Morgunblaðið - 29.04.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2020
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Seltjarnarnes Eftir 4. maí sjáum við hvaða tilslakanir verða gerðar
og hversu stór skrefin verða varðandi okkar starf. En við getum þó al-
lavega farið að hittast utandyra og farið hreyfa okkur. Við þurfum að
hlýða Víði eitthvað áfram, passa uppá handþvottin og handsprittið.
Munum svo bara að huga vel að næringunni, drekka nóg og hreyfa
okkur eftir bestu getu. Látum okkur hlakka til bjartari og betri tíma.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Málarar.
Tökum að okkur alla almenna
málningarvinnu, mjög sangjarnir
í verðum.
Upplýsingar í síma 782-4540 eða
loggildurmalari@gmail.com
með
morgun-
nu
Nú u
þú það sem
þú eia að
á FINNA.is
IÐNAÐARMENN VERSLANIR
VEITINGAR VERKSTÆÐI
BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA
✝ Þóra fæddist íReykjavík 25.
júní 1934. Hún lést
á hjúkrunarheim-
ilinu Fossheimum
Selfossi 18. apríl
2020. Foreldrar
hennar voru Níels-
ína Helga Hákon-
ardóttir, f. 6. júní
1907, d. 11. maí
1988, og Magnús
Ólafsson, f. 4. júlí
1908, d. 18. nóvember 1982.
Þóra átti tvö systkini, Hákon
Svan, f. 24. júní 1939, d. 19.
febrúar 1993, og Ásbjörgu, f. 9.
febrúar 1945.
Þóra gekk í hjónaband 6. júní
Magna Þór. Langömmubörnin
eru orðin fjögur.
Á unglingsárum fór Þóra í
Kjósina og dvaldi þar sumar-
langt hjá frændum og vinum og
var það henni mjög kært. Þar
lærði hún öll almenn sveita-
störf.
Þóra gekk í Húsmæðraskól-
ann í Varmalandi í Borgarfirði
1954-1955. Hún fór ung til
vinnu og vann ýmis störf, svo
sem í kexverksmiðjunni Fróni,
versluninni Austurveri og Nóa-
Siríusi.
Þóra var mikil félagsvera,
dýravinur og íþróttaunnandi.
Þóru fannst gaman að ferðast
og fór árlega vestur um haf að
heimsækja fjölskyldu dóttur
sinnar í Bandaríkjunum. Síð-
ustu ár þeirra Þóru og Brands
bjuggu þau á dvalarheimilinu
Ási í Hveragerði.Útförin fór
fram í kyrrþey. Minningar-
athöfn verður auglýst síðar.
1980, eftirlifandi
eiginmaður hennar
er Guðbrandur
Valdimarsson, f. 5.
desember 1940 í
Rúfeyjum á Breiða-
firði. Fyrir átti
Þóra tvö börn: 1)
Magnús Jensson, f.
11. júlí 1956, eigin-
kona Ásta Guðleifs-
dóttir og eiga þau
fjögur börn, Guð-
leif, Hákon Svan, Kristínu
Helgu og Bjarna Hrafn. 2) Ólöf
Ásbjörg Arnarsdóttir Grissom,
f. 20. janúar 1970, eiginmaður
David Grissom og eiga þau þrjú
börn, Fal, Bryndísi Ósk og
Ég man þig – elsku mamma
ég man þig alla tíð.
Við þraut svo þunga og ramma
þú þögul háðir stríð.
En þín ég sífellt sakna
uns svefninn lokar brá
Og hjá þér vil ég vakna
í veröld Drottins þá.
Því jarðlífs skeiðið skamma
er skjótt á enda hér
Og alltaf á ég, mamma
minn einkavin í þér.
(Rúnar Kristjánsson)
Minning þín lifir í hjörtum
okkar.
Þín börn,
Magnús (Maggi) og Ólöf.
Þó að við eigum heima í 6.000
km fjarlægð frá Íslandi fannst
okkur öllum við vera í algjöru
uppáhaldi hjá ömmu þegar hún
kom í heimsókn. Amma var
fyndin, eitt af því sem henni
fannst svo gaman að gera var að
lauma til okkar 10 dollara seðl-
um þegar mamma sá ekki til.
Þegar svo óheppilega vildi til að
mamma sá hvað amma var að
gera fékk hún smá skammir en
amma var sko heldur betur
þrjósk. Það þýddi sko ekkert að
segja NEI við hana, hún bara
hló.
Amma elskaði að fá okkur til
að brosa. Amma var gjafmild,
hún mundi alltaf hvað var uppá-
halds íslenski maturinn og
nammið okkar. Þegar hún kom í
heimsókn til Dallas passaði hún
sig alltaf að koma með ekki bara
eitt Síríus-súkkulaði, Nóa-kropp,
kúlur og kremkex heldur sex
pakka af hvoru.
Amma var yndisleg, við mun-
um sakna þess að horfa ekki aft-
ur með henni á uppáhaldsþætt-
ina hennar í Ameríku (The price
is right), mamma byrjaði venju-
lega að taka þá upp svona tveim-
ur mánuðum áður en amma kom
svo hún gæti horft á eins marga
og hún vildi.
Amma elskaði íþróttir, henni
fannst svo gaman að koma að
horfa á okkur spila körfubolta,
sat alltaf í fremstu röð, klappaði
og var okkar besti stuðnings-
maður. Og ekki fannst henni
leiðinlegt að horfa á körfubolta-
leiki með Dallas Mavericks í
sjónvarpinu. Hún þekkti alla
leikmennina með nafni og átti
nokkra sem voru í algjöru uppá-
haldi.
Amma var sko gáfuð, hún tal-
aði enga ensku en pabbi er alveg
viss um að hún hafi skilið miklu
meira en hún lét á bera því þeg-
ar við töluðum ensku virtist hún
skilja allt og vissi öll okkar
leyndarmál.
Við erum sorgmædd yfir því
að amma sé ekki til staðar til að
kenna okkur meiri íslensku eins
og hún hefur gert hingað til.
Amma elskaði fjölskylduna sína
og hefði fært fjöllin fyrir okkur
ef hún hefði getað. Hún kenndi
okkur einnig að standa fast á því
sem við trúum á.
Amma, við munum sakna þess
að geta ekki gefið þér fleiri
kossa og knús. Þú munt alltaf
eiga sérstakan stað í hjörtum
okkar.
We love you.
Falur, Bryndís
og Þór Grissom.
Hvernig kveður maður kon-
una sem maður hélt að væri
ódauðleg? Ákveðnari konu höf-
um við ekki kynnst, svo ákveðin
að við héldum að hún myndi
sigra dauðann.
En það er auðvitað ekki raun-
in. Engin manneskja getur á
endanum sigrað dauðann. Amma
var eflaust þrjóskasta kona sem
við höfum kynnst.
Þegar hún var búin að ákveða
eitthvað eða hafði skoðun, þá
stóð það. Hún vissi ótrúlegustu
hluti og gat alltaf sagt okkur ein-
hverjar sögur.
Enginn hefur stungið þúsund-
kalli jafn oft til okkar og hún
gerði.
Hún var hörkudugleg kona
sem lagði sig alla fram í lífinu. 22
ára var hún einstæð móðir og ól
pabba upp með hjálp foreldra
sinna. Fjórtán árum seinna eign-
ast hún svo Ólöfu frænku. Við
erum viss um að amma hefur lit-
ið á þessi tvö börn sín og verið
stolt af því hversu vel hún stóð
sig með þau bæði. Afkomendur
barna hennar eru orðnir 11 og
fleiri á leiðinni. Þéttari og nánari
gætum við varla verið.
Það eru haf og lönd á milli
systkina og fjölskyldna en sam-
bandið á milli okkar allra er allt-
af sterkt.
Árið 1979 kynntist hún svo
ástinni í lífi sínu. Afi er ekki
skyldur okkur blóðböndum en
hann er vissulega afi okkar því
fjölskyldur tengjast á alls konar
vegu. Þegar hann grét við hlið
þér á dánardaginn fór að rigna á
sama tíma. Heimurinn grét með
honum. Hann sagði að allt líf
hans væri farið frá honum.
Þannig var nefnilega ástin sem
amma og afi áttu. Þau lifðu hvort
fyrir annað og gerðu það í 40 ár.
Afi sagði okkur frá því að eina
nóttina þegar hún var á spít-
alanum hefði hana dreymt að
hún væri að kalla á hann eftir
aðstoð. Á sama tíma vaknaði afi
þessa nótt því honum fannst
hann heyra ömmu kalla á sig.
Þau voru hvort í sínu bæjar-
félaginu. Svo tengd voru þau.
Við munum halda fast utan um
afa og passa upp á hann.
Alveg þangað til þið verðið
saman á ný. Því hvað sem það er
sem tekur við eftir lífið erum við
viss um að þið endið á sama stað.
Hvíldu í friði, elsku amma
okkar. Við munum varðveita all-
ar minningar okkar um þig. Þær
eru nefnilega alveg óteljandi
margar.
Við elskum þig.
Leifur, Hákon, Kristín
og Bjarni.
Þóra Kristín Helga
Magnúsdóttir
Ásdís Torfadóttir
lést í North Tona-
wanda skammt frá
Buffalo í New York-ríki í mars
sl. Þar hafði hún búið frá 1946,
þá nýgift Kenneth J. Keller.
Hann lést árið 2000. Þau eign-
uðust fjögur börn og lifa þrjú
móður sína. Ásdís átti fjögur
systkin sem eru öll látin nema
Kristín.
Ásdís Torfadóttir
✝ Ásdís Torfa-dóttir, síðar
Keller, fæddist 16.
maí 1927. Hún lést í
North Tonawanda í
Bandaríkjunum 11.
mars 2020.
Útför Ásdísar fór
fram 16. mars 2020.
Móðir Ásdísar,
Guðrún Sigríður
Brandsdóttir, var
stjúpdóttir afa
míns, Vilhjálms
Stefánssonar, af
fyrra hjónabandi
hans og Sveinhild-
ar Hildibrands-
dóttur. Að henni
látinni var Guðrún
munaðarlaus, níu
ára gömul. Þegar
afi og amma, Kristín Árnadótt-
ir, gengu í hjónaband árið 1909
fylgdi litla stúlkan honum. Hún
ólst því upp í Hátúni í stóra
systkinahópnum þar og var
kölluð Gunna systir. Sem barni
fannst mér það óskiljanlegt
enda vissi ég að hún var ekki
systir mömmu, Þorbjargar Vil-
hjálmsdóttur. En hún var hálf-
systir hálfsystkina hennar.
Seint á fjórða áratugnum
dvaldist Ásdís, ávallt kölluð
Dídí, sumarlangt á Norðfirði í
skjóli Vilhjálms afa síns og
mömmu sem þá var ung stúlka;
amma var þá látin. Þegar þær
Dídí og mamma rifjuðu upp
samvistirnar meira en hálfri
öld síðar sögðu þær einum rómi
að sumarið hefði í öllum skiln-
ingi verið dásamlegt.
Í æsku minni talaði mamma
oft um Dídí. Í orðum hennar
mátti finna væntumþykju og
söknuð. Þegar þær hittust í lok
níunda árartugarins höfðu þær
ekki sést frá árinu 1940 þegar
mamma var hér syðra vetrar-
langt og Dídí enn unglingur.
En þá gerist það að þau Dídí
og Ken renna í hlað á Norð-
firði.
Það urðu miklir fagnaðar-
fundir, þær vinkonurnar grétu
af gleði sagði pabbi mér. Ég
man það líka vel hve glöð
mamma var þegar hún sagði
mér frá komu þeirra. Og nú
varð breyting á. Þær vinkonur
hófu að hringja hvor í aðra og
höfðu ávallt um nóg að tala. Að
mömmu látinni töluðust þau
pabbi og Dídí stundum við. Það
gerðum við Dídí líka öðru
hvoru, síðast að pabba gengn-
um.
Árið 1992 var ég um tíma
vestanhafs. Þá hringdi Dídí oft
í mig. Hún sagði mér ýmislegt
úr lífi sínu, m.a. ferðinni vestur
1946. Á áfangastað í Buffalo
fórust þau Ken á mis. Það var
erfið stund fyrir ungu konuna
með takmarkaða enskukunn-
áttu. En hún var hugrökk og
úrræðagóð og hún náði að
hringja í tengdamóður sína. Og
málið leystist farsællega.
Í lok dvalarinnar vestra
komu mamma og pabbi til mín
og við fórum öll í heimsókn til
Dídíar og Ken. Íslenski fáninn
blasti við er við renndum í hlað
á bíl húsráðenda sem merktur
var „ammaogafi“. Heimilið var
hlýlegt og móttökurnar innileg-
ar. Við hittum dætur þeirra,
Kristínu, Stínu, og Beverly.
Þau Dídí og Ken sýndu okkur
nágrennið og við fórum til Kan-
ada.
Þetta var einstaklega
skemmtileg ferð. Þær voru vo-
teygar Dídí og mamma þegar
þær kvöddust á flugvellinum en
um leið svo þakklátar fyrir að
eiga hvor aðra að.
Ég hitti þau Dídí og Ken
einu sinni eftir vesturferðina.
Þá gáfu þau mér fallega könnu
sem á sér sinn stað á skrifborð-
inu mínu.
Ásdís Torfadóttir var ein
þeirra ungu kjarkmiklu kvenna
sem að loknu stríði héldu á
ókunnar slóðir til að takast á
við nýtt líf með ástinni sinni.
Það var mikið mál, miklu meira
en við gerum okkur grein fyrir
nú.
Konurnar vissu að þær sneru
ekki aftur. Það þarf kjark til að
takast á við slíkt. Þann kjark
hafði Dídí. Hún var lánsöm, átti
góðan mann og börn og gott
heimili. Hún aðlagaðist vel lífi í
nýju landi en var um leið trú
sjálfri sér og uppruna sínum.
Ásdísar Torfadóttur er gott
að minnast. Sé hún kært kvödd.
Margrét Jónsdóttir.
Í dag fylgjum við
einstakri vinkonu,
Söndru Líf Long, til
hinstu hvíldar. Það
er svo margt sem kemur upp í
hugann á svona sorgarstundu.
En það líður ekki langur tími þar
Sandra Líf Long
✝ Sandra LífLong fæddist 2.
nóvember 1993.
Hún lést 9. apríl
2020.
Sandra Líf var
jarðsungin 28. apríl
2020.
til ég er farin að
brosa í gegnum tár-
in þegar ég hugsa til
elsku Söndru minn-
ar. Gleðin, orkan og
hlýjan skín alltaf í
gegn og ég sé hana
fyrir mér hlæjandi,
og auðvitað dans-
andi. Þannig man ég
hana, og þannig
mun ég alltaf muna
hana. Hvíldu í friði
hjartans – hlakka til að heyra
næsta lag. Knús.
Sigrún Þormóðsdóttir.