Morgunblaðið - 29.04.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.04.2020, Blaðsíða 4
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2020 Ármúli 8 I 108 Reykjavík I Sími 516 0600 I www.birgisson.is HVÍTAR GÆÐA INNIHURÐIR Á GÓÐU VERÐI TIL AFGREIÐSLU STRAX Helgi Bjarnason Jóhann Ólafsson Þau tímamót urðu í gær í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn að eng- inn sjúklingur var á gjörgæslu á spít- ölum landsins. Sá síðasti var útskrif- aður af gjörgæslu Landspítalans í gærmorgun. Alma D. Möller land- læknir óskaði sjúklingum, aðstand- endum og öllum öðrum til hamingju með það á daglegum upplýsinga- fundi almannavarna. Þrjú smit höfðu greinst sólar- hringinn á undan, tvö í Bolungarvík og eitt á höfuðborgarsvæðinu. Allir voru þeir í sóttkví. Alls voru 229 sýni greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans, m.a. nýsmitin þrjú, og 459 hjá Íslenskri erfðagreiningu þar sem ekkert sýni reyndist já- kvætt. Níu liggja enn veikir á spítala. Verið er að undirbúa mótefnamæl- ingar en þær eru taldar gefa góða mynd af því hversu stór hluti þjóð- arinnar hefur smitast af kórónuveir- unni. Ólíkleg veikindi hér Heilbrigðisyfirvöld hér á landi hafa kynnt sér alvarleg veikindi barna á Spáni og í Bretlandi. Alma sagði að sum barnanna hefðu verið með kórónuveiruna en ekki öll. Til- vikin væru mjög fá eða á bilinu fimm til tíu hjá þessum milljónaþjóðum og ólíklegt að slík veikindi kæmu upp hér. Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sagði frá eiginleikum vefjarins heilsuvera.is sem mikið hefur verið notaður í faraldrinum. Fær hann um 10 þúsund heimsóknir á dag. Fræðsluhluti vefjarins hefur verið mikið notaður þegar margir hafa verið heima í sóttkví. Benti Ragn- heiður á að fólk gæti pantað tíma hjá lækni og endurnýjað lyfseðla á mín- um síðum en rafræn skilríki þarf til að komast þangað inn. Enginn kórónuveiru- sjúklingur á gjörgæslu  Heilsuvera.is fær nú 10 þúsund heimsóknir á dag Fjöldi eftir landshlutum Óstaðsett 2 52 Útlönd 1 0 Austurland 8 14 Höfuðborgarsvæði 1.309 476 Suðurnes 77 31 Norðurland vestra 35 14 Norðurland eystra 46 30 Suðurland 178 69 Vestfirðir 97 72 Vesturland 42 26 Smit Sóttkví Uppruni smits Innanlands Óþekktur Erlendis 47.065 sýni hafa verið tekin 10 einstaklingar eru látnir 11 eru á sjúkrahúsi 1 á gjör-gæslu 149 eru í einangrun 149 eru með virkt smit Fjöldi smita frá 28. febrúar til 27. apríl Heimild: covid.is 1.795 smit voru staðfest í gær kl. 13.00 1.795 149 apríl 1.750 1.500 1.250 1.000 750 500 250 þeirra sem hafa greinst voru í sóttkví 81% 55% 9,2% sýna tekin hjá LSH voru jákvæð og 0,59% sýna tekin hjá ÍE 18.858 hafa lokið sóttkví784 manns eru í sóttkví Staðfest smit Virk smit mars 1.636 einstaklingar hafa náð bata Fjöldi sýna og fjöldi staðfestra smita Uppsafnaður fjöldi sýna og staðfestra smita* Fjöldi staðfestra smita á hverja 1.000 íbúa eftir aldri og kyni** 50.000 40.000 30.000 20.000 10.000 0 sýni smit 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 10 8 6 4 2 0 6-12 13-17 18-29 30-39 40-49 50-59 60-69 70-79 80-89 Aldur, ár: *Sýni tekin á Sýkla- og veirufræðideild LSH og hjá Íslenskri erfðagreiningu **Tölur frá mánud. 27. apríl Karlar Konur 1,9 47.065 1.795 8,2 5,9 1,8 1,4 5,4 5,7 7,0 1,1 Sýni Staðfest smit aprílmars Heimild: covid.is Helgi Bjarnason Höskuldur Daði Magnússon Jóhann Ólafsson „Við fyrstu sýn virðist þarna komið vel til móts við þau sjónarmið sem við höfum talað fyrir undanfarna tíu daga til tvær vikur. Þarna er verið að taka á sérstökum vanda og þetta er risastór aðgerð fyrir ferðaþjón- ustuna,“ segir Jóhannes Þór Skúla- son, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, þegar hann var spurður um þriðja aðgerðapakka rík- isstjórnarinnar vegna afleiðinga kór- ónuveirufaraldursins. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra kynnti aðgerðir ríkisstjórnar- innar á blaðamannafundi í gærmorg- un. Hlutabótaleið stjórnvalda verður framlengd með óbreyttum hætti út júní og með 50% starfshlutfalli í stað 25% út ágúst. Þá geta fyrirtæki sem orðið hafa fyrir að minnsta kosti 75% tekjufalli og sjá fram á áframhald- andi litlar tekjur út þetta ár eða leng- ur sótt um stuðning til ríkissjóðs til að greiða stóran hluta launakostnað- ar á uppsagnarfresti. Þá verða settar tímabundið einfaldari reglur um fjár- hagslega endurskipulagningu fyrir- tækja til að þau geti komist í skjól á meðan verið er að meta stöðu þeirra. Ekki takmarkalaust úthald Áætlað er að aðgerðirnar kosti rík- issjóð á bilinu 40 til 60 milljarða. „Úthald ríkissjóðs er ekki tak- markalaust. Kostnaðurinn verður verulegur og það mun taka langan tíma að vinna okkur út úr þessari kreppu, það vitum við,“ sagði Katrín forsætisráðherra þegar hún kynnti aðgerðirnar sem eftir er að útfæra nánar og leggja fyrir Alþingi. Markmið aðgerðanna er að draga úr þeim skaða sem umfangsmiklar uppsagnir og fjöldagjaldþrot valda þannig að staðinn verði vörður um réttindi launafólks á sama tíma og stuðlað verði að kröftugri viðspyrnu efnahagslífsins. Fagna aðgerðunum „Við fögnum aðgerðapakkanum, enda með vilyrði fyrir samráði um út- færslu á honum, en það var nauðsyn- legt að fá þetta fram fyrir mánaða- mót,“ segir Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, hrósaði ríkis- stjórninni fyrir aðgerðapakkann í umræðum á Alþingi í gær. „Ég fagna því sérstaklega að hún hafi tekið þeirri gagnrýni sem var á [fyrri] pakka,“ sagði hún. Hún benti á að málin væru hvorki skýr né tilbúin, þegar þau væru kynnt til leiks. Fyrir- tækin þyrftu skýrari skilaboð. Jóhannes Þór Skúlason sagði að full ástæða væri til að gleðjast yfir tíðindum dagsins. Dagurinn væri mjög frábrugðinn öðrum í þeim hörmungum sem gengið hafa yfir ferðaþjónustuna að undanförnu. „Þetta er eiginlega fyrsti dagurinn sem er betri en gærdagurinn. Það verður að gleðjast yfir litlu hlutunum í lífinu.“ Stuðningur við launafólk og fyrirtæki Tillögur ríkisstjórnarinnar í samráði við aðila vinnu markaðar ins 1. Hlutastarfaleið verður framlengd til 31. ágúst en hefði að óbreyttu fallið úr gildi þann 1. júní nk. ■ 25% lágmarks- starfshlutfall út júnímánuð. ■ 50% lágmarksstarfs- hlutfall í júlí og ágúst. 2. Einfaldari reglur um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. ■ Breytingar miða að því að fyrirtæki geti komist í skjól á einfaldan hátt á meðan verið er að meta stöðu þeirra. 3. Stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launa- kostnaðar á uppsagnarfresti. ■ Greiðsla að hámarki 633 þús.kr. á mánuði í allt að þrjá mánuði. ■ Fyrirtæki sem orðið hafa fyrir að lágmarki 75% tekjufalli og fyrir- sjánlega út þetta ár geta sótt um. ■ Starfsmenn skulu eiga forgang til starfs þegar starfsemi hefst að nýju. „Þetta er risa- stór aðgerð“  Aðgerðapakki kostar 40-60 milljarða Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Blaðamannafundur Katrín Jak- obsdóttir kynnir aðgerðirnar. Aðgerðir » Hlutastarfaleiðin hefði að óbreyttu runnið út 1. júní. Hún verður framlengd út júní með 25% lágmarksstarfshlutfalli og áfram með 50% hlutfalli út ágúst. » Fyrirtæki sem verða fyrir miklum tekjubresti geta sótt um stuðning úr ríkissjóði til að greiða stóran hluta launa á uppsagnarfresti. 0

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.