Morgunblaðið - 29.04.2020, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2020
29. apríl 1920
Íslenskir íþróttamenn vinna til
verðlauna á Ólympíuleikum í
fyrsta skipti, enda þótt þeir
séu reyndar ríkisborgarar
annars lands. Það eru Fálk-
arnir frá Winnipeg sem sigra í
íshokkíkeppni leikanna í Ant-
werpen í Belgíu fyrir hönd
Kanada en allir leikmanna
þeirra nema einn eru af ís-
lenskum ættum. Þeir sigra
Bandaríkin 2:0 en aðra and-
stæðinga með miklum yfir-
burðum.
29. apríl 1967
Guðmundur Hermannsson
bætir eigið Íslandsmet innan-
húss í kúluvarpi þegar hann
kastar 17,20 metra á móti í
Reykjavík.
29. apríl 1990
Fram verður bikarmeistari
kvenna í handknattleik með
sigri á Stjörn-
unni 16:15 í úr-
slitaleik eftir
mikla spennu og
er liðið tvöfaldur
meistari. Horna-
maðurinn Ósk
Víðisdóttir er
markahæst hjá Fram með
fjögur mörk.
29. apríl 2001
Sundmaðurinn Örn Arnarson
er valinn í úrvalslið Evrópu
sem á að keppa á Friðarleik-
unum í Ástralíu um haustið og
mæta þar heimamönnum og
liði Bandaríkjanna. Þetta er í
fyrsta sinn sem íslenskur
sundmaður fær slíka útnefn-
ingu. Örn verður að afþakka
boðið vegna fyrirhugaðs náms
í Bandaríkjunum.
29. apríl 2006
Eiður Smári Guðjohnsen er
enskur meistari með Chelsea
annað árið í
röð þegar liðið
tryggir sér tit-
ilinn með sigri
á Manchester
United í topp-
slag liðanna á
Stamford
Bridge, 3:0. Þetta er sjötta og
síðasta tímabil Eiðs með Lund-
únaliðinu en hann spilar 26
leiki í úrvalsdeildinni um vet-
urinn.
29. apríl 2010
Snæfell verður Íslandsmeist-
ari karla í körfuknattleik í
fyrsta sinn í
sögu félagsins.
Bikarinn fór á
loft í Keflavík
þar sem Snæ-
fell sigraði
Keflavík
105:69 eftir
frábæra frammistöðu og liðið
stendur uppi sem tvöfaldur
meistari. „Ég get ekki lent
fjórum sinnum í 2. sæti og búið
við Silfurgötu,“ segir fyrirlið-
inn Hlynur Bæringsson við
Morgunblaðið. Þrívegis hafði
hann fengið silfur á Íslands-
mótinu og hafði nýlega fest
kaup á húsi við Silfurgötu í
Stykkishólmi. Hann skoraði 21
stig og tók 15 fráköst.
29. apríl 2015
Íslenska karlalandsliðið í
handknattleik rótburstar
Serbíu 38:22 í undankeppni
EM í Laugardalshöll. Guðjón
Valur Sigurðsson er marka-
hæstur með 12 mörk og Arnór
Þór Gunnarsson skorar níu.
„Það var feikilega mikill
kraftur í liðinu,“ segir Aron
Kristjánsson landsliðsþjálfari
við Morgunblaðið.
Á ÞESSUM DEGI
FÓTBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Rekstur KSÍ, knattspyrnu-
sambands Íslands, hefur verið
þungur undanfarnar vikur líkt og
annars staðar í þjóðfélaginu vegna
kórónuveirunnar.
Guðni Bergsson, formaður KSÍ,
tók á sig launalækkun vegna efna-
hagsástandsins sem skapast hefur
en knattspyrnusambandið fékk á
dögunum greiðslur frá Alþjóða-
knattspyrnusambandinu, FIFA,
sem og evrópska knattspyrnu-
sambandinu UEFA.
Greiðslan frá UEFA hljóðaði upp
á 685 milljónir íslenskra króna en
greiðslan frá FIFA nam um 74
milljónum króna. Guðni ítrekar hins
vegar að um fyrirframgreiðslur sé
að ræða sem KSÍ hefði, undir eðli-
legum kringumstæðum, fengið
greitt yfir allt að fjögurra ára tíma-
bil.
„Sérsamböndunum var boðið upp
á þessar fyrirframgreiðslur frá
UEFA og FIFA vegna ástandsins
sem skapast hefur vegna kórónu-
veirunnar ,“ sagði Guðni Bergsson,
formaður KSÍ, í samtali við Morg-
unblaðið. „Þetta eru tekjur sem
KSÍ reiðir sig algjörlega á þegar
kemur að öllum rekstri sambands-
ins. Þetta nýtist okkur meðal ann-
ars við allt mótahald, rekstur lands-
liðanna og fræðslustarf
sambandsins.
Við verðum að fara mjög varlega
í að nota þessa fjármuni enda um
framtíðartekjur sambandsins að
ræða. Það er búið að gera ráð fyrir
þessum tekjum í rekstaráætlun
KSÍ fram í tímann og það er eitt-
hvað sem við verðum að hafa í huga
þegar að við tökum við þessum fjár-
munum. Best væri að leita annarra
leiða við að leysa vandann og styðj-
ast við þá sjóði sem að fyrir eru.“
Stór hluti af tekjum KSÍ
Styrkur evrópska knattspyrnu-
sambandsins kemur í gegnum
UEFA HatTrick sjóðinn sem var
stofnaður árið 2004 og viðurkennir
Guðni að þessar tekjur séu stór
hluti af innkomu KSÍ.
„UEFA HatTrick framlagið er
stór hluti af okkar tekjupósti, það
er klárt mál. Það er gríðarlega mik-
ilvægt öllum okkar rekstri og í raun
lífsnauðsynlegt fyrir jafn lítið sam-
band og KSÍ er, á evrópskan mæli-
kvarða í það minnsta. Þetta er fyrst
og fremst afrakstur sjónvarpstekna
í gegnum landsliðiðin okkar.
Við höfum því tekið beinan þátt í
að skapa þessar tekjur og þetta eru
greiðslur sem dreifast alla jafna yf-
ir fjögurra ára tímabil og því þarf
að fara varlega í sakirnar með
þessa fjármuni og láta þá endast.“
Mikið högg fyrir félögin
Guðni ítrekar að ekki hafi verið
tekin nein ákvörðun um það hvern-
ig fjármununum verði almennt ráð-
stafað en vinna sé farin af stað um
hvað hægt sé að gera í stöðunni.
„Við höfum þegar veitt félögun-
um fyrirgreiðslu í því sambandi og
munum gera meira.
Undanfarna daga og vikur þá
höfum við verið í því að greina stöð-
una með okkar aðildarfélögum. Það
er alveg ljóst að þessi faraldur hef-
ur haft mjög neikvæð áhrif á allan
rekstur íþróttafélaganna hér á landi
eins og margoft hefur komið fram.
Íþróttafélögin hafa orðið fyrir
miklu höggi, tekjutapið er mikið og
þá hafa margir misst sínar tekjur
frá helstu styrktaraðilum.
Reksturinn án hagnaðarvonar
KSÍ skoraði á íslensk stjórnvöld
á dögunum að bregðast við þeim
áhrifum sem kórónuveiran hefur
haft á rekstur íþróttafélaga hér-
lendis enda nýtist hlutaleið ís-
lenskra stjórnvalda aðeins 30%
þeirra sem starfa innan íþrótta-
hreyfingarinnar.
„Við vorum einfaldlega að skora
á stjórnvöld að koma með einhver
úrræði sem snúa að rekstri íþrótta-
félaganna. Við erum búin að vera
reka þann málarekstur und-
anfarnar vikur og þannig reynt að
skýra okkar hlið. Eins og ég hef
sagt áður voru fyrirframgreiðslur
frá UEFA og FIFA stór hluti af
framtíðartekjum sambandsins og
það er ekki ákjósanlegt fyrir sér-
sambandið að nota þær í annað en
rekstur sambandsins.
Heilt yfir þá tel ég ég að við þurf-
um aðallega að passa upp á að það
sé horft til íþróttahreyfingarinnar
þegar kemur að aðstoð stjórnvalda
og fjárveitingu. Vissulega erum við
að glíma við mjög stór vandamál í
okkar þjóðfélagi og rekstur íþrótta-
félaganna er öðruvísi en almennur
rekstur þar sem þetta er rekið án
hagnaðarvonar. Tilgangurinn er
fyrst og fremst að skapa heilbrigt
og öflugt íþróttalíf fyrir ungu kyn-
slóðina. Íþróttir eru gríðarlega mik-
ilvægur þáttur í okkar samfélagi og
við skulum alltaf hafa það hugfast
bætti,“ Guðni við í samtali við
Morgunblaðið.
Fyrirframgreiddar tekjur
sem KSÍ treystir mikið á
Guðni Bergsson tók á sig launaskerðingu Tekjur sem landsliðin hafa skapað
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Fyrirliði Aron Einar Gunnarsson og liðsfélagar hans í karlalandsliðinu eiga stóran þátt í tekjum KSÍ.
Fjölnir og Fylkir munu sameina
krafta sína frá og með næsta tímabili
og senda sameiginlegt lið til keppni í
1. deild kvenna í handbolta næsta
vetur. Félögin tilkynntu þetta í
íþróttahúsi Fjölnis í Dalhúsum í gær.
Gísli Steinar Jónsson og Gunnar Val-
ur Arason þjálfa liðið og taka við af
þeim Sigurjóni Friðbirni Björnssyni
hjá Fjölni og Ómari Erni Jónssyni
hjá Fylki. Fjölnir hafnaði í níunda
sæti 1. deildarinnar í vetur og Fylkir
í ellefta sæti af tólf liðum. Er mark-
mið samstarfsins að byggja upp lið
sem getur fest sig í sessi í efstu deild.
Fjölnir/Fylkir
verður til
Ljósmynd/Þorgils G.
Sameining Gunnar Valur Arason
verður annar þjálfara liðsins.
Óvíst er hvort Evrópumótið í hóp-
fimleikum sem á að fara fram í
Kaupmannahöfn 14-.17. október
verður haldið. „Evrópumótið er í
hættu og það er rosalega stórt mál
fyrir okkur. Undirbúningur er búinn
að vera í gangi í tvö ár og núna erum
við að reyna að búa til sviðsmyndir
til að vera undirbúin til að takast á
við það sem koma skal,“ sagði Sól-
veig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
Fimleikasambands Íslands, í hlað-
varpsþættinum Mín skoðun. „Við
fáum væntanlega niðurstöðu í lok
maí,“ bætti hún við.
Óvissa með
Evrópumótið
Ljósmynd/Kristinn Arason
Silfur Kvennalandsliðið vann silfrið
á Evrópumótinu 2018 í Portúgal.