Morgunblaðið - 29.04.2020, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 29.04.2020, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 9. A P R Í L 2 0 2 0 Stofnað 1913  100. tölublað  108. árgangur  ÁTAKANLEGIR HEIMILDAR- ÞÆTTIR SVIGRÚMIÐ ORÐIÐ AÐ SPENNITREYJU LÁGSTEMMD RÖDD ÍSLENSKR- AR TUNGU VIÐSKIPTAMOGGIN LJÓÐ Í SJÓNVARPINU 11MÆLT MEÐ Í BANNI 29 A ct av is 91 10 13 Omeprazol Actavis 20mg, 14 og 28 stk. Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka- verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Útlit er fyrir að hópuppsagnir fyrirtækja í ferðaþjónustu og fleiri greinum nú um mán- aðamótin og þau næstu nái til þúsunda starfs- fólks, jafnvel á annan tug þúsunda. Stærsta ein- staka uppsögnin er hjá Icelandair þar sem rúmlega 2.000 starfsmenn fá uppsagnarbréf fyrir mánaðamót. Er það meirihluti starfsfólks fyrirtækisins því eftir eru 1.300 starfsmenn. Ríkisstjórnin kynnti í gær þriðja aðgerða- pakka sinn vegna afleiðinga kórónuveirunnar. Í honum felst meðal annars að svokölluð hluta- starfaleið er framlengd í breyttri mynd út ágúst. Þar gefst fyrirtækjum tækifæri til að lækka starfshlutfall starfsfólks og ríkið greiðir atvinnuleysisbætur á móti. Í aðgerðunum er einnig kveðið á um að fyrirtæki sem orðið hafa fyrir miklu tekjufalli geti sótt um að ríkið greiði laun starfsfólks á uppsagnarfresti að ákveðnu marki. Áætlað er að aðgerðirnar kosti ríkið 40- 60 milljarða. Lítill hluti starfsmanna eftir Báðar leiðirnar gagnast ferðaþjónustunni og sú síðarnefnda getur losað fyrirtækin úr ákveð- inni klípu og hjálpað þeim að leggjast í dvala og fara í fjárhagslega endurskipulagningu. Um 3.400 starfsmenn eru nú hjá Icelandair, eftir að 240 var sagt upp fyrir mánuði, og fá rúmlega 2.000 þeirra uppsagnarbréf nú fyrir mánaðamótin. Þeir rúmlega 1.300 starfsmenn sem áfram starfa hjá félaginu eru langflestir í skertu starfshlutfalli og aðrir í fullu starfi með skert laun. Fari fram sem horfir að lítið flug verði í sumar má sjá að samdrátturinn í starfs- mannahaldi er mun meiri en þessar tölur segja til um því að á síðasta ári voru að meðaltali 4.715 starfsmenn hjá Icelandair. Munurinn kemur til af því að starfsmönnum hefur fjölgað mjög á sumrin. Uppsagnirnar hjá Icelandair ná til allra hópa en hafa þó mest áhrif á störf beintengd fram- leiðslu, svo sem áhafnir, viðhaldsþjónustu og starfsfólk í flug- og farþegaþjónustu. Áætla má að laun á uppsagnarfresti þessa eina félags kosti ríkið hátt í 4 milljarða. Óumflýjanleg aðgerð „Það er stórt skarð höggvið í starfsmanna- hópinn en við vonum að þetta vari stutt og við fáum allt fólkið okkar aftur inn,“ segir Vala Ólöf Kristinsdóttir, varaformaður Staff, félags starfsmanna hjá Icelandair. „Ég tel að staðan sé sú að þau fyrirtæki sem orðið hafa fyrir þeim mikla tekjusamdrætti sem við setjum mörkin við séu á þeim stað að óraun- sætt sé að halda að hlutastarfaleiðin ein og sér myndi nýtast fyrirtækjum sem enga starfsemi hafa,“ segir Ásmundur Einar Daðason félags- málaráðherra þegar hann er spurður hvort sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar að greiða laun á uppsagnarfresti stuðli ekki að meiri uppsögn- um en ella hefði orðið. Hann segir að ýmis skilyrði verði sett fyrir þessari leið, meðal annars um að endurgreiðsla á þessum fjármunum verði forgangskrafa ef illa fer í rekstri fyrirtækis. „Ég tel að þetta hafi verið óumflýjanlegt, til að tryggja stöðu laun- þega og hjálpa fyrirtækjunum að leggjast í híði. Ef fyrirtækin hefðu orðið gjaldþrota hefði kostnaðurinn hvort sem er fallið á ábyrgðarsjóð launa,“ segir Ásmundur. Þúsundir missa vinnuna  Icelandair segir upp rúmlega 2.000 af 4.300 starfsmönnum sínum  Ríkið greiðir 4 milljarða króna  Ríkisstjórnin framlengir hlutastarfaleið og greiðir laun tekjulítilla fyrirtækja á uppsagnarfresti  Ferðaþjónustufyrirtæki undirbúa uppsagnir þúsunda starfsmanna og stefna að því að leggjast í híði M Uppsagnir »4,6 Ljósmynd/Emil Georgsson Aðgerðalausar við flugstöðina Sáralítil verkefni eru fyrir flugflota Icelandair þessa mánuðina. Félagið á tugi þotna og stóð hluti þeirra á þessu svæði við Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gær. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hópuppsögnin hjá Icelandair er lík- lega sú stærsta í sögu landsins, að sögn Karls Sigurðssonar, sérfræðings hjá Vinnumálastofnun. Um tvö þúsund manns misstu vinn- una hjá flugfélaginu í gær. Sá fjöldi jafnast á við fjölda upp- sagna í mannvirkjagerð haustið 2008 en þá hrundi eftirspurn í íslenskum byggingariðnaði eftir mikil vaxtarár. Á það má benda að Icelandair er ekki láglaunafyrirtæki og mun niður- skurðurinn án efa hafa mikil áhrif á innkomu fjölda heimila. Það hefur aft- ur óbein efnahagsáhrif. Stórt í sögulegu samhengi Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun náðu alls 11 hóp- uppsagnir til fleiri en 100 starfsmanna á Íslandi árin 2009-2019. Alls var þá sagt upp um 1.660 starfsmönnum. Uppsögnin hjá Icelandair nær ein og sér til töluvert fleiri starfsmanna. Þá má nefna til samanburðar að samtals um 640 manns var sagt upp hjá Landsbankanum, Kaupþingi og Glitni árið 2008. Þrefalt fleiri var sagt upp hjá Icelandair í gær. Kjartan Már Kjartansson, bæjar- stjóri Reykjanesbæjar, segir upp- sagnirnar „rosalegt högg“. Við fyrstu sýn megi áætla að nokk- ur hundruð af þessum tvö þúsund starfsmönnum búi í Reykjanesbæ. Hann bindi vonir við að góður hluti þeirra muni fái vinnu aftur á næstu mánuðum, þegar alþjóðaflugið byrjar smám saman að aukast á ný. Höggið á bæjarsjóð komi þegar uppsagnar- fresti og rétti til atvinnuleysisbóta lýk- ur. »6 Langstærsta hópuppsögnin  Sérfræðingur telur hópuppsagnir hjá Icelandair þær umfangsmestu í sögunni  Um þrefalt fleiri misstu vinnuna en hjá stóru bönkunum í efnahagshruninu 1.657 manns sagt upp 2.000 manns sagt upp Fjöldi starfsmanna í hópuppsögnum Hópuppsagnir 2009-2019 samtals Icelandair í apríl 2020 Þar sem 100 eða fleiri er sagt upp Heimild: VMST

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.