggingafélagið Vörður hefur
ákveðið að lækka iðgjöld allra trygg-
inga einstaklinga og heimila í maí-
mánuði um 33%. Rekja má lækkunina
til færri tjónatilkynninga í mánuðin-
um sökum áhrifa og útbreiðslu kór-
ónuveirunnar. Þetta segir Guðmund-
ur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar, í
samtali við Morgunblaðið. Mun lækk-
unin ná til liðlega 55 þúsund við-
skiptavina Varðar, en lögð er áhersla
á að hún nái til allra einstaklinga í við-
skiptum hjá fyrirtækinu.
Að sögn Guðmundar hefur veruleg
breyting orðið á tjónamynstri fólks
allt frá því að kórónuveiran fór fyrst
að gera vart við sig hér á landi. „Fólk
er mikið til heima hjá sér og það
breytir tjónamynstrinu. Við erum al-
mennt að sjá færri tjón,“ segir Guð-
mundur og bætir við að af þeim sök-
um hafi verið ákveðið að bjóða jafna
lækkun í öllum flokkum er varða
tryggingar heimilisins. „Við metum
það þannig að samsetning á heimilis-
haldi fólks sé mjög misjöfn í dag. Þó
að flestir séu t.d. með bíla þá á það
ekki við um alla. Á meðan við erum að
sjá aðstæðurnar ná til fleiri flokka þá
finnst okkur ekkert því til fyrirstöðu
að bjóða lækkun þar,“ segir Guð-
mundur.
Spurður hvort gera megi ráð fyrir
sambærilegri lækkun næstu mánuði
segir Guðmundur að meta verði stöð-
una þegar þar að kemur. „Þetta er
fordæmalaust ástand þannig að við
verðum að sjá hvernig málin þróast.
Við munum fylgjast grannt með stöð-
unni,“ segir Guðmundur ennfremur.
aronthordur@mbl.is
Vörður lækkar iðgjöld um 33%
Lækka iðgjöld trygginga einstaklinga og heimila Tjónamynstur hefur breyst
Pétur Steingrímsson sá lamba-
kóng og lambadrottningu á göngu
sinni á Heimaklett í Vest-
mannaeyjum í fyrradag, og lýsir
hann því sem sannkölluðum vor-
boða.
„Ég fór þarna upp eftir hádegi í
gær [fyrradag], ég var búinn að
sjá þá að heiman,“ sagði hann.
Um var að ræða svartan hrút og
hvíta gimbur, sem fæddust á
fimmtudagsmorgun.
„Mér fannst gimbrin voðalega
falleg, snjóhvít með svarta hringi í
kringum augun. Það var eins og
hún væri með Ray-ban gleraugu í
sólskininu úti,“ sagði hann og bæt-
ir við að um 50 manns hafi gengið
á klettinn þann daginn, bæði stór-
ir og smáir og ungir sem aldnir.
„Það var nánast allt fallegt og
gott við daginn, sól og blíða og
kórónuveiran á undanhaldi, von-
andi,“ sagði hann í pistli á Face-
book eftir gönguna góðu.
„Ég klappaði greyjunum og
mamman var ekkert sérstaklega
ánægð með það. Þær eru vanalega
ekki ánægðar með að við séum að
vesenast í lömbunum,“ sagði hann.
Ljósmynd/Pétur Steingrímsson
Gimbur Hvít og baugótt gimbur lét fara vel um sig á Heimakletti í Eyjum.
Sá tvo litla vorboða á
Heimakletti í Eyjum
Hvít gimbur og svartur hrútur á gangi