Morgunblaðið - 11.04.2020, Síða 41

Morgunblaðið - 11.04.2020, Síða 41
einu sinni að koma boltanum fram yf- ir miðju á tíu sekúndum og liðið skor- aði ekki í fjórar mínútur. Svo fór að Jordan skoraði um 40 stig í leiknum og tveggja stiga forskotið varð að tuttugu og fimm stiga tapi. Garnett segist aldrei aftur hafa sagt styggð- aryrði við Jordan á ferlinum. „Farðu varlega“ Þriggja stiga skyttan Reggie Mill- er var umtalaður fyrir að láta dæluna ganga á vellinum. Sem nýliði mætti hann Jordan í æfingaleik fyrir tíma- bilið með Indiana Pacers en Jordan var á fjórða ári í deildinni. „Reyndir leikmenn hafa takmark- aðan áhuga á leikjunum á undirbún- ingstímabilinu og bíða eftir því að deildin hefjist. Jordan var á sjálfstýr- ingu en ég var æstur nýliði og blautur á bak við eyrun. Chuck Person [leik- maður Indiana] segir við mig: Þessi Michael Jordan á að geta gengið á vatni og það eru allir að tala um hann. Þú ert að slátra honum, Reggie. Ég tók þetta á lofti og fór að segja eitt og annað við Jordan. Hann horfði á mig og hristi höfuðið en að loknum fyrri hálfleik var ég með 10 stig en hann aðeins 4 stig. Hann skoraði 44 stig í leiknum þegar upp var staðið og ég með 12 stig. Á milli okkar fór seinni hálfleikur því 40:2. Í leikslok sagði Jordan við mig: Farðu varlega. Svona talarðu ekki við hinn svarta Jesú. Miller segist aldrei hafa sagt neitt við Jordan á vellinum það sem eftir var ferilsins. Frá þessu sagði hann í sjón- varpsþætti Jimmy Kimmel. Frammistaðan gegn Atlanta Dominique Wilkins var helsta stjarna Atlanta Hawks um árabil. NBA-spekingar kannast við að Jor- dan skoraði 61 stig gegn Atlanta í Chicago tímabilið 1986-87. Lið Atl- anta var mjög sterkt en lið Chicago var ekki orðið nógu sterkt á þeim tíma til að slá bestu liðunum við í úr- slitakeppninni. Nýlega rifjaði Wilkins það upp að fyrir umræddan leik sátu hann og Kevin Willis í búnings- herberginu í höllinni í Chicago og voru enn í jakkafötunum. Jordan kom inn í klefann og þeir félagar horfðu forviða á hann. Wilkins segir að þetta sé í eina skiptið sem hann hafi séð leikmann andstæðinganna koma inn í búningsklefann fyrir leik. Jordan sagði við þá: „Þetta verður langt kvöld fyrir ykkur.“ Svo fór að Atlanta vann með þriggja stiga mun í venjulegum leik- tíma og Jordan skoraði 61 stig eins og áður segir. Andlegur styrkur engu líkur Michael Jordan dró sig tvívegis í hlé í íþróttinni og snéri aftur. Í seinna skiptið lék hann tvö tímabil með Washington Wizards, liði sem hann hafði keypt, og var þá 39 og 40 ára. Þá hafði hann ekki spilað í þrjú ár og var auk þess lélegur í öðru hnénu. Ein ástæða þess að stundum er talað um Jordan sem aðra dýrategund er sú að síðasta árið lék hann alla 82 leiki Washington, 37 mínútur að meðaltali og skoraði 20 stig að meðaltali yfir tímabilið. Doug Collins var þjálfari Wash- ington og hafði þjálfað Jordan um tíma hjá Bulls. Í leik á móti Indiana tók hann Jordan út af. Liðið var tölu- vert undir og Collins sagði Jordan að hann vildi hvíla hann. Margir leikir væru framundan. Hann vissi ekki að Jordan hafði skorað 8 stig í leiknum og var það í fyrsta skipti í mörg hundruð leikjum þar sem Jordan náði ekki tveggja stiga tölu í stigaskorun. Í rútunni á leið út á flugvöll spurði Jor- dan hvort Collins hefði enn trú á því að hann væri samkeppnishæfur sem leikmaður. Collins sagði svo vera. Tvímælalaust. Jordan sagði eitthvað á þá leið að ákvörðunin um að taka sig út hefði verið rétt og honum stæði á sama hversu mörg stig hann skoraði. En hann þyrfti einungis að fullvissa sig um að þjálfarinn hefði enn trú á honum, fertugum manninum. Michael fékk sér nokkra áfenga drykki í fluginu heim og fékk sér vindil eftir að vélin lenti að sögn Coll- ins. Gerði í raun allt sem leikmenn ættu ekki að gera. Klukkan var orðin 3:30 um nóttina þegar liðsmenn Washington skiluðu sér heim eftir ferðalagið. Klukkan 7:30 morguninn eftir var Jordan mættur á æfingu hjá styrktarþjálfaranum og var hraust- lega tekið á. Kvöldið eftir mætti Washington liði New Jersey Nets og Jordan skoraði 51 stig. Í næsta leik á eftir skoraði Jordan 46 stig og sagði þá við Collins: Ég sagði þér að ég gæti enn spilað. „Ég var frá mér numinn yfir því sem þessi maður gat framkvæmt á þessum aldri, með slæmt hné og hafði skorið sig á fingri ofan á allt annað. Andlegi styrkurinn var engu líkur.“ Lét gott heita eftir 1. leikhluta Grant Hill viðurkenndi að hann hefði ætlað sér að ná alvöru frammi- stöðu gegn Jordan á síðasta tímabili Jordans með Washington. Nú væri lag þegar maðurinn væri orðinn fer- tugur. „Við mættum þeim í Orlando og mér gekk virkilega vel í vörninni. Ég varði til dæmis þrjú skot frá honum. Við mættum þeim aftur í Washington um mánuði síðar og þá var ég meidd- ur á ökkla. En þetta var síðasta tæki- færið til að spila gegn Jordan og ég gaf því kost á mér. Egóið fór illa með mig því ég hélt að ég gæti haldið aftur af honum vegna þess að mér gekk vel gegn honum mánuði áður. Hann skoraði 20 stig gegn mér í fyrsta leik- hlutanum. Að leikhlutanum loknum fékk ég mér ekki sæti á bekknum heldur fór bara inn í búningsklefa og í sturtu. Tveimur dögum síðar fór ég í aðgerð á ökklanum,“ sagði Hill. REUTERS Reiður? Ekki var heppilegt að æsa þennan mann upp þegar hann var upp á sitt besta með Chicago Bulls. ÍÞRÓTTIR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2020 Þótt heimsbyggðin glími við stöðu þar sem um líf og dauða er að tefla þá virðast ýmsir í íþróttahreyfingunni erlendis vera með hugann við að ljúka keppnistímabilinu 2019-2020. Knattspyrnusamband Evrópu hefur að manni skilst sett talsverða pressu á að leikir verði spilaðir í deildakeppnum til að hægt sé að ljúka keppnum. Að öðrum kosti eiga þá aðildar- löndin að skera úr um niðurstöð- una. Hverjir verða meistarar, hvaða lið fara á milli deilda o.s.frv. NBA-deildin er að skoða að ljúka tímabilinu í einni borg og svipaðar hugmyndir eru á fundarborðinu hjá forystu- mönnum Euroleague, sterkustu Evrópukeppni félagsliða í körfu- knattleiknum. Þessir tilburðir eru vafalítið til- komnir vegna hinna fjárhagslegu hagsmuna sem fylgja greiðslum vegna sjónvarpsútsendinga og því hvaða lið fara í Evrópukeppni á næsta tímabili. Enski heimspekingurinn og renaissance-maðurinn Francis Bacon sagði: Peningar eru góður þjónn en harður húsbóndi. Manni virðist nú sem peningarnir séu orðnir húsbóndinn í þessum keppnum en ekki þjónninn. Er það frekar undarleg tilhugsun að menn vilji setja íþróttamenn- ina og ýmsa aðra í smithættu þegar kórónuveiran er illviðráð- anleg víða í heiminum. Einnig geta komið upp ýmis flækjustig, til dæmis ef veiran stingur sér niður í herbúðum ein- hverra liða. Hvernig á að nálgast slíka stöðu? Eru ekki sanngirn- issjónarmið þá fokin út í veður og vind? Eða yrði slíkt bara af- greitt eins og meiðsli? BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Handknattleiksdeild Vals hefur framlengt samninga sína við nokkra lykilmenn í meistaraflokks- liðunum. Ber þar hæst að landsliðskonan Lovísa Thompson gerði tveggja ára samning. Ragnhildur Edda Þórðar- dóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir sömdu einnig. Magnús Óli Magnússon og Ró- bert Aron Hostert framlengdu samninga sína um tvö ár, en þeir voru á meðal bestu leikmanna liðs- ins sem varð deildarmeistari síð- asta mánudag. sport@mbl.is Blek sett á blað á Hlíðarenda Morgunblaðið/Eggert Samdi Lovísa Thompson var nánast óstöðvandi á tímabilinu. Sir Kenny Dalglish, fyrrverandi leikmaður og knattspyrnustjóri Liverpool á Englandi, hefur verið greindur með kórónuveiruna. Var hann lagður inn á sjúkrahús síðast- liðinn miðvikudag. Fram að því hafði hann verið í sjálfskipaðri sóttkví, en Skotinn er 69 ára. Norman Hunter, einn af leikja- hæstu leikmönnum Leeds United, sem var í leikmannahópi enska landsliðsins í knattspyrnu þegar það varð heimsmeistari árið 1966, liggur einnig á sjúkrahúsi með kór- ónuveiruna. sport@mbl.is Gamlar kempur sýktar af veirunni Reuters Sýktur Skotinn Kenny Dalglish er á sjúkrahúsi með kórónuveiruna. Breytingar hafa orðið á þjálf- arateymi KA í handknattleik karla en Jónatan Magnússon verð- ur einn aðalþjálf- ari liðsins og hon- um til aðstoðar verður Sverre Andreas Jak- obsson, fyrrver- andi landsliðs- og atvinnumaður. Þeir Jónatan og Stefán Árnason þjálfuðu saman liðið í vetur en Stef- án, sem tók við liðinu 2017, hefur stigið til hliðar. Hann verður áfram yfir afreksstarfi handknattleiks- deildarinnar en Sverre, sem þjálfaði ungmennalið KA, stígur nú upp í meistaraflokk. Sverre lék um árabil með landslið- inu, var m.a. í silfurliðinu á Ólympíu- leikunum í Peking 2008 og bronslið- inu á EM í Austurríki 2010. Hann lék lengi í Þýskalandi með Gum- mersbach og Grosswallstadt en einnig með KA, Akureyri, HK, Fram og Aftureldingu. Hann þjálf- aði lið Akureyrar í þrjú ár en hefur síðan starfað hjá KA. Liðið var í 10. sæti Íslandsmótsins þegar keppni var aflýst vegna kór- ónuveirunnar, með 11 stig eftir 20 umferðir. Sverre verður Jónatan til aðstoðar Sverre Andreas Jakobsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.