Morgunblaðið - 11.04.2020, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 11.04.2020, Qupperneq 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2020 TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Safnið ber titillinn Syngdu eitthvað gamalt!, titill sem Megas átti hugmyndina að sjálfur. Þar sem ég hjólaði á skrifstofuna mína í morgun fór ég í gegnum það í huganum hvernig ég ætti að bera mig að á þessum tímamótum. Hvað er hægt að segja um Meg- as? Höfundur er á þeim aldri að hann missti af því þegar Megas sprengdi allt upp á átt- unda áratugnum og setti fram ný viðmið og nýja hugsun gagnvart því hvað hægt væri að gera í gegnum popptónlist. Fluggáfaður mað- urinn var vel að sér í menningar- sem bók- menntasögu landsins en virtist um leið ekki bera mikla virðingu fyrir þessum hlutum eða öllu heldur, nálgaðist þá á ferskan máta, ræddi um hluti tæpitungulaust og án nokk- urrar skinhelgi. Sem er óneitanlega kerskið, því að þannig nálguðust margir Megas þegar ég var að slíta unglingsskóm og gera margir enn. „Venjulega“ fólkið afskrifaði hann sem vitleysing á meðan menntaelítan snobbaði fyrir honum af miklum móð og þegar kom að því að tjá sig um hann opinberlega voru bara stífkrumpaðir bókmenntafræðingar með orð- ið. Nei, ég þurfti að finna út úr þessu sjálfur. Það varð mér til gæfu að ég var sendur út í Skálholt árið 2001 til þess að taka viðtal við hann, sæmilega blautur á bak við eyrun. Hann ætlaði að flytja Passíusálmana daginn eftir (sem og hann gerði). Viðtalið var ágætt en seinna um daginn hringdi hann í mig og hrósaði mér fyrir góða söguþekkingu og ís- lenskukunnáttu. Ég held svei mér þá að þetta sé mesta hrós sem ég hef öðlast á ferlinum. Ég rýndi seinna í upptökurnar frá tónleik- unum og sagði þetta m.a.: „Brennandi áhugi Megasar fyrir sálmunum er auðheyranlegur í svo gott sem hverri línu sem hann syngur. Hann ygglir sig af ástríðu er við á en við hef- ur blíðmælgi þegar það er við hæfi.“ Þessar upptökur eru hreint út sagt stórkostlegar, get ég sagt ykkur (Tindur/Íslenskir tónar gáfu út á geisladiski árið 2006). Vegna afmælisins sem ég minntist á í upphafi er komið út gerðarlegt safn. Ég hef verið að handleika vínylútgáfuna undanfarna Komdu og skoðaðu í kistuna mína … Morgunblaðið/Einar Falur Öndvegismenn Megas á Austurvelli fyrir átta árum, Jón forseti fylgist með myndatökunni. daga og mikið sem þetta er aðlaðandi pakki. Það er ekki sama hvernig þetta er gert. Það er svona hrár bragur yfir sem er virkilega að gera sig. Ekkert pjatt, bara beint af kúnni og það virkar. Leturgerðin er stórkarlaleg og hvöss og það er eiginlega „pönk“-blær yfir þessu. Ljósmyndin er eftir Harald S. Blöndal, þann sama er tók myndina af Megasi á fyrstu plötunni hans. Hallgrímskirkja í byggingu aftan við, þvílík táknfræði! Pappírinn er gróf- kenndur, umslagið með þykkum kili og já, vínylnördar vita upp á hár hvað ég er að segja. Hönnuður er Sverrir Örn Pálsson, inn- anbúðarmaður hjá Öldu (og gamall nemandi minn líka!). Merkilegt að lagasafnið er dálítið í þessum anda líka. Ég rúllaði safninu öllu á sunnudagseftirmiðdegi og þvílík dásemd. Það er hressilegur bragur yfir, get ekki orðað það öðruvísi, þar sem hver slagarinn rekur ann- an. Fókus er á stutt lög og snaggaraleg finnst manni, lögin glefsa í mann og klófesta og maður týnist einfaldlega í stemningu. Upp- röðunin er slík að þetta er safnið sem þeir sem vita ekkert um manninn ættu að hlusta á. Staða Megasar í íslenskri tónlistarmenn- ingu er sterk og eftir 200 ár mun fólk sjá að hann var einfaldlega „maðurinn“. Það er ekki að ósekju að honum sé líkt við goðsagnir eins og Gainsbourg og Dylan. Megas er alltaf á jaðrinum en um leið algerlega miðlægur einhvern veginn. Meistari Megas fagnaði 75 ára afmæli í vikunni, nánar tiltekið hinn 7. apríl. Alda gefur út bústna safnplötu af því tilefni, á vínylplötum, geisladiskum og að sjálfsögðu á streymisveitum. Afmælisútgáfa Platan góða sem gefin hef- ur verið út í tilefni af 75 ára afmæli Megasar. Alls voru á þriðja tug gamanmynda sendar inn í 48 stunda gaman- myndakeppnina sem Gaman- myndahátíð Flateyrar og Reykjavík Foto standa fyrir og eru þær nú all- ar aðgengilegar á heimasíðu Gaman- myndahátíðar Flateyrar, www.Icel- andComedyFilmFestival.com. Þema myndanna er „heppni/óheppni“ og eiga allar myndirnar sameiginlegt að hafa verið gerðar á tveimur sólar- hringum að hámarki. Áhorfendur geta nú kostið um fyndnustu gam- anmyndina og hlýtur sigurvegarinn Canon-myndavél frá Reykjavík Foto í verðlaun. Allir þátttakendur fá há- tíðararmband á Gamanmyndahátíð Flateyrar sem verður haldin í fimmta sinn í ágúst. Í tilkynningu kemur fram að keppendur voru á öllum aldri og frá öllum landshlutum, allt frá börnum að stíga fyrstu skref sín í kvik- myndagerð yfir í reyndari kvik- myndagerðarmenn. Þátttaka var umfram væntingar skipuleggjenda og segja þeir virkilega gaman að sjá hversu fjölbreyttar og skemmtilegar myndirnar eru. „Þá var einnig gam- an að heyra sögurnar á bakvið myndirnar þar sem heilu fjölskyld- urnar gleymdu Covid um stund og eyddu helgi saman í gamanmynda- gerð,“ segir í tilkynningunni. Kosningu um fyndnustu myndina líkur 20. apríl og hægt er að horfa á myndirnar og kjósa þá sem þykir fyndnust á slóðinni icelandcomedy- filmfestival.com/48-stunda- gamanmyndakeppni. Tækifæri Úr gamanmyndinni Stóra breikið sem er ein þeirra sem sendar voru inn í keppnina. Kosningu um fyndnustu myndina lýkur 20. apríl. Kosið um þá fyndnustu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.