Morgunblaðið - 29.04.2020, Síða 18

Morgunblaðið - 29.04.2020, Síða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2020 Árið 1920 fóru sjö- undu sumarólymp- íuleikarnir fram í Ant- werpen í Belgíu. Við Íslendingar áttum einn keppanda á leikunum, Jón Kaldal langhlaup- ara, sem að vísu keppti undir fána Danmerkur. Hins vegar áttum við fulltrúa afkomenda Ís- lendinga sem fluttu til Kanada. Það voru leikmenn Fálkanna frá Winnipeg sem kepptu fyrir hönd Kanada í ís- knattleik eftir að hafa orðið meistarar áhugamannaliða í ísknattleik 1920. Ísknattleikur var meðal nýrra keppnisgreina á leikunum, en ekki var byrjað að keppa á sérstökum vetr- arleikum fyrr en 1924. Keppnin fór fram í skautahöll Antwerpenborgar í lok apríl. Sex þjóðir tóku þátt í ísknatt- leik á þessum leikum auk Kanada- manna; Bandaríkjamenn, Belgar, Frakkar, Svisslendingar, Svíar og Tékkar. Keppt var í tveimur riðlum. Fyrsti leikur Fálkanna var á móti Tékkum sem þeir gerðu sér lítið fyrir og unnu 15-0! Næsti leikur Fálkanna var við Bandaríkjamenn sem þeir unnu einnig 2-0. Fálkarnir léku gegn Sví- um í lokaleiknum sem þeir unnu auðveldlega 12-1 þann 26. apríl 1920. Þegar Svíar skoruðu eina mark sitt á móti þeim – sem var reyndar eina markið sem Fálkarnir fengu á sig á Ólympíu- leikunum – þustu allir leikmenn Svíþjóðar að leikmönnum Fálkanna og þökkuðu þeim fyrir að leyfa sér að skora. Í grein í Winnipeg Free Press 1964 segir að Konnie Johanneson hafi látið draum Svía um að fagna marki verða að veruleika þegar hann stýrði pökknum með öðrum skautanum í eig- ið mark. Bandaríkjamenn urðu í öðru sæti, Tékkar í því þriðja og Svíar í fjórða sæti. Allir leikmenn Fálkanna sem kepptu á Ólympíuleiknum 1920 nema einn áttu íslenska foreldra. Sigurdur Franklin (Frank) Frederickson, fyrirliði og mið- herji. Foreldrar hans voru Jón Vídalín Friðriksson Davíðssonar frá Hvarfi í Víðidal og Guðlaug S. Sigurðardóttir Guðlaugssonar frá Stapaseli í Stafholt- stungum. Frank var tekinn inn í Íþróttafrægðarsetur Manitoba og Íþróttafrægðarsetur Kanada. Jacob Valdimar Björnsson markvörður. For- eldrar hans voru Björn Björnsson frá Þórormstungu í Víðidal í Húnavatns- sýslu og Margrét Kristmannsdóttir frá Bjargi í Miðfirði. Halldór Hall- dórsson, hægri kantmaður. Foreldrar hans voru Halldór Stefán Halldórsson frá Miklaholti og Jórunn Chrisolina Jónsdóttir frá Hjarðarfelli. Magnús (Mike) Goodman, vinstri kantmaður. Hann var sonur Gísla Guðmundssonar Goodman og Ólafar Björnsdóttur Hall- dórssonar frá Úlfsstöðum í Loðmund- arfirði. Hann var kallaður skýstrókur liðsins og sagt að hann skautaði hraðar aftur á bak en nokkur annar komst áfram. Hann var heiðraður á vetraról- ympíuleikunum í Calgary 1988. Kon- ráð (Konnie) Jónasson Jóhannesson varnarmaður. Foreldrar hans voru Jónas Jóhannesson frá Geiteyjar- strönd í Mývatnssveit og Rósa Ein- arsdóttir frá Húsavík. Konráð starf- rækti flugskóla í Winnipeg og á meðal nemenda hans voru íslenskir flug- menn, þ. á m. stofnendur Loftleiða. Róbert John „Bobby“ Benson varn- armaður. Foreldrar hans voru Bene- dikt Jóhannesson frá Naustavík í Köldukinn í Þingeyjarsýslu og Rósa Guðmundsdóttir frá Vatnakoti í Eyja- fjarðarsýslu. Chris (Kristján) Rosant Friðfinnson sóknarmaður. Foreldrar hans voru Jón Friðfinnsson frá Þor- valdsstöðum í Breiðdal og Anna Sig- ríður Jónsdóttir frá Þverá í Eyjafirði. Allan Huck Woodman, eini leikmaður Fálkanna sem ekki var af íslenskum uppruna en hann var af enskum ætt- um. Í Lögbergi 29. apríl 1920 eftir leik- ana stóð að menn hefðu verið sann- færðir um að „þessir Íslendingar hefðu til að bera hreysti, listfengi, hugrekki, staðfestu og óbilandi viljaþrek til þess að sigra í kappleiknum, landi sínu, þjóð sinni og sjálfum sér til sóma“. Gull- drengjunum var fagnað sem þjóðhöfð- ingjum við komuna til Montreal og To- ronto. 22. maí var gefið frí hálfan daginn í Winnipeg svo heimamenn gætu hyllt hetjurnar þegar þær óku sigurhring í opnum bílum í miðbænum. Fálkarnir voru teknir inn í heið- urshöll Íþróttasambands Manitoba og heiðurshöll íshokkísambands fylk- isins 1980. Varanleg sýning um Fálk- ana var opnuð í MTS-höllinni í Winni- peg 2004 og er hún nú í húsakynnum Íþróttasambands Manitoba. Þeir voru teknir inn í heiðurshöll kan- adísku ólympíunefndarinnar 2006 og Frank Fredrickson auk þess einn og sér rétt eins og í heiðurshöll Íþrótta- sambands Manitoba. Mikið hefur birst um Fálkana, bæði hérlendis og ekki síst í vest- uríslenskum blöðum og tímaritum, en auk þess hafa komið út bækur um þá. „Saga þeirra er eins og Íslend- ingasaga til forna. Hópur manna, sem ekki eru taldir líklegir til afreka, sigr- ast á öllum hindrunum og nær ótrú- legu takmarki, æðstu verðlaunum heims,“ sagði David Square við Morg- unblaðið skömmu áður en bók hans When Falcons Fly kom út 2007. Samtök íslenskra ólympíufara hafa sent félögum okkar í Kanada heilla- óskaskeyti í tilefni þessa aldar- afmælis svo og Íslendingafélaginu í Winnipeg. 100 ár frá Ólympíuleikunum í Antwerpen 1920 og gullverðlaunum Fálkanna frá Winnipeg í ísknattleik Eftir Jón Hjaltalín Magnússon » Allir leikmenn Fálkanna sem kepptu á Ólympíu- leiknum 1920 nema einn áttu íslenska foreldra Jón Hjaltalín Magnússon Höfundur er formaður Samtaka íslenskra ólympíufara. jhm@simnet.is Þessi pistill hefur ekkert með það að gera að látið sé að því liggja að sigla eigi öllum skuldsettum ferðaþjón- ustufyrirtækjum og heimilum í þrot. Þó svo ferðaþjónustan skipti þjóðina miklu máli eru engu að síður takmörk fyrir hversu stjórnlaus og óábyrg uppbygging á sér stað. Það er löngu orðið tíma- bært að landinu sé stýrt með ábyrg- um hætti og dregið úr bákninu og yf- irbyggingu til að ná hagræðingu í ríkisbúskapnum. Ef að líkum lætur mun endurreisn nágrannalandanna eiga sér stað mun fyrr en á Íslandi eins og eftir bankahrunið, stærsta ástæða fyrir því er skuldsetning þjóðarinnar. Það eykst í sífellu að almenningur sýni ekki samfélagslega ábyrgð þeg- ar horft er til kennitöluflakks og óábyrgrar hegðunar hvert sem er lit- ið. Skattborgarar eiga síðan þegar illa fer að koma og bjarga vonlausum fyrirtækjum og heimilum sem ítrek- að steypa sér í vandræði ásamt fjár- glæframönnum. Það er ekki nóg að skrúfa upp fasteignaverð, sem heim- ilin nýttu sér með endurfjármögnun og hærri lántöku, og síðan er látið í veðri vaka að heimili landsins séu ekki eins skuldsett og áður. Stjórn- völd þurfa að skapa aðhald og stöð- ugleika til lengri tíma og fyrirbyggja þenslu og skyndilausnir þar sem hús- næðismarkaður síðustu áratuga hef- ur verið eins og rússnesk rúlletta. Þó svo að þjóðin sé að fara í gegn- um miklar efnahagsþrengingar og það eigi að reyna að halda lífinu í hálfgjaldþrota fyrirtækjum til að at- vinnulífið nái viðspyrnu eru takmörk sett hvað sé langt gengið og réttlæti til aðstoðar. Það ber að greina vand- ann hjá einstaka ferðaþjónustu- fyrirtækjum áður en frekari fjár- hagsaðstoð er veitt, dugi hlutabóta- leiðin ekki til. Það er með öllu óraun- hæft og óboðlegt að skattborgurum sé sendur reikningur ferðaþjónust- unnar, sem var löngu komin í fjár- hagsvandræði áður en COVID-19 lét á sér kræla. Vítaverð uppbygging og græðgi átti sér stað. Stjórnvöld láta stýrast í fordæma- lausum aðstæðum af fljótfærni, taugaveiklun og ábyrgðarleysi til að takast á við sjálfskap- arvíti undangenginna ára. Það er ekki sjálf- gefið að ytri aðstæður verði gjöfular næstu ár- in sé litið til efnahags- þrenginga innan sem utan lands auk þess sem þjóðin hefur verið rænd helstu tekjulind sjávarafurða, í boði stjórnvalda. Innan nokkurra vikna eru miklar líkur á því að þjóðinni verði einnig gert að halda Icelandair uppi með milljarða ríkisábyrgðum og öðrum fjáraustri. Mjög hefur gengið á eigið fé undanfarið og vart annað að sjá en félagið sé orðið ósjálfbært ofan í að vélarnar eru óhagkvæmar. Sé félagið svo mikils virði að það sé réttlæt- anlegt að endurreisa það hlýtur hlutabréfamarkaður að gera það. Það er vandséð að íslenskir lífeyrissjóðir réttlæti að spýta meira fjármagni í félagið, skellurinn verður væntanlega nógur samt. Í það minnsta bætir ekki ástandið í heiminum rekstrarhorfur Icelandair. Það er mikil einföldun að halda að endurreisn ferðaþjónustu eigi sér ekki stað nema ríkissjóður skuldbindi sig upp í rjáfur. Tóm hótel hverfa ekkert og önnur flugfélög aðlaga sig að markaðinum og þar að auki er nægur tími til að endurskipuleggja ferðaþjónustuna þar til túristinn snýr aftur í einhverjum mæli. Þjóðin ætti að íhuga hvernig komið væri fyrir henni hefðu skuldir WOW air lent á herðum skattborgara þar sem félagið var yfirveðsett og átti aldrei mögu- leika á að verða sjálfbært. Það er ekki auðvelt að horfa upp á eða leggja til að þúsundir manna missi lífsvið- urværi sitt, engu að síður þarf stund- um að eiga sér stað kalt mat og líta til heildarhagsmuna. Það eru takmörk fyrir því hverju pínulítið hagkerfi stendur undir. Tugmilljarða ríkisábyrgð til ferða- þjónustunnar ofan á aðrar aðgerðir eru óforsvaranlegar sé slík ábyrgð ekki skilyrt, t.d. sem hlutafé, þar sem skattgreiðendur taka við reikn- ingnum ef illa fer. Stjórnvöld virðast hafa gleymt milljarða ríkisaðstoð þegar bótasjóður Sjóvár var rændur innan frá og þjóðin fékk síðan putt- ann þegar félagið stuttu síðar gat greitt feitar arðgreiðslur. Það er ekki sjálfgefið að lánalínur til Íslands verði opnar þegar greiðslugeta og gjaldeyristekjur eru skoðaðar ef skyldi þrengja enn meira að ásamt heimsbyggðinni. Þjóðin er að takast á við fordæmalausa erfiðleika og ótraustan gjaldmiðil, sem verður verðminni með hverjum deginum sem líður þar sem skuldir lands- manna stíga upp og fasteignaverð sígur. Þó svo að Seðlabanki Íslands lækki stýrivexti niður í núll % munu slíkar aðgerðir breyta takmörkuðu fyrir þúsundir fyrirtækja og heimila, sem eru með fasta vexti af sínum skuld- um. Vaxtastefna Seðlabankans síð- ustu ár gefur fullt tilefni til að þjóðin íhugi á hvaða vegferð hún hefur verið árum saman. Það er löngu orðið tímabært að viðurkenna vandann og greina af hverju allt fer á hliðina öll- um stundum. Það er einnig full ástæða til að íhuga að þegar það fór að myndast skortur á sóttvarnabúnaði innan Evr- ópu varðandi Covid-19 var takmark- aður vilji í heiminum til að aðstoða þjóð (Ítalíu) í nauð. Þá er hver sér næstur og ekkert sjálfgefið í þeim efnum. Það er löngu kominn tími til að Íslendingar geri sér grein fyrir hversu dýrkeypt óábyrgt háttalag getur orðið. Þjóðin hefur almennt ekki séð sér fært undanfarin ár að nýta sér veit- inga- og hótelgistingu vítt og breitt um landið vegna svívirðilegrar verð- lagningar. Það er löngu orðið tíma- bært að dregið sé úr óhóflegu flæði ferðamanna þar sem innviðir bera ekki þann fjölda sem hefur sótt land- ið heim seinni árin og ógnar lífi og ör- yggi landans sem og ferðamanna. Takmörk fyrir hve miklum klyfjum hægt er að varpa á skattborgara Eftir Vilhelm Jónsson » Það er með öllu óraunhæft og óboð- legt að skattborgurum sé sendur reikningur ferðaþjónustunnar, sem var löngu komin í fjár- hagsvandræði áður en COVID-19 lét á sér kræla. Vilhelm Jónsson Höfundur er fjárfestir. Í hagfræði er verð- bólga almenn verð- hækkun á vöru og þjón- ustu í efnahagslífinu yfir tiltekinn tíma. Venja er að skilgreina verðbólgu sem breyt- ingu á meðalverði vöru og þjónustu í neyslu- körfu sem end- urspeglar neyslu- samsetningu heimilanna. Við eðlileg- ar aðstæður er verðbólga í raun mæl- ing á neysluaukningu sem verður vegna aukins hagvaxtar eða peninga- framboðs (útlán banka). Verðvísitala er mælikvarði á breytingar á verði í neyslukörfu frá einu tímabili til annars. Á Íslandi mælir Hagstofan verðbreyt- ingu á þessum útgjöldum heimilanna í svonefndri Vísitölu neysluverðs (VNV). Þessi vísitala er handhægasta mælingin við eðlilegar aðstæður á verðbólgu og Hagstofan birtir breyt- ingar á henni mánaðarlega. Þessi sama vísitala er einnig notuð til verðtrygg- inga á lánum og er eitt helsta tæki Seðlabankans til vaxtaákvarðana. Þessi neysluútgjöld allra heimila í landinu sem Hagstofan mælir mynda „einkaneysluna“ sem er aftur hluti landsframleiðslunnar og mælir hag- vöxt í landinu. Verðhækkanir eru ekki neysluaukning Við veirufaraldurinn núna hefur gengið lækkað og heyrst hefur af tals- verðum hækkunum á erlendum að- föngum og ljóst er að þessi einstaki at- burður leiðir til talsverða verðhækkana í krónum á innfluttri vöru. Því til við- bótar verða eflaust hækkanir á verði margskonar þjónustu. Slík skyndileg hækkun fer inn í mælingu neyslu- vísitölu Hagstofunnar. Ekki er víst að við þessar aðstæður verði um aukna eftirspurn ræða og því geti útreiknuð einkaneysla ekki talist eðlileg verð- bólga í hagfræðilegum skilningi, en mun engu að síður ráða mestu í sjálf- virkri mælingu á verðbólgu vegna að- ferðafræði Hagstofunnar. Mistök í fjármálahruninu Í kjölfar fjármálahrunsins (2008- 2011) mældi Hagstofan verðlag (neysluvísitölu) en einnig raunveruleg útgjöld heimilanna. Nið- urstaðan var sláandi. Vísitalan hafði hækkað um 38% en útgjöld heim- ilanna um 11,5%. Í út- gjöldunum kom fram hin raunverulega neyslu- minnkun. Þar birtust viðbrögð heimilanna við verðhækkunum og minni tekjum í samdrætti í lúx- usvörum eins og bílum o.fl. Engu að síður ákváðu stjórnvöld að slík 38% reiknuð verðlags- vísitala neysluverðs, en ekki raunveru- leg neysla, réði við útreikning verð- tryggða fjármálagerninga. Allir vita að sú ákvörðun stórjók skuldir al- mennings sem voru færðar lán- ardrottnum og ollu tugþúsundum heimila miklu tjóni. Þessi aðferðafræði við mælingu á verðbólgu gaf ranga mynd af efnahagslegum raunveru- leika. Hvað munu Seðlabankinn og stjórnvöld gera? Það var með ólíkindum í kjölfar bankahrunsins að stjórnvöld og ASÍ ákváðu að nota þessa fölsku verð- bólguútreikninga til að bjarga fjár- málageiranum á kostnað almennings. Afleiðingar þess urðu vantraust á Al- þingi og stjórnmálamenn og hefur ekki gróið um heilt þó áratugur sé lið- inn. Munu stjórnvöld endurtaka leik- inn í þessu veiruhruni með sömu hag- fræðilegu fölsku rökum sem hækka verðtryggðar skuldbindingar og færa fjármagnið aftur frá heimilum og fyr- irtækjum til fjármálafyrirtækja, eða munu þau tryggja að falskir verð- bólguútreikningar vegna for- dæmalausra atburða, setji ekki skuldaklafa á heimilin ofan á tekju- missi þeirra? Fölsk verðbólga – Fölsk verðtrygging Eftir Sigurbjörn Svavarsson Sigurbjörn Svavarsson »Munu stjórnvöld tryggja að falskir verðbólguútreikningar vegna fordæmalausra atburða setji ekki skuldaklafa á heimilin ofan á tekjumissi þeirra? Höfundur er framkvæmdastjóri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.