Morgunblaðið - 29.04.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2020
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Miklar framkvæmdir standa nú yfir
við Gömlu höfnina í Reykjavík. Þar er
mikið rask þessa stundina og af þeim
sökum hefur uppsetning eimreiðar-
innar Minør frestast eins og fram hef-
ur komið hér í blaðinu.
Framkvæmdir við Miðbakka og
Bryggjugötu (sem liggur samsíða
Austurbakka) fela í sér annars vegar
lagnavinnu og frágang götu og gang-
stíga við nýbyggingar við Bryggju-
götu og hins vegar lagningu upp-
hitaðs hjólastígs og endurgerð
göngustígs meðfram Geirsgötu, auk
frágangs á strætóbiðstöð. Þessar
upplýsingar er að finna á vef Reykja-
víkurborgar. Áætluð verklok eru 1.
júlí nk. Verktakinn er Lóðaþjónustan
ehf. og hljóðaði verksamningur upp á
157 milljónir króna. Veitur greiða
hluta af þeim kostnaði.
Þá hafa einnig staðið yfir miklar
framkvæmdir við Ægisgarð, þarna
skammt frá. Þær eru á forræði Faxa-
flóahafna. Gamlir söluskúrar fyrir
hvalaskoðunarferðir hafa verið fjar-
lægðir og verið er að byggja ný sölu-
hús. Jafnframt hafa allar lagnir verið
endurnýjaðar og sömuleiðis malbik.
Verklok voru áætluð 1. maí en þeim
mun seinka vegna þess hve tíðarfarið
hefur verið óhagstætt til fram-
kvæmda í vetur.
Verktaki við byggingu söluhús-
anna er E. Sigurðsson ehf. og tilboðs-
verðið var 398,6 milljónir króna.
Við Miðbakkann leggjast smærri
skemmtiferðaskip og því má segja að
lagfæringar gagnist ekki aðeins Ís-
lendingum heldur einnig erlendum
ferðamönnum. En væntanlega munu
fáir ferðamenn vera á ferðinni í sum-
ar á Miðbakka og Ægisgarði.
Loks ber að nefna að fyrir dyrum
standa framkvæmdir á Faxagarði,
sem stendur skammt frá Hörpu. Þar
verður byggð ný spennistöð auk þess
að allar lagnir verða endurnýjaðar.
Er þetta m.a. gert vegna krafna um
tengingar stærri skipa við raf-
orkukerfið í landi.
Morgunblaðið/sisi
Miðbærinn Meðal þess sem verið er að framkvæma þarna er endurnýjun á gangstéttinni meðfram Geirsgötu.
Miklar endurbætur gerðar
á umhverfi hafnarinnar
Hafnarbakkar við Gömlu höfnina fá andlitslyftingu
Bionette
ofnæmisljós
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is
Bionette ofnæmisljós er byltingakennd
vara semnotar ljósmeðferð
(phototherapy) til að draga úr
einkennumofnæmiskvefs (heymæðis)
af völdum frjókorna, dýra, ryks/
rykmaura og annarra loftborinna
ofnæmisvaka.
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Við póstsendum um allt land
Sími 568 5170
Snyrtivörumerkin okkar eru:
Mad e i n I c e l a n d
Nýjar glæsilegar
VORVÖRUR
Jakkar • Vesti • Túnikur • Kjólar • Bolir
Peysur • Buxur • Töskur • Silkislæður
„Á þessum skröltandi hávaðatím-
um sem við lifum nú er vonandi að
einhverjum finnist þess virði að
heyra þá lágstilltu rödd íslenskrar
tungu sem góð ljóðlist er. Hvergi
er íslensk tunga glæsilegri en í
góðu ljóði,“ segir Hrafn Gunn-
laugsson kvikmyndaleikstjóri.
Hann er umsjónarmaður raðar sex
nýrra sjónvarpsþátta sem bera
yfirskriftina Úr ljóðabókinni og
fer sá fyrsti í loftið á RÚV í kvöld
kl. 20:40. Í fyrsta þættinum flytur
Sverrir Guðjónsson ljóðið Ferða-
lok eftir Jónas Hallgrímsson en
aðfaraorð flytur Harpa Rún Krist-
jánsdóttir.
Hrafn segir þáttagerð þessa
hafa verið nokkuð tímafreka, bæði
að velja ljóðin og ekki síður að
æfa og skapa þann andblæ sem
fylgja skal. Þar hafi afburðaflytj-
endur og meistaralega frumsamin
tónlist eftir Hilmar Örn Hilm-
arsson haft mikið að segja. „Þegar
ég var dagskrárstjóri Sjónvarps-
ins í kringum 1990 voru þættir
undir þessum sama titli, Úr ljóða-
bókinni, á dagskránni. Þar komu
fram frábærir flytjendur, menn
sem nú eru horfnir, stórleikarar
svo sem Gunnar Eyjólfsson, Helgi
Skúlason og Rúrik Haraldsson,“
segir Hrafn sem bætir við að flytj-
endur núna séu ekki minni kanón-
ur, en þar má nefna, auk Sverris,
Þórarin Eldjárn og þær Guðrúnu
Ásmundsdóttur, Kristbjörgu Kjeld
og Margréti Einarsdóttur.
„Fyrir framtíðina er mikils virði
að varðveita rödd og framsetningu
þessara einstöku flytjenda,“ segir
Hrafn. „Sú hugmynd sem bjó að
baki þáttagerðinni fyrir 30 árum
hefur alltaf lifað með mér. Mér
finnst því gaman að fá tækifæri til
að taka upp þráðinn, en ég hef
ekkert unnið fyrir sjónvarp í ára-
tugi.“ sbs@mbl.is
Ljóð í sjónvarpinu
Á RÚV í kvöld kl. 20:40 Sverrir
les Ferðalok Hrafn velur í sex þætti
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
List Hrafn Gunnlaugsson velur ljóð
til flutnings í sjónvarpsþáttum.
Færeyjar, Evrópusambandið og
Noregur gerðu í síðustu viku samn-
ing sín á milli um sameiginlegt eft-
irlit með uppsjávarfiski sem tilheyrir
deilistofnum aðilanna. Samningur-
inn felur í sér samstarf um eftirlits-
aðgerðir á Norður-Atlantshafi út ár-
ið 2020, að því er fram kemur á vef
sjávarútvegsráðuneytis Færeyja.
Nánar tiltekið varðar þetta eftirlit
með veiðum á kolmunna, makríl og
norsk-íslenskri síld, auk brynstirtlu.
Fulltrúar frá Grænlandi og Íslandi
sátu fund um samræmingu eftirlits-
aðgerða sem fór fram í janúar í
Lundúnum undir formennsku Nor-
egs, en ríkin eru ekki aðilar að samn-
ingnum þar sem þau eru ekki aðilar
að samningum um ráðstöfun um-
ræddra fiskistofna.
Samningsaðilar hafa með samn-
ingnum samþykkt samræmdar regl-
ur um vigtun afla við löndun og er
meðal annars kveðið á um að að lág-
marki skuli vigta 5% við löndun og
7,5% af lönduðu magni undir eftirliti.
Jafnframt er skylda að öll vigtun fari
fram undir myndavélaeftirliti í þeim
höfnum þar sem landað er meira en
3.000 tonnum af uppsjávarfiski á ári.
gso@mbl.is
Samræma eftirlit
með deilistofnum
Samningurinn nær ekki til Íslendinga
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Veiðar Samningurinn kveður meðal
annars á um skilyrði vigtunar afla.