Morgunblaðið - 29.04.2020, Side 29

Morgunblaðið - 29.04.2020, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2020 Heiða Björg Pálmadóttir, forstjóri Barnaverndarstofu, mælir með list og afþreyingu í samkomubanni. „Eins og svo margar fjölskyldur höfum við lagt okkur fram um að eiga sem flestar gæðastundir í samkomubann- inu og höfum m.a. haldið kósí- kvöld og endur- uppgötvað gamla gullmola. Þar er nauðsyn- legt að minnast á hina frábæru kvikmynd Jón Odd og Jón Bjarna, sem Þráinn Bertelsson leikstýrði. Myndin kom út árið 1981 og er gerð eftir samnefndri sögu Guð- rúnar Helgadóttur, sem kom árið 1974. Söguþráðinn þekkja flestir og er óþarfi að fjalla um. Ég mæli eindregið með þessari klassísku fjölskyldumynd, öll fjölskyldan (4 til 41 árs) skemmti sér konunglega yfir uppátækjum tvíbura- bræðranna með gullhjörtun. Mynd- in er líka kjörin til að ræða við börn ýmis málefni, s.s. fordóma og umburðarlyndi og það að vera öðruvísi, samsettar fjölskyldur og dauðann. Eftir langa vinnudaga undan- farið hef ég ekki haft eirð eða orku til að lesa, sem ég er annars vön að gera mikið af. Og eins og hjá svo mörgum sem starfa við barnavernd er starfið líka ástríða og áhugamál og frítíminn fer oftar en ekki í eitt- hvað tengt henni. Ég gleypti hrein- lega í mig Netflix-þáttaröðina The Trials of Gabriel Fernandez, sem kom út í upphafi ársins. Heimilda- þáttaröðin samanstendur af sex þáttum sem segja söguna af lífi og dauða ungs bandarísks drengs og atburðum sem fóru af stað í fram- haldi af því að drengurinn lést árið 2013 eftir áralangt ofbeldi af hálfu móður og stjúpföður. Þáttaröðin kafar ofan í sögu Gabriels, aðstæður á heimili hans og viðbrögð yfirvalda s.s. skóla, barnaverndaryfirvalda og lögreglu þegar upp komu vísbendingar um að þar væri ekki allt með felldu. Þarna er varpað fram áleitnum spurningum um hver bar ábyrgð á dauða Gabriels; hvíldi hún ein- göngu á móður hans og stjúpa, lá hluti ábyrgðarinnar í slælegum vinnubrögðum opinberra starfs- manna, og þá hvaða, eða var vand- inn kerfislægur? Þáttaröðin situr í mér og minnir á mikilvægi skipu- lagðra vinnubragða og verkferla og hversu miklu máli skiptir að barnavernd hafi tíma og svigrúm til að sinna þeim fjölskyldum sem þurfa aðstoð. Nú þegar farið er að vora er ekkert betra en að hlusta á gott hlaðvarp á göngu eða á leið í vinn- una á rafmagnshlaupahjólinu góða. Ég var að ljúka við að hlusta á átta hluta hlaðvarpsþætti sem Glamour framleiddi og heita Broken Harts. Þar er sagt frá hvítum bandarísk- um hjónum, Jen og Söruh Hart, og sex börnum af afrískum uppruna (tveimur þriggja barna systkina- hópum), sem þær höfðu ættleitt. Vorið 2018 keyrði fjölskyldubíll- inn fram af kletti og lést öll fjöl- skyldan. Hún var þekkt á sam- félagsmiðlum fyrir að vera fyrir- mynd varðandi umburðarlyndi og náungakærleika. Upphaflega var atvikið rannsakað sem slys en fljót- lega kom annað í ljós. Athugun á lífi fjölskyldunnar leiðir m.a. í ljós vanrækslu og ofbeldi og vekur at- hygli á viðkvæmum álitaefnum, s.s. um þörf hvíta mannsins til að bjarga öðrum kynþáttum (e. white saviorism), innbyggðum kynþátta- fordómum í barnaverndarkerfinu í Bandaríkjunum og hversu mikil- vægt er að trúa ekki þeirri glans- mynd sem oft er sett fram á sam- félagsmiðlum. Þetta eru vel gerðir og áhugaverðir hlaðvarpsþættir sem ég mæli eindregið með.“ Mælt með í samkomubanni Harmleikur Broken Harts eru vel gerðir og áhugaverðir hlaðvarpsþættir um Hart-fjölskylduna sem lést í bílslysi fyrir tveimur árum. Gæðastundir og áleitnar spurningar Átakanleg Í Netflix-heimildar- þáttaröðinni The Trials of Gabriel Fernandez segir af Gabriel Fern- andez sem lést eftir áralangt ofbeldi af hálfu móður sinnar og stjúp- föður. Áleitnum spurningum er varpað fram um hver bar ábyrgð á dauða hans, að sögn Heiðu Bjargar. Heiða Björg Pálmadóttir Sígild Veggspjald kvikmyndarinn- ar Jón Oddur og Jón Bjarni sem fólk á öllum aldri ætti að hafa gaman af. Tilraunakenndur bragur erá fyrstu skáldsögu DíönuSjafnar Jóhannsdóttur,Ólyfjan. Þar birtist veru- leiki ungs manns sem stundar fátt annað en sjóinn og skemmtanalífið. Eitruð karlmennska og einmana- leiki eru sterk mótíf í bókinni en Díana leikur sér með skáldsagna- formið, sem er bæði skemmtilegt og ruglandi fyrir lesandann. Vegna þessara tilrauna er bókin á köflum samhengislaus og haldast upphaf hennar og miðja að mjög takmörk- uðu leyti í hendur við endinn. Í Ólyfjan fær lesandinn að fylgj- ast með heilli fríhelgi Snæja af sjónum. Hann stundar það sem á að vera skemmtilegt, skemmt- analífið sjálft, en lesandinn fær strax á tilfinninguna að skemmtun verði ekki það sem muni einkenna komandi helgi. Þótt Snæi sé ekki á sjónum um þessa helgi velkist hann samt um í rúmsjó, leiddur áfram af einhverju ósýnilegu afli, og eru uppköstin eftir því. „Rútínan var eins og ógnarleg skepna sem hafði étið hann án þess að hann tæki eft- ir því. Hann var Jónas í hvaln- um.“ Snæi er ein- hvers konar erki- týpa, í raun staðalímynd þeirrar persónu sem hann leikur í bókinni. Hann er allur á yfirborðinu og það er á tíðum nokkuð óþægilegt að lesa um gjörðir hans en þessi óþægindatilfinning drífur söguna að hluta til áfram og verður til þess að lesandinn bæði vill og vill ekki lesa lengra. Ragnar, vinur Snæja sem velkist um með honum umrædda helgi, er ívið flóknari og þannig áhugaverðari persóna. Þótt lesandinn fylgi Snæja hvert fótmál en ekki Ragnari fær lesand- inn í raun að kynnast Ragnari með djúpstæðari hætti þar sem hann er talsvert duglegri að tjá sig um erf- iða reynslu. Snæi er, eins og áður sagði, allur á yfirborðinu og sama hvað lesandinn krafsar þá virðist ekkert vera undir þessu groddalega en um leið viðkvæma yfirborði. Per- sónusköpunin í bókinni er þannig bæði óhefðbundin og tilraunakennd. Karlmennskan sem górilla Ólyfjan er um margt áhugaverð bók, sérstaklega vegna áðurnefndra tilrauna með formið. Sjónarhorn höfundar á karlmennsku í nútíma- samfélagi er vel ígrundað og eft- irminnilegt en fremur neikvætt, sérstaklega þegar höfundur slítur hana úr samhengi. „Górillan var engan veginn eins og hann hafði búist við. Hún var hvorki stór né mikil eins og hann hafði séð í sjónvarpinu. Hún öskraði ekki og sýndi aldrei hnef- ann né sló sér á brjóst. Þarna sat hún bara eins og aumkunarverður vesalingur á vergangi.“ Í stuttu máli er Ólyfjan óslípuð skáldsaga, full af tilraunum með formið sem gerir hana bæði athygl- isverða og ruglingslega. Það verður gaman að sjá hvert skáldgyðjan leiðir Díönu næst enda augljóst af Ólyfjan að höfundinn skortir ekki hugmyndaauðgi. Karlmennska og tilraunir Tilraunir Gagnrýnandi segir tilraunakenndan brag á fyrstu skáldsögu Díönu Sjafnar. Eitruð karlmennska og einmanaleiki eru sterk mótíf. Skáldsaga Ólyfjan bbbnn Eftir Díönu Sjöfn Jóhannsdóttur. Salka, 2019. Kilja, 127 bls. RAGNHILDUR ÞRASTARDÓTTIR BÆKUR SMÁRALIND – DUKA.IS Stedge hillur Hillukerfi (2 hillur) 60 cm: 39.900,- Hillukerfi (2 hillur) 80 cm: 42.900,- Aukahilla (AddOn) 60 cm: 21.900,- Aukahilla (AddOn) 80 cm: 24.900,- Fegrum heimilið Eik & Svartbæsuð Eik

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.