Morgunblaðið - 29.04.2020, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Þær eru ekkimargarfréttirnar
sem ná þessar vik-
urnar brjótast í
gegnum hið þétta
kórónuveiruský.
Þegar horft er út í
heim sést þó ein
frétt sem sló í gegn: Stórfréttin
um Kim Jong-un. Vandinn er sá
að fréttamenn eru ekki al-
gjörlega vissir og óttast að ofur-
fréttin kunni að koðna niður í
ekki-frétt á augabragði.
En hvernig má þetta vera?
Gömul dæmi eru þekkt.
Það tók drjúgan tíma að upp-
lýsa alþýðuna um dauða Stalíns í
mars 1953. Löngu síðar bárust
frásagnir sem útskýrðu hvers
vegna allt pukrið í kringum and-
lát einvaldsins átti sér stað.
Leiðtogar Æðstaráðsins sem
gagnvart sínum undirtyllum
voru sjálfstætt ógnarvald voru
sjálfir eins og mýs undir fjala-
kettinum Stalín. Þeir fréttu
seint að leiðtoginn hefði ekki
kallað eftir morgunverði sínum.
Vopnaðir verðir við dyr hans
höfðu heyrt dynk en þorðu ekki
án fyrirmæla að opna dyrnar
sem þeir pössuðu. Það var ráðs-
kona Stalíns, sem ein hafði kjark
til að banka og ljúka upp dyrum
og starði á goðmagnið liggjandi
hlandblautt á gólfinu.
Þá var hringt í Svetlönu og
því næst í Beria og smám saman
fréttu litlu leiðtogarnir að ekki
væri allt með felldu í Kuntsevo.
Þegar valdamestu menn
kommúnismans mættu var
Stalín enn með lífsmarki og
komst síðar til meðvitundar.
Enginn hafði hringt í lækna eða
sjúkralið. Til þess lágu margar
ástæður. Óttinn var inntak
þeirra allra. Það var ekki kallað
í lækna fyrr en valdsmenn voru í
húsi. Þeir töldu óljóst hver hefði
heimild til þess að kalla á lækna.
Ítarleg umræða fór fram yfir
liggjandi manninum sem færður
hafði verið í sófann sem hann
hafði sofið í. Niðurstaða leiðtog-
anna varð sú að að þar sem Stal-
ín væri ekki látinn þá gæti eng-
inn nema hann ákveðið að kalla
til lækna. Hann væri að vísu
meðvitundarlaus í augnablikinu
en það kynni að verða flokkað
sem sérstök afglöp, jafnvel sam-
særi ef læknar væru kallaðir til
án samþykkis hans, og hann
rankaði svo við sér.
Annar vandi var að Stalín
hafði nýlega látið handtaka
helstu lækna landsins, þar á
meðal persónulega lækna
Æðstaráðsins og fjölskyldu og
einkalækna Stalíns sjálfs. Síð-
ustu misseri hafði Stalín sankað
að sér gögnum um meint stór-
brotið gyðinglegt læknasamsæri
gegn sér, „félögunum“ og Sovét-
ríkjunum í heild. Hann hafði lát-
ið handtaka alla þessa lækna og
félagarnir í Æðstaráðinu skrifað
upp á. Verkefnið
væri að ná sannleik-
anum um gyð-
inglega lækna-
samsærið út úr
hinum grunuðu.
Stalín þótti sem
rannsakendur og
pyntingarmeistarar
færu sér of hægt og hafði nýlega
gefið skrifleg fyrirmæli um að
„berja, berja og berja“ skyldi
læknana í þágu sannleikans.
Loks urðu foringjarnir þó við
kröfum barna Stalíns um að
kalla lækna til og þótti öllum lít-
ið til um upplit þess hóps sem
skrapað var saman. Þessi dauð-
ans alvörustund í Moskvu minn-
ir á að í þessum kerfum er veru-
leikinn annar.
En hvað er það sem helst
réttlætir að svo margur skarpur
skýrandi hefur komist að þeirri
niðurstöðu að Kim Jong-un,
hinn 36 ára gamli elskaði al-
ráður N-Kóreu, kunni að vera
allur? Fyrsta merkið sem þeir
nefna er að Kim Jong-un mætti
ekki í afmæli afa síns, Kim Il-
sung heitins, sem er í guðatölu
eystra, þann 15. apríl sl. Óþekkt
er að Kim Jong-un láti sig vanta
í heitasta brennipunkt sviðs-
ljóssins þann dag.
Í öðru lagi sást hann ekki á
mynd þegar gerðar voru óvænt-
ar tilraunir með eldflaugarskot
og allir helstu tindátar N-Kóreu
voru mættir og engin skýring
gefin á fjarveru leiðtogans. Sög-
ur tóku nú að berast um að leið-
toginn ungi sem er í góðum
holdum og sagður reykja ótæpi-
lega og er undir miklu álagi af
öllum toga hefði orðið alvarlega
veikur og svo dáið vegna eftir-
kasta skurðaðgerðar. Væri sú
tilgáta rétt má fullyrða af ör-
yggi að þeir læknar sem stóðu
við skurðarborðið séu ekki
minna dauðir núna en sjúkling-
urinn þeirra. Næst sást „áreið-
anleg frétt“ um það að leiðtog-
inn hefði slasast alvarlega
einmitt þegar hann, svona líka
samviskusamur, var að fylgjast
með tilraunum með gereyðing-
arvopn, sem voru þó ætluð öðr-
um.
Seinustu daga og allt þar til
þetta var skrifað hefur verið
meiri fyrirferð á fréttum sem
draga þann taum að Kim Jong-
un lifi enn. Þá er það haft til
marks að sérstök einkajárn-
brautarlest leiðtogans hafi
náðst á gervitunglamynd nærri
sumarhöll hans á sérlegu sælu-
svæði ætluðu æðstu mönnum
landsins einum. Þá hófust get-
gátur um það að sennilega væri
alvaldur og hans helstu menn á
þessum örugga sælureit til að
verjast kórónuveirunni. Hann
gæti því birst aftur á næstunni
og sagt jafnfyndinn og Mark
Twain: Fréttir af andláti mínu
voru ýktar af svörnum óvinum
alþýðunnar.
Kim Jong-un, dauð-
ur eða lifandi, er sá
eini sem slær út
fréttir af kórónu-
veirunni}
Jafndauður
og Malakoff?
M
iðflokkurinn hefur frá upphafi
kreppunnar lagt áherslu á að
koma þyrfti strax með stórar,
almennar og dýrar lausnir því
það að gera lítið í einu á
löngum tíma yrði á endanum enn dýrara. Í
mars kynnti flokkurinn fyrst sínar lausnir eftir
að stjórnvöld höfðu dregið lappirnar með að
kynna alvöruaðgerðir. Síðan þá hefur vandinn
aukist og pakkar ríkisstjórnarinnar eru enn
ekki nógu stórir og afgerandi.
Miðflokkurinn kynnti í gærmorgun fleiri
tillögur sem eru stórar og virka strax.
Almennar lausnir fyrir heimili:
Markmið: Verja lífskjör allra og auka ráð-
stöfunartekjur
Lækka staðgreiðslu skatta, tekjuskatt og út-
svar í 24% til loka árs 2021
Aðgerð sem nær til launþega, eldri borgara og ör-
yrkja, frá og með 1. júní nk. til 31.desember 2021. Lækk-
unin eykur ráðstöfunartekjur sem skilar sér í aukinni
einkaneyslu og styður við innlend fyrirtæki.
Greiðslur vaxta og verðbóta vegna fasteignalána at-
vinnulausra falla niður í allt að 18 mánuði og höfuðstóll
verður frystur
Aðgerðin nær til allra sem eru á atvinnuleysisskrá, frá
og með 1. júní nk. til 31. desember 2021. Ríkið semur við
lánastofnanir sem skipta með sér til helminga vaxta-
kostnaði vegna aðgerðanna. Lánstími lengist til jafns við
lengd frystingar.
Almennar lausnir fyrir ferðaþjónustuna:
Markmið: Að gera ferðaþjónustufyrirtækjum kleift að
leggjast í dvala til að geta risið upp aftur
Öll innlend lán ferðaþjónustunnar verða fryst til loka árs
2021
Aðgerðin nær til allra ferðaþjónustufyrir-
tækja sem hafa orðið fyrir verulegu tekju-
falli vegna heimsfaraldursins. Lán verða
fryst frá og með 1. júní nk. til 31. desember
2021. Ríkið semur við lánastofnanir um að
vaxtakostnaði vegna aðgerðanna verði skipt
til helminga á milli ríkissjóðs og banka.
Greiðslur fasteignagjalda verða frystar í 24
mánuði vaxtalaust
Sveitarfélög frysta allar greiðslur fast-
eignagjalda af öllu húsnæði ferðaþjónustu-
fyrirtækja til 24 mánaða, vaxtalaust. Endur-
greiðsla með 48 jöfnum afborgunum, sú
fyrsta eftir 30 mánuði.
Fyrirtækjum og starfsfólki verði gert kleift
að viðhalda ráðningarsambandi án launa-
greiðslu í allt að 12 mánuði
Úrræðið nær til allra ferðaþjónustufyrir-
tækja og starfsfólks þeirra, sem hafa orðið fyrir veru-
legu tekjufalli vegna áhrifa heimsfaraldursins. Lausn
verður framkvæmd með útvíkkun laga nr. 19/1979, þar
sem atvinnurekandi getur við vissar aðstæður tekið
starfsmann af launaskrá en ráðningarsamningurinn
heldur gildi sínu.
Fyrir öll fyrirtæki:
Tryggingagjaldið verður fellt niður til loka árs 2020
Frá og með 1. júní nk. til 31. desember 2020.
Ríkisstjórnin kýs að taka lítil skref og leggja til flókn-
ar lausnir s.s brúarlánin sem enn eru ekki tilbúin.
Það þarf að hugsa stórt og djarft og þannig eru til-
lögur Miðflokksins.
Gunnar Bragi
Sveinsson
Pistill
Verjum fyrirtækin og störfin – hugsum stórt
Höfundur er þingmaður Suðvesturkjördæmis og
varaformaður Miðflokksins.
gunnarbragi@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
þá eru menn afar óraunsæir,“ sagði
hann við AFP. Vísindamenn við Im-
perial College í London vinna einnig
að því að finna bóluefni gegn kórónu-
veirunni. Hyggjast þeir hefja læknis-
fræðilegar prófanir á fólki í júní.
Indverskt-bandarískt samstarf
Bandarískir vísindamenn vinna
einnig hörðum höndum að þróun bólu-
efnis. BBC hafði fyrir stuttu eftir
Mike Pompeo, utanríkisráðherra
landsins, að Bandaríkjamenn ættu í
samstarfi við Indverja um það. Það
kemur ekki á óvart enda hafa vís-
indamenn landanna átt í samstarfi um
þróun bóluefna gegn ýmsum smit-
sjúkdómum í meira en þrjá áratugi og
náð ágætum árangri.
Indverjar eru einn stærsti framleið-
andi samheitalyfja og bóluefna í heim-
inum. Nokkur indversku lyfjafyrir-
tækjanna vinna að tilraunum að gerð
bóluefnis gegn kórónuveirunni.
Eitt þessara indversku fyrirtækja
er Serum Institute sem framleiðir
stóran hluta af því bóluefni sem notað
er um heim allan. Þetta rúmlega hálfr-
ar aldar gamla fyrirtæki framleiðir á
hverju ári hálfan annan milljarð bólu-
efnisskammta, tuttugu tegundir fyrir
mismunandi sjúkdóma. Fer fram-
leiðslan aðallega fram í tveimur verk-
smiðjum í borginni Pune, en einnig í
verksmiðjum í Hollandi og Tékklandi.
Starfsmenn fyrirtækisins eru um sjö
þúsund. Reynsluboltarnir hjá Serum
eru í hópi þeirra sem vara við of mikilli
bjartsýni á skjótan árangur.
Bóluefnið sem allur
heimurinn bíður eftir
AFP
Bóluefni Um allan heim vinna vísindamenn að því að reyna að finna bólu-
efni gegn nýju kórónuveirunni, sem komist skjótt í framleiðslu og dreifingu.
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Næsta víst er að heimurinnkemst ekki í samt lag fyrren fundið er öruggt bólu-efni gegn nýju kórónuveir-
unni, SARS-CoV-2, sem hrellt hefur
okkur undanfarna mánuði. Ekki vant-
ar viðleitnina því hermt er að um 100
rannsóknarverkefni séu í gangi víðs
vegar um heim sem öll miða að þessu
einu. Sjö þeirra eru komin á það stig að
læknisfræðilegar prófanir á fólki eru
að hefjast eða þegar hafnar. Af einni
rannsókn, sem vísindamenn við Jen-
ner-stofnunina í Oxford-háskóla vinna
að, eru sagðar þær góðu fréttir að bólu-
efni gæti orðið tilbúið til framleiðslu í
haust. Margir vara þó við of mikilli
bjartsýni og til þeir eru vísindamenn
sem eru svo svartsýnir að þeir draga í
efa að bóluefni gegn þessari veiru finn-
ist nokkru sinni, til þess sé hún of flók-
in og óútreiknanleg. Í þeim hópi er
David Nabarro, prófessor við Imperial
College í London.
Læknisfræðilegar tilraunir
En höldum okkur við fréttir sem
vekja vonir um árangur og eru frá
ábyrgum aðilum. Samkvæmt upplýs-
ingum AFP-fréttastofunnar munu
rúmlega ellefu hundruð sjálfboðaliðar
taka þátt í rannsókninni í Oxford. Þeir
eru á aldrinum 18 til 55 ára, eiga að
vera við góða heilsu, hafa ekki fengið
jákvæða niðurstöðu við skimun fyrir
kórónuveirunni og konur í hópnum
mega hvorki vera þungaðar né vera
með barn á brjósti. Fólkið verður bólu-
sett tvívegis með fjögurra vikna milli-
bili.
Sarah Gilbert prófessor, sem fer fyr-
ir rannsóknarteyminu, kveðst vonast
til þess að ná 80% árangri út úr tilraun-
inni. Gangi það eftir verði hægt að
hefja framleiðslu á milljón skömmtum
bóluefnisins þegar í september á þessu
ári.
Landlæknir Breta, Chris Whitty,
varar þó við of mikilli bjartsýni. Sjálfur
var hann frá vinnu um skeið eftir að
hafa smitast af kórónuveirunni. „Ef
menn trúa því að það gerist á auga-
bragði að við flytjumst úr núverandi
útgöngubanni og yfir í það ástand sem
ríkti áður en veiran kom til sögunnar,
Dagana 24. til 30. apríl er al-
þjóðleg vika bólusetninga.
WHO segir að árangursríkar
bólusetningar séu ein helsta
skrautfjöður læknavísindanna
á heimsvísu. Á hverju ári séu
meir en 116 milljónir eða 86%
allra smábarna bólusett. Hins
vegar séu 13 milljónir það
ekki. Mikill meirihluti búi í
stríðshrjáðum eða fátækum
löndum. Jafnvel þegar best
lætur sé erfitt að ná til þessa
fólks en nú þegar COVID-19
bætist ofan á sé það enn erf-
iðara. Eftir því sem bólusetn-
ingum fækkar, fjölgar far-
öldrum, þar á meðal á
lífshættulegum sjúkdómum á
borð við mislinga og lömunar-
veiki. WHO varar við því að
vanrækja aðra smitsjúkdóma
núna: „Aðgangur að bóluefni
hefur breytt samfélögum okk-
ar til hins betra, en þetta eru
lífsgæði sem verður að við-
halda til þess að þau verði
varanleg, jafnvel á erfiðum
tímum,“ segir WHO.
Skrautfjöður
læknisfræða
VIKA BÓLUSETNINGA