Morgunblaðið - 29.04.2020, Page 25

Morgunblaðið - 29.04.2020, Page 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2020 „FRÓÐLEIKSMOLAR.” „ÉG VEIT EKKI ALVEG MEÐ ÞESSA!” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... aldrei of gömul. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann OG ÞÁ ER KOMIÐ AÐ VEÐURFRÉTTUM ÉG MYNDI EKKI SEGJA AÐ VEÐRIÐ SÉ SLÆMT, EN … ÞAÐ TEKUR ÞVÍ EKKI AÐ FARA Á FÆTUR JESSSS! EINHVERJIR LANGVINNIR SJÚKDÓMAR ? NEI, ÉG MYNDI ALDREI SKULDBINDA MIG Í NEINA VINNU! hólmi. Sambýliskona: Maria- Theresa Rider; 4) Helgi, f. 20.12. 1982, verkfræðingur hjá Verkís. Eiginkona: Anní Gerða Jónsdóttir. Börn þeirra eru Jón Trausti, Ingi- björg Lilja og Sigrún Sara; 5) Hlynur, f. 20.12. 1982, dr. í líffræði og starfar hjá Hafrannsóknastofn- un. Eiginkona: Helga Ýr Erlings- dóttir. Börn þeirra eru Kristín Edda, Margrét Una og Örn Kári. Systkini Sigríðar eru Elísabet, f. 16.9. 1952, Hjörleifur Kristinn, f. 7.8. 1955 og Aðalheiður, f. 20.11. 1964. Foreldrar Sigríðar: hjónin Krist- jana Kristjánsdóttir, f. 11.12. 1929, d. 19.12. 2016, húsmóðir og verka- kona í Hnífsdal, og Jens Guð- mundur Hjörleifsson, f. 13.11. 1927, fyrrverandi fiskmatsmaður, nú bú- settur á Selfossi. Sigríður Jensdóttir Steindór Jón Gíslason bóndi á Leiru og verkamaður í Hnífsdal Sigurborg Márusdóttir húsfreyja á Leiru í Grunnavíkurhr. og í Hnífsdal Hjörleifur Kristinn Steindórsson sjómaður og fiskmatsmaður í Hnífsdal Elísabet Þórarinsdóttir húsfreyja í Hnífsdal Jens Guðmundur Hjörleifsson fiskmatsmaður í Hnífsdal Þórarinn Pálsson bóndi á Hrafnabjörgum og vinnumaður víða Kristín Sigurðardóttir húsfreyja á Hrafnabjörgum í Laugardal,N-Ís., og vinnukona víða Ólöf Guðrún Gísladóttir húsfr. á Hyrningsstöðum í Reykhólasveit Tryggvi Tryggvason kennari og söngvari í Rvík Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri í Árborg Einar Steindórsson frkvstj. Hraðfrystihússins í Hnífsdal Steindór Hjörleifsson leikari Kári Söebeck Kristjánsson vélstjóri í Reykjavík Kristín Káradóttir skrifstofum. í Rvík Katrín Gísladóttir fv. skrifstofum. á Ísafirði Helgi Björnsson leikari og söngvari Sigurður Hlöðversson útvarps- maður Gísli Júlíusson skipstjóri á Ísafirði María Gísladóttir fv. leikskólakennari á Ísafirði Ragnheiður Steindórsdóttir leikkona Jón Þórðarson bóndi og söðlasmiður í Laxárdal, síðast á Ísafirði Hjálmfríður Árnadóttir húsfreyja í Laxárdal á Ströndum, síðast áAkranesi Kristján Söebeck Jónsson bóndi á Kirkjubæ og verkam. áAkranesi Sigríður Ingibjörg Tryggvadóttir húsfreyja á Kirkjubæ í Skutulsfirði Tryggvi Ágúst Pálsson b. og kennari á Kirkjubóli Kristjana Sigurðardóttir húsfr. á Kirkjubóli í Skutulsfirði Úr frændgarði Sigríðar Jensdóttur Kristjana Kristjánsdóttir húsmóðir og verkakona í Hnífsdal Bragi V. Bergmann sendi mérskemmtilegt bréf í síðustu viku. Í því stendur: „Krafta- og galdrakveðskapur er gjarnan kall- aður áhríns- eða áhríniskveð- skapur; ákvæðavísur eru líka nefndar í þessu sambandi. Ég hef ákveðið að láta á það reyna hvort ég geti bæst í fríðan flokk krafta- skálda. Ég sýndi gul og rauð spjöld á knattspyrnuvellinum á árum áður ef tilefnið var ærið.“ Bréfinu lýkur svo: „Til veirukvik- indisins yrki ég beint – og bý til nýtt blótsyrði um leið (sem er mun skemmtilegra en hið hroðalega F- orð sem náði fótfestu í búsáhalda- byltingunni og lifir góðu lífi æ síð- an)“: Þú, sem að engu vilt eira, allt vilt á heljarþröm keyra: Í sædjúpið salt sökkva þú skalt, þú CÓVÍD-is kórónuveira! „Og svo er bara að bíða og vona það besta!“ Jón Jóhannsson orti í byrjun far- aldurs: Nú bíður oss sultur og seyra. Af sóttinni ljótt er að heyra. Um heim allan heldur og hryllingi veldur þessi krúttlega kórónuveira. Friðrik Steingrímsson skrifaði í Leirinn á sunnudagskvöld: „Seinni- partinn í dag reyndi ég að senda mynd ásamt vísu inn á leir úr sím- anum mínum, sem trúlega hefur ekki lukkast. Vísan var svona“: Sólin baðar bæinn minn burt er horfinn tregi, þett’er lífið maður minn á miðjum sunnudegi. Áður hafði hann ort þessa fallegu vorvísu: Upp til hlíða birkið brumar bátar halda fram á sjó, kveður vetur komið sumar kvaka fuglar úti í mó. Gamall og nýr sannleiki, - Jón Helgi Arnljótsson yrkir: Aftur hefur okkur hent ólán stórt á landi hér og væri gott að geta kennt Geir um það sem miður fer. Kötturinn Jósefína Meulengracht Dietrich yrkir: Þegar fressin þykjast breið þá má jafnan búast við að kjánalega kjaftagleið komi þau sér upp á svið. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Krúttleg kórónuveira og gamaldags sími Bláa stellið er komið Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi Opið virka daga kl. 12-18, lokað laugardaga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.