Morgunblaðið - 11.04.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.04.2020, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2020 Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is Þú finnur gæðin! Skoðaðu úrvalið í netverslun isleifur.is á flugstöðinni verði flughlaðið á Ak- ureyrarflugvelli stækkað til að koma á móts við aukin umsvif og öryggi vallarins. Áætlað er að við báðar þessar framkvæmdir verði til um 90 ársverk, í hönnunar- og verktaka- vinnu. Fram kemur í skýrslunni að þeir verkþættir sem hægt er að byrja á þegar á þessu ári séu hönnun, færsla olíutankanna og jarðvinna. Kostn- aður við þessi verk er áætlaður 170 milljónir án VSK. Vegna óvissu um eiginleika bygg- ingarsvæðisins og hugsanlegs sig- tíma jarðvegsfyllingarinnar sé mik- ilvægt að hefja jarðvinnuna sem fyrst. Byggingartími frá því lóðin er tilbúin er metinn á annað ár. Um Akureyrarflugvöll fóru 168.212 farþegar í innanlandsflugi og 16.050 í millilandaflugi árið 2019. Áform eru uppi meðal íslenskra að- ila um að hefja reglubundið áætl- unarflug til þriggja borga Evrópu um Akureyrarflugvöll, að því er fram kemur í skýrslunni. Miðað við hóflega nýtingu og fjórar ferðir í viku allt árið megi reikna með að farþegafjöldi um flugstöðina myndi aukast um 45-60.000 manns. Verið er að vinna könnun á heimamarkaði til að átta sig betur á eftirspurn heimafyrir. Líkur voru taldar á að hægt væri að hefja flug í október- mánuði 2020 en um það er vissulega óvissa vegna veirufaraldursins. Kynna áfangastaðina Isavia mun á næstu 36 mánuðum leggja áherslu á að kynna áfanga- staðinn Norðausturland sem eina heild og flugvellina á Akureyri og Egilsstöðum sem tvo möguleika á beinu aðgengi að þessum helmingi landsins. Veittur verður verulegur afsláttur af flugvallargjöldum fyrstu þrjú árin. Flugfélög verða m.a. hvött til að skoða möguleika á að nýta næturflug. Flugstöðin á Akureyrarflugvelli var vígð 2. desember 1961. Síðan hefur hún verið stækkuð og endur- bætt nokkrum sinnum til að mæta fjölgun farþega og auknum kröfum varðandi flug. Stækkun var m.a. óhjákvæmileg þegar millilandaflug hófst og aðskilja þurfti það frá inn- anlandsflugi. Jafnframt var sett upp fríhöfn. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Akureyrarflugvöllur Flugstöðin er að stofni til frá 1961 en byggt hefur verið við hana. Viðbyggingin verður norðanmegin og því þarf að færa olíutankana. Langþráð stækkun flugstöðvar Tölvumynd/AVH  Ósk Akureyringa um stækkun flugstöðvarinnar er að verða að veruleika  Lagt er til að ráðist verði í hönnun 1.000 fermetra viðbyggingar  Hægt verður að afgreiða allt að 300 farþega samtímis Viðbyggingin Þannig hugsa arkitektarnir sér að viðbyggingin norðanmegin við flugstöðina muni mögulega líta út. BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Hafist verður handa innan tíðar við að stækka flugstöðina á Akureyri og stækka flughlað. Þetta er meðal framkvæmda sem ríkisstjórnin ætl- ar að leggja áherslu á að hefjist inn- an tíðar og er það hluti af viðleitni til að bregðast við efnahagslegum áhrifum vegna kórónuveirunnar. Nauðsynlegt er að byggja við flugstöðina á Akureyrarflugvelli til að geta veitt viðunandi þjónustu samtímis fyrir millilanda- og innan- landsflug. Þetta eru niðurstöður skýrslu aðgerðahóps sem sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra skipaði til að meta þörf fyrir aðstöðu og þjónustu í flugstöð á Akureyrar- flugvelli. Heimamenn hafa í áratugi kallað eftir bættri aðstöðu á Akureyrar- flugvelli. Nú er ósk þeirra loksins að rætast. Hópurinn telur núverandi flug- stöð vera of litla og aðstöðu ófull- nægjandi til að sinna hlutverki sínu til framtíðar. Lagt er til að ráðist verði í hönnun 1.000 fermetra við- byggingar svo hægt verði að af- greiða allt að 220 sæta millilandavél á innan við klukkutíma samhliða 70 sæta innanlandsvél. Áætla kostnað 900 milljónir Í skýrslunni er gert ráð fyrir við- byggingu norðan við núverandi flug- stöð og að hönnun hennar verði sveigjanleg til að hægt verði að stækka bygginguna eða breyta nýt- ingu einstakra svæða. Kostnaður er áætlaður um 900 milljónir króna og lagt er til að þegar í stað verði ráðist í hönnun, færslu olíutanka og jarð- vinnu þannig að byggingarfram- kvæmdir geti hafist strax að hönnun lokinni. Áætlað er að við fram- kvæmdir við viðbygginguna verði til um 50 ársverk. „Það er ánægjulegt að geta stigið mikilvægt og myndarlegt skref að frekari uppbyggingu á Akureyrar- flugvelli sem gátt inn til landsins,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra. Hann segir að á síðustu árum hafi verið unnið að því að efla Akureyrarflugvöll og að leng- ing flugbrautarinnar hafi verið fyrsta skrefið. Árið 2018 hafi síðan verið tryggt fjármagn fyrir aðflugs- búnað, ILS, sem þegar hafi sannað gildi sitt. Hann segir að samhliða stækkun Iðnfyrirtækið Límtré Vírnet endurnýjaði á dögunum samn- ing við Fjölnet. Fyrirtækin hafa unnið náið saman síðan í janúar 2016. Fjölnet mun því áfram sjá um rekstur mið- lægra kerfa hjá fyrirtækinu ásamt notendaþjón- ustu, afritun og útstöðvarþjónustu. Límtré Vírnet er íslenskt iðnfyr- irtæki og byggist starfsemin á margreyndum framleiðsluferlum. Starfsfólk fyrirtækisins er einnig með áratuga starfsreynslu við framleiðslu og sölu á gæðavörum fyrir íslenskan byggingariðnað. Fjölnet hefur starfað í rúm 20 ár í upplýsingatækni og sérhæfir sig í hýsingu og rekstri tölvukerfa auk þess að bjóða upp á alhliða tölvu- þjónustu, ráðgjöf og kennslu. Samstarf Fyrir- tækin halda áfram samstarfi. Límtré og Fjölnet endurnýja samning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.